Morgunblaðið - 01.02.1991, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1991
Tilvistarvandi EFTA
^fftír Steingrím
Gunnarsson
Fríverslunarsamtök Evrópu
(EFTA) eru ekki ánægð með gang
viðræðna um evrópska efnahags-
svæðið (EES) og lá við að þær sigldu
í_ strand í desember síðastliðnum.
Ástæðan er ofur einföld. EFTA hefur
slegið af flestum kröfum sínum og
faliið frá öðrum til að liðka fyrir
samningum, en Evrópubandalagið
(EB)' hefur aftur á móti staðið fast
J sínu og heldur aukið kröfur. sínar
en hitt.
Hugmyndin um EES er komin frá
Jacques Delors, forseta framkvæmd-
astjórnar EB, sem hugsaði hana sem
leið fyrir EFTA að innri markaði EB.
Þar með vildi hann bæta markaði
hinna sjö aðildarríkja EFTA við
markað EB-ríkjanna tólf og á þann
veg draga úr þrýstingi einstakra
EFTA-ríkja um aðild að bandalaginu.
í sem fæstum orðum á EES að starfa
á eftirfarandi hátt: EFTA-ríkin, sem
gerðu hagkvæma fríverslunarsamn-
inga við EB á árunum 1972-1973,
eiga að innleiða „frelsin fjögur“,
hornsteina innri markaðarins 1993,
„fjórfrelsið" svokallaða á við fijálsa
flutninga á vöru, fjármagni, fólki og
þjónustu. „Fjórfrelsið" nær ekki til
Íandbúnaðar og skiptir það okkur
íslendinga máli því að fiskur og fisk-
veiðar flokkast þar undir.
Verði af stofnun EES munu 19
ríki eiga aðild' að því með samtals
um 350 milljónum íbúa, og innan
þessa svæðis geta fyrirtæki og fólk
flust til að vild. Vöruverslun og við-
skipti með fjármagn og þjónustu
verða óhindruð. Með því að ryðja úr
vegi viðskiptahindrunum milli EFTA
og EB gera menn sér góðar vonir
um að styrkja samkeppnisaðstöðu
EFTA-EB út á við, óg þá sérstaklega
gagnvart Bandaríkjunum og Japan.
Innan EES mun aukið frjálsræði
leiða til aukinnar samkeppni sem á
að skila sér í lægra vöruverði til
neytenda. Eftir sem áður munu upp-
runareglur og tollaeftirlit vera nauð-
synlegt, því að EES verður ekki tolla-
Til sigurs med
Sjálfstæðis-
flokknum
Opinn stjórnarfundur Fjölnis, félags ungra
sjálfstæðismanna í Rangárvallasýslu, verð-
ur haldinn laugardaginn 2. febrúar kl. 17.00
í Verkalýðshúsinu á Hellu, 2. hæð. Gestur
fundarins verður Belinda Theriault, fram-
kvæmdastjóri SUS. Umræður verða um
SUS-starfið og komandi kosningabaráttu.
Allt ungt sjálfstæðisfólk velkomið.
SUS.
i
Þórshafnarbúar
Þistilfirðingar
Sjálfstæðisflokkurinn efnir til almenns félagsfundar í félagsheimilinu
Þórsveri í dag, föstudag, kl. 20.30. Ræðumenn verða fimm efstu
menn á lista Sjálfstæðisflokksins: Halldór Blöndal, Tómas Ingi Olrich,
Svanhildur Árnadóttir, Sigurður Björnsson og Jón Helgi Björnsson.
Stjórnin.
KENNSLA
Vélritunarkennsla
Ný námskeið eru að hefjast.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
FELAGSLIF
I.O.O.F. 12 = 17221872 = 9.0.
I.O.O.F. 1 = 172218V2 =
NY-UNG
KFUM & KFUK
Samvera fyrir fólk á aldrinum
20-40 ára í Suðurhólum 35.
Bænastund kl. 20.10. Samveran
hefst kl. 20.30. Bænin verkfæri
í samfélaginu. Guðrún Gísladótt-
ir og Jónína Erna Arnardóttir
fjalla um bænina. Ungt fólk á
öllum aldri velkomnið.
