Morgunblaðið - 03.02.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR áÚNNUbAGDR‘3.'í’ÉÖ'RÚ'AR 1991
C 23
Minning:
Sighvatur Bjarna-
son málarameistari
.....JGGJANDI
Þ. ÞORGRIMSSON & CO
Ármúla 29
Fæddur 17. september 1911
Dáinn 21. janúar 1991
Eg ætla að minnast með nokkr-
um orðum elsku afa míns, sem nú
er látinn eftir mikil veikindi. Það
var mér mikið áfall að heyra að
hann væri dáinn, því þótt ég vissi
að hann væri mjög veikur, vildi
ég ekki trúa því að hann mundi
fara svo fljótt. Ég sá hann síðast
6. janúar, daginn sem ég fór aftur
út til náms, eftir að hafa eytt yndis-
legu jólafríi með honum og ömmu
í Heiðargerðinu. Þar var alltaf svo
gott að vera, svo mikill friður og
kærleikur á heimilinu.
Þótt hann væri mikið veikur
þegar ég var hjá honum, bar hann
sig vel, og var alltaf stutt í kátín-
una og hláturinn hjá honum. Hann
var svo lífsglaður og yndislegur
maður. Og alltaf var hann svo
góður við mig, vildi allt fyrir mig
gera, sem og alla sem voru í kring-
um hann.
Allar mínar bernskuminningar
tengjast honum afa mínum, en ég
ólst upp að miklu leyti hjá honum
og ömmu, og á ég ennþá mitt her-
bergi á heimili þeirra. Þau hjónin
voru mjög hamingjusöm og sam-
stillt og er missir ömmu minnar
mjög mikill.
Ég minnist þess hvemig ég gat
setið á hnjánum á afa á skrifstof-
unni hans og teiknað meðan hann
vann sín verk, og allar þessar
teikningar hefur hann geymt síðan
ég var þriggja ára. En hann var
mikill listamaður og þykir mér
mjög vænt um að eiga málverk
eftir hann sem hann gaf mér. Það
var hans líf og yndi að teikna og
mála og eru þær ófáar myndirnar
sem han hefur gert. Hann var líka
mjög trúaður og las alltaf bænim-
ar fyrir mig á kvöldin þegar ég
var litil. En af þeim kunni hann
mikið og vildi helst kenna mér þær
allar.
Það eru svo margar góðar minn-
ingar sem koma upp í huga mér
þegar ég minnist afa míns, að það
er ótrúlegt að hugsa sér að núna
sé þetta allt búið. Mér þykir svo
ofsalega vænt um hann og mun
aldrei gleyma honum. Hann er og
verður alltaf minn elsku besti afi.
Ég kveð hann með miklum sökn-
uði en með þökk í hjarta fyrir að
hafa fengið að hafa hann fyrir afa
minn, og bið Guð um að blessa
hann um alla eilífð.
Guðlaug Jónsdóttir
Vaskhugi
Vaskhugi er forrit sem nýtur mikilla vinsælda vegna einfald-
leika í notkun. Fjárh.bókhald, viðskm.bókhald, sölukerfi,
birgðir, uppgjör vsk., jafnvel einföld ritvinnsla... allt í einu
kerfi á mjög hagstæðu verði.
Fáðu frekari upplýsingar hjá okkur í síma 656510.
íslensk tæki, Garðatorgi 5, Garðabæ.
ÚRVALS HÓTEL
SKÍNANDI SKEMMTI- OG VEITINGASTAÐIR
HELGARFERÐIR Á HAGSTÆÐU VERÐI
Knstján Kristjánsson g \ Ferðaskrifstofa Akureyrar hf.
FLUGLEIDIR jSr ■ \ J Ráöhústorgi 3 • 600 Akureyri Sími 96-25000 • Fax 96-27833 r
RYMINGARSALA
á útlitsgölluðum heimilistækjum, tækjum úr sýningareldhúsum og örbylgjuof naáhöldum
GERID RÍFANDIGÓD KAUP
20-50 % af sláttur af áhöldum
Ahaldasett
Nú 1.790,- Aður 2.550,- Nú 1.490- Áður 1.990,-
Varanleg áhöld
4 stk. léttáhöld (1 pk)
í örbylgjuof na
kr. 200,-
Vaskar 30-50%
afsláttur.
Gufugleypar frá 5.000,-
Einnig þurrkarar og þvottavélar,
(rystiskápar,meismávægilegum Eínar Farestveít &CO.Hf.
útlitsgöllum. Borgartúni 28, simar: (91) 622900 og 622901 - Næg bílastæði
i