Morgunblaðið - 01.02.1991, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 01.02.1991, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1991 Stórmót og einvígi í Hollandi __________Skák_____________ Margeir Pétursson HINU árlega Hoogovens-skák- móti lýkur í Wijk aan Zee í Hollandi um helgina. Það er nú haldið í 53. sinn og auk hins venjulega mótahalds fara þar fram tvö áskorendaeinvígi. Viktor Kortsnoj hefur nú tekið forystuna í einvígi sínu við Ungveijann Sax. Hann vann fimmtu skákina en fjórum fyrstu lauk með jafntefli. Fjór- um fyrstu skákum Sovétmann- anna, Sergeis Dolmatovs og Arturs Jusupovs, lauk einnig með jafntefli, en Dolmatov á unna biðskák í þeirri fimmtu. Alls verða tefldar átta skákir í einvígjunum. Staðan í hinum fimm einvíg- unum er þessi: Timman - Hubner 2-1 Anand - Dreev 2 'A-l'/ 2 Gelfand - Nikolic 1 'A-l ’/2 Ivantsjuk-Judasjin 3-0 Speelman-Short 0-1 Helgi Ólafsson er á meðal þátttakenda í efsta flokki á mótinu í Wijk aan ZeeC Eftir góða byrjun hefur Helgi verið algjörlega óþekkjanlegur í síðustu umferðum. Að venju er þetta mót at'ar öflugt og keppendahópurinn er samansettur með það fyrir augum að barátta verði mikil og keppnin um efsta sætið spennandi. Þrír Sovétmenn eru á meðal keppend- anna 14 í efsta flokki, en til sam- anburðar má nefna að á stórmót- inu í Reggio Emilia, sem nú er að Ijúka, eru hvorki meira né minna en átta keppendur af 14 sovézkir og hafa margar skákir þar orðið stutt jafntefli. Staðan eftir níu umferðir 1.-3. Michael Adams, Englandi, John Nunn, Englandi og Jeroen Piket, Hollandi 6 v. 4. Valery Salov, Sovétr. 5'A v. 5.-7. Alexander Chernin, Sov- étr., Yasser Seirawan, Banda- ríkjunum og Alexander Khalif- man, Sovétr. 5 v. 8. Curt Hansen, Danmörku 4 'A v. og biðskák 9. -12. John Fedorowicz, Banda- ríkjunum, Joel Lautier, Frakkl- andi, John Van der Wiel, Hollandi og Ivan Sokolöv, Júgóslavíu 3 'A v. 13. Zdenko Kozul, Júgóslavíu 2'/2 v. og biðskák 14. Helgi Ólafsson 2'/2 v. Svo sem sjá má af stöðunni er ómögulegt að spá fyrirum úrslit. Hollendingar eru að vonum án- ægðir með yngsta stórmeistara sinn, hinn 21 árs gamla Piket, sem hefur m.a. lagt Salov að velli í sóknarskák með svörtu. Seirawan hefði átt að vera nokkuð sigur- stranglegur eftir öruggan sigur yfir Timman, 4-2, í æfingaeinvígi um áramótin. Helgi byijaði mótið vel með öruggum sigri yfir hinum 17 ára gamla Frakka, Joel Lautier: Hvítt: Helgi Ólafsson Svart: Joel Lautier Kóngsindversk vörn 1. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3 - Bg7 4. e4 - d6 5. Be2 - 0-0 6. Rf3 - Rbd7 Þetta er ekki talin nákvæm leikjaröð, en Lautier vill ekki gefa Helga kost á uppskiptaafbrigðinu 6. — e5 7. dxe5 — dxe5 8. Dxd8. 7. 0-0 - e5 8. Dc2 Á Ólympíumótinu hafði Helgi annan hátt á gegn sama andstæð- ingi: 8. Be3 — c6 9. d5 — c5 10. Rel - Re8 11. Rd3 - Rb6 12. Db3!? - f5 13. f4 - exf4 14. Rxf4 - De7 15. a4 - Rc7 16. a5 - Rd7 17. Re6 - Rxe6 18. dxe6 - Dxe6 19. Rd5 - Hb8 20. exf5 — gxf5 21. Hadl og samið jafntefli, enda hefur hvítur full- Viktor Kortsnoj hefur tekið forystuna í einvíginu við Sax. nægjandi færi fyrir peðið í þess- ari tvísýnu stöðu. 8. - c6 9. Hdl - De7 10. d5 - c5 11. g3!? Athyglisverð hugmynd og nokkuð óvenjuleg í kóngsind- verskri vörn. Með þessum og næstu leikjum sínum undirbýr hvítur að mæta f7-f5 með f2-f4, og beijast við svart um rými á kóngsvæng. Þetta heppnast mjög vel í þessari skák. Ivantsjuk hefur leikið 11. - Rg4 12. Rh4 - Rb6 13. a3 — f5 í stöðunni, sem virð- ist heldur virkara en það fram- hald sem Lautier velur. 