Morgunblaðið - 01.02.1991, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 01.02.1991, Qupperneq 40
n_ 40 mwc aAQagM x %'száMimm gpiiAJgscjaacwg MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1, FEBRÚAR 1991 t Eiginmaður minn og fósturfaðir, ÓLAFUR JÓHANNESSON, Bólstaðarhlíð 46, Reykjavík, lést á Landakotsspítala fimmtudaginn 31. janúar sl. Þorbjörg Björnsdóttir og Gunnar Hámundarson. t Móðir okkar, HELGA JÓNSDÓTTIR, Frambæjarhúsi, Eyrarbakka, lést 30. janúar á vistheimilinu Sólvöllum. Gunnar Sigurjónsson, Jón Sigurjónsson. t Móðir mín og amma okkar, JÓRUNN GUÐMUNDSDÓTTIR saumakona á Akureyri, andaðist miðvikudaginn 30. janúar á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri. Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Guðmundur Pétursson og fjölskylda. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS JAKOBSSON, Fagradal, Mýrdal, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands að kvöldi 30. janúar. Dætur, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. Unnur Hermanns- dóttir - Minning Fædd 26. október 1910 Dáin 25. janúar 1991 I dag verður kvödd hinztu kveðju ein bezta og nánasta vinkona móð- ur minnar. Báðar fæddust þær austur á Seyðisfirði, ólust upp í nágrenni hvor við aðra, gengu sam- an í barnaskólann og bundust slíkum órofa vináttu- og tryggðar- böndum, sem entust þeim ævina út, að ég tel annað eins vera vand- fundið. Unnur Hermannsdóttir hét hún, og ég fékk snemma að kynnast henni, þar sem móður minni var að mjög tíðrætt um hana og rifjaði þá oftar en ekki upp minningar frá uppvaxtarárum þeirra á Seyðisfirði í leiðinni. Eg leyfi mér að efast um, að móðir mín hafi talað jafn mikið um aðrar sínar vinkonur og Unni. Mér fannst ég því gjörþekkja þessa vinkonu móður minnar, þótt ég sæi hana ekki, svo ég myndi eftir, fyrr en hún fluttist til Reykjavíkur. Þó geri ég ráð fyrir, að móðir mín hafi farið með mig ungbarn í heim- sókn til Unnar, þá þegar við fórum austur á Seyðisfjörð til afa og ömmu í byijun fimmta áratugarins, og eins brá Unnur aldrei út af þeim vana sínum að heimsækja foreldra mína, þá þegar hún kom í heimsókn til Reykjavíkur, þótt minni mitt reki ekki svo langt. Fyrsta minning mín af þessari kæru vinkonu móður.minnar var líklegast um jólin 1954, þegar af- löngum jólapakka var skilað heim á bernskuheimilið mitt, sem reynd- ist vera gjöf frá Unni og dóttur hennar til mín. Gjöfin sú varð líka eitt af mínum uppáhaldsleikföng- um, brúða, sem fékk nafn þeirra mæðgna að launum. Ég sá m.a. í því sambandi, hvað móðir mín mat vinkonu sína mikils og gjöf þessa, að mér var varla treyst svo ungri fyrir þessari vandmeðförnu brúðu og fékk ekki að leika mér með hana fyrr en a.m.k. ári síðar, þegar mér hafði lærst að skilja, að brúðuna þá varð ég að fara sérlega vel með, betur jafnvel en þær aðrar, sem ég átti. Með þeim og ýmsum öðrum hætti var mér kennt að virða og meta Unni Hermannsdóttur. Unnur fæddist 26. október 1910 á Seyðisfirði og var 4. elzt af 10 systkinum, og voru sum þeirra hálf- systkini hennar, enda faðir hennar tvíkvæntur. Hann hét Hermann Þorsteinsson og var kaupmaður, en móðir Unnar hét Jóhanna Stefáns- dóttir, og mun hafa verið skyldleiki með henni og móðurafa mínum, eftir því sem ég bezt veit. Það var líka töluverður samgangur milli heimilanna. U ng að árum giftist Unnur Ant- oni Olasyni, sem var bifreiðastjóri á Seyðisfírði, en er nú látinn fyrir fjölmörgum árum. Þau eignuðust eina dóttur barna, Jóhönnu, sem vinnur hjá bæjarsímanum. Eftir að Unnur og Anton fluttust til Reykjavíkur árið 1956, kom Unnur oft í heimsókn á bernsku- heimili mitt, og aldrei liðu svo af- mælisdagar þeirra vinkvenna, móð- ur minnar og hennar, að þær byðu ekki hvor annarri í heimsókn, og aðra daga þess utan, ef möguleiki var á, þótt tilefnið væri minna, og minnist ég þess að hafa farið a.m.k. einu sinni með móður minni í heim- sókn á smekklega búið heimili Unn- ar, sem hún bjó sér, dóttur sinni og dóttursonum eftir andlát Antons. í heimsóknum Unnar á bernsku- heimili mitt fékk ég að kynnast henni betur og heyra mismunandi frásögur af fólki og atburðum á Seyðisfirði á fyrstu áratugum aldar- innar, sem urðu svo ijóslifandi fyrir hugskotssjónum áheyrandans, að engu var líkara en mér fyndist ég stundum standa álengdar og fylgj- ast með atburðunum gerast. Eg hafði því mikla ánægju af að hlusta á þær vinkonur og ömmu mína rifja upp gamlar minningar frá árum þeirra