Morgunblaðið - 10.03.1991, Síða 34
<34
■MQRG.UNBLAÐIÐ ATVIWNA/RAÐ/SIVIA S0MW0AGUR • 10,MARZ,1991
RAD/X UGL YSINGAR
TILKYNNINGAR
Hagkaup auglýsir
Garðyrkjubændur athugið
Óskum eftir að komast strax í samband við
góða framleiðendur á inni- og útiræktuðu
grænmeti, með náið sölusamstarf í huga.
Nánari upplýsingar sendist til auglýsinga-
deildar Mbl. fyrir 18. mars nk. merktar:
„Grænmeti - 6798".
Farið verður með allar upplýsingar sem trún-
aðarmál.
#jg*,Styrkirtil
I^MIistiðnaðarnáms
„Haystack styrkirnir“
Menningarsjóður Pamelu Sanders Brement
og Íslenzk-ameríska félagið auglýsa til um-
sóknartvo námsstyrki við Haystack listaskól-
ann í Maine-fylki til 2ja og 3ja vikna nám-
skeiða á tímabilinu 2. júní til 25. ágúst 1991.
Námskeiðin eru framar öðru ætluð starfandi
listiðnaðarfólki í eftirtöldum greinum: Járn-
smíði og mótun, leirlist, vefjarlist, pappírs-
mótun, bókagerð, trévinnu, körfugerð, málm-
vinnu og steypu, glerblæstri og steypu, búta-
saumi, grafík og grafískri hönnun.
í námsstyrknum felast fargjöld, kennsiugjöid
og húsnæði.
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-
672087.
Umsóknir berist Íslenzk-ameríska félaginu,
b/t Funafold 13, 112 Reykjavík, fyrir 28.
mars nk.
Islenzk-ameríska félagið.
Húsverndarsjóður
Reykjavíkur
í lok apríl verður úthlutað lánum úr Húsvernd-
arsjóði Reykjavíkur. Hlutverk sjóðsins er að
veita lán til viðgerða og endurgerða á hús-
næði í Reykjavík, sem sérstakt varðveisiu-
gildi hefur af sögulegum eða byggingasögu-
iegum ástæðum.
Umsóknum um lán úr sjóðnum skulu fylgja
greinargóðar lýsingar á fyrirhuguðum fram-
kvæmdum, verklýsingar og teikningar eftir
því sem þurfa þykir.
Umsóknarfrestur er til 6. apríl 1991 og skal
umsóknum, stíluðum á Umhverfismálaráð
Reykjavíkur, komið á skrifstofu garðyrkju-
stjóra, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík.
Evrópuráðsstyrkir á sviði
félagsþjónustu
Evrópuráðið veitir starfsmönnum stofnana
og samtaka á sviði féiagsþjónustu styrki
vegna kynnisferða til aðildarríkja ráðsins á
árinu 1992.
Umsóknareyðublöð fást í félagsmálaráðu-
neytinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, sem
jafnframt veitir nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl nk.
Félagsmálaráðuneytið,
7. mars 1991.
KENNSLA
Samvinnuháskólinn
- rekstrarfræði
Samvinnuháskólapróf í rekstrarfræðum
miðar að því að rekstrarfræðingar séu und-
irbúnir til forystu-, ábyrgðar- og stjórnunar-
starfa í atvinnulífinu.
Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði-
eða viðskiptabrautum eða lokapróf í frum-
greinum við Samvinnuháskólann eða annað
sambærilegt nám.
Viðfangsefni: Öll helstu svið rekstrar, við-
skipta og stjórnunar, s.s. markaðsfræði, fjár-
málastjórn, starfsmannastjórn, stefnumót-
un, lögfræði, félagsmálafræði samvinnumál
o.fí.
Námstími: Tveir vetur, frá september til maí.
Frumgreinadeild til undirbúnings
rekstrarfræðanámi.
Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á fram-
haldsskólastigi án tillits til námsbrautar.
Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvu-
greinar, enska, íslenska, stærðfræði, lög-
fræði og félagsmálafræði. Einn vetur.
Aðstaða: Nemendavist og fjölskyldubústaðir
á Bifröst í Borgarfirði ásamt vinnustofum,
bókasafni, tölvubúnaði o.fl. Barnaheimili og
grunnskóli nærri.
Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætl-
uð um 38.000 kr. á mánuði fyrir einstakling
næsta vetur.
Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnu-
háskólans á Bifröst. Umsókn á að sýna per-
sónuupplýsingar, upplýsingar um fyrri skóla-
göngu með afriti skírteina og um fyrri störf.
