Morgunblaðið - 01.02.1991, Page 51
ieei flAUHHST
- MORGUNBLAÐIÐ
«...._j_....•_...~—jM
ÍHémR
FOLX
■ STUTTGARTtapaði, 0:2, fyrir
brasilíska félaginu Palmeiras á
alþjóðlegu móti í Brasilíu í gær-
kvöldi.
■ ROGER MilJa mun leika með
Kamerún gegn Englandi á Wem-
bley í næstu viku. Milla, sem er
38_ ára, var hetja-Kamerún í HM
á ítaliu.
■ LIVERPOOL hefur keypt
skoska landsliðsmanninn David
Speedie, 30 ára, frá Coventry á
675 þús. pund. Speedie er fjórði
miðvallarspilarinn sem félagið
kaupir á stuttum tíma. Áður hafði
það keypt Jimmy Carter frá Mill-
wall á 700 þús. pund, hinn 17 ára
Jamie Redknapp frá Bournemo-
uth á 700 þús. pund og Don Hog-
hton frá Hartlepool á 300 þús.
pund.
I SPEEDIE ætlaði að gera
samning við Aston Villa, en félag-_
ið var ekki tilbúið að borga honum’
300.000 ísl. kr. í vikulaun, en aftur
á móti var Liverpool tilbúið að
borga honum þessa upphæð.
■ ABEL Resino, markvörður
Atletico mun setja nýtt spánskt
met - ef hann heldur markinu
hreinu í fyrri hálfleik gegn Betis.
Miguel Reina, markvörður
Barcelona, setti metið fyrir átján
árum - hélt markinu hreinu í
824 mín.
M LOREN Seagrave, þjálfari
Ben Johnsons, hefur ákveðið að
hætta starfi sínu og snúa aftur
heim til Bandaríkjanna. Hann hef-
ur þjálfað Johnson síðan í sumar
og segist sannfærður um að hann
eigi eftir að verða fljótasti maður
heims á ný.
M BERNARD Tapie, eigandi
franska knattspyrnuliðsins Mar-
seille, 'var með fjögurra og hálfs
tíma fund með leikmönnum liðsins
í gær, en leikmennirnir hafa sagt
að þeir ætli í átta mánaða verkfall
verði árs banni Tapies ekki aflétt.
Tapin bað leikmenn sína að leika
gegn Bordeaux í kvöld. „Ég get
aðeins svarað einni spurningu. Leik-
mennirnir ætla að leika gegn Bord-
aux,“ sagði Tapin við fréttamenn
eftir fundinn.
M LEIKMENN Marseille mættu
á stutta æfíngu fyrir fundinn og
síðan héldu þeir til Bordaux eftir
að honum loknum. Leikmennirnir
sögðu að verkfalli þeirra hafi ekki
verið aflýst. Við munum ræða mál-
in nánar á næstu dögum, sögðu
þeir eftir fundinn.
M 1000 stuðningsmenn félagsins
fögnuðu Tapin þegar hann kom í
herbúðir Marseille. Heyrst hefur
að Tapie hafi í hyggju að áfrýja
dómnum. Hann hafði áður sagt að
hann myndi sætta sig við dóminn
og selja félagið.
M MANFRED Kastl, sóknarleik-
maður hjá Stuttgart sagði í viðtali
að eins og staðan væri nú - væri
hann ekki inn í byijunarliði Stuttg-
art. „Fritz Walter
og Eyjólfur Sverris-
son eru fastir í sessi,
en ég er ákveðinn
að gefast ekki upp
og ætla að endurheimta sæti mitt,“
sagði Kastl.
M CORRADO Ferlaino, forseti
ítalska knattspyrnuliðsins Napólí,
má ekki láta sjá sig á knattspyrnu-
völlum eða í búningsherbergjum
fyrr en 1. júlí. ítalska knattspyrnu-
sambandið felldi þennán dóm í gær
vegna aðdróttana forsetans. Hann
sagði að formaður sambandsins
drægi taum liða á Norður-Ítalíu og
ásakaði sambandið um að hafa sett
„hlutdrægan" dómara á leik Nap-
ólí og Juventus, sem Juve vann 1:0.
M STIG var dæmt af franska lið-
inu Toulon í gær vegna þess að
áhorfendur slösuðu línuvörð á leik
liðsins gegn París St. Germain
fyrir mánuði. Dómarinn stöðvaði
leikinn og ákvað aganefnd að hann
færi fram aftur og þá á hlutlausum
velli. Félaginu var gert að greiða
tæplega 600.000 ÍSK í sekt.
FráJóni
Halldóri
Garðarssyni
-ÍV-Þýskalandi
KNATTSPYRNA
Sigurður æfir
í Þýskalandi!
SIGURÐUR Jónsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, sem hef-
ur lítið sem ekkert getað leikið
með Arsenal vegna meiðsla,
er þessa dagana í læknismeð-
ferð í Dússeldorf í Þýskalandi
og virðist loks hafa fengið rétta
meðhöndlun. Atli Eðvaldsson,
landsliðsfyrirliði, fékk lækni í
Dusseldorf til að skoða Sigurð
og í Ijós kom að brjósk á milli
hryggjarliða þrýsti á taug, sem
olli því að hann stífnaði ávallt
upp í hægra læri við áreynslu.
URSLIT
Körfuknattleikur
UMFT-UMFG 102:82
Sauðárkrókur, Úrvalsdeildin í körfuknatt-
leik, 31. janúar 1991.
Gangur leiksins: 8:8, 12:13, 20:18, 29:27,
35:31, 41:39, 49:41. 55:45, 61:49, 67:56,
82:63, 88:65, 97:71, 102:82.
Stig UMFT: Pétur Guðmundsson 26, ívan
Jónas 22, Valur Ingimundarson 17, Sverris
Sverrisson 17, Einar Einarsson 10, Karl
Jónsson 8, Pétur Vopni Sigurðsson 2.
Stíg UMFG: Guðmundur Bragason 24,
Jóhannes Kristbjörnsson 15, Steinþór
Helgason 14, Dan Krebbs 12, Ellert Magn-
ússon 9, Sveinbjörn Sigurðsson 4, Marel
Guðlaugsson 2, Bergur Hinriksson 2.
Dómarar: Guðmundur Maríasson og Krist-
inn Óskarsson, sem dæmdu vel.
Áhorfendur: 640.
Haukar-ÍBK 86:91
Iþróttahúsið við Standgötu.
Gangur leiksins: 0:2, 9:14, 23:21, 28:33,
36:41, 42:52, 63:70, 78:81, 80:83, 86:91.
Stíg Hauka: Damon Vance 30, Pálmar
Sigurðsson 15, Jón Amar Ingvarsson 14,
Henning Henningsson 11, Ingimar Jónsson
9, ívar Asgrimsson 4, Pétur Ingvarsson 3.
Stig ÍBK: Falur Harðarson 26, Thomas
Lytle 17, Sigurður Ingimundarson 17, Jón
Kr. Gíslason 15, Albert Óskarsson 7, Júlíus
Friðriksson 6, Egill Viðarsson 3.
Dómarar: Helgi Bragason og Kristinn Al-
bertsson dæmdu mjög vel.
Áhorfendur: Um 130.
A-RIÐILL
FJ.Ieikja U T Stig Stig
NJARPVÍK 19 KR 19 HAUKAR. 19 SNÆFELL 18 ÍR 19 15 4 1759: 1515 30 11 8 1556:1507 22 9 10 1598:1613 18 4 14 1392:1616 8 4 15 1518: 1765 8
B-RIÐIL L
Fj. leikja U T Stig Stig
iBK 19 TINDASTÓLL 19 GRINDAVI'K 19 VALUR 19 ÞÓR 18 15 4 1872:1694 30 13 6 1817:1719 26 12 7 1619: 1579 24 6 13 1582: 1656 12 5 13 1685:1734 10
Skíði
HM í Saalbch
Tvíkeppnissvig kvenna:
(Fyrri brautin var 51 hlið og sú síðari 49
hlið og fallhæð 168 metrar)
1. Vreni Schneider (Sviss)
1:23.14(41.10/42.04)
2. Annelise Cobcrger (Nýja-Sjálandi)
.................. 1:25.51 (42.97/42.54)
3. lngrid Stöckl (Austurriki
.................. 1:25.91 (42.72/43.19)
4. Gaby May (Sviss)
.................. 1:26.07 (43.06/43.01)
Alpatvikeppni kvenna:
(Samanlagur árangur úr svigi og bruni)
stig
1. Chant^l Bournissen (Sviss).....26.45
2. Ingrid Stöckl (Austum'ki.......33.76
3. Vreni Schneider (Sviss)........42.13
4. Miriam Vogt (Þýskalandi).......44.81
5. Katja Seizinger (Þýskalandi)...46.94
Handbolti
2. dcild kvcnna:
Grindavík - Haukar................12:11
Ikvöld
Snæfell og Þór leika i úrvaldeildinni i
körfuknattleik i Stykkishólmi í kvöld
kl. 20.00. Þessi leikur átti að fara fram
í gærkvöldi, en var frestað þar sem
ekki var flugfært frá Akureyri.
Eg hef gengið til hinna ýmsu
sérfræðinga í Englandi án ár-
angurs. Einn hefur sagt mér að
gera þetta og annar hitt, en það
er fyrst hérna, sem ég hef féngið
rétta greiningu," sagði Sigurður við
Morgunblaðið í gærkvöldi.
