Morgunblaðið - 10.03.1991, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 10.03.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARZ 1991 21 það var of seint fyrir þá sem fangað- ir voru meðan á ógnaröldinni stóð. Þremur mánuðum síðar kom í ljós að allt fólkið, 200 manns, hafði ver- ið látið grafa sér fjórar grafir og skotið niður í þær. Var kalki hellt yfir, sem varð til þess að hægt var að bera á það kennsl þegar upp um grafirnar í Podsucha komst 15. des- ember 1944. „Ég þekkti undir eins minn mann á tönnunum og undirföt- unum sem þeir fengu að vera í, en þeirri sjón gleymi ég aldrei,“ segir Laufey. Þá þýddi ekki að bíða leng- ur. Fór nú mörgum að finnast „bræðurnir" heldur lélegir banda- menn, fyrst þeir fóru alveg eins að og erkióvinurinn nasistar og ekki undarlegt þótt margir yrðu ráðvilltir. I fangabúðum í 18 mánuði Laufey segir að þá hafi sig bara langað til að komast heim. Hún vissi að ógerlegt var að komast beint heim, en hafði samband við vinkonu sína í Kaupmannahöfn og ákvað að bíða hjá henni. Hún undirbjó brott- förina, ætlaði að selja húsið og pakka saman dótinu sínu, en það átti allt eftir að hverfa henni. „Mest sé ég eftir bókum á átta tungumálum sem ég átti, 12 albúmum með persónu- legum myndum og öllum dagbókun- um mínum. Ég átti meira að segja dagbækur frá því ég var stelpa í sveit í Gaulveijabænum. Þessu kom ég í geymslu í borg á leiðinni til landamæranna. Því þegar ég kom þangað var búið að loka landamær- unum,“ segir Laufey. Hún sneri við til mágkonu sinnar í Ceske Budejovice skammt frá Prag. Ætlaði að bíða þar til landmærin opnuðust aftur. Dag einn var komið og hún beðin um að koma niður á stöð. „Ég gleymi þeim degi ekki. Ég var í þunnum svörtum kjól, en þá var sið- ur að ekkjur gengju svartklæddar, og fór eins og ég stóð. Ekki einu sinni í kápu, en þó með handtöskuna mína. Atti mér einskis ills von. En án nokkurra skýringa var ég sett í fangabúðir. Ég vissi að ég hafði ekkert gert og beið alltaf eftir að vera yfirheyrð — í níu mánuði. Fékk þó fatatösku að heiman.“ Hún kveðst ekki hafa vitað fyrr en löngu seinna. að af því að hún átti eignir þurfti að finna hjá henni einhveija sök. Hafa hana í haldi í minnst hálft annað ár til þess að búa til ástæðu til að gera þær upptæk- ar. En þeir fundu ekkert bitastætt á hana. „Til þess að sýna hve langt var seilst þá fannst við eina húsrann- sóknina í borginni af mörgum bréf á þýsku frá Henry Bay í norska sendiráðinu í Reykjavík. Ég hafði unnið í sendiráðinu á árunum 1929-36 og hann skrifaði þetta með- mælabréf handa mér. Þeir sögðu að þetta sýndi að ég gæti ekki verið nein venjuleg húsmóðir. Ef maður talaði þýsku þá var maður stimplað- ur Þjóðveijavinur. Þessa níu mánuði vorum við flutt stað úr stað og ég var aldrei yfirheyrð. En ég var þó svo heppin að Lúðvíg Guðmundsson skólastjóri, sem sendur var til megin- landsins til að liðsinna íslendingum, skrifaði þeim bréf og sagði að ég væri undir vernd Rauða krossins og ekki mætti misþyrma mér. Og ég fór að fá Rauðakrosspakka, 'sem björguðu heilsu minni, því annars var bara súpugutl