Morgunblaðið - 12.10.1990, Page 3

Morgunblaðið - 12.10.1990, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990 3 Fréttir úr fj árlagaf r um varpi ■ HEIMILD til fjármálaráð- herra til að kaupa hverasvæði Geysis í Haukadal er í fjár- lagafrumvarpinu. Einnig er heimild til að kaupa húseignir í nágrenni við Menntaskólann í Reykjavík og að kaupa hús- eignir og lóðir í nágrenni Arn- arhvols í Reykjavík fyrir Stjórnarráð íslands. ■ BYGGÐASTOFNUN fær 250 króna framlag úr ríkissjóði á næsta ári, samkvæmt fjár- lagafrumvarpinu, og er það 54 milljónum og 28% hærra fram- lag en á fjárlögum síðasta árs. í frumvarpinu segir, að þrátt fyrir þetta sé eiginfjárstaða stofnunarinnar veik, og á næstu vikum þurfi að kanna með hvaða hætti hana megi styrkja. ■ HÁSKÓLI ÍSLANDS fær 1.434 milljónir króna í sinn hlut á næsta ári, samkvæmt ijár- lagafrumvarpinu, og hækkar framlagið um 134 milljónir eða 10% frá síðustu ijárlögum. Hækkunin umfram verðlags- breytingar stafar m.a. af til- flutningum, leiðréttingu fastra launa og yfirvinnu, aukinni íjárveitingu vegna nýrrar starf- semi og íjölgunar stundakenn- ara á föstum lektorslaunum. ■ HÁSKÓLINN Á AKUR~ EYRI fær 98,5 milljónir króna í sinn hlut, sem er 35% hækkun frá síðustu ijárlögum. Þar er gert ráð fyrir áframhaldandi eflingu á skólastarfi sem þýðir útgjaldaauka, og endurbótum á húsnæði. ■ ÞJÓÐARBÓKHLAÐAN fær 100 milljónir króna úr Endurbótarsjóði menningar- stofnana, og er stefnt að því að Ijúka 11. áfanga byggingar- innar og halda áfram hönnun 12. áfanga. Tekjur Endurbóta- sjóðsins koma frá sérstökum eignarskatti sem áður átti að renna til byggingar Þjóðarbók- hlöðunnar en skal nú standa straum af kostnaðir við endur- bætur á húsakosti menningar- stofnana og stuðla að verndun gamalla bygginga í eigu ríkis- ins. Tekjur eru áætlaðar 335 milljónir á næsta ári, og er lagt til að 75 milljónir renni til Þjóð- leikhússins,, 100 milljónir til Þjóðarbókhlöðu, 10 milljónir til Þjóðminjasafnsins, og 150 milljónum verði skipt af Alþingi milli framkvæmda við Bessa- staði og Þjóðarbókhlöðu. r ■ FIMM STÖRF hafa bæst við hjá Vinnueftirliti ríkisins og samkvæmt fjárlagafrum- varpinu komust starfsmennirn- ir inn bakdyramegin. Þessir fimm starfsmenn voru upphaf- lega ráðnir til tímabundinna verkefna án heimildar í fjárlög- um en hafa nú áunnið sér rétt- indi ríkisstarfsmanna eftir tveggja ára samfellt starf. ■ HEILBRIGÐISRÁÐU- NEYTI áætlar að 5-600 millj- ónir króna sparist í lyfjakostn- aði á næsta ári. Er gert ráð fyrir að ná þeim sparnaði með breyttu skipulagi á innflutingi og dreifingu lyfja, lækkaðri álagningu í heildsölu og smá- sölu og breyttu skipulagi á kostnaðarþátttöku notenda í lyijakostnaði. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kíkí kíkir á Húsdýragarðinn Jóhanna Lind Magnúsdóttir með páfagaukinn Kíkí í Húsdýragarðinum í Laugardal. Kíkí er í einkaeign en heldur sig í garðinum á daginn. Á nóttunum sefur hann hins vegar í svefnherbergi eigandans. Kíkí goggar alltaf í eyrnasnepilinn á honum á morgn- ana til að fá að kúrá undir sænginni hjá honum í klukkutíma. Kíkí var veiddur villtur í Ástralíu en kom með búslóð frá Danmörku fyrir nokkrum árum. Salan á Hafþóri RE; Rætt við Tog- araútgerð Vestfjarða hf. Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að ræða við Togaraút- gerð Vestfjarða hf. um kaup á Hafþóri RE, skipi Hafrannsókna- stofnunar en fyrirtækið bauð 200 milljónir króna í skipið. Fyrir- tækið býður 50 milljóna króna útborgun og ráðuneytið hefur veitt því frest fram á fimmtudag til að leggja fram bankatrygg- ingu fyrir 50 milljónum en ráðu- neytið - samþykkir 100 milljóna króna veð í skipinu sjálfu. Rækjuvinnslunni Dögun hf. á Sauðárkróki tókst ekki að leggja fram bankatryggingu vegna tilboðs fyrirtækisins í Hafþór RE. Dögun bauð 212 milljónir króna í skipið og 48 milljóna króna útborgun. Sjávarútvegsráðuneytið samþykkti 100 milljóna króna veð í skipinu og vildi að fyrirtækið legði fram bankaábyrgð fyrir 64 milljónum. Bæjarsjóður ísafjarðar á 42% hlut í Togaraútgerð Vestijarða hf., íshúsfélag ísfirðinga 32%, Kaupfé- lag ísfirðinga 12% og ýmsir ein- staklingar 4%. Félagið á hins vegar 14% hlut í íshúsfélagi ísfirðinga og ætlunin er að opna það öðrum út- gerðar- og fiskvinnslufyrirtækjum. Davíð Oddsson um álverssamninginn: Ríkisstjómin sem heild verður að samþykkja málið áður en Landsvirkjun gengur frá því STJÓRN Landsvirkjunar samþykkti á fundi sínum í gær svohljóð- andi ályktun: „Eins og margoft hefur komið fram er ríkur vilji fyrir því í stjórn Landsvirkjunar að unnið sé að því að orka fall- vatna landsins nýtist til uppbyggingar stóriðju á Islandi. Því hafa stjórnarmenn Landsvirkjunar fagnað þeim áhuga sem erlend stór- iðjufyrirtæki hafa sýnt á því að reisa hér álbræðslu sem keypti orku sína af Landsvirkjun. Gefið hefur verið til kynna að ráðgjafarnefnd á vegum iðnaðar- ráðherra hafi þegar lokið sanmingum um öll meginatriði samninga sem gera þurfi svo hefjast megi handa um virkjunarframkvæmdir og byggingu verksmiðju. I ljós hefur komið að meginatriði slíkrar samningsgerðar, orkusölusamningurinn, er miklu skemur á veg kominn en haldið hefur verið að almenningi. Ljóst er að slíkur málatilbúnaður og opinber umræða af því tagi sem í kjölfarið hef- ur fylgt, hefur veikt samningsstöðu Landsvirkjunar gagnvart hinum erlendum viðsenyendum nú þegar málið er Ioks komið í hendur þess aðila sem með orkusamninginn á að fara, þ.e. stjórnar Lands- virkjunar. Stjórn Landsvirkjunar voru fyrst á fundi í dag formlega kynnt drög að orkusamningi, þótt ljóst sé að margvísleg slík gögn hafa þegar gengið á milli aðila. Óhjákvæmilegt er að stjórnin kynni sér rækilega þessar upplýsingar, og um leið nýjar álitsgerðir sem hún hefur falið starfsmönnum fyrirtækisins að vinna í hennar hendur. í framhaldi af því mun stjórn Landsvirkjunar ákveða næstu skref af sinni hálfu í þágu málsins í þeirri þröngu stöðu sem henni hefur verið komið í af hálfu ráðuneytisins." Atriði varðandi áhættu Landsvirkjunar ófrágengin Davíð Oddsson sagði um þetta við Morgunblaðið, að stjórn Lands- virkjunar teldi í sjálfu sér að ráð- gjafarnefndin undir forustu Jó- hannesar Nordals hafi unnið ágætt starf varðandi samningsgerðina í heild. „En hvað orkusölusamning- inn snertir eru gífurlega mörg at- riði þar ófrágengin, atriði sem eru afar mikilvæg vegna eðlis þessarar samningsgerðar og þá á ég einkum við þá áhættu sem gert er ráð fyr- ir að Landsvirkjun taki, nái þessir samningar fram að ganga. Og á meðan þessi meginatriði liggja ekki fyrir, er ekki hægt að heldur liggi fyrir endanlegar tölur um verð á orkueiningu, afsláttartíma og annað þess háttar,“ sagði Davíð. Þegar Davíð var spurður nánar um ástæður þeirrar gagnrýni á vinnubrögð iðnaðaráðherra sem felst í ályktuninni, sagði hann að af hálfu iðnaðarráðuneytisins hefðu menn frekar kosið að halda málinu á lofti, sjálfum sér til dýrð- ar, heldur en að tryggja að málið yrði unnið til fullnustu áður en því væri veifað út um borg og bý. Þegar Davíð var spurður hvort hann teldi að draga þyrfti úr áhættu Landsvirkjunar af orku- söluamningnum, sagði hann að út af fyrir sig gæti Landsvirkjun tek- ið áhættu i því skyni að hleypa hér lífi í efnahag landsins. „En það verður að setja takmörk og þá að ganga eins vel frá tryggingu og frekast er kostur. En lífið er að einhveiju leyti áhætta og við í stjórn Landsvirkjuanr tökum þátt í því. En þarna er verið að véla um mjög stóra hagsmuni og lands- menn allir verða ábyrgir fyrir mjög stórum lántökum á vegum fyrir- tækisins og þess vegna er nauðsyn- legt að fara rækilega í málið. Áuk þess verður ríkisstjórnin sem heild að samþykkja málið endanlega áður en Landsvirkjun gengur frá þvi,“ sagði Davíð. Páll Pétursson formaður þing- flokks Framsóknarflokksins lýsti fyrstur stjórnarmanna yfir stuðn- ingi við ályktunina, eftir að Davíð lagði hana fram. Hann sagði við Morgunblaðið, að lesa. mætti út úr ályktuninni að stjórn Lands- virkjunar væri ekki ánægð með málsmeðferð iðnaðarráðherra. Nú yrði haldið’ áfram að fjalla um málið og bræða saman orkusölu- samning. Hann sagðist ekki vilja útiloka að hægt væri að ná fram breytingum á þeim samningsdrög- um sem nú liggja fyrir, en fjöl- mörg atriði væru þar ófrágengin og þörfnuðust nánari skoðunar. Margvíslegui' misskilningur í samþykktinni Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra sagðist telja það ánægjulegt að í stjórn Landsvirkjunar kæmi fram ríkur vilji til að unnt sé að virkja orku fallvatnannatil uppbyggingar stóriðju, en fyrirtækið hefði raunar verið stofnað um það verkefni. „Hitt finnst mér lakara að í þessari samþykkt gætir margv- íslegs misskilnings um stöðu samn- ingaviðræðnanna um álverið og orkusölusamning í því sambandi. Það er alls ekki rétt að af minni hálfu eða ráðuneytisins hafi verið gefið annað til kynna um stöðu þeirra samninga en efni standa til. Það er enn fjær lagi að málatil- búnaður samninganna hafi veikt stöðu Landsvirkjunar. Og enn fjær sanni að málið sé nú fyrst að kom- ast í hendur stjórnar Landsvirkjun- ar. Það rétta er auðvitað að efnis- lega og formlega hefur verið ijallað um málið á mörgum stigum þess, um margra mánaða skeið og jafn- vel árabil. Samningsaðferðin hefur verið mjög í því fari sem tíðkast hefur í fyrirtækinu. í undirbúning- sviðræðum og samnignaviðræðum um orkusölusamning hafa einkum stjórnarformaður, forstjórinn og aðstoðarforstjórinn, tekið þátt ásamt forstöðumönnum tækni- deilda og lögfræðingum Lands- virkjunar. Enginn hefur véfengt •umboð þessara manna eða haft til þess nokkra ástæðu. Ég veit reyndar að þeir hafa kynnt málið ítrekað, og skýrasta sönnun þess er að í júlí var tekin ákvörðun í stjórn Landsvirkjunar að ráðast í nauðsynlegar undii'bún- ignsframkvæmtir vegna þeirra virkjana sem í þarf að ráðast. Sú ákvörðun var tekin í ljósi fram- vindu samninganna um nýtt álver og stjórn Landsvirkjunar hafði þá verið kynnt hvernig málið stóð. Eg hlýt því að mótmæla því að málinu hafi verið komið í þrönga stöðu af hálfu ráðuneytisins. Þvert á móti tel ég að málið sé í mjög góðri og opinni stöðu, í þeim skiln- ingi að hægt sé að halda því áfram og leiða farsællega til lykta í þess- um lokaáfanga, ef góður vilji ríkir. Og ég treysti því að sá vilji finnist í stjórn Landsvirkjunar eins og annarsstaðar. Eg skil þó vel að menn vilji fara þarna fram af varkárni, og hvern- ig menn velja til þess fulltrúa að kynna sér málið og ganga úr skugga um að þar sé allt sem tryggilegast, er að sjálfsögðu innra mál stjórnarinnar,“ sagði Jón Sig- urðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.