'lÍftMpdÍ
Qútivist
'ÁFIHHI I • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARI14(01
Tunglskinsganga
föstudag 1. febr. kl. 20. Katla-
hraun - Selatangar. Fjörubál
og miðnæturrómantík í stór-
brotnu umhverfi Selatanganna.
Brottför frá BSÍ - bensínsölu,
stansað á Kópavogshálsi, í
Garðabæ við Ásgarð og við Sjó-
minjasafnið í Hafnarfirði.
j Útivistarferð eru allir velkomnir!
Sjáumst!
Útivist.
Frá Guðspeki-
fólaginu
Ingólfsstrntl 22.
Áskrtftsrsfmi
Ganglsrs er
39673.
i kvöld kl. 21.00 flytur Einar
Aðalsteinsson erindi: „Elska
skaltu óvin þinn", i húsi félags-
ins, Ingólfsstræti 22.
Á iaugardag er opið hús frá kl.
15.00 til kl. 17.00 með stuttri
fræðslu og umræðum kl. 15.30.
Á fimmtudögum kl. 20.30 er
hugleiðing og fræðsla um hug-
rækt fyrir byrjendur.
Allir velkomnir.
bandalag.
Stefnt er að því að EES verði að
veruleika 1. janúar 1993, þ.e. um
leið og innri markaður EB. Til að
auðvelda aðlögun, verða EFTA-lönd-
in að taka upp gildandi EB-reglur.
Hafi EFTA í upphafi viðræðna farið
fram á undantekningar til langs tíma
frá EB-reglum, þá hafa Fríverslunar-
samtökin snúið við blaðinu síðan og
eru nú reiðubúin að falla frá flestum
fyrirvörum, með ákveðnum skilyrð-
um þó. Undantekningarkröfur ein-
stakra EFTA-landa eru þess eðlis
að um þær verður að íjalla sérstak-
lega milli viðkomandi EFTA-lands
og EB. Sem dæmi má taka samning
um vöruflutninga EB-landa um Sviss
og ámóta samning um vöruflutninga
EB um Austurríki. Undantekningar-
krafa okkar íslendinga um beinar
fjárfestingar erlendis frá í íslenskum
fiskiðnaði er einnig gott dæmi um
sérþörf EFTA-lands.
I staðinn fyrir undanþágur eiga
að koma verndarákvæði sem tii
dæmis kveða á um lengd aðlögun-
artíma. Verndarákvæði munu eirj-
ungis gilda í þeim tilvikum þar sem
sannanlega er um mikilvæga hags-
muni viðkomandi ríkis að ræða. Til
dæmis má nefna að EFTA-löndin
hafa oft strangari reglugerðir í ör-
yggis- og umhverfismálum en EB
og krefst EFTA að tillit verði tekið
til þess í samningum. Aðrar sérkröf-
ur EFTA-landa eru t.d. fyrirvari
Sviss og íslands hvað erlendu vinnu-
afli viðvíkur og fyrirvari Austurríkis
varðandi kaup á jarðeignum á til-
teknum svæðum í Austurríki.
Samningstilboð EFTA um að falla
frá flestum fyrirvörum um að gild-
andi EB reglur verði teknar upp inn-
an EES er háð skilyrði. Það er að
viðunandi lausn fáist á þátttöku
EFTA-ríkja í ákvarðanatöku innan
EES í framtíðinni. Hagstæð niður-
staða fyrir EFTA í viðræðunum um
ákvarðanatökuna er helsta baráttu-
mál EFTA-hópsins í samningalot-
unni sem hófst nú í janúar. Margít-
rekuð afstaða EB til þessarar meg-
inkröfu EFTA hefur verið, að þau
ríki, sem ekki eru með í EB-klúbbn-
um, geti ekki vænst þess að fá að
taka þátt í ákvarðanatöku innan EB
heidur einungis að hafa rétt á áheyrn
og gera grein fyrir máli sínu.
Aheyrnar- og tillöguréttur á öllum
stigum innan EES er allsendis ófull-
nægjandi tilboð frá sjónarhóli EFTA,
og fara samtökin fram á að eiga
beinan ' hlut að ákvarðanatökunni.
Eínmitt þarna stendur hnífurinn í
kúnni og er ekki ólíklegt að EES-við-
ræðurnar í heild standi og falli með
niðurstöðu þessa þáttar.