Sigurður sagði að aldrei hefði
verið minnst á sérstakar bakæfing-
ar, en hann hefði verið látinn vera
í gifsi í tvo mánuði í fyrra, sem
hefði greinilega gert illt verra. Nú
væri hann hins vegar í geislameð-
ferð og sérstökum bakæfingum í
sex tíma á dag.
Hann hefur verið í sjúkrameðferð
í Dússeldorf í 10 daga, en fer aftur
til Englands á morgun og heldur
þar sérstökum sjúkraæfingum
áfram næstu þijár vikurnar. „Það
er allt kapp lagt á að styrkja bakið
og ná auknu jafnvægi á milli vöðva-
hópa. Síðan má ég fara áð skokka,
en hingað til hef ég verið látinn
byija á fullu allt of snemma. þessi
meðferð lofar góðu og vonandi verð-
ur þetta til þess að ég nái mér fljót-
lega,“ sagði Sigurður.
KORFUKIMATTLEIKUR
GóðursigurTindastóls:
Pétur með á ný
E
sonar í lið Tindastóls hafði góð
áhrif á leik liðsins gegn Grindvík-
ingum í gærkvöldi. Tindastóll sigr-
aði í mjög þýðingar-
Björn miklum leik, 102:82,
Björnsson á Sauðárkróki.
skrifar Tindastólsmenn
unnu öruggan sigur
og má segja að leikurinn hafi verið
ijögurra stiga leikur fyrir þá því
þeir eru að beijast við Grindvíkinga
um að komast í úrslitakeppnina.
Leikurinn var jafn til að byija með,
en síðan náðu heimamenn góðum
tökum á leiknum og mestur var
munurinn 26 stig. Pétur Guð-
mundsson var atkvæðamestur og
skoraði grimmt. Hann gekk ekki
heill til skóar - haltraði mest allari
leikinn. Valur Ingimundarson var
einnig góður hjá heimamönnum og
þá léku Ivan Jonas og Sverrir Sverr-
isson vel. Guðmundur Bragason var
yfirburðarmaður hjá Grindvíking-
um.
ÍBK á beinu brautinni
Keflvíkingar lögðu Hauka í
skemmtilegum leik í Hafnar-
firði í gærkvöldi og stefna nú hrað-
PéturH.
Sigurðsson
skrifar
byri að því að tryggja sér sæti í
úrslitakeppninni.
Leikurinn var mjög
hraður og áttu liðin-
oft í erfiðleikum
með hraðann. Hittni
leikmanna beggja liða var frekar
slök framan af. Keflvíkingar hófu
síðari hálfleikinn af krafti, gerðu
þtjár þriggja stiga körfur og náðu
tíu stiga forskoti. Haukar reyndu
hvað þeir gátu til að jafna en skorti
ávallt herslumuninn. Undir lok
leiksins munaði aðeins þremur stig-
um á liðunum þegar Haukar stálu
boltanum af Keflvíkingum, en þeir
misstu boltann klaufalega og gest-
irnir brunuðu upp og skoruðu.
Þriggja stiga körfur frá Jóni Arn-
ari og Pálmari í lokin komu of seint.
Falur Harðarson átti góðan leik
fyrir ÍBK ásamt Jóni Kr. Gíslasyni.
Einnig var Thomas Lytle sterkur í
vamarfáköstunum. Hjá Haukum
var Damon Vance bestur, spilaði
góða vörn og skoraði dijúgt. Ingi-
mar Jónsson átti einnig góðan leik
og brá oft fyrir skemmtilegum sam-
leik milli hans og Pálmars.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Stjömusigur
Stjaman stendur vel að vigi í
keppninni um þriðja sæti deild-
arinnar eftir nauman sigur á ÍBV
í spennandi leik þar sem heimaliðið
tryggði sér bæði
Frosti stigin með tveimur
Eiösson mörkum á lok-
skrifar amínútunni.
Eyjamenn vom
sterkari aðilinn framan af og þeir
náðu fljótlega fjögurra marka for-
skoti og munaði þar miklu um stór-
leik Sigmars Þrösts í markinu og
góða nýtingu Gylfa sem skoraði sex
mörk úr sjö tilraunum. Tveimur
mörkum munaði í leikhléi og ÍBV
skoraði fyrstu tvö mörk hálfleiks-
ins. Um miðjan síðari hálfleik greip
Eyjólfur Bragason þjálfari Stjörn-
STAÐAN
Víkingur 19 18 0 i 473:394 36
Valur 19 15 1 3 468:414 31
Stjarnan 19 12 1 6 466:450 25
FH 19 10 3 6 448:443 23
Haukar 19 11 1 7 451:453 23
ÍBV 19 7 4 8 455:450 18
KR 19 6 6 7 436:433 18
KA 19 7 2 10 441:428 16
Grótta :.19 4 2 13 420:448 10
ÍR 19 3 4 12 418:453 10
Selfoss 19 3 4 12 387:447 10
Fram 19 2 4 13 390:440 8
unnar til þess ráðs að taka Gylfa
og Sigurð G., úr umferð og leysa
þannig upp sóknarleik IBV. Stjarn-
an náði að jafna 22:22 og þeir Pat-
rekur og Axel sáu um að innsigla
sigurinn.