og brauð. Ég vó ekki orðið nema 42 kg. Eftir að þeir höfðu leitað að sök í 9 mánuði kom ég fyrir alþýðudómstól. Ég gat þá sloppið ef ég skrifaði undir plagg um að ég gerði engar kröfur til neins. En ég hafði sem betur fer heyrt að þeir skildu bara eftir eyðu fyrir ofan undirskriftina og skrifuðu þar játn- ingu um sök á eftir. Ég sagði við þann sem hafði forustuna í þessum alþýðudómstóli og ég vissi að hafði verið eitthvað viðriðinn Þjóðveija og nú var orðinn kommúnisti: „Heldur vil ég vera hér með mína hreinu samvisku en úti í frelsinu með sam- visku yðar.“ Þá varð- mágkona mín alvarlega hrædd. En ég sagði að þeir gætu tekið allt frá mér annað en góða samvisku og minningarnar. Svo ég var dæmd í hálf annars árs fangavist, en var búin að sitja af Tékkneska hornið í stofunni hjá henni Laufeyju. Fremst er myndin af tékknesku forsetunum Mazarek og Benes, sem hún faldi alltaf á sér. Þá eru myndirnar af henni og manni hennar Jan Jedlicka, sem hún sendi heim áður en ósköpin dundu yfir og af leiðinu hans. Og þarna er auk tékkneska fánans ís- lenski fáninn á stönginni með 33 nöfnum á stallinum, kveðjugjöfin til Laufeyjar frá leikfimiflokki ÍR 1936. mér 9 mánuði.“ „Ég þarf ekki að lesa neina róm- ana, minningarnar duga. Úr því að ég hélt þetta út þá vildi ég eftirá ekki hafa misst af þessari reynslu," segir Laufey ennfremur. Hún segir mér frá gamalli aðalskonu í fanga- búðunum, sem leyfði engum að hjálpa sér við að viðra teppið sitt, það var ættargripur og á því miðju var ofið inn í mynstrið skjaldarmerki ættarinnar, sem hún var að fela. Og frá atvikinu þegar tvær konur, ungversk og þýsk, flúðu og náðust og öllum var hegnt með því að láta þá standa úti í kuldanum. Þannig var að allir áttu að vera merktir, gyðingar með saumaða gula stjörnu á yfirhöfn sína og Þjóðveijar með N. Laufeyju hafði verið skipað að bera N, en hún neitaði að vera í kápunni, sagðist ekki vera þýsk. Nú stóð hún úti í kuldanum kápulaus. Þá sögðu þeir henni að hún yrði fyrir þijóskuna sett í kjallarann þar sem var rottugangur og ekkert var hún hræddari við en rottur. Þá var hún næst því komin að guggna. En þá var væntanleg einhver eftirlits- nefnd frá Rauða krossinum, sem þau áttu að fá að tala við. „Ég reyndi að standa uppi í hárinu á þeim vegna annarra kvenna, því vegna bréfsins þorðu þeir ekki að pynda mig“, seg- ir Laufey. Hún var farin að fá pakka frá íslandi, Noregi og Danmörku gegn um Rauða krossinn og í pökk- unum voru dönsku vikublöðin og Morgunblaðið. Lá þó við að það kæmi henni í koll þegar þeir sáu auglýsingu í blaðinu frá Eimskipafé- laginu með „hakakrossmerkinu", en henni tóks að útskýra að þetta væri merki guðsins Þórs, enda ekki alveg eins. Svo kom einhver nefnd og fór að skrifa upp þjóðerni fólksins, sagt að smám saman ætti að senda það heim i fangaskiptum, því það gæti ekki unnið fyrir sér. En um þær mundir kom prófessor einn í fangabúðirnar og sagði Laufeyju eitt kvöldið eftir vinnutíma að það væri bara yfir- varp, skilríkin yrðu tekin af fólkinu og það brennimerkt með númeri á handlegginn svo enginn gæti fundið það og síðan yrði að sent til Síberíu. „Nú varð ég verulega hrædd,“ segir hún. „Ég vissi að Pétur Benediktsson var sendiherra í 7 löndum með að- setri í París og að hann hafði að- stöðu hjá norska ræðismanninum í Prag. Ég átti blýantsstubb, sem ég faldi alltaf í uppslaginu á kápunni minni og notaði til að strika á mínar ljósu augabrúnir. Ég skrifaði bréf til Péturs, bað hann um að nefna ekki að ég hefði skrifað en reyna að veita mér einhvetja vernd. í búð- unum var ungverskur fyri-verandi ráðherra. Hann var farlama og gat ekkert unnið, en trésmiður í bænum kom alltaf og sótti hann á morgnana og borgaði svo dagsvinnu fyrir hann þegar hann skilaði honum. Svona gat fólk verið gott. Þetta gerðu fleiri. Þennan mann bað ég fyrir bréfíð. Og Pétur brást skjótt við. Skrifaði bréf þar sem stóð að Laufey Einars- dóttir væri undir vernd íslenska ríkisins. Hún muni sitja inni eins lengi og ætlast var til, en þegar hennar tími sé búinn bíði hennar vegabréf og farseðill á norsku ræðis- mannsskrifstofunni.“ Og það stóð heima. Þegar Laufeyju var sleppt í desember 1946 lagði hún af stað heim með eldgamalli hrörlegri her- flugvél. Og _kom í janúarmánuði 1947 heim til íslands eftir 9 ára fjar- veru, slypp og snauð. Og þó, hún var enn með myndina af forsetunum í kápunni og íslenska fánann á borð- fánastönginni, sem Fimleikadeild ÍR hafði gefið henni við brottförina með 33 nöfnum á stöplinum. En Laufey var leikfimikona og hafði m.a. verið með IR í leikfimiflokknum fræga sem 1927 sýndi í Noregi og Calais og víðar við góðan orðstýr. Fána- stöngina hafði mágkona hennar varðveitt. Eigunum skilað? Strax árið eftir, 1948, fór Laufey út til þess að reyna að fá leiðrétt- ingu sinna mála. Hjá Rauða kross- inum í Prag hafði hún fengið skilríki um að hún ætti rétt á öllum sínum lausamunum. Hún vissi hvar það átti allt að vera en það var horfið. „En vinkona mín vissi um hjón, sem höfðu verið höll undir Þjóðveija en voru nú hátt settir kommúnistar. Það datt alveg andlitið af konunni þegar hún sá mig, því þetta fólk hélt áð þeir sem dæmdir höfðu verið saklausir mundu aldrei þora að sýna sig þar aftur. Veggirnir hjá þeim voru þaktir málverkum, sem höfðu verið hirt úr eigum fólks, en þar var ekkert af okkar myndum. En þarna stóðu í stofunni borð og stólar frá okkur. Ég sagðist vera að sækja það. Hún varð dauðskelfd þegar hún sá fram á að við mundum bera dó- tið út í augsýn allra í götunni. Þá sagðist ég skyldi hlífa henni ef hún borgaði þetta og setti upp hátt verð. Hún greiddi það orðalaust. En ég gat því miður ekki hlíft ungum hjón- um, upprennandi kommúnistum, sem höfðu farið og valið sér alveg sérstakan svefnsófa sem við hjónin höfðum átt og ég vildi fá heim. Sóf- inn var borinn út á bíl og geymdur þar til ég gat fengið hann sendan heim. Þeim vorkenndi ég. Kisturnar ^með dagbókunum og persónulegu mununum fann ég ekki.“ Laufey fékk góða atvinnu hjá Ludvig Storr eftir að hún kom heim, vann þar á skrifstofunni í 30 ár og átti orðið skuldlausa íbúð. Hugsaði ekki meira um þetta. Hún vinnur raunar enn svolítið að bókhaldi. „Og nú fæ ég allt í einu þessi þijú bréf þar sem fólk býðst til að hjálpa mér,“ segir Laufey, sem alltaf hafði farið til að sjá „húsið sitt“ þegar hún var á ferðinni í Tékkóslóvakíu. „Maðurinn sem hafði ætlað að kaupa húsið mitt virtist þekkja allt málið og vera líklegastur til þess að hafa hag af því að því 'verði skilað, því þá fengi hann gömlu innborgunina sína aftur, svo hún sendi honum umboð og skilríki til þess að mega kaupa það og kaupsamninginn á lóðinni sem hún fann hjá sér. Á þó ekkert frekar von á að heyra nokkuð frekar um það. o Alltaf ágerðist kúgun og hnignun Laufey fór fjórum sinnum til Tékkóslóvakíu eftir að hún slapp þaðan, á árunum 1948, 1964, 1972 og 1989, þremur mánuðum fyrir „þíðuna" og hún segist hafa upplifað hvernig þessi skelfilega efnahags- lega og andlega hnignun ágerðist og kúgunin fór sífellt vaxandi. Eng- inn þorði að tala. Það var ekki fyrr en hún var komin bak við luktar dyr með vinunum að þeir sögðu henni frá því sem var að gerast. Hún lýsir þessu með nokkrum dæmum. Þegar hún kom 1964 til þess að vera í brúðkaupi guðdóttur sinnar, bjó hún á hóteli, enda vildi hún ekki koma neinum í vandræði fyrir að hýsa útlending, og fór á morgnana í leigu- bíl til fjölskyldu manns síns. Bílstjór- inn var skrafhreifinn og spurði mik- ið um íslands. Eitt sinn var frænka hennar með í bílnum og hún hafði orð á því að bílstjórinn hlyti að hafa farið öfugu megin fram úr rúminu um morguninn, ekki togaðist út úr honum orð. Þá sagði frænkan: „Nú erum við þijú. Þá voruð þið bara tvö og engin vitni að samtalinu." Daginn fyrir brúðkaupið kom móðir brúðar- innar að máli við hana og sagði henni að nú ættu þau von á njósnar- anum í hverfinu í kjölfar brúðkaups- ins og þá yrði hún að segja að hún hefði gefið þeim útvarp með plötu- spilara. Brúðguminn var Tékki sem bjó í Vínarborg og tækið hafði hann keypt ódýrara í Tékkóslóvakíu. Hann hafði orðið að bíða í tvö ár eftir brúði sinni. Þegar hún ætlaði svo daginn eftir brúðkaupið að fá vegabréf til að fara með honum, var þeim tilkynnt að hún hefði bara fengið leyfi til að ganga í hjónaband með útlendingi, ekki brottfararleyfi. Milli Bratislava, þar sem hún bjó, og Vínarborgar er klukkutímaakstur og hann fékk þó leyfi til að koma um helgar og heimsækja konu sina. En þar sem hann þekkti- háttsettan kommúnista þá fékkst loks 9 mán- uðum seinna leyfi til þess að hún flytti til hans. Foreldrarnir fengu þó aldrei fararleyfí til þess að heim- sækja þau — ekki fyrr en núna. Og Dað er mikil hamingja þegar fjöl- skyldan hittist og þau fá nú að sjá barnabörnin sín. Laufeyju er mikið niðri fyrir og hún heldur áfram að segja mér dæmi um kúgunina á ættfólki mannsins síns og vinum hennar. „Mágur minn rak fyrir stríð lítið fyrirtæki sem verkar garnir, hafði einn mann í vinnu. Hann taldist því sjálfstæður atvinnurekandi. Dætur hans fjórar, sem eru bráðvel gefnar, fengu því aldrei leyfi til inngöngu í háskóla. En þær kláruðu sig með iví að læra ljósmyndun og tækni- teiknun og flúðu svo, tvær til Þýska- lands og tvær til Austurríkis. En foreldrunum var hegnt fyrir að þær fóru. „Nú eru þau að skrifa mér og eru himinlifandi yfir því að geta heimsótt hvert annað. Það er þessi kúgun sem fór svo illa með fólkið. Það vissi hvernig þessi fámenna yfir- stétt lifði. í Prag var hótel með svo miklum lúxus að engu var líkt, að- eins fyrir þetta fólk. Útlendingar fengu ekki einu sinni aðgang að því. En lifnaðurinn síaðist .út með þjónustufólkinu. Öll þessi flærð og fals sýndist mér verst þegar ég kom þarna. Þegar Ólympíuleikarnir voru 1972 notaði ég tækifærið og fór áfram til Tékkóslóvakíu og sá að enn hafði ástandið versnað. Og 1989, þremur mánuðum fyrir þíðuna, fór ég þangað síðast. Þótt mín besta vinkona hefði skrifað mér hvernig ástandið hefði enn versnað, þá hefði ég ekki trúað því nema sjá það allt- af sjálf. Þá hvarflaði ekki að neinum það sem átti eftir að gerast. Fólkið var svo þrúgað og reitt að það hefði ekki komið mér á óvart þótt það hefði ráðist á þessa kommúnistayfir- stétt þegar lokið lyftist. En það fór bara friðsamlega út á götuna með kerti og blóm. Það er allt Vaclav Havel að þakka. Ef mig hefði grun- að hvað í vændum var hefði ég beð- ið með ferðina. Nú hefi ég engin efni á að fara þangað aftur." Meðan við sitjum yfir kaffibollum í fallegu stofunni hennar Laufeyjar, hlær hún við og segir frá því þegar hún bauð dóttur mágs síns til ís- lands 1966. Stúlkan hafði beðið í tvö ár eftir að fá fararleyfi til íslands og þegar hún kom hafði hún 360 kr. meðferðis, peningana sem hún mátti fara með úr landi. Laufey hafði orð á því hve leiðinlegt væri að hún gæti ekki talað við neinn. „Jú, ég kann rússnesku og hana get ég talað alls staðar," sagði stelpan. Þetta hafði henni verið kennt í skó- lanum og hún varð svo vonsvikin þegar hún áttaði sig á því hve miklu hafði verið logið í hana. Þegar þær komu svo niður í bæ spurði hún hvar allir vopnuðu amerísku her- mennirnir væru? Hún er af trúaðri fjölskyldu, en í skólanum hennar hafði strax verið komin mynd af Stalín í staðinn fyrir Kristsmyndina milli tveggja logandi kerta. Og eng- inn þorði auðvitað að leiðrétta neitt sem sagt var við hana í skólanum. Börn voru hvött til að klaga foreldra sína og dæmi um að þau gerðu það. Trúfrelsi átti að vera í orði. Fólk mátti fara í kirkju, en ef til dæmis starfsmenn hins opinbera gerðu það voru þeir umsvifalaut reknir. Aldur- hnigin móðir verkfræðings, sein var vinur mágs Laufeyjar, gat ekki hugsað sér annað en að barnabarnið yrði skírt í kirkju. Sonurinn lét það eftir henni. Enginn átti að vita það. En eftir þá helgi var honum sagt upp vinnunni, „Það er þetta sem er svo skelfilegt. Það er búið að sá svo mikilli tortryggni. Hlaða undir við- hlægjendurna, en kúga hina,“ segir Laufey þegar hún rifar upp öll þessi ljótu atvik. Nú er allt annar tónn í bréfunum sem Laufey fær frá Tékkóslóvakíu. Einn segir stoltur: Sonur minn er» farinn að læra ensku! Annar segú?» Nú getum við tekiðcbíldruslunaoRB ekið hvei'L sem viðj^l^uni! Oj^sjW þriðji, sem er einstæðfngun,og finnuu| til þess hve illa hanfí er búinn undir lífið, skrifar: Við höfum frelsi, en mikið er það hart!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.