á Seyðisfirði. Þegar heilsa Unnar fór að gefa sig, og hún sá sér ekki lengur fært að heimsækja vinkonu sína, hringdu þær mjög oft hvor í aðra og gátu þá talað saman löngum stundum í símann. Af því að fyigjast með þessum nána vinskap og sterka sambandi milli Unnar og móður minnar, sá ég bezt hvaða manneskju Unnur hafði að geyma, og að hér fór að mörgu leyti óvenjuleg kona um margt. Umhyggja hennar fyrir dóttursonum sínum tveimur bar þess líka Ijósan vott. Að leiðarlokum bið ég henni blessunar Guðs og góðrar heim- komu, og sendi Jóhönnu og öðrum aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Unnar Her- mannsdóttur. Hafi hún kæra þökk fyrir allt og allt. Guðbjörg Snót Jónsdóttir t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afT og langafi, BJÖRN EMIL JÓNSSON járniðnaðarmaður, Ásgarði 139, lést á Borgarspítalanum miðvikudaginn 30. janúar. Margrét Hallgrímsdóttir, Hans Jón Björnsson, Lykke Björnsson, Emil Sæmar Björnsson, Aida Snæbjörnsdóttir, María Ingunn Björnsdóttir, Frans Jensen, Björn Elías Björnsson, Sveinn Lúðvík Björnsson, Margrét Pétursdóttir, Jón Hafberg Björnsson, Valgerður Helga Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, HERBORG HÚSGARÐ, Bakkaseli 21, Reykjavík, verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju mánudaginn 4. febrúar kl. 13.30. Jens Tómasson, Sverrir Jensson, Unnur Jensdóttir, Birgir Jóakimsson, Eiríkur Jensson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GARÐAR ÞORSTEINSSON, Heinabergi 6, Þorlákshöfn, verður jarðsunginn frá Þorlákstirkju laugardaginn 2. febrúar kl. 14.00. Rakel Guðmundsdóttir, Anna Garðarsdóttir, Eyvindur Sigurfinnsson, Guðmundur Garðarsson, Ingibjörg Georgsdóttir, Þorvaldur Garðarsson, Guðbjörg Kristjánsdóttir, Vilhjálmur Garðarsson, Hafdís Sigurðardóttir og barnabörn. Hrefna Sigfúsdóttir Vogum - Minning Fædd 4. desember 1923 Dáin 27. janúar 1991 Útför Sigríðar Hrefnu Sigfús- dóttur verður gerð frá Kálfatjarnar- kirkju í dag. Foreldrar hennar voru Sigfús Sigurðsson skólastjóri á Stórólfshvoli og Sigríður Nikulás- dóttir. Eiginmaður Hrefnu var Jón H. Kristjánsson kennari og skóla- stjóri á Vatnsleysuströnd, en hann lést í júnímánuði sl. Börn þeirra eru: Sólveig Kristín fædd 1942, skrifstofumaður. Hennar maður er Ólafur Karlsson aðalendurskoðandi. Sigfús fæddur 1944, forstjóri, kona hans er Bergljót Sigurðardóttir full- trúi. Kristján fæddur 1948v blaða- maður, og Finnur Hrafn fæddur 1958, verkfræðingur. Skammur tími leið frá því að Hrefna missti eiginmann sinn, þar til hún kenndi sér þess' meins er leiddi hana til dauða á stuttum tíma. Það er kannski rökrænt, að þau sem alltaf fylgdust svo náið að í lífinu fylgist einnig að yfir landið ókunna, en fyrir okkur hin er það sárt að sjá á eftir þeim báðum með svo stuttu millibili. Heimili þeirra ein- kenndist af gagnkvæmri virðingu og innilegri vináttu. Aldrei heyrðist t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORSTEINN LOFTSSON bóndi, Haukholtum, verður jarðsunginn frá Hrunakirkju laugardaginn 2. febrúar kl. 14.00. Bílferð verður frá BSÍ kl. 11.30. Oddleifur Þorsteinsson, Elín Kristmundsdóttir, Loftur Þorsteinsson, Hanna L. Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Minníngarkort Krabbameinsfélagsins fást í flestum lyfjabúðum í Reykjavík og á nær öllum póstafgreiðslum úti á landi. Einnig er hægt að hringja í síma 62 14 14. Ágóða af sölu minningarkortanna er varið til baráttunnar gegn krabbameini. Krabbameinsfélagið þar misklíð og þótt ég dveldist um tíma á heimili þeirra og væri þar síðan tíður gestur, heyrði ég þeim aldrei verða sundurorða. Hrefná var dul og hljóðlát og einstaklega hátt- prúð kona. Lestur góðra bóka var henni yndi og minni hennar mjög gott. Ég hygg að hún hafi myndað sér skoðanir um flesta hluti, en flíkaði þeim ekki nema eftir þeim væri ieitað. Hrefna og Jón voru gestrisin og kunnu þá list að gera hveija heimsókn í senn ánægjulega og fræðandi. Hrefna sinnti mikið áhugamálum eiginmannsins. Jón ólst upp við sjó og hafði alla tíð mikla ánægju af að eiga bát og róa til fiskjar. Hrefna var manni sínum styrkur í því sem öðru, fór á sjóinn og reri með honum mörg sumur. En bátarnir sem þau eignuðust báru ætíð nafn hennar. Ég vil enda þessi kveðjuorð um mágkonu mína með því að votta aðstandendum samúð og vona að góðar minningar um hina látnu heiðurskonu megi milda söknuð þeirra. Sigfús Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.