Morgunblaðið - 03.02.1991, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.02.1991, Blaðsíða 32
32 fl recr 5Í AÚ5I MOROUOTMlAÐIJM aUNlHU/láM3.¥Sií^R (10 »11HH UOHOM VERKSMIÐJUÚTSALA ÁLAFOSS í MOSFELLSBÆ Band, teppi, peysur, fínull, skíðaúlpur og anorakar. J Opið daglega frá kl. 10.00-18.00, einnig sunnudaga Sendum í póstkröfu, sími 91-666303. i Fimm sýningarsalir. Dolby-stereó í hverjum sal og hljómflutningstæki eins og þau þekkjast best í kvikmyndahúsum í dag. Sérstaklega rúmgóð sæti og gott pláss fyrir hvern og einn. Nóg bílastæði, malbikuð og upplýst. Starfsfólk sem tekur vel á móti þér. Komdu í Háskólabíó — kvikmyndahús á heimsmœlikvarða. HASKOLABIO SÍMI 2 21 40 Viðbyggingu Háskólabíós er lokið. Salur 5 hefur nú verið tekinn í notkun. Við bjóðum ykkur í LANDSBANKIISLANDS, VESTURBÆJAROTIBÚ FULLKOMNASTA OG BESTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS, tónleikahöll og ráðstefnumiðstöð. BAKÞANKAR Erégístríði? Hið nýbyrjaða ár sem hefði átt að fylla fólk bjartsýni og von um betri tima og blóm í haga fór af stað með yfirvofandi stríði fyrir botni Persaílóa. Almenningi í „ ...... heiminum var haldið milli vonar og ótta og lengi var haldið að ein- hver lausn kæmi á elleftu stundu. Skólabörn í landinu samein- ... „ , uðust í bæn fyrir eftií Llelgu frlð, og j klrk/um Thorber9 . voru haldnar bænastundir. Ég lét ekki mitt eftir liggja og fór í Landakotskirkju. Kirkjan var mannlaus en uppi við altarið stóð uppi líkkista, sveipuð svörtum fána. Mér fannst það slæmur fyrirboði. Ég reyndi samt að elnbeita mér í bæn fyrir friði. En eins og allir vita vorum við ekki bænheyrð i þetta sinn, því miður. Sennilega var búið að ákveða að heyja þetta strið. Eftir að hafa horft á umræðu- þátt í sjónvarpinu rétt áður en tímaglasið tæmdist, tók ég þá ákvörðun að láta ekki ríkissjón- varpið um að upplýsa mig um gang mála í heiminum á viðsjárverðum timum. Þegar mann þyrsti í upp- lýsingar úr heimi múslíma var maður leiddur í sjónvarpssal til að fræða okkur, en hann komst ekki að fyrir stjórnanda þáttarins, sem hafði sínar meiningar og vissi allt betur. Eftir auglýsingar og seinni fréttir var boðið upp á íþróttir, þar sem strákarnir skor- uðu mörkin í netið hver hjá öðrum — þegar heimurinn var á leiðinni i stríð! Menntamálaráðherra sparaði mér innkaup á myndlykli eða gervihnattardiski með því að opna fyrir breska sólarhringssjónvarps- fréttastöð. Síðan er maður búinn að hlusta og horfa á þvílíkt frétta- flæði að eyrun á manni eru að detta af og augunum er haldið opnum með vökustaurum. Og hveiju er maður nær eftir allt glápið? Aðallega þvi að málin verða æ flóknari og varla sér út úr augum í Eyðimerkurstorminum. Hann skall á með Bush Bandaríkjafor- seta í beinni útsendingu, þar sem hann tilkynnti blíðum rómi að á þeirri sömu stundu væru flugvélar að varpa sprengjum á írak. Þrátt fyrir tugþúsundir sprengjuárása á írak situr Saddam Hussein óhult- ur i birgi sem bandamenn hafa byggt fyrir hann. Og maður hugs- ar: „Guð minn góður, hvað mun blasa við okkur þegar yfir lýkur.“ Sem dæmi um aðeins brot af kostnaði við stríðsreksturinn þá ætla Þjóðveijar að styrkja Banda- ríkjamenn um 327 milljarða og Bretar fá um 29 milljarða til þess m.a. að eyða sömu vopnum og Þjóðveijar eru sagðir hafa selt Saddam. Hvað hefði mátt kosta lltlu til að tryggja frið? Á meðan sprengjur rústa Irak og falla óhjá- kvæmilega á saklausa borgara eru okkur sýndar myndir af skörfum sem eru að deyja í olíunni eftir- sóttu. Á sunnudagskvöldum sýnir sjónvarpið okkur svo eina mestu glæpi mannkynssögunnar, með- ferðina á gyðingum í seinni heims- styijöldinni áður en skipt er yfir í beina útsendingu frá leiktækj- astriðinu við Persaílóa. Hefur mannskepnan ekkert lært? Maður er að verða fullnuma í heitum og nöfnum á hinum ýmsu stríðstól- um: Scud-eldflaugar, Patriot- varnarflaugar, B-52-sprengjuflug- vélar, Jagúarþotur, MI-5- sprengjuvélar og skriðdrekar eru að verða orð sem eru manni jafn töm í munni og hrútspungar og slátur. Ja, það er ekki svo lítið sem aukist hefur við orðaforðann! En erum við íslendingar i þessu stríði sem aðilar að samþykktum Örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna? Verði ráðist á Tyrklandi, sem einnig er NATO-ríki, erum við ís- lendingar þá komnir í stríð? Á Alþingi íslendinga fór fram um- ræða um þessi mál og menn voru alls ekki á einu máli. Hvernig má það vera að þjóðin fái ekki full- vissu um hvort striðsaðgerðir verði mögulega gerðar i nafni okk- ar íslendinga. Komi til þess, langar mig til að segja mig úr þessu sam- félagt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.