Morgunblaðið - 12.10.1990, Síða 37

Morgunblaðið - 12.10.1990, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990 37 Katrín Þorbjarnar- dóttir - Minning Þó missi ég heym og mál og róm og máttinn ég þverra finni, þá sofna ég hinst við dauðadóm, ó, Drottinn gef sálu minni að vakna við sðngsins helga hljóm í himneskri kirkju þinri. (Ólína Andrésdóttir) Nú á hinum mildu dögum í byij- un vetrarins kveður þessa jarðvist, föðursystir mín Katrín Þorbjarnar- dóttir, Kirkjuvegi 42 í Keflavík. Hún var fædd á Eyrarbakka þann 7. ágúst 1926. Hún var dóttir hjón- anna Kristínar Vilhjálmsdóttur og Þorbjörns Guðmundssonar er bjuggu sína búskapartíð á Blómst- urvöllum (bæði látin). Hún ólst þar upp ásamt 3 systkinum, þeim Steini Einarssyni hálfbróður sínum, Svan- hvíti og Kristínu Þorbjarnardætrum og eru þau öll látin, einn albróður átti hún að auki, Vilhjálmur hét hann en dó sem ungbarn. Kæja eins og hún var jafnan kölluð, fór fljótt að taka til hendinni eins og var algengt meðal unglinga þeirra tíma. Efnahagur flestra alþýðuheimila leyfði ekki langa skólagöngu. Kæja fór undir tvítugt í vist til Reykjavík- ur og vann á nokkrum heimilum. Hún var eftirsótt til slíkrar þjónustu vegna mikillar snyrtimennsku í hví- vetna. Hún hafði ávallt gott sam- band við þessa fyrrverandi hús- bændur sína í gegnum árin og reyndust þeir góðir vinir hennar og mintist hún þeirra með hlýju. Kæja flyst svo til Njarðvíkur, og fljótlega fer hún að aðstoða systur sína Svanhvíti sem þá var einstæð tveggja barna móðir, og tekur að sér heimilið daglangt meðan Svan- hvít stundaði vinnu utan heimilis um 10 ára skeið. Samvinna"þeirra systra var sannarlega eftirtektar- verð. Eftir þessi ár fer Kæja svo að vinna í þvottahúsi Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, þar sem og annars staðar var hún vel liðin og sýndu vinnuveitendur hennar það í verki að þeir mátu vandvirkni henn- ar og stundvísi að verðleikum með því að veita henni heiðursskjal M/fl í veglegu hófi. Samskipti mín við þessa föður- systur mína hafa ætíð verið mjög góð allt til hinstu stundar. Minnist ég þess þegar hún var flutt af Bakk- anum og var að koma í helgarheim- sókn hvað hún var hugguleg ung kona há og grönn, dökk yfirlitum með mikið og fallegt hár. Um þrít- ugsaldur verður hún fyrir þeirri þungu rauri að veikjast í hálsi og bar þess ætíð merki. Þrátt fyrir það var hún ávallt glöð og sá spaugilegu hliðarnar á tilverunni á margan hátt. Svanhvít systir hennar fluttist til Bandaríkj- anna með yngri son sinn Róbert, sem þá var 14 Ara, settust þau þar að og býr hann þar enn með eigin- konu sinni Söru og tveim sonum. Fyrir í Bandaríkjunum var þá yngsta systirin Kristín búsett með eiginmanni og 2 börnum, þeim Kristni og Cherrý og búa Svanhvít og Róbert svo í námunda við þá fjölskyldu. Kærleikur þessara þriggja systra var stór þáttur í lífi Kæju, og hennar sælustu stundir voru þegar hún hafði tækifæri á að heimsækja systur sínar og fjöl- skyldur þeirra. Systursonur Kæju, Þorbjörn, er búsettur í Keflavík ásamt konu sinni, Sigurlaugu Kjartansdóttur, og yngstu dóttur þeirra, alnöfnu þeirrar er hér er minnst, einnig eiga þau tvær eldri dætur, þær Svan- hvíti Freyju og Hrefnu Kristínu en þær hafa nú stofnað sín eigin heim- ili. Hjá þessari fjölskyldu dvaldi ' Kæja jafnan yfir flesta stórhátíðis- daga sl. tvo áratugi og hafa þau ávallt verið tilbúin að liðsinna henni þegar þess var þörf. Undangengin 2 ár hafa verið Kæju erfið vegna heilsubrests og sjúkrahúsvistar með stuttum hlé- um. Þó var ekki um neina uppgjöf að ræða í hennar huga, bjarísýni og trú á bata var það sem hún vildi tala um. I desember sl., þegar hún var á Landspítalanum, sátum við oft á kvöldin, ræddum um lífið og tilver- una og dvalir á sjúkrastofnunum. Hjá henni var ævinlega ofar öðru þakklæti til lækna og hjúkrunar- fólks fyrir umhyggju og velvild í hennar garð. Og