Morgunblaðið - 01.02.1991, Síða 34

Morgunblaðið - 01.02.1991, Síða 34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1991 Tilvistarvandi EFTA ^fftír Steingrím Gunnarsson Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) eru ekki ánægð með gang viðræðna um evrópska efnahags- svæðið (EES) og lá við að þær sigldu í_ strand í desember síðastliðnum. Ástæðan er ofur einföld. EFTA hefur slegið af flestum kröfum sínum og faliið frá öðrum til að liðka fyrir samningum, en Evrópubandalagið (EB)' hefur aftur á móti staðið fast J sínu og heldur aukið kröfur. sínar en hitt. Hugmyndin um EES er komin frá Jacques Delors, forseta framkvæmd- astjórnar EB, sem hugsaði hana sem leið fyrir EFTA að innri markaði EB. Þar með vildi hann bæta markaði hinna sjö aðildarríkja EFTA við markað EB-ríkjanna tólf og á þann veg draga úr þrýstingi einstakra EFTA-ríkja um aðild að bandalaginu. í sem fæstum orðum á EES að starfa á eftirfarandi hátt: EFTA-ríkin, sem gerðu hagkvæma fríverslunarsamn- inga við EB á árunum 1972-1973, eiga að innleiða „frelsin fjögur“, hornsteina innri markaðarins 1993, „fjórfrelsið" svokallaða á við fijálsa flutninga á vöru, fjármagni, fólki og þjónustu. „Fjórfrelsið" nær ekki til Íandbúnaðar og skiptir það okkur íslendinga máli því að fiskur og fisk- veiðar flokkast þar undir. Verði af stofnun EES munu 19 ríki eiga aðild' að því með samtals um 350 milljónum íbúa, og innan þessa svæðis geta fyrirtæki og fólk flust til að vild. Vöruverslun og við- skipti með fjármagn og þjónustu verða óhindruð. Með því að ryðja úr vegi viðskiptahindrunum milli EFTA og EB gera menn sér góðar vonir um að styrkja samkeppnisaðstöðu EFTA-EB út á við, óg þá sérstaklega gagnvart Bandaríkjunum og Japan. Innan EES mun aukið frjálsræði leiða til aukinnar samkeppni sem á að skila sér í lægra vöruverði til neytenda. Eftir sem áður munu upp- runareglur og tollaeftirlit vera nauð- synlegt, því að EES verður ekki tolla- Til sigurs med Sjálfstæðis- flokknum Opinn stjórnarfundur Fjölnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Rangárvallasýslu, verð- ur haldinn laugardaginn 2. febrúar kl. 17.00 í Verkalýðshúsinu á Hellu, 2. hæð. Gestur fundarins verður Belinda Theriault, fram- kvæmdastjóri SUS. Umræður verða um SUS-starfið og komandi kosningabaráttu. Allt ungt sjálfstæðisfólk velkomið. SUS. i Þórshafnarbúar Þistilfirðingar Sjálfstæðisflokkurinn efnir til almenns félagsfundar í félagsheimilinu Þórsveri í dag, föstudag, kl. 20.30. Ræðumenn verða fimm efstu menn á lista Sjálfstæðisflokksins: Halldór Blöndal, Tómas Ingi Olrich, Svanhildur Árnadóttir, Sigurður Björnsson og Jón Helgi Björnsson. Stjórnin. KENNSLA Vélritunarkennsla Ný námskeið eru að hefjast. Vélritunarskólinn, s. 28040. FELAGSLIF I.O.O.F. 12 = 17221872 = 9.0. I.O.O.F. 1 = 172218V2 = NY-UNG KFUM & KFUK Samvera fyrir fólk á aldrinum 20-40 ára í Suðurhólum 35. Bænastund kl. 20.10. Samveran hefst kl. 20.30. Bænin verkfæri í samfélaginu. Guðrún Gísladótt- ir og Jónína Erna Arnardóttir fjalla um bænina. Ungt fólk á öllum aldri velkomnið. 