Morgunblaðið - 12.10.1990, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. OKTÓBER 1990
t
Bróðir okkar,
BJÖRN SCHEVING ARNFINNSSON,
Hraunbæ 160,
Reykjavík,
lést 10. október á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund.
Systkini hins látna.
Faðir okkar,
ÁRNI JÓNSSON,
Hellu, Rangárvallasýslu,
lést að kvöldi 30. september. Jarðarförin hefur farið fram.
Þökkum innilega auðsýnda samúð.
Erlendur Agnar Árnason,
Oddgeir Þór Árnason.
t
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma,
HALLDÓRA BJARNADÓTTIR,
Hryggjarseli 11,
áður Bragagötu 23,
lést mánudaginn 1. október í Hátuni 10b.
Útförin hefur farið f[am í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorlákur Eyjólfsson.
t
Ástkær móðir okkar,
ANNA K. VILHJÁLMSDÓTTIR,
Hvassaleiti 58,
Reykjavík,
lést aðfaranótt 11. október 1990 í Landspítalanum.
Gunnar Þór Kristjánsson,
Þórður Kristjánsson,
Margrét Kristjánsdóttir,
Vilhjálmur Kristjánsson.
t
Systursonur minn,
EINAR K. MARKÚSSON
píanóleikarí og kennari,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 16. október
kl. 13.30. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeim sem, vildu minnast hans,
erjient á Hveragerðiskirkju.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Davíð Ólafsson, Hvftárvöllum.
t
Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda-
faðir og afi,
ÓLAFURÞÓRÐARSON
tollvörður,
Hjarðarhaga 44,
andaðist á Landakotsspítala, miðviku-
daginn 10. október.
Ragnhildur Guðmundsdóttir, Kristín Magnúsdóttir,
Guðmundur Ólafsson, Ester Jónatansdóttir,
Þórður Ólafsson, Kristín B. Alfreðsdóttir,
Gunnar Bjarni Ólafsson, Helga B. Jónsdóttir,
Magnús Olafsson, Þóra Erlingsdóttir
og barnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PALLE GR0NVALDT
sölumaður,
'Rodovre Parkvej 273,
2610 Rodovre,
Danmark,
andaðist á Herlevspítala miðvikudaginn 10. október.
Útförin verðijr gerð laugardáginn 13. október.
Steinunn Gunnarsdóttir Gronvaldt,
Lisbeth Gronvaldt, Júlfus Björnsson,
Peter Gronvaldt, Sos Gronvaldt,
Janne Gronvaldt, Ib Grenvaldt,
Olaf Gronvaldt, IdaJorring,
barnabörn og barnabarnabarn.
Albert Erlingsson
kaupmaður - Miiuiing
Fæddur 1. september 1906
Dáinn 1. október 1990
Það var hópur vaskra og mál-
reifra manna, sem kom saman að
morgni hvers virks dags í gamla
Veiðimanninum við Lækjartorg.
Nokkrar stuttar veiðisögur sagðar
eða dægurmál nefnd, síðan farið á
„Skálann“ í morgunkaffi. Þetta
voru menn, sem á þeim tíma settu
svip á bæinn, hver á sinn máta.
Aberandi menn, gjarnan kenndir
við fyrirtæki sín og stóðu á miðjum
aldri.
Nú eru þeir flestir gengnir, hinir
aldraðir og hafa hægar um sig. Um
daginn sá ég einn úr þessum hópi
ganga hægum skrefum austur'
Hafnarstrætið. Var hann að fara á
„Skálann“ eða var það aðeins gamla
gatan, sem enn einu sinni skyldi
gengin? Þetta voru með .síðustu
sporum athafnamanns af gamla
skólanum, sem hafði haft miðbæinn
fyrir heimavöll, og í hinsta sinn sem
hann gekk frá fyrirtækinu sem
hann stofnaði hálfri öld áður, árið
1940.