núna undanfarna mánuði er hún var á sjúkrahúsi Keflavíkur er vart hægt að hugsa sér betra og hlýlegra viðmót en það sem henni mætti þar. Þessu fólki em fluttar hugheilar velfarnaðar- óskir og þakkir. Ég kveð frænku mína með þökk fyrir allt. Blessuð sé minning henn- ar. Halldóra V. Steinsdóttir Ég vil með örfáum línum minn- ast elskulegrar föðursystur minnar, Katrínar Þorbjarnardóttur er lést 2. október sl. í Landspítalanum. Hún var dóttir hjónanna Kristínar Vilhjálmsdóttur og Þorbjarnar Guð- mundssonar á Eyrarbakka. Þar ólst hún upp ásamt systkinum sínum sem nú eru öll horfin okkur um sínn. Þeirra elstur var faðir minn, Steinn Einarsson, sem látinn er fyrir tæpum 4 árum, Katrín er við nú kveðjum í dag, þá Vilhjálmur er dó barnungur, Svanhvít er lést fyrir rúmum tveimur árum, löngu fyrir aldur fram og tók Katrín mjög nærri sér lát hennar, enda var sér- staklega kært milli þeirra systra. Yngst var Kristín sem látin er fyrir allmörgum árum í Ameríku, þá ung kona, og bar lát hennar mjög brátt að. Eins lengi og ég man eftir mér var alltaf gaman og tilhlökkun þeg- ar von var á „Kæju frænku“ eins og við kölluðum hana alltaf. Hún var svo góð við okkur og kátína í kringum hana og ekki spillti nú fyrir að hún gaf okkur Gógó systur alltaf svö góða sleikipinna og nammi, sem voru allt öðruvísi en maður átti að venjast úr kaupfélag- inu. Hún kom oft í helgarfríunum sínum til foreldra minna og okkar í Vatnagarð. Þegar von var á henni með rútunni, fengum við systur að stoppa rútuna og taka á móti henni úti á götu. Eftir að ég eignaðist sjálf mitt heimili hélst þessi vinátta og tryggð okkar í milli og kom hún þá líka til mín og fylgdist'með mínum börn- um vaxa úr grasi. Síðan eftir að ég fluttist austur á land fyrir 12 árum hefur það alltaf verið árvisst hj 'henniað heimsækja okkur í sum- arfríunum sínum og stansa þá í viku til tíu daga. Ef sumarfríið hennar var síðla sumars þá tók hún stundum viku að vori í frí og kom til þess að sjá litlu lömbin í sauð- burðinum. Það voru henni ham- ingjustundir að sjá lítið lamb fæð- ast. Svo kom hún þá aftur viku nær hausti. Þetta voru góð sumur og eigum við fjölskylda mín margar góðar minningar frá þessum heim- sóknum. Hún var börnum okkar Gógó sama „Kæja frænka“ og hún var okkur alla tíð. Þau voru ekki gömul þegar þau skriðu í fangið á henni og ekki laust við að þau fyndu einhveija nammilykt en þess- ar stundir þótti henni mikið til um og margar myndir eru til af þeim. í nokkur skipti kom Gógó austur um svipað leyti og fóru þær þá saman heim og stánsaði hún þá hjá Gógó í leiðinni. Kæju þóttu þetta mjög góðar ferðir. Kæja var í svo mörgu lík pabba mínum, þakklát og glöð fyrir hið minnsta sem fyrir hana var gert. Við töluðumst alltaf reglulega við í síma og áttum okkar vissu daga til þess að fannst henni ekki alveg nógu gott ef það ekki stóðst. Hún var ábyggileg og vana- föst og fannst betra að allt væri á sínum stað. Hún var vinur vina sinna, viðkvæm sál og gat tekið sumt mjög nærri sér og sat lengi í henni. Kæja var ákveðin en traust og samviskusöm. Hún vann á sama vinnustaðnum í 30 ár, alveg fram á þann dag er hún veiktist fyrir ári og ég hygg að ekki hafi hana vant- að marga daga í vinnu sína fram að þeim degi, ef það var þá nokkur dagur. Vinnan var henni allt og hún vildi skila því sem henni bar. Ég var svo stolt af því hve hún tók vel og æðrulaust því áfalli sem hún varð fyrir fyrir ári er hún veiktist og gekkst undir aðgerð og meðferð þar á eftir. Þar átti hún til svo mikinn kjark og bjartsýni sem hægt var að ná í og tefla fram. Hvert boðafallið reið af öðru og allt stóðst hún eins og hetja. Við töluðumst við nær daglega meðan á þessu stóð og var þetta orð „hetja“ oft notað þá. Við dvöldum hvor á sinni deild, á sömu hæð á sama sjúkra- húsi í fyrrahaust í nokkra daga og voru það óvæntar samverustundir sem við nutum og er gott að ylja