'lÍftMpdÍ Qútivist 'ÁFIHHI I • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVARI14(01 Tunglskinsganga föstudag 1. febr. kl. 20. Katla- hraun - Selatangar. Fjörubál og miðnæturrómantík í stór- brotnu umhverfi Selatanganna. Brottför frá BSÍ - bensínsölu, stansað á Kópavogshálsi, í Garðabæ við Ásgarð og við Sjó- minjasafnið í Hafnarfirði. j Útivistarferð eru allir velkomnir! Sjáumst! Útivist. Frá Guðspeki- fólaginu Ingólfsstrntl 22. Áskrtftsrsfmi Ganglsrs er 39673. i kvöld kl. 21.00 flytur Einar Aðalsteinsson erindi: „Elska skaltu óvin þinn", i húsi félags- ins, Ingólfsstræti 22. Á iaugardag er opið hús frá kl. 15.00 til kl. 17.00 með stuttri fræðslu og umræðum kl. 15.30. Á fimmtudögum kl. 20.30 er hugleiðing og fræðsla um hug- rækt fyrir byrjendur. Allir velkomnir. bandalag. Stefnt er að því að EES verði að veruleika 1. janúar 1993, þ.e. um leið og innri markaður EB. Til að auðvelda aðlögun, verða EFTA-lönd- in að taka upp gildandi EB-reglur. Hafi EFTA í upphafi viðræðna farið fram á undantekningar til langs tíma frá EB-reglum, þá hafa Fríverslunar- samtökin snúið við blaðinu síðan og eru nú reiðubúin að falla frá flestum fyrirvörum, með ákveðnum skilyrð- um þó. Undantekningarkröfur ein- stakra EFTA-landa eru þess eðlis að um þær verður að íjalla sérstak- lega milli viðkomandi EFTA-lands og EB. Sem dæmi má taka samning um vöruflutninga EB-landa um Sviss og ámóta samning um vöruflutninga EB um Austurríki. Undantekningar- krafa okkar íslendinga um beinar fjárfestingar erlendis frá í íslenskum fiskiðnaði er einnig gott dæmi um sérþörf EFTA-lands. I staðinn fyrir undanþágur eiga að koma verndarákvæði sem tii dæmis kveða á um lengd aðlögun- artíma. Verndarákvæði munu eirj- ungis gilda í þeim tilvikum þar sem sannanlega er um mikilvæga hags- muni viðkomandi ríkis að ræða. Til dæmis má nefna að EFTA-löndin hafa oft strangari reglugerðir í ör- yggis- og umhverfismálum en EB og krefst EFTA að tillit verði tekið til þess í samningum. Aðrar sérkröf- ur EFTA-landa eru t.d. fyrirvari Sviss og íslands hvað erlendu vinnu- afli viðvíkur og fyrirvari Austurríkis varðandi kaup á jarðeignum á til- teknum svæðum í Austurríki. Samningstilboð EFTA um að falla frá flestum fyrirvörum um að gild- andi EB reglur verði teknar upp inn- an EES er háð skilyrði. Það er að viðunandi lausn fáist á þátttöku EFTA-ríkja í ákvarðanatöku innan EES í framtíðinni. Hagstæð niður- staða fyrir EFTA í viðræðunum um ákvarðanatökuna er helsta baráttu- mál EFTA-hópsins í samningalot- unni sem hófst nú í janúar. Margít- rekuð afstaða EB til þessarar meg- inkröfu EFTA hefur verið, að þau ríki, sem ekki eru með í EB-klúbbn- um, geti ekki vænst þess að fá að taka þátt í ákvarðanatöku innan EB heidur einungis að hafa rétt á áheyrn og gera grein fyrir máli sínu. Aheyrnar- og tillöguréttur á öllum stigum innan EES er allsendis ófull- nægjandi tilboð frá sjónarhóli EFTA, og fara samtökin fram á að eiga beinan ' hlut að ákvarðanatökunni. Eínmitt þarna stendur hnífurinn í kúnni og er ekki ólíklegt að EES-við- ræðurnar í heild standi og falli með niðurstöðu þessa þáttar. Annar mikilvægur þáttur í samn- ingaviðræðunum um EES er hvernig