Morgunblaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D
wgtuiltfsiMfe
STOFNAÐ 1913
62. tbl. 79. árg.
FOSTUDAGUR 15. MARZ 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Jeltsín segir stríðs-
yfirlýsingu sína
hafa verið óþarfa
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín, forseti RússlaiMs, segir í viðtali við Komsomolskaja
Pravda í gær að það hafi verið óþarft að nota orðið „stríð“ er hann
gagnrýndi forystu Sovétríkjanna í ræðu um síðustu helgi. Segist
hann hafa ákveðið er hann steig í ræðustólinn að flytja ræðuna blaða-
laust. „Ég sagði það sem mér bjó í brjósti ... Kannski hefði ég þrátt
fyrir allt átt að lesa textann. Þá hefði svona lagað líklega ekki hrokk-
ið upp úr mér,“ sagði Jeltsín við blaðið. í ræðunni sagði hann að
lýsa ætti yfir stríði á hendur forystu landsins sem hefði leitt þjóðina
út í ógöngur. Var þetta túlkuð sem bein árás á Míkhaíl Gorbatsjov,
forseta Sovétríkjanna.
Júrí Prókófjev, flokksleiðtogi
kommúnista í Moskvu, bar á blaða-
mannafundi á miðvikudag ástandið
í Sovétríkjunum saman við ástandið
í Chile rétt fyrir valdatöku hersins
árið 1974. „Að mínu viti erum við
á barmi chílesks ástands og Gorb-
atsjov er Allende,“ sagði Prókófjev.
Einn af aðstoðarmönnum Prók-
ófjevs sagði að eftir fundinn hefði
flokksleiðtoginn verið spurður hvort
þá mætti líkja Jeltsín við Pinochet
og hefði hann svarað „tvímæla-
laust".
Á sunnudaginn verður gengið til
atkvæða í öllum lýðveldum Sov-
étríkjanna um nýjan sambandssátt-
mála. Um 63.000 manns starfa nú
á vegum sovéska hersins til að stuðla
að því að sambandssáttmálinn nýi
verði samþykktur. Háttsettir menn
innan hersins greindu frá því í gær
að meðal annars hefðu verið settar
upp 6.872 kjördeildir á vegum hers-
ins og flotans til að tryggja að allir
hermenn gætu'tekið þátt í kosning-
unum. Var því spáð að um 90% sové-
skra hermanna myndu greiða sátt-
málanum atkvæði sