Morgunblaðið - 03.02.1991, Page 31

Morgunblaðið - 03.02.1991, Page 31
MOJiGUjSBLAftJP c) % Séra Friðrik á fundi með KFUM- félögum í Reykjavík árið 1949. Hjá honum stendur séra Magnús Runólfsson. Hér er séra Friðrik staddur á fundi með hafnfirskum piltum, sem nú eru komnir á miðjan ald- ur. SIMTALID... ER VIÐ MATTHÍAS HALLDÓRSSON AÐSTOÐARLANDLÆKNI Færri smitaðir held- ur en búist var viÖ góðan Er Matthías 627555 Landlæknisembættið, daginn. - Góðan dag. Halldórsson við. Já. Augnablik ... Matthias hér. - Blessaður. Þétta er á Morg- unblaðinu. Jóhanna Ingvarsdótt- ir heiti ég. Hvað er að frétta af herferð gegn eyðni hér á landi? Maður er alveg hættur að sjá áróður frá ykkur í sjónvarpi. Já. Ætli það sé ekki vegna þess að það er ekki eins mikill áhugi hjá fjárveitingavaldinu nú og var áður enda má- ætla að áhuginn minnki um leið og nýja- brumið fer að fölna. Stefnan er svo sem alveg óbreytt frá því sem verið hefur. Það er eins og held- ur hafi hægt á sjúkdómnum hér á landi miðað við það sem búist hafði verið við í upphafi viðvíkj- andi því hversu margir myndu smitast á ári. Eflaust eru ein- hveijir smitaðir, sem ekki er vit- að um, en nýjum tilfellum fjölgar ekki, svo vitað sé, eins mikið og upphaflega var álitið. - Eru einhveijar skýringar á því? Það er nátt- úrulega hugsan- legt að fræðslan hafí haft eitt- ' hvað að segja. Hún hefur að mörgu leyti verið meiri hér en í mörgum öðrum löndum. Auk þess má ætla að auðveldara sé að ná til fólks í svo litlu landi eins og ísland er. Aftur á móti er draga neinar skýrar ályktanir af þeim tölum, sem við nú höf- um, því þær eru svo sveiflu- kenndar frá ári til árs. - Hversu margir hafa greinst með veiruna á ári hveiju? Árið 1986 greindust þrettán með veiruna. Arið 1987 greind- ust fimm, 1988 þrettán, 1989 sex manns og árið 1990 greind- ust fimm einstaklingar með HlV-veiruna. Eins og sjá má eru þetta töluverðar sveiflur og þar af leiðandi er ómögulegt að segja til um nú hvaða stefnu þetta mun taka. En ég held að menn geti að minnsta kosti verið hóf- lega ánægðir með að þetta virð- ist ekki eins kröftugt hér og búist hafði verið við. Frá byijun hafa alls sextán einstaklingar fengið alnæmi, sem er lokastigið, og af þeim eru tíu látnir. Þess má líka geta að konur eru mun færri en karlar í hópi smitaðra. Það er ein kona fyrir hveija sex til sjö karlmenn, en nú spá menn því úti í heimi að auknar líkur séu á því að konum muni fjölga verulega. Þannig var sérstakur alnæmisdagur haldinn þann 1. desember sl. sem helgaður var konum. Á Is- landi eru homm- ar enn stærsti hópur smitaðra, en á heimsvísu fýllir gagnkyn hneigt fólk 60% nýrra tilfella. - Jæja. Þá ætla ég að þakka þér kærlega fyr- ir upplýsingarn- ar. Vertu bless- aður. Já. Það ekki hægt að Matthías Halldórsson var ekkert. Blessuð. Monsieur Goudréc barón lét reisa 50 kúa fjós í Reykjavík um aldamótin. Hann lagði veg frá fjósinu og niður að sjó, sem síðan heitir Barónstígur. Þessi skýring fylgir stórum og fallegum mjólk- urbrúsa frá rjómabúinu á Hvítárvöllum og með áletruðu nafni búsins, sem hefur verið á minjasýningu á loftinu í Geysis- verslun. Og þá spyija margir: Hver var hann þessi merkilegi barón, sem hér settist að? Árni Óla blaðamaður á Morgunblað- inu skrifaði um hann grein 1936 og birtast hér glefsur úr henni: Arið 1898 kom hingað maður, sem mikið var um talað, bæði vegna ættgöfgi hans og þó sérstaklega vegna þess, að hann gerðist hér bóndi og réðst í ýmsar framkvæmdir, sem öðrum hefði ekki dottið í hug. Maður þessi var C. Gauldréc Boilleau barón. Faðir hans var franskur og hafði verið sendiherra Frakka í Líma í Perú, en móðir hans dóttir öldungadeild- armanns í Bandaríkjunum. Var hann því af góðum ættum og höfðu foreldrar hans verið efnað- ir. Sjálfur hafði hann lokið námi við Eton-háskóla í Englandi. Honum er svo lýst, að hann hafi verið meðalmaður á hæð, dokkur á brún og brá og