Morgunblaðið - 10.03.1991, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARZ 1991
Sigurvegarinn Bush
reynirad koma á víb-
tækri lausn í Mióaust-
urlöndum eftir stríðið
við Persaflóa
eftir Guðm. Halldórsson
GEORGE Bush forseti hefur hlotið einróma lof fyrir frammistöðu sína
í Persaflóastríðinu og virðist öruggur um stórsigur í kosningunum í
nóvember á næsta ári. Bandaríkjamenn eru stoltir af skjótum sigri
sínum í stríðinu og sigurgöngur eru fyrirhugaðar í Washington og
fleiri borgum þegar bandarisku hermennimir koma heim. Þingið hef-
ur hrósað Bush fyrir styrka og örugga forystu og hann hefur fengið
ótrúlega mikinn stuðning meðal almennings.
Níu af hveijum 10 Bandaríkj-
amönnum eru ánægðir,
með störf Bush forseta
samkvæmt skoðanakönn-
un í vikunni. Enginn annar
forseti hefur notið eins
mikillar hylli síðan skoð
anakannanir hófust í Bandaríkjun-
um. Harry S. Truman komst næst
því þegar hann hlaut fylgi 87% kjós-
enda skömmu eftir að hann varð
forseti og Þjóðveijar höfðu verið
sigraðir í síðari heimsstytjöldinni.
Önnur nýleg skoðanakönnun benti
til þess að ef kosið væri nú mundu
72% greiða Bush atkvæði, án tillits
til þess hver yrði í framboði gegn
honum.
Flest blöð hafa hrósað forsetan-
um. „Eðlisávísun hans var rétt og
þær erfíðu ákvarðanir, sem hann
tók, voru réttar," sagði fijálslynda
blaðið Washington Post, sem hefur
ekki verið þekkt fyrir að styðja Bush.
„Forsetinn og ráðherrar hans unnu
frábært starf við erfiðar aðstæður."
New York Times sagði: „Heimurinn
ofmat Saddam Husseln og vanmat
einnig George Bush ... Ákvarðanir
hans á erfíðum tímamótum reyndust
farsælar og (}jarfar.“
Þingmenn demókrata og repúblik-
ana lögðu deilumál til hliðar til þe|s
að hylla Bush forseta fyrir að tryggja
Bandaríkjamönnum fyrsta stórsigur
sinn í styijöld síðan 1945. En þótt
demókratar hrósi Bush nú fyrir að
hafa tryggt skjótan og ótvíræðan
sigur í stríðinu eins og hann lofaði
greiddu flestir þingmenn þeirra at-
kvæði gegn því í janúar að forsetinn
fengi heimild til þess að grípa til
valdbeitingar. Þeir vildu að efna-
hagslegum refsiaðgerðum yrði hald-
ið áfram og sú afstaða kemur þeim
í koll nú. Repúblikanar hugsa sér
gott til glóðarinnar í kosningunum
á næsta ári.
Einna kunnastur þeirra leiðtoga
demókrata, sem munu tapa á stríð-
inu, er Sam Nunn, öldungadeild-
armaður frá Georgíu. Hann greiddi
atkvæði gegn heimild til Bush til að
heyja stríð, en segir nú að forsetinn
„eigi mikið hrós skilið". Richard
Gephardt frá Missouri vakti máls á
því að fjárveitingar til heraflans yrðu
stöðvaðar og stendur einnig illa að
vígi. Hins vegar kann Albert Gore
frá Tennessee að hafa styrkt stöðu
sína, þar sem hann greiddi atkvæði
með stríðinu, og sömu sögu er að
segja um herskáan þingmann demó-
krata í fulltrúadeildinni, Stephen
Solarz.
Enginn mótframbjóðandi
Þar sem Bush virðist öruggur um
stórsigur á næsta ári getur demókr-
ötum veitzt erfítt að fínna mótfram-
bjóðanda. Sagt er að enginn kunnur
demókrataleiðtogi muni hætta sér í
framboð gegn forsetanum nema því
aðeins að til efnahagshruns muni
koma. Mario Cuomo, ríkisstjóri í
New York, sem hefur beðið átekta,
viðurkennir að Bush sé ósigrandi
eins og staðan sé nú.
Nunn, sem er talinn koma til
greina, hefur sagt að kannski sé
fyrir beztu að demókratar hafi engan
mótframbjóðanda í svipinn. Talið er
einna líklegast að Lloyd Bentsen,
öldungadeildarmaður frá Texas, fá-
ist til að bjóða sig fram, því að hann
sé orðinn svo gamall að hann hafí
engu að tapa.
Demókratar virðast helzt binda
vonir við að minningin um sigurinn
í stríðinu verði farin að fymast þeg-
ar kosningamar fara fram. Þeir
reyna einnig að beina athyglinni að
innanlandsmálum, þar sem staða
Bush er veikari. Óvíst er talið að
sigurinn í stríðinu muni auka áhrif
forsetans á heimavígstöðvunum.
Samdráttar hefur gert vart við
sig og 318 milljarða dollara halli er
á fjárlögum. Hallinn er met og mun
aukast vegna kostnaðarins við stríð-
ið, sem mun nema um 70 milljörðum
dollara, en þar af munu Bandaríkin
aðeins þurfa að greiða 5 milljarða
vegna loforða um aðstoð frá erlend-
um ríkisstjórnum. Vextir eru tiltölu-
lega háir og erlend samkeppni veld-
ur bandarískum fyrirtækjum erfið-
leikum. Demókratar reyna einnig að
hagnast á erfíðleikunum í mennta-
málum, heilsugæzlu, réttindamálum
blökkumanna, málefnum heimilis-
lausra og eiturlyfjamálum.
Aukið sjálfstraust þjóðarinnar eft-
ir sigurinn við Persaflóa getur hins
vegar stuðlað að því að endir verði
bundinn á samdráttinn. Nú þegar
sjást merki þess að hann kunni að
verða skammlífur og það mundi enn
bæta vígstöðu repúblikana 1992.
Herforingjar í kjöri?
Margir þeirra gera sér vonir um
að flokkurinn fái meirihluta í öld-
ungadeildinni eins og á fyrra kjör-
tímabili Ronalds Reagans og tilraun-
ir virðast hafnar til að fá herfor-
ingja úr Persaflóastríðinu í framboð
fyrir repúblikana, þeirra á meðal
Norman Schwarzkopf hershöfð-
Bush: Vinsælasti forsetinn.