Annar mikilvægur þáttur í samn-
ingaviðræðunum um EES er hvernig
leysa eigi deilumál innan EES, og
Flóamark-
aður FEF á
laugardag
FLÓAMARKAÐSLAUGARDAG-
AR verða í febrúar hjá Félagi ein-
stæðra foreldra og haldnir í Skelj-
anesi 6.
Sá fyrsti er n.k. laugardag 2.fe-
brúar og hefst kl 2. eh. Þar verður
að venju margt í boði á aldamóta-
verði, segir í tilkynningu frá FEF.
Nefna má skartkjóla fyrir árshátíðir,
frakka, jakkaföt, barnaföt og auk
þess mikið af glæsilegum heimili-
svarningi, bollum, skálum og pottum.
Bækur og tímarit í stöflum, slangur
af skóm og nokkrir sófar og hægind-
astólar og er þá fátt eitt talið. Mark-
aðir verða síðan á hvetjum laugar-
degi út febrúar og alltaf sett nýtt
gamalt í staðinn fyrir hvern.
M BERND Ogrodnik sýnir föstu-
daginn 1. febrúarkl. 14.30 oglaug-
ardag 2. febrúar kl. 15.30 „Smá-
sögur“ sem er samsetning tónlist-
ar, leikbrúða og þess óvænta. Sýn-
ingin er ætluð fullorðnum og börn-
um eldri en 10 ára. Miðavei'ð er
Steingrímur Gunnarsson
„Samningstilboð EFTA
um að falla frá flestum
fyrirvörum um að gild-
andi EB reglur verði
teknar upp innan EES
er háð skilyrði. Það er ,
að viðunandi lausn fáist
á þátttöku EFTA-ríkja
í ákvarðanatöku innan
EES í framtíðinni.“
vill EFTA að settur verði á fót EES-
dómstóll sem starfi í tengslum við
dómstól Evrópubandalagsins. Fyrir
EB krefðist þetta fyrirkomulag
breytinga á Efnahagsbandalags-
samningnunr sjálfum og gæti það
orðið snúið innanhússmál hjá banda-
laginu.
Það kom EFTA nokkuð á óvart
síðastliðið haust þegar framkvæmda-
stjórn EB bætti löngum lista land-
búnaðarafurða við þau mál sem
bandalagið vill semja urn í tengslum
við EES. Vissulega er landbúnaður
í heild ekki til umræðu nú frekar en
þegar Fríverslunarsamningarnir
voru gerðir 1972-1973, og það er
ekki til umræðu að EFTA-löndin taki
upp landbúnaðarstefnu bandalags-
ins. F'ramkvæmdastjórn EB er ein-
faldlega að koma á móts við „fátæk-
ari“ aðildarríki bandalagsins — Spán,
Portúgal, Grikkland, írland — með
því að krefjast greiðari aðgangs fyr-
ir landbúnaðarvörur að markaði
EFTA-landa. Líklegt er að EFTA
kr. 400. Bernd Ogrodnik er fæddur
í Þýskalandi og stundaði nám við
tónlistarskóla í Köln frá unga aldri.
Hann hefur verið búsettur hér á
landi í rúm fjögur ár og hefur m.a.
unnið sjálfstætt við leikbrúðugerð,
leikhljóð og ýmsar tæknibrellur í
auglýsingum, sjónvarpi og kvik-
myndum. Meðal verkenda hans er
hönnun Pappírs Pésa. Bernd
Ogrodnik tók þátt í Dögum leik-
brúðunnar í Gerðubergi.
■ TÓNLEIKAR verða í Kjallara
keisarans í kvöld þar sem koma
fram hljómsveitirnar INRI, Dýrið
gengur laust og pönkhljómsveit-
in Drulla. Húsið verður opnað kl.
23.00 og tónleikarnir hefjast upp
úr 24.00 og standa til kl. 3.00. Með
Dýrinu verður gestagítarleikarinn
Pétur Þórðarson úr rokkhljóm-
sveitinni Bless.
■ JEAN Gattégno, fyrrverandi
forstöðumaður bóka- og lestrar-
deildar menningar- og samskipta-
málaráðuneytis Frakklands og vís-
indafulltrúi tilvonandi bókasafns
Frakklands, heldur fyrirlestur um
fyrirhugað bókasafn Frakklands.