leysa eigi deilumál innan EES, og Flóamark- aður FEF á laugardag FLÓAMARKAÐSLAUGARDAG- AR verða í febrúar hjá Félagi ein- stæðra foreldra og haldnir í Skelj- anesi 6. Sá fyrsti er n.k. laugardag 2.fe- brúar og hefst kl 2. eh. Þar verður að venju margt í boði á aldamóta- verði, segir í tilkynningu frá FEF. Nefna má skartkjóla fyrir árshátíðir, frakka, jakkaföt, barnaföt og auk þess mikið af glæsilegum heimili- svarningi, bollum, skálum og pottum. Bækur og tímarit í stöflum, slangur af skóm og nokkrir sófar og hægind- astólar og er þá fátt eitt talið. Mark- aðir verða síðan á hvetjum laugar- degi út febrúar og alltaf sett nýtt gamalt í staðinn fyrir hvern. M BERND Ogrodnik sýnir föstu- daginn 1. febrúarkl. 14.30 oglaug- ardag 2. febrúar kl. 15.30 „Smá- sögur“ sem er samsetning tónlist- ar, leikbrúða og þess óvænta. Sýn- ingin er ætluð fullorðnum og börn- um eldri en 10 ára. Miðavei'ð er Steingrímur Gunnarsson „Samningstilboð EFTA um að falla frá flestum fyrirvörum um að gild- andi EB reglur verði teknar upp innan EES er háð skilyrði. Það er , að viðunandi lausn fáist á þátttöku EFTA-ríkja í ákvarðanatöku innan EES í framtíðinni.“ vill EFTA að settur verði á fót EES- dómstóll sem starfi í tengslum við dómstól Evrópubandalagsins. Fyrir EB krefðist þetta fyrirkomulag breytinga á Efnahagsbandalags- samningnunr sjálfum og gæti það orðið snúið innanhússmál hjá banda- laginu. Það kom EFTA nokkuð á óvart síðastliðið haust þegar framkvæmda- stjórn EB bætti löngum lista land- búnaðarafurða við þau mál sem bandalagið vill semja urn í tengslum við EES. Vissulega er landbúnaður í heild ekki til umræðu nú frekar en þegar Fríverslunarsamningarnir voru gerðir 1972-1973, og það er ekki til umræðu að EFTA-löndin taki upp landbúnaðarstefnu bandalags- ins. F'ramkvæmdastjórn EB er ein- faldlega að koma á móts við „fátæk- ari“ aðildarríki bandalagsins — Spán, Portúgal, Grikkland, írland — með því að krefjast greiðari aðgangs fyr- ir landbúnaðarvörur að markaði EFTA-landa. Líklegt er að EFTA kr. 400. Bernd Ogrodnik er fæddur í Þýskalandi og stundaði nám við tónlistarskóla í Köln frá unga aldri. Hann hefur verið búsettur hér á landi í rúm fjögur ár og hefur m.a. unnið sjálfstætt við leikbrúðugerð, leikhljóð og ýmsar tæknibrellur í auglýsingum, sjónvarpi og kvik- myndum. Meðal verkenda hans er hönnun Pappírs Pésa. Bernd Ogrodnik tók þátt í Dögum leik- brúðunnar í Gerðubergi. ■ TÓNLEIKAR verða í Kjallara keisarans í kvöld þar sem koma fram hljómsveitirnar INRI, Dýrið gengur laust og pönkhljómsveit- in Drulla. Húsið verður opnað kl. 23.00 og tónleikarnir hefjast upp úr 24.00 og standa til kl. 3.00. Með Dýrinu verður gestagítarleikarinn Pétur Þórðarson úr rokkhljóm- sveitinni Bless. ■ JEAN Gattégno, fyrrverandi forstöðumaður bóka- og lestrar- deildar menningar- og samskipta- málaráðuneytis Frakklands og vís- indafulltrúi tilvonandi bókasafns Frakklands, heldur fyrirlestur um fyrirhugað bókasafn Frakklands. Fyrirlesturinn verður í dag, föstu- daginn 1. febrúar, í Háskóla ís- lands, stofu 101, Odda, kl. 17.00. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku. láti undan þessu á einn eða annan hátt sem og í flestu öðru í samninga- viðræðunum fram til þessa. Krafan um greiðari aðgang fyrir landbúnað- arvörur að markaði EFTA tengist kröfunni um aðgang að fiskimiðum okkar Islendinga. Þarna er því ekk- ert smámál á ferðinni þegar íslensk- ir hagsmunir eru hafðir í huga og fyrir EB er þetta pólitískt viðkvæmt mál. EB réttlætir kröfur sínar með því að benda á þann ábata sem iðnað- ur og þjónusta í EFTA-ríkjunum muni hafa af þátttöku sinni í EES, og því sé ekki nema sanngjarnt að eitthvað komi á móti til að styrkja framfarir á hinum fátækari svæðum EB. Það hefur áður verið rætt á hvaða hátt EFTA gæti stutt framfar- ir á lítt þróuðum svæðum EB. Til dæmis hefur verið rætt um að koma á fót þróunarsjóði, eitthvað í líkingu við þann sem EFTA hefur komið upp, til að efla framfarir í Portúgal. Fallið var frá þessari hugmynd af hálfu EB á þeirri forsendu að þá myndi EFTA hafa áhrif á ákvarðana- tökuna um það hvernig sjóðurinn yrði notaður og þannig á innanhúss- mál hjá bandalaginu. Leiðin sem EB hefur valið til að EFTA láti eitthvað af hendi rakna til þróunarsvæða EB er að fá greiðari aðgang að landbún- aðarmörkuðum _og fiskimiðum EFTA-landanna.3 í þessu samhengi þarf enga sérstaka glöggskyggni til að koma auga á sérstöðu Islands í EFTA-hópnum. Hún er aughós. Fyrrnefndir þættir viðræðnanna um EES að viðbættri stífni EB í ákvarðanatökumálinu gerir samn- ingsaðilum erfitt fyrir, og um tíma heyrðust þær raddir í EFTA-hópn- um, sem efuðust um einlægni EB í viðræðunum almennt. Það þarf ekki að líta þannig á, heldur leiðir afstaða EB í EES-málinu í ljós styrkleika- hlutföll viðsemjenda og að EB-menn hafi þrýst EFTA-liðinu upp að veggnum. Upphaflega var gert ráð fyrir að samkomulag næðist fyrir lok síðasta árs, en sú varð ekki raunin, og er miðað við að ganga frá sam- komulagi núna í vor eða í síðasta lagi um mitt sumar. Tíminn er naum- ur, því væntanlegir EES-samningar verða að fá samþykki umbjóðenda samningsaðila, þ.e. þeir verða að fara fyrir ráðherraráð EB og þing bandalagsins, fyrir þjóðþingin og í Sviss verður þjóðaratkvæði um mál- ið. Ef EES-dæmið gengur upp eiga EFTA-löndin að hafa innleitt EB- reglurnar hinn fyrsta janúar 1993. Til að EFTA sem stofnun verði hæf í EES-samstarfinu þarf að gera umfangsmiklar breytingar á stofn- samningi og uppbyggingu samtak- anna og munu þær breytingar að öllum líkindum leiða til þess áð EFTA verði breytt í yfirþjóðlega stofnun. Heyrst hefur að í stað 100 manna starfsliðs EFTA nú verði þörf á 2.000 manns til að sinna verkefnum sam- takanna þegar EES er orðið að veru- leika. Forysta EFTA-hópsins á loka- Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Bubbi Morthens Bubbi Morthens á Hótel Borg BUBBI Morthens heldur sína fyrstu tónleika á þessu ári nk. laugardagskvöld á Hótel Borg. Bubbi undibýr sig nú undir tón- leikaferð til Skandinavíu, sem hefst um miðjan febrúar. Tónleikar þessir verða að öllum líkindum þeir einu hér á landi að sinni, þeir heijast kl. 22.00 og for- sala aðgöngumiða er á Hótel Borg.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.