Morgunblaðið - 01.02.1991, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 01.02.1991, Qupperneq 49
MQRGUNBiLAStlÐ FÖSTUPAGUR 1. FpEBR^ÚAR 1991, - VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS ^UiáiMiSmUUaUiA Gefum smáfuglunum SLÆMT ÁSTAND Til Velvakanda. Það er farið að ganga fram af fólki hvernig farið er með skaUpen- inga þess. Ríkisstjórnin hjálpar poppurum að verða heimsfrægir stóð í DV fyrir skömmu. Nefnd í þetta verkefni var skipuð af fjár- málaráðherra, utanríkisráðherra, forsætisráðherra og menntamála- ráðherra. Á sama tíma er eins og tveggja ára bið eftir plássi á hjúkrunarheim- imli fyrir sjúk gamalmenni, og ef eitthvert pláss losnar eru fleiri hundruð manns sem bítast um það og þriggja manna úthlutunarnefnd sem ákveður hver það hlýtur. Ég hefi gengið fyrir hvers manns dyr sl. ár til þess að reyna að koma konu minni inn á hjúkrunarheimili þar sem ég er enginn maður til þess að hjálpa henni eins og þyrfti og er sjálfur að kikna undan svefn- leysi og stressi sem því fylgir að hafa hana heima. Við fáum heimilishjálp en það hefur gengið illa með þær stúlkur sem hafa komið til okkar, sumar reykja svo mikið að við fáum hósta um leið og þær eru komnar inn úr dyrunum. Okkur skilst að þær séu svo illa launaðar að það sé mjög erfítt að fá gott fólk í þessi störf. Áður en konan varð heilsutæp fórum við á heilsuhælið í Hvera- gerði á hveiju ári og var það mikil upplyfting fyrir okkur, en eftir að heilsu hennar fór að hraka meira var okkur sagt að þetta væri engin aðstaða til þess að hafa þá sem ekki gætu séð um sig sjálfir. Þetta finnst mér óskiljanlegt þar sem þama eru fjórir læknar starfandi, hjúkrunarforstjóri og fjölmennt starfslið. Við búum í okkar gamla húsi.og höfum ekki hugsað til þess að kaupa okkur svokallaða þjónustuíbúð, en kunningjafólk okkar sem býr í einni slíkri, segir að þær séu eingöngu fyrir fólk sem er vel rólfært, en engin þjónusta þegar veikindi herja á íbúana, utan þess að fá heimilis- hjálp og mat sendan heim, eins og sú þjónusta sem við fáum í heima- húsum. Það er hvergi eins slæmt ástand á þessum málum og hér í Reykja- vík, vegna þess að margt aldrað fólk sem fluttist hingað af lands- byggðinni fær inni á hjúkrunarhe- imilum og sjúkrahúsum hér í Reykjavík til jafns við hina. Áðaláhyggjuefni aldraðs fólks í dag er: Hvað gerist ef ég missi heilsuna og iifi? Ellimóður Til Velvakanda. Nú í þorrabyijun leita smáful- garnir enn á náðir okkar því ef snjóinn tekur ekki upp fljótlega er lítið um æti handa þeim. Þá þurfa kattareigendur að passa vel að hafa ketti sína ekki útivið því lífsbarátta Til Velvakanda. Við erum hérna nokkrar „smáp- íkur“ eins og þú nefndir okkur síð- astliðinn föstudag, nánar tiltekið 25. janúar kl. 9 í einu af bíóhúsum borgarinnar. Við viljum lýsa þessari bíóferð frá okkar sjónarhóli. Við sátum fjórar saman og þú og vinafólk þitt til hliðar við okkur og tvær vinkonur okkar fyrir framan. Þeg- ar myndin var rétt nýbyijuð fóru þessar tvær sem sátu framar að tala og þá var gripið harkalega í öxlina á annarri og henni var sagt að halda kjafti. Það var orðbragð þitt. Við hefðum tekið þetta til greina ef þú hefðir ekki bætt um betur og kastað pappadós í höfuð- ið á einni okkar þegar hún beygði sig fram. Sömu skipanir með sama orð- bragði dundu á okkur fram að hléi, en þá sagðir þú eitthvað á þessa leið: „Það