Fyrirlesturinn verður í dag, föstu-
daginn 1. febrúar, í Háskóla ís-
lands, stofu 101, Odda, kl. 17.00.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku.
láti undan þessu á einn eða annan
hátt sem og í flestu öðru í samninga-
viðræðunum fram til þessa. Krafan
um greiðari aðgang fyrir landbúnað-
arvörur að markaði EFTA tengist
kröfunni um aðgang að fiskimiðum
okkar Islendinga. Þarna er því ekk-
ert smámál á ferðinni þegar íslensk-
ir hagsmunir eru hafðir í huga og
fyrir EB er þetta pólitískt viðkvæmt
mál. EB réttlætir kröfur sínar með
því að benda á þann ábata sem iðnað-
ur og þjónusta í EFTA-ríkjunum
muni hafa af þátttöku sinni í EES,
og því sé ekki nema sanngjarnt að
eitthvað komi á móti til að styrkja
framfarir á hinum fátækari svæðum
EB. Það hefur áður verið rætt á
hvaða hátt EFTA gæti stutt framfar-
ir á lítt þróuðum svæðum EB. Til
dæmis hefur verið rætt um að koma
á fót þróunarsjóði, eitthvað í líkingu
við þann sem EFTA hefur komið
upp, til að efla framfarir í Portúgal.
Fallið var frá þessari hugmynd af
hálfu EB á þeirri forsendu að þá
myndi EFTA hafa áhrif á ákvarðana-
tökuna um það hvernig sjóðurinn
yrði notaður og þannig á innanhúss-
mál hjá bandalaginu. Leiðin sem EB
hefur valið til að EFTA láti eitthvað
af hendi rakna til þróunarsvæða EB
er að fá greiðari aðgang að landbún-
aðarmörkuðum _og fiskimiðum
EFTA-landanna.3 í þessu samhengi
þarf enga sérstaka glöggskyggni til
að koma auga á sérstöðu Islands í
EFTA-hópnum. Hún er aughós.
Fyrrnefndir þættir viðræðnanna
um EES að viðbættri stífni EB í
ákvarðanatökumálinu gerir samn-
ingsaðilum erfitt fyrir, og um tíma
heyrðust þær raddir í EFTA-hópn-
um, sem efuðust um einlægni EB í
viðræðunum almennt. Það þarf ekki
að líta þannig á, heldur leiðir afstaða
EB í EES-málinu í ljós styrkleika-
hlutföll viðsemjenda og að EB-menn
hafi þrýst EFTA-liðinu upp að
veggnum. Upphaflega var gert ráð
fyrir að samkomulag næðist fyrir lok
síðasta árs, en sú varð ekki raunin,
og er miðað við að ganga frá sam-
komulagi núna í vor eða í síðasta
lagi um mitt sumar. Tíminn er naum-
ur, því væntanlegir EES-samningar
verða að fá samþykki umbjóðenda
samningsaðila, þ.e. þeir verða að
fara fyrir ráðherraráð EB og þing
bandalagsins, fyrir þjóðþingin og í
Sviss verður þjóðaratkvæði um mál-
ið. Ef EES-dæmið gengur upp eiga
EFTA-löndin að hafa innleitt EB-
reglurnar hinn fyrsta janúar 1993.
Til að EFTA sem stofnun verði
hæf í EES-samstarfinu þarf að gera
umfangsmiklar breytingar á stofn-
samningi og uppbyggingu samtak-
anna og munu þær breytingar að
öllum líkindum leiða til þess áð EFTA
verði breytt í yfirþjóðlega stofnun.
Heyrst hefur að í stað 100 manna
starfsliðs EFTA nú verði þörf á 2.000
manns til að sinna verkefnum sam-
takanna þegar EES er orðið að veru-
leika.
Forysta EFTA-hópsins á loka-
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Bubbi Morthens
Bubbi Morthens
á Hótel Borg
BUBBI Morthens heldur sína
fyrstu tónleika á þessu ári nk.
laugardagskvöld á Hótel Borg.
Bubbi undibýr sig nú undir tón-
leikaferð til Skandinavíu, sem hefst
um miðjan febrúar.
Tónleikar þessir verða að öllum
líkindum þeir einu hér á landi að
sinni, þeir heijast kl. 22.00 og for-
sala aðgöngumiða er á Hótel Borg.