Þannig minnist ég tengdaföður
míns, Alberts í Veiðimanninum, þá
er hann var_ allur fyrsta október
síðastliðinn. Áður hafði hann unnið
allt annað og ólíkt starf. Þá var
hann málarameistari með allmikil
umsvif svo sem við elliheimilið
Grund, Dómkirkjuna, Gamla og
Nýja Garð, verkamannabústaði við
Hringbraut o.fl. Hann hafði verk-
stæði sitt í Þórshamri, svo segja
má að hann hafi alla tíð starfað á
svæðinu milli Tjarnarinnar og
Hafnarinnar.
I versluninni Veiðimanninum
voru oft sagðar magnaðar sögur
af þeim „stóra“, sem kom á land
eða kom ekki á land. Allir voru
velkomnir. Man ég eitt sinn að
ónefndur heiðursmaður kom með
mynd af sér og feikna stórri lúðu,
sem hann hafði veitt. Albert gladd-
ist með komumanni yfir þessum
happafeng og voru græjurnar þó
hvorki frá ABU né Hardy, það best
ég man. Slíkir siðir héldust þótt
fyrirtækið flytti um set í miðbænum
í örfá skipti, og þá varla nema um
nokkra metra eða húslengdir.
Það segir sig sjálft að maður, sem
stofnar veiðarfæragerð og byijar
innflutning og sölu á sportveiðar-
færum, hefur mikinn sporveiði-
áhuga. Sá áhugi risti svo djúpt í
Albert að eins og í Laxá í Þingeyjar-
sýslu fer um fagra bakka sína
hljóðlát og tíguleg, svo fór hin sama
elfa innra með honum sjálfum þá
daga sem hann hnýtti þar flugu á
taum á hverju sumri í fimmtíu ár.
Þar varð að fara að öllu með gát
og virðing hans fyrir ánni og árbú-
um var mikil. Það var eftirtektar-
vert nú seinni árin við laxveiðar
norður í Árnesi að sjá nýja kynslóð
ungra og kappsfullra manna koma
í hóp hinna eldri og kynnast ánni.
Þar ríkti gagnkvæm virðing milli
hins gamla og hins nýja. Áfram var
farið varlega að Laxá. Ég man það
vel þegar Albert tók tvo stórlaxa á
Prestshyl, þá áttatíu og eins árs
gamall, og áin full af slýi. Þá sögðu
ungu mennirnir: „Þetta geta aðeins
þeir vönu.“
Albert fór ekki með bijóstvitið
eitt á vit Laxár. Strax eftir stríð
hélt hann til Lundúna og sérhæfði
sig í öllu er laut að sportveiði og
búnaði. Hann fékk „diplóma" frá
The London School of Casting og
tengdist traustum vináttuböndum
við eiganda þess skóla, Captain
T.L. Edwards, og konu hans, Belle,
sem hafði orðið ólympíumeistari í
dýfingum á Berlínarleikunum 1936.
Þessara kynna naut fjölskylda Al-
berts árum saman. Það mun hafa
verið bragur á Veiðinni þegar Ed-
wards fór með fluguna eftir Laxá
í Þingeyjarsýslu. Fjöldi manna og
kvenna naut svo tilsagnar Alberts
í gegnum árin. Vegna viðskipta-
tengsla sinna við Bretland var hann
félagi í Anglia, heiðursfélagi seinni
árin. Hann var einnig heiðursfélagi
í Stangaveiðifélagi Reykjavíkur.
Albert var fæddur 1. september
1906 að Stóru-Drageyri í Skorradal
í Borgarfirði. Foreldrar Alberts
voru Erlingur Jóhannsson bóndi þar
og kona hans Kristín Erlendsdóttir.
Albert lærði málaraiðn hjá þeim
Ludvig Einarssyni og Sigurði Guð-
laugssyni í Reykjavík 1923-1927
og lauk prófi frá Iðnskólanum í
Reykjavík og sveinsprófi 1927.
Framhaldsnám stundaði hann í
Þýskalandi árið 1932. Albert var
einn af stofnendum Málarasveina-
félags Reykjavíkur og fyrsti for-
maður þess árin 1928-1929. Hann
var sæmdur merki félagsins úr
gulli árið 1978. Hann varð málara-
meistari árið 1930 og var formaður
Málarameistarafélags Reykjavíkur
1936-1939. Þá sat Albert í stjórn
Stangaveiðifélags • Reykjavíkur
1947-1952 og hann var stofnandi
og fyrsti formaður Kastklúbbs
Reykjavíkur.