er alveg óþolandi að sitja hjá ykkur með þessi smápíkulæti." Eftir hlé hélt þetta áfram og það þó að ein okkar skipti um sæti við strák sem sat þarna nálægt okkur. Eins og þú sagðir sjálfur í út- varpsþætti þínum þann 28. janúar, þá byrjaðir þú að lemja í hausinn á stráknum því hann var alltaf að fara á klósettið (hann fór einu sinni), þú sagðir einnig að þú hefð- ir náð í vörð til að láta þagga niður smáfulganna er nógu erfíð samt á þessari árstíð. Kettirnir eru vísir til að ráðast á fuglana og eins geta þeir varnað þeim að ná í æti sem dreift hefur verið fyrir þá með því að vera á vappi í grenndinni. Dýravinur í okkur. Eitthvað fðr lítið fyrir þeim verði því ekki sáum við þig svo mikið sem standa upp alla sýn- inguna.- En þú sýndir þroska þinn og yfirburði þegar þú hélst áfram að lemja í hausinn á okkur og segja okkur að halda kjafti. Kona sem sat við hliðina á þér lamdi síðan allharkalega í bakið á stráknum og annað hvort ykkar bað okkur um að fara heim í Barbieleik. Okkur þykir leitt ef þú telur að við höfum spillt fyrir þér sýning- unni. En það dregur hver dám af sínum sessunaut og þín framkoma var ekki beint til fyrinnyndar. Þar að auki veist þú að bíóhúsin eru ein af þeim fáu stöðum sem ungl- ingar geta sótt, og þar af leiðandi eru alltaf einhver læti á níusýning- um um helgar. Það má bæta við að kona sem við þekkjum og var í sama bíói sagðist sjaldan hafa farið á jafn rólega sýningu. Við viljum benda þér á að ungl- ingar hafa sama rétt og fullorðnir og að þú ert ekki einn í heiminum. Næst þegar þú segir frá ein- hveiju opinberlega hafðu þá allt rétt, en reyndu ekki að bæta þinn hag með því að sleppa úr mikilvæg- um atriðum. Li(ja Karlsdóttir Harpa Guðjónsdóttir Hrafnhildur Sigurðardóttir Harpa Heimisdóttir EKKIBEINT TIL FYRIRMYNDAR Opið bréf til Bjarna Dags Jónssonar Smellin, lítil nýjung SIEMENS -gæði STÓRGLÆSILEG NÝ ÞVOTTAVÉL FRÁ SIEMENS! Enn á ný ryður Siemens brautina í þróun og hönnun heimilistækja. í þetta skiptið með nýrri þvottavél, sem slegið hefur í gegn og mun vafalaust verða öðrum þvottavélaframleið- endum fyrirmynd, því að hér er á ferðinni sannkölluð tímamótavél í hönnun og notkun tölvustýribúnaðar, sem býður upp á nýja og betri þvottaaðferð en áður hefur þekkst. Mikil fjölbreytni í þvottakerfum, þeytivinding ( áföngum og þrír mismunandi vinduhraðar skapa nánast óendanlegt svigrúm fyrir allan þvott, sérhvert óhreinindastig hans og þann hámarkshita sem hann þolir. Sjálfvirkur magnskynjari skammtar vatn inn á vélina ( samræmi við magn og gerð þvottar og það kerfi sem er ( gangi og aðlagar þannig vatnsnotkunina sjálfkrafa þv( sem þvegið er. Sérþróuð þvottatromla með þremur áföstum vatns- hripum heldur vatninu á stöðugri hreyfingu og tryggir þannig jafnt gegnumstreymi á vatni um þvottinn. Þessi nýjung sér til þess að þvotturinn fær bestu hugsanlegu meðhöndlun. SIWAMAT PLUS 4200 uppfyllir allar ítrustu kröfur og óskir sem gerðar eru til þvottavéla nú á dögum. Hún er mjög þægileg í notkun með aðgengilegt, upplýst stjórnborð. Itarlegur leiðarvísir á (slensku og greinargóð tafla yfir öll möguleg þvottakerfi vélarinnar fylgja með. Þær miklu gæðakröfur sem gerðar voru við þróun hennar og framleiðslu tryggja auk þess auðvelt viðhald og langa endingu. Gæði á gæði ofan frá SIEMENS SMITH& NORLAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.