Morgunblaðið - 10.03.1991, Qupperneq 30
éo morgúMbíáðiéí Tt/. frfÁR^Ml
ATVINNUAUGi ÝSINGAR
Lítil kaffistofa
Leitum að konu til að sjá um rekstur á lítilli
kaffistofu í Glæsibæ. Hentugt fyrir eina eða
tvær til að skapa sér tekjur af eigin rekstri
með sölu á kaffi og meðlæti.
Svör sendist auglýsingadeild Mbl., merkt:
„Glæsibær - 74“, fyrir kl. 16.00, þriðjudag.
Atvinna óskast
Iðnrekstrarfræðingur, með reynslu úr sjávarút-
vegi, óskar eftir starfi strax hjá traustu og fram-
sæknu fyrirtæki. Er 38 ára, áreiðanlegur og
metnaðargjarn og tilbúinn að vinna mig upp.
Upplýsingar Lsíma 91-82719.
Véliðnfræðingur
sem hefur 4. stig Vélskólaprófs og sveins-
próf í rennismíði óskar eftir vinnu.
Tilboð sendist í pósthús Garðabæjar, póst-
hólf 126, fyrir 22. mars.
Mosféllsbær
Fóstrur
óskast til starfa við Dagvistarheimili Mos-
fellsbæjar. Um er að ræða störf á leikskólan-
um Hlaðhömrum og barnaheimilinu Hlíð.
Leikskólinn Hlaðhamrar er þriggja deilda leik-
skóli með aldursskiptum deildum.
Barnaheimilið Hlíð er blandað heimili með
einni leikskóladeild og þremur aldursskiptum
dagheimilisdeildum.
Starfshlutfall og vinnutími skv. samkomu-
lagi. Um er að ræða ráðningu frá 1. júní eða
1. september 1991. Laun eru skv. kjarasamn-
ingi Fóstrufélags íslands og Launanefndar
sveitarfélaga.
Hér er um að ræða störf, sem eru tilvalin
fyrir þá, er vilja vinna með börnum í fögru
og friðsælu umhverfi.
Allar frekari upplýsingar veita Halla Jörundar-
dóttir, forstöðumaður Hlíðar, sími 667375,
Lovísa Hallgrímsdóttir, forstöðumaður Hlað-
hamra, sími 666351, og félagsmálastjóri í
síma 666218.
Félagsmálastjóri.
Starfskraftur óskast
Starfið felst í umsjón með lager.
Við leitum að duglegum og samviskusömum
manni/konu, sem hefur skipulagshæfileika
og frumkvæði. Nákvæmni í starfi, snyrti-
mennska og jákvæðni ásamt samstarfslipurð
eru kostir sem við metum mikils. Enskukunn-
átta æskileg.
Handskrifaðar umsóknir, ertilgreini m.a. ald-
ur, menntun og starfsreynslu, skulu berast
auglýsingadeild Mbl. fyrir kl. 16 nk. þriðju-
dag, merktar: „Lager - 11132“
Umsóknum verður svarað símleiðis fyrir
vikulok.
Ræstingar
Óskum að ráða fólk til ræstingastarfa í brauð-
gerð.
Upplýsingar á staðnum hjá verkstjóra.
Brauð hf.,
Skeifunni 19.
Iðntœknistofnun vinnur að tœkniþróun og aukinni fram-
leiðni í íslensku atvinnulífi. Á stofnuninni eru stundaðar
hagnýtar rannsóknir, þróun, rúðgjöf gœðaeftirlit, þjóti-
usta, frœðsla og stöðlun. Áhersla er lögð ú hceft starfsfólk
til að tryggja gceði þeirrar þjónustu sem veitt er.
Tjónagreiningar
Efnistæknideild Iðntæknistofnunar óskar að
ráða starfsmann, sem hefur að baki tækni-
og/eða efnisfræðimenntun á háskólastigi.
Starfsmaðurinn mun sinna tjónagreiningum
og efnisprófunum.
Hann þarf að sýna frumkvæði og ábyrgð í
starfi og hafa mikinn áhuga á viðfangsefn-
inu. Góðra samstarfshæfileika er einnig kraf-
ist. Starfið er gefandi og fjölbreytilegt og
felur í sér mikla ábyrgð.
Jafnt konur sem karlar eru kvattar til að
sækja um starfið. Öllum umsóknum verður
svarað og gögnum skilað.