I júlí 1927 kvæntist Albert Krist-
björgu Eggertsdóttur, fæddri 16.
nóvember 1905 að Vindhæli í Vind-
hælishreppi, Austur-Húnavatns-
sýslu. Kristbjörg lést fyrir fimm
árum. Þau Albert eignuðust ijórar
dætur. Ein þeirra dó í frumbernsku.
Hinar eru Auður, gift undirrituðum,
Kristín Erla, gift Gunnari Finns-
syni, hagfræðingi hjá Alþjóðaflug-
málastofnuninni í Montreal, og
Erna, sem starfar hjá Sambandi
Almennra lífeyrissjóða. Barnabörn-
in eru fimm og sömu tölu fylla
barnabarnabörnin.
Er leiðir skiljast vil ég minnast
minnar kæru tengdamóður, sem
hafði í öndverðu hlotið andlega gerð
til þess að verða aðsópsmikill og
gjöfull höfðingi. Tengdaföður minn
kveður öll Ijölskyldan með þökkum
og söknuði, og ósk um góða heim-
komu.
Jón R. Steindórsson
Albert Erlingsson er allur. Hann
fæddist á Stóru Drageyri í Skorrad-
al. Sonur hjónanna Erlings Jó-
hannssonar og Kristínar Erlends-
dóttur.
Albert lærði málaraiðn hjá Lud-
vig Einarssyni og Sigurði Guð-
mundssyni málarameistui-um í
Reykjavík á árunum 1923 til 1927.
Albert fór síðan til framhaldsnáms
í iðninni til Þýskalands 1932.
Hann var einn af stofnendum
Málarafélags Reykjavíkur 1928 og
jafnframt fyrsti formaður þess. Al-
bert var sæmdur gullmerki Málara-
félags Reykjavíkur fyrir störf í þágu
félagsins 1978.
Hann varð málarameistari 1930
og meðal lærlinga hans var yngri
bróðir hans Bertel.
Albert vann við málaraiðn fram
til ársins 1940.
Við félagar í Málarafélagi
Reykjavíkur minnumst þessa braut-
ryðjanda í félags- og kjaraihálum
okkar.
Fjölskyldu Alberts færum við
samúðarkveðjur.
F.h. Málarafélags Reykjavíkur,
Kristján Guðbjartsson
formaður.
+
Ástkær sambýlismaður minn, faðir og bróðir,
RAYMOND G. NEWMAN,
Vesturgötu 46, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 13. október
kl. 14.
Unnur Þórhallsdóttir,
Auður Katrín Newman,
Geir Newman,
Jón Newman,
María R. Newman,
Ragna Sif Newman,
t
ARNFRÍÐUR GESTSDÓTTIR
frá Mel í Þykkvabæ,
siðast til heimilis á Dalbraut 23,
verður jarðsungin frá Hábæjarkirkju, Þykkvabæ, laugardaginn
13. október kl. 14.00.
Haraldur Elíasson,
Lilja Þorbjarnardóttir, Jón Erlendsson,
ísak Þorbjarnarson,
Skarphéðinn Haraldsson,
Guðmundur Haraldsson,
Rannveig Haraldsdóttir,
Kolbrún Haraldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Helga Guðjónsdóttir,
Eyrún Óskarsdóttir,
Magnús ívar Þorvaldsson,
+
Þökkum af alhug samúð og hlýhug við fráfall og útför föður okk-
ar, tengdaföður, afa og langafa,
GlSLA TÓMASSONAR,
Melhóli,
Meðallandi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Sjúkrahúsi Suðurlands og hjúkr-
unarfólks á Kirkjubæjarklaustri.
Guðrún Gísladóttir,
Elín Gísladóttir,
Sigurgeir Jóhannsson,
Höskuldur Jónsson,
Jytta Eiberg,
Ragnar Gíslason,
Sigrún Gísladóttir,
Magnús Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sveinn Gunnarsson,