sér við í dag. Undanfarnar vikur og mánuðir hafa oft verið henni þungir í skauti þó svo ekki hafi hún verið að kvarta. Hún var sérstak- lega ánægð og þakklát læknum, hjúkrunar- og starfsfólki sjúkra- húss Keflavíkur fyrir alla umönnun og notalegheit við sig og vil ég nota tækifærið og þakka því góða fólki fyrir. Þá vil ég þakka þeim Esther og Birgi sem alltaf voru boðin og búin að aðstoða hana á allan máta, studdu hana og leiddu í hennar erfiðleikum. Það var henni ómetanlegur styrkur. Hún talaði oft um hve þau væru sér góð og styttu henni oft stundir, sóttu hana til sín og tóku hana með sér í bílferðir. Það var oft gaman að heyra hve glöð hún var að segja mér hvert hún hafði farið og hvað hún hefði fengið gott að borða. Þær hittust líka oft mágkonurnar, móðir mín og hún, nú síðustu árin og nutu þess vel. En nú verða engar sím- hringingar framar, engir köku- stampar milli Hornafjarðar og Keflavíkur, en því má venjast og yndislegt að vita það að nú líður frænku minni vel og er leyst öllum þrautum frá og er nú hjá þeim er hún saknaði og unni mest og eng- inn vafi er á að vel hefur verið tek- ið á móti henni. Ég kveð elskulega frænku og bið henni guðs blessunar í nýjum heimkynnum, með versi sem henni þótti svo vænt um og vildi að fýlgdi sér. Drottinn vakir, Drottinn vakir, daga’ og nætur yfir þér. Blíðlynd eins og besta móðir, ber hann þig í faðmi sér. Allir þótt þér aðrir bregðist, aldrei hann á burtu fer. Drottinn elskar, - Drottinn vakir, daga’ og nætur yfir þér. (Sig. Kr. Pétursson) Ingibjörg Steinsdóttir Að leiðarlokum er ljúft og skylt að færa góðri vinkonu um fjölda ára alúðarþakkir fyrir vermandi við- mót og ánægjulega samfylgd. Katr- ín Þorbjarnardóttir var fædd á Eyr- arbakka 5. ágúst 1924, dóttir Þor- bjarnar Guðmundssonar og Kristín- ar Vilhjálmsdóttur. Systkinin voru fjögur og eru þau öll látin. Kæja, eins og hún var ávallt kölluð, ólst upp á Eyrarbakka, um tvítugt lá leiðin til Reykjavíkur að vinna fyrir sér, þá veiktist hún og náði sér aldrei að fullu eftir það. Því næst lá leiðin suður til Njarðvík- ur ásamt Svönu systur sinni og tveim sonum hennar, Þorbirni og Róberí. Kynni okkar hófust, er hún flutti á heimili foreldra minna og Ieigði þar herbergi í nokkur ár. Stuttu síðar hóf hún störf í þvotta- húsi á Keflavíkurflugvelli og vann þar þangað til fyrir ári að hún hætti störfum vegna veikinda. Með dugnaði sínum og sparsemi keypti hún sér íbúð á Kirkjuvegi 42 í Kefla- vík árið 1967 og átti lieima þar upp frá því. Þar bjó Kæja vel um sig og undi hag sínum vel. Hún var fagurkeri í orðsins fyllstu merk- ingu, hafði yndi af blómum og fal- legum hlutum enda bar heimili hennar þess merki. Það var ánægju- Iegt að heimsækja Kæju, hún var ávallt kát og glöð og stutt var þá í glensið og gat hún þá hlegið dátt. Fyrir um tuttugu árum flutt- ist Svana systir hennar með Róbert son sinn.til Flórída, fór Kæja og heimsótti þau nokkrum sinnum í sumarfríum sínum og hafði mikla ánægju af, enda mjög kært með þeim systrum. Ég sendi bræðrunum Þorbirni og Róberí og fjölskyldum þeirra sam- úðarkveðjur og öllum vandamönn- um hennar. Eg kveð Kæju, mína kæru vinkonu, með orðum Valdi- mars Briem. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Rósmary Sigurðardóttir F4805 ELX Ofn Yfir-undirhiti, blástur og grill, fituhreinsun, svart eöa hvítt glerútlit, tölvuklukka meö tímastilli. Helluborð Keramik yfirborð, svartur eða hvítur rammi, fjórar hellur, þar af tvær halogen, sjálfvirkur hitastillir og hitaljós. Funahöföa 19 sími 685680 HVAÐ ER IpIaírIaIdIoIrI ÞÝSKAR ÞILPLÖTÍJR "GÆÐAVARA í STÍL Fyrirliggjandi Þ.ÞORORlMSSOH&CO ÁRMÚLA29, SÍMI 38640 FEDERAL SK0T SERHONNVÐ STIGAHUSATEPPI S ára bletta-ábyrgð. TEPPABÚÐIN Mælum, rífum gömlu teppin af, gerum tilboð, leggjum nýju teppin fljótt og vel. Gólfetnamarkaður, Suðurlandsbraut 26.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.