Umsóknir með upplýsingum um nám og
starfsferil berist fyrir 20. mars.
Páll Ólafsson verkfræðingur veitir nánari
upplýsingar.
Idntæknistofnun ■ I
IÐNTÆKNISTOFNUN ÍSLANDS
Keldnaholt. 112 Reykjavík
Slmi (91) 68 7000
Bókhald (338)
Traust og öflugt útgerðarfyrirtæki vantar
sjálfstæðan og reyndan bókara.
Starfið: Dagleg umsjón bókhalds.
Tölvubókhald.
Krefst búsetu á staðnum.
Við leitum að manni með:
Viðskiptafræðimenntun eða reynslu af bókhaldi.
Sem á auðvelt með að umgangast fólk.
Frumkvæði, áhuga og festu.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningamiðlunar Ráðgarðs merktar:
„338“ fyrir 16. mars.
Nánari upplýsingar veitir Adolf Ólason í síma
679595.
RÁÐGARÐURHE
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88
Verkstjóri
Óskum eftir að ráða verkstjóra í fiskrétta-
verksmiðju vora í Þorlákshöfn, sem mun
hefja starfsemi innan skamms.
Fullgild réttindi fyrir freðfisk nauðsynleg.
Upplýsingar um starfið veita Gísli Erlendsson
í síma 91-673595 og Haraldur Jónsson í síma
91-54803.
Sjávarréttirhf.,
Unubakka 21,
815 Þorlákshöfn.
sími 98-33446.
Kynningarstörf
Vegna mikillar eftirspurnar óskum við eftir
umsækjendum á skrá, sem vilja taka að sér
kynningarstörf fyrir hin ýmsu fyrirtæki í öllum
helstu verslunum innan Reykjavíkursvæðis-
ins. Oftast er um fimmtudaga, föstudaga og
laugardaga að ræða. Áhersla er lögð á snyrti-
mennsku og þægilega framkomu.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Skóla^ordustig la - 101 Reyk/avik - Simi 621355
||j PAGVIST BARIVA
Laus staða
Staða umsjónarfóstru við dagvistarheimili
Dagvistar barna er laus til umsóknar.
Umsækjandi skal hafa lokið fóstruprófi.
Framhaldsmenntun eftir fóstrunám áskilin.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, berist til skrifstofu Dagvistar
barna fyrir 15. mars næstkomandi.
Upplýsingar um starfið veitir deildarstjóri
fagdeildar á skrifstofu Dagvistar barna, Hafn-
arhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
FJÓRÐUNGSSJÚKR AHÚSIÐ
lod Á AKUREYRI
Aðstoðarlæknar
■Lausar eru nokkrar stöður aðstoðarlækna
við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Um er að ræða „blokkarstöður" fyrir kandid-
ata. Ráðið er í stöðurnar til eins árs í senn.
Stöðurnar veitast frá 1. júlí 1991 eða fyrr
eftir samkomulagi.
Umsóknir sendist framkvæmdastjóra sjúkra-
hússins, Inga Björnssyni.
Umsóknarfrestur er til 1. apríl 1991.
Nánari upplýsingar veitir Geir Friðgeirsson,
læknir, í síma 96-22100.
Hjúkrunarfræðingar
Laus er til umsóknar staða aðstoðardeildar-
stjóra á handlækningadeild F.S.A.
Um er að ræða fullt starf sem veitist frá 15.
apríl 1991.
Umsóknarfrestur er til 28. mars nk.
Upplýsingar gefa deildarstjóri, Rósfríður
Káradóttir, og hjúkrunarframkvæmdastjóri,
Svava Aradóttir, í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Starfskraftur óskast
Starfið felst aðalega í tölvuskráningu.
Umsækjandi þarf að hafa góða vélritunar-
kunnáttu og þekkja til tollskýrslugerðar.
Við leitum að duglegum og metnaðarfullum
manni/konu sem vinnur af samviskusemi.
Enskukunnátta nauðsynleg.
Handskrifaðar umsóknir er tilgreini m.a. ald-
ur, menntun og starfsreynslu skulu berast
auglýsingadeild Mbl. fyrir kl. 16 nk. þriðju-
dag, merktar: „T - 11133“
Umsóknum verður svarað símieiðis fyrir
vikulok.