Axel homamaður var besti leik-
maður Stjömunnar, auk þess að
skora fimm mörk fiskaði hann fjög-
ur víti og var sterkur í vörn.
Sigmar Þröstur átti stórleik í
marki IBV, varði nítján skot, þar
af fjögur af átta vítum Stjörnunnar
í leiknum.
Stjarnan - ÍBV 24:22
íþróttahúsið í Garðabæ, 1. deild karla í
handknattleik, - VÍS keppnin, fimmtudag-
inn 31. janúar 1991
Gangur leiksins: 1:3, 3:7, 8:9, 11:13,
11:15, 18:20, 21:20, 22:22, 24:22.
Mörk Stjörnunnar: Skúii Gunnsteinsson
og Axel Björqsson 5, Sigurður Bjamason
4, Pati'ekur Jóhannesson og Magnús Sig-
urðsson 4/2, Guðmundur Albertsson 2.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson 12.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk ÍBV: Gylfi Birgisson 10/3, Jóhann
Pétursson 5, Sigurður Gunnarsson, Þor-
steinn Viktorsson og Helgi Bragason 2,
Sigurður Friðriksson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson
19/4. Utan vallar: 4. mínútur.
Dómarar: Rögnvald Erlingsson og Stefán
Arnarson dæmdu vel.
Áhorfendur: Um 170.
■ KJARTAN Einarsson og Ólaf-
ur Pétursson, leikmenn meistara-
flokks ÍBK í knattspyrnu, fóru til
Manchester í Englandi um helg-
ina. Þar munu þeir æfa næsta hálfa
mánuðinn með Manchester United
og Manchester City. Peter Keel-
ing, fyrrum þjáifari Keflvíkinga,
aðstoðaði leikmennina.
■ KRISTJÁN Hilmarsson, sem
leikið hefur með FH undanfarin ár,
hefur gengið í ÍBK, sem hann lék
með í yngri flokkunum.
■ MARK Duffield, sem hefur
verið orðaður við Víði, á í viðræðum
við KS um að þjálfa liðið áfram
næsta sumar.
■ HALLDOR Hafsteinsson og
Þórir Rúnarsson taka þátt í opna
belgíska meistaramótinu í júdó sem
fram fer í Visen á morgun, laugar-
dag. Halldór sem stefnir á að kom-
ast á Ólympíuleikana í Barcelona
1992 mun taka þátt í 10 til 12 al-
þjóðlegum mótum á árinu. Hann
er nýkominn úr æfingabúðum í
Rauris í Austurríki þar sem flest-
ir bestu júdómenn Japans voru
samankomnir.
■ BJARNI Friðriksson sá sér
ekki fært að taka þátt í mótinu í
Belgíu, en mun keppa á opna
franska meistaramótinu 9. febrúar.
■ STEFÁN Ólafsson, knatt-
spyrnumaður í IR, hefur ákveðið
að ganga á ný til liðs við KA. Þess
má geta að KA er í sambandi við
tvo erlenda leikmenn - Tékka og
Júgóslava.
■ GUÐMUNDUR Torfason og
félagar hans hjá St. Mirren - einn-
ig leikmenn Hibs í Skotlandi geta
sofið vel í nótt. Þeir eiga nú ekki
lengur á hættu að
falla úr úrvalsdeild-
inni. Ákveðið var L
gær að fjölga liðuni
í deildinni úr 10 í
12. Tvö félög bætast við deildina
næsta vetur.
■ SVÍINN Andreas Limpar hjá
Arsenal sagði að markið gegn
Leeds í bikarkeppninni, 1:1, væri
þýðingamesta mark sem hann hefur
skorað. „Elland Road er minn
happavöllur - þar skoraði ég tvö
mörk í deildinni á dögunum. Ég
vona að ég skori siguraiark gegn
Leeds á Highbury," sagði Limpar,
sem hefur skoráð tíu mörk fyrir
Arsenai.
■ GEORGE Graham, fram-
kvæmdastjóri Arsenal, sá ekki hið
glæsilega mark Limpar. Sjón-
vaipsupptökumaður hljóp fram fyr-
ir Graham þegar Limpar skoraði.
■ BIRMINGHAM hefur óskað
eftir því við stjórn Exeter að félag-
ið fái að ræða við' Terry Cooper,
framkvæmdastjóra félagsins - ti
að bjóða honum starf.
Frá
Bob
Hennessy
íEnglandi