snyrti- menni, seintekinn og hægur í öllu dagfari, en fjörugur þegar menn fóru að kynnast honum, og hrókur alls fagnaðar í samkvæmum og þegar hann hafði gesti hjá sér. Annars fór hann einförum og vildi sem fæstum kynnast. Reyndu ýmsir heldri borgarar Reykjavíkur að komast í kunningsskap við C. Gauldréc Boilleau barón hann og vita deili á honum og ferðalagi hans, en hann forðaðist sem mest að tala við menn, svar- aði oft engu, þótt á hann væri yrt á ensku og þýzku og lét sem hann skildi ekki. En hann var þó mikill málamaður og talaði sjö tungumál þegar hann kom hingað og íslensku lærði hann á ótrúlega stuttum tíma. Hann kunni vel að leika á hljóðfæri, sérstaklega á „celló“ og lék tvisvar á hljómleik- um hér í bænum. Og það er mælt, að kvenfólki hafi litist mæta vel á hann.“ Baróninn keypti sér hús í bæn- um, sem varð seinna Laugavegur 90. En það kom brátt í ljós, að erindi hans hingað var ekki það FRÉTTALfÓS ÚR FORTÍD Baróninn og mjólk- urbúið að kynnast landinu sem ferða- maður, heldur hafði hann þugsað sér að gerast stórbóndi á íslandi. Frétti hann nú að jörðin Hvítár- vellir í Borgarfirði mundi föl, fór þangað og keypti jörðina um vor- ið. Hús byggði hann handa sjálf- um sér á Hvítárvöllum og hafðist þar aðallega við þegar hann var heima, sem sjaldan var lengur en hálfan mánuð í einu, því hann virtist vera eirðarlaus og vildi allt- af vera að ferðast. Á veturna dvaldist hann langdvölum í Reykjavík, en heimtaði að hann væri sóttur þangað hvernig sem á stóð. Voru þessi ferðalög hans dýr, og báru meiri vott um að í honum byggi eirðarlaus sál en fjáraflamaður og framsýnismað- ur. í fylgd með honum var ungl- ingspiltur, sem hét Richard Lec- hner og var talinn fóstursonur hans og ritari. Þeir voru oftast saman. „Um þessar mundir fékk barón- inn þá hugmynd að setja á stofn Morgunblaðið/Sverrir Mjólkurbrúsi úr búi barónsins á Hvitárvöllum. kúabú í Reykjavík. Byggði hann þá fjós hér fyrir 40 kýr, og gekk það undir nafninu Barónsfjósið." Ætlaði hann að græða á því að selja mjólk í bæinn. Hugmynd barónsins var sú, að hafa kýrnar uppi á Hvítárvöllum á sumrin og gera smjör, skyr og osta úr mjólk- inni og flytja svo hey á sumrin hingað suður. Til að annast flutn- inga keypti hann lítinn flutninga- bát til að hafa í eftirdragi. Segja Borgfirðingar, að allur búskapur á Hvítárvöllum hafi gengið ævin- týri næst, en þó hafi þeim fátt þótt ævintýralegra og skemmti- lega en þegar gufubáturinn kom öslandi upp eftir allri Hvítá. En íjósið var dýrt, mjólkurlítrinn seldur á að.eins 15 aura og kýrnar víst gallagripir. Var því tap á búinu en það mun hafa verið fyrsta kúabú, sem sett var á stofn hér á landi í því skyni að selja mjólk og varð baróninn brautryðj- andi á því sviði. En baróninn mun hafa verið félítill, er hann kom þingað. Hafði hann eytt aléigu sinni í einhveija konu vestanhafs. Þó átti hann eitthvað af hlutabréfum í járn- brautum þar vestra og varð bróð- ir hans, sem átti heima í Balti- more, að selja þau fyrir hann. Þessi bróðir ávítaði hann harðlega í bréfum sínum fyrir það upp- átæki að fara til íslands, og kvaðst ætla að hann ætti nú að vera orð- inn svo veraldarvanur að hann gerði ekki fleiri skyssur. Hefði hann árangurslaust reynt að ná eignum hans úr klóm konunnar. Nú ætti hann að hverfa frá ís- landi og fara út í hinn menntaða heim, því þar gæti hann áreiðan- lega orðið frægur sem hljómlistar- kennari. Ekki hlustaði baróninn á það, reyndi að bjarga málum með alls kyns stórum hugmyndum, að setja á stofn stórt hrossabú og stofna útgerðarfélag með 16-20 togurum. Ekki fékk hann þá fyrir- greiðslu i lagabreytingu sem þurfti. Hélt hann til London og þóttist ætla til Vínarborgar. En skammt fyrir utan London skaut hann sig í járnbrautarvagninum. Var hann aðeins með eitt penný á sér, og stórskuldaði á gistihús- inu þar sem hann hafði búið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.