Tvenn skrifleg meðmæli fylgi. Veitt er inn-
ganga umsækjendum af öllu landinu. Þeir
umsækjendur ganga fyrir, sem orðnir eru
eldri en 20 ára og hafa öðlast starfsreynslu
í atvinnulífinu. Námið hentar jafnt konum
sem körlum.
Umsóknir verða afgreiddar 25. apríl og síðan
eftir því sem skólarými leyfir.
Samvinnuháskólanám er lánshæft.
Samvinnuháskólinn á Bifröst,
311 Borgarnesi - sími 93-50000.
Sprengiefnanámskeið
verður haldið dagana 25.-28. mars nk. á
Bíldshöfða 16, Reykjavík, ef næg þátttaka
fæst.
Skráning fyrir 22. mars í síma 672500.
Vinnueftirlit ríkisins.
„Advanced Hotel
Management diploma11
Neuchatel - Sviss
Skírteinið veitir aðgang að háskólagráðunámi
við virta háskóla í Bandaríkjunum og Eng-
landi.
Einnig er boðið upp á: „Hotel Operations"
(2 ár), „Catering Management" (1 ár), „Front
Office & Housekeeping Management" (1 ár).
Námið felur í sér launaða verklega þjálfun í
svissneskurn hótelum. Námið hefst 15. júlí
1991.
Sumarnámskeið í „Business Administration"
og „Management Development" í samtals 6
vikulöngum áföngum, hefst 22. júlí 1991.
Kennsla fer fram á ensku.
Upplýsingar og bækling veitir Lovísa, sími
12832.
Frá Fósturskóla íslands
í ágúst nk. (u.þ.b. 12. ágúst) hefst dreift og
sveigjanlegt fóstrunám.
Námið og inntökuskilyrði verður sambærilegt
við hefðbundið fóstrunám.
Náminu er dreift á 4 ár.
Námið er skipulagt sem hér segir:
a) Staðbundið nám verður í húsakynnum
Fósturskóla íslands alls 10 vikur á ári,
og fer fram í ágúst, janúar og júní. Einnig
verður boðið upp á stutt námskeið fá-
mennra nemendahópa í heimahéraði
nemenda eða næsta nágrenni.
b) Fjarnám.
c) Verklegt nám.
Umsóknarfrestur til 21. maí nk.
Nánari upplýsingar veittar í síma 91-83866
daglega kl. 13.00-14.00 og 97-11757.
Skólastjóri.
Parithos jógakennari frá
Kripalu-miðstöðinni
leiðbeinir á byrjendanámskeiði í hugleiðslu.
Hefst mánudaginn 11. mars, kl. 20.30-
22.00, í Mætti, Faxafeni 14. Verður einu sinni
í viku í 5 vikur. Kennt verður að ná tökum á
einbeitingu, hugarró, öndunartækni og slökun.
Námskeið fyrir lengra komna f hugleiðslu
hefst þriðjudaginn 12. mars kl. 20.30-22.00.
Verður einu sinni í viku í 5 vikur. Kennt verð-
ur að efla sköpunarkraft, vekja upp innsæi,
auka innri ró, ná sætti og samstilla samskipti.
Upplýsingar í símum 611025 (Linda), 72711
(Jón Ágúst), og 83192 (Helga).
Kripalu-hópurinn á íslandi.
HÚSNÆÐIÓSKAST
Ungt fólk með hlutverk
óskar eftir 200-250 fm húsnæði til leigu.
í því þarf að vera ca 150 fm salur auk skrif-
stofuaðstöðu.
Upplýsingar í síma 27460 eða 46773.
ÍA, '1.,BÁTAR-SKIP
Fiskiskiptil sölu
Vélskipið Tindafell SH 21 (áður Klængur
ÁR.). Skipið er 94 rúmlesta, byggt úr stáli í
Austur-Þýskalandi 1960. Aðalvél er Cumm-
ins 620 hö. 1980. Skipinu fylgja veiðiheimild-
ir til veiða á 18 tonnum af þorski og 4 tonn-
um af rækju. Skipið er til afhendingar strax.
Fiskiskip-skipasala,
Hafnarhvoli v/Tryggvagötu, 3. hæð,
sími 91-22475.
Skarphéðinn Bjarnason, sölustjóri,
Gunnar I. Hafsteinsson, hdl.,
Magnús Helgi Árnason, hdl.
ÓSKAST KEYPT
Gufuþurrkari óskast
Einnig á sama stað til sölu gufuketill 8,5 fm.
Upplýsingar í símum 31380 og 72400.
Efnalaugin Björg.
Kælivagn
Kælivagn á tveimur hásingum óskast keypt-
ur. Vagninn þarf að vera 6-8 metra langur
og helst með kælivél eða möguleika á ísetn-
ingu kælivélar.
Sláturfélag Suðurlands,
tæknideild,
sími 91-25355.