11. - Re8 12. Rh4 - Rb6 13. Be3 — f5 14. exf5 — gxf5 15. f4 — exf4? Eftir þetta verður peðið á f5 afskaplega veikt og hvítur nær brátt sterkum tökum á kóngs- vængnum. 16. Bxf4 - Be5 17. Hfl - Bxf4 18. Hxf4 - Rg7 19. Hafl - Bd7 20. Bd3 Hvítur hefur náð fram eins konar óskastöðu, enda hefur tafl- mennska Frakkans ekki verið til mikilla trafala. Hvítur setur á veika peðið á f5 með hvorki meira né minna en fimm mönnum og það er dæmt til að falla. 20. - Dg5 21. b3! - Hf7 22. Bxf5 - Rxf5 23. Rxf5 - Bxf5 23. — Haf8 er svarað með 24. Re4. 24. Hxf5 - Hxf5 25. Hxf5 - De3+ 26. Kg2 - He8 27. Hf4 - Rd7 28. Df5 - Hf8 29. Dg5+ og svartur gafst upp, því hann tapar drottningunni. Sigurvegarinn frá því í fyrra, John Nunn, byijaði vel með tveim- ur sigrum yfir Kozul og Fed- orowicz, en tapaði í fimmtu um- ferð fyrir Salov. Sigurskákin gegn Bandaríkjamanninum var stutt og glæsileg þrátt fyrir að Nunn hafi leyft honum að tefla afbrigði sem er mjög vinsælt meðal vestur- heimskra skákmanna og þaul- kannað af þeim. Hvítt: John Nunn Svart: John Fedorowicz 1. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. d4 - cxd4 4. Rxd4 — Rf6 5. Rc3 — Rc6 6. Bg5 - e6 7. Dd2 - a6 8. 0-0-0 - h6 9. Be3 - Rxd4 10. Bxd4 Short drap með drottningu gegn Dlugy frá Bandaríkjunum í Wijk aan Zee í fyrra og tapaði illa. Við morgunverðarborðið dag- inn eftir þá skák minntist Nunn einmitt á að mun betra væri að drepa með biskupi og rökstyður nú þá fullyrðingu sína. 10. - b5 11. f4 - Bb7 12. De3!? Þetta mun vera nýr leikur í stöðunni. Hér hefur áður verið leikið 12. Bxf6 og 12. Bd3. Nú verður Fedorowicz strax á í messunni. Það hefði verið fróð- legt að sjá hvað Nunn ætlaði að gera gegn 12. — Be7, því eftir 13. e5 — dxe5 er ekki að sjá að hann geti fært sér opnún d- línunnar í nyt. 12. - Dc7?! 13. Bb6 - Dc8? Eftir þetta ræður svartur ekki við neitt, skárra var því 13. — Dc6, þótt hvíta staðan sé mun þægilegri eftir 14. Rd5! — Hc8 15. Rxf6+ gxf6 16. Bd3 14. e5 - Rd5 Eftir 14. — Rd7 15. exd6 — b4 virðist 16. Be2! öflugast með hugmyndinni 16. — bxc3? 17. Dxe6+! — fxe6 18. Bh5+ og mátar. 15. Rxd5 — Bxd5 16. exd6 — Dc6 17. Hxd5!! - Dxd5 18. Be2 - I)xa2 Vegna lélegrar liðsskipunar sinnar er svartur varnarlaus. Eft- ir 18. - Dxd6 19. Hdl - De7 20. Bf3 — Hc8 21. De4! er hann t.d. vamarlaus gegn hótuninni 22. Dc6+. 19. Df3 - Bxd6 20. Dxa8+ - Ke7 21. Db7+ - Kf8 22. Bc5! - Dal+ 23. Kd2 - Dxhl 24. Db8+ og svartur gafst upp því hann er óveijandj mát í nokkmm leikjum. FURÐUVERÖLD TWIN PEAKS Á ídrangakórinn Hverfinnur dagbók Lauru Palmer, fegurðardrottningarinnar með vafasömu fortíðina. Vegleg verðlaun. Þrir spörfuglar dansa á sviðinu! Laugavegi 45 - s. 21255 í kvöld: LOÐIN ROTTA Á næstunni: 5. og 6. feb. MAMMA VEIT ALLT frá Hornafirði 7. feb. HEITIR SVANSAR Geiri Sæm og Co. 8. og 9. feb. GALÍLEO Eldhúsió opið alla daga frá kl. 18.00-22.30 Hressustu bar-snúðarnir sjá um tónlistina og drykkina Opiðtilkl. 03.00 Enginn aðgangseyrir Spariklæðnaður Hátt aldurstakmark LOKAÐ VEGNA EINKASAMKVÆMIS HÖTEL ÍMÆD Föstud. 1. febr. opið kl. 20-03 Svarti blúslistamaðurinn í næst síðasta sinn Gestur kvöldsins: AÐGANGUR AÐEINS KR. 500 MÆTUM TÍMANLEGA - SÍÐAST VAR UPPSELT! tónlistarmiðstoð djass & blús

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.