Morgunblaðið - 12.10.1990, Síða 20

Morgunblaðið - 12.10.1990, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990 Ríkissaksóknaraembættið: Ríkissaksóknarí hafn- ar beiðni um ákæru á hendur Eggert Haukdal BRAGI Steinarsson, vararíkis- saksóknari, hefur sent Jóni Oddssyni, lögmanni sr. Páls Páls- sonar, sóknarprests að Bergþórs- hvoli, bréf, þar sem beiðni lög- mannsins um málsókn á hendur Eggert Haukdal, alþingismanni, er hafnað. Hafði lögmaður Páls kært Egg- ert vegna ummæla sem er að finna í óundirrituðu dreifibréfi sem dreift var í Vestur-Landeyjum fyrir nokkru og hann taldi ærumeiðandi fyrir umbjóðanda sinn. í bréfi vararíkissaksóknara segir: „Hin tilgreindu ummæli, sem út af er kært, þykja hvorki vera þess efnis né uppi höfð út af starfí um- bjóðanda yðar sem sóknarprests, að þau geti átt undir tilvitnaða iaga- grein. Beiðni yðar um að ákæruvald standi að málssókn á grundvelli 108. gr. almmenra hegningarlaga er því hafnað." Jón Oddsson, lögmaður, hefur sent vararíkissaksóknara bréf þar sem hann fyrir hönd umbjóðanda síns, ítrekar kröfur hans um opin- bera málsókn. Hljómsveit frá Filipps- eyjum í Mandarín Morgunblaðið/Ámi Sæberg Hljómsveitin Sugar Country Trio leikur í Mandarín. Leikritið Keli þó! sýnt í grunnskólum ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ sýnir leikritið Keli þó! eftir Iðunni og Krist- ínu Steinsdætur í yngstu bekkjum grunnskóla í vetur. Leiksýningin er samstarfsverkefni Alþýðuleikhússins, Umferðar- ráðs og menntamálaráðuneytisins. Leiksýningin Keli þó! markar nýjung í umferðarfræðslu 6-9 ára barna í 1.-4. bekk grunnskóla. Leitað var til höfundanna Iðunn- ar og Kristínar Steinsdætra um að skrifa leikrit sem tengdist um- ferðarfræðslu. Alþýðuleikhúsið tók að sér að færa upp verkið og gera úr því 40 mínútna sýningu. Keli þó! segir frá sprellfjörugum 8 ára strák sem er nýfluttur að vestan til Reykjavíkur. Hann legg- ur af stað niður í miðbæ ineð þeim góða ásetningi að aðstoða fólk við að komast leiðar sinnar í umferð- inni. Á leiðinni í strætó kynnist hann Völu, sem hefur villst að heiman og þarf á hjálp að halda. Þau lenda síðan í ýmsum ævintýr- um á leið sinni um bæinn. Hlutverkin í leikritinu eru 9. Þau leika Baltasar Kormákur, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Gunnar Rafn Guðmundsson. Leikstjóri er Sigrún Valbergsdóttir. Gerla hann- ar leikmynd og búninga. Tónlistin í verkinu er eftir Ólaf Hauk Símon- arson, en útsetningu og hljóðfæra- leik sér Gunnar Þórðarson um. Sýningin verður á skólatíma og tekur eina klukkustund. Hún er börnunum að kostnaðarlausu. Að henni lokinni fá þau afhenta möppu með ýmsum kennslugögn- um um boðskap leikritsins. Auk þess verða þar söngtextar úr leik- ritinu og fleiri upplýsingar, sem því tengjast. Landsbanki íslands, sem er stuðningsaðili verkefnisins, efnir til myndasamkeppni fyrir bömin sem sjá sýninguna og fá öll böm, sem senda mynd, viðurkenningu fyrir þátttökuna. (FréttatUkynning) FILIPPEYSKA hljómsveitin Sugar Country Trio er komin hingað til lands og skemmtir gestum veitingastaðarins Mandarín við Tryggvagötu sex kvöld í viku næstu þrjá mánuði. * Olafur Ragnar Grímsson: Hljómsveitina skipa Viky, sem syngur og leikur á gítar, Jo Jo, sem einnig syngur og leikur á gítar, og Jun, sem leikur á bassa og hljómborð. Á efnisskrá hljóm- sveitarinnar eru vestræn popplög en auk þess tónlist af austrænum toga, frá Filippseyjum, Japan, Kína, Hawaii og Maíasíu. Sugar Country Trio hefur leikið á mörgum fímm stjömu hótelum á Filippseyjum og unnið til verð- launa í Austurlöndum fjær fyrir tónlistarflutning sinn. Mandarín mun framvegis sem hingað til bjóða upp á kínverskan mat. Sú breyting hefur hins vegar verið gerð að framvegis verður opið til kl. 01 virka daga og til kl. 03 um helgar. Útbúið hefur verið dansgólf og geta gestir dans- að við undirleik Sugar Country Trio. Byggijigarskyldur Háskólans ekki bara gegn raunvísindum ÓLAFUR Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, segist hafa verið að lýsa sinni persónulegu skoðun en ekki tillögum fjár- málaráðherra þegar hann sagði í sjónvarpsþætti nýlega að Kjartan Gunnarsson. Þórður I. Guðmundsson. Michael S. Voslenskí. Tomas Ries. Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg: NATO, Sovétríkin og þróunin á norðurslóðum SAMTÖK um vestræna samvinnu og Varðberg efna til hádegisverðar- fundar á laugardaginn í Átthagasal Hótel Sögu. Þar verður rætt um framtíð Atlantshafsbandalagsins (NATO), ástand og horfur i Sov- étríkjunum og vígbúnaðarþróun Sovétmanna á norðurslóðum. Þetta er fyrsti fundur vetrarins á vegum félaganna tveggja, sem hafa um langt árabil staðið fyrir umræðu- fundum um utanríkis- og varnarmál og gjaman fengið erlenda fyrirlesara til að hafa framsögu. Að þessu sinni eru tveir erlendir ræðumenn: dr. Michael S. Voslenskí, prófessor og forstöðumaður þýsku sovétrann- sóknastofnunarinnar í Bonn, sem hefur komið hingað til lands reglu- lega á vegum félaganna undanfarin ár og rætt um þróun mála í Sov- étríkjunum. Er hann gjörkunnugur henni enda var hann á sínum tíma starfsmaður miðstjómar sovéska kommúnistaflokksins. Honum hefur verið boðinn sovéskur rikisborgara- réttur að nýju, en mun ekki þiggja hann að sinni. Hinn erlendi ræðu- maðurinn er dr. Tomas Ries, sem starfar hjá Vamarmálastofnun á vegum norska utanríkisráðuneytis- ins. Sérgrein hans er varnarviðbún- aður lýðræðisríkja á norðurslóðum gegn sovéskum hemaðarmætti þar. I upphafi fundarins á laugardag flytur Kjartan Gunnarsson, formað- ur Samtaka um vestræna samvinnu (SVS), ávarp og Þórður Ingvi Guð- mundsson, formaður Varðbergs, ræðir um framtíð NATO. Fundurinn, sem er opinn félags- mönnum í SVS og Varðbergi og gestum þeirra, hefst á hádegisverði og er húsjð opnað klukkan 12 á hádegi. Happdrætti háskólans ætti að greiða viðgerð á Þjóðminjasafn- inu. Háskólarektor sagði í Morgunblaðinu á miðvikudag að hann teldi að þessi orð ráð- herrans hlytu að hafa verið spaug. „Eg var að lýsa þeirri persónu- legu skoðun minni að eðlilegt væri að Háskóli íslands verði hluta af happdrættisfé Háskólans til styrktar rannsóknarstofnunum á sviði íslenskrar menningar og íslenskra fræða,“ sagði fjármála- ráðherra. „Staðreyndin er sú að á síðustu tíu til fimmtán áram hefur ekki neinni krónu af happdrættisfé Háskólans verið varið í þágu rann- sóknastofnana á þessu sviði og ég held að það þurfí að fara rúmlega tuttugu ár aftur í tímann til að finna framlög af happdrættisfé til íslenskra fræða og íslenskrar menningar. Mér fínnst þess vegna frekar dapurlegt að rektor Háskól- ans skuli telja það brandara að sú hugmynd sé orðuð að happ- drætti Háskólans taki þátt í að styrkja eina virtustu rannsóknar- stofnun á sviði íslenskrar menn- ingar, nefnilega Þjóðminjasafn ís- lands." Ólafur Ragnar sagði að þótt Þjóðminjasafnið væri að forminu til sjálfstæð ríkisstofnun, en ekki hluti Háskólans, hefði það verið burðarásinn í kennslu og rann- sóknum á sviði þjóðmenningar og þjóðarsögu íslendinga og Háskól- inn ekki svipur hjá sjón án öflugs Þjóðminjasafns. „Ég var hins veg- ar að lýsa persónulegri skoðun minni en ekki tillögum íjármála- ráðherrans og vona að yfírmenn Háskólans hugleiði í fullri vinsemd að byggingarskyldur Háskólans eru ekki bara gegn raunvísinda- greinum og verkfræði heldur eiga líka að þjóna íslenskri menningu. Síðan 1978 hefur happdrættisfénu eingöngu verið varið til að byggja Læknagarð, Tæknigarð, tvær stórbyggingar verkfræði- og raun- vísindadeildar, Odda og hjóna- garða,“ sagði fjármálaráðherra. Eitt verkanna Barðdal. á sýningu Þóris Höggmynda- sýningvið Bókhlöðustíg ÞÓRIR Barðdal sýnir um þessar mundir höggmyndir í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg. Höggmyndirn- ar, sem aðallega eru unnar í ítal- skan marmara, voru gerðar á Reykhólum í Barðastrandasýslu þar sem myndhöggvarinn dvaldi í sumar. Þetta er þriðja einkasýning Þóris en hann hefur auk þess tekið þátt í samsýningum hérlendis, í Þýska- landi og í Bandaríkjunum þar sem hann starfar hluta úr ári. Þórir byrjaði í Myndlista- og handíða- skóla íslands en fór fljótlega til Þýskalands þar sem hann nam við Akademie der bildende Kunste Stuttgart í fjögur ár. Sýningin er opin frá kl. 12:00 til 18:00 alla daga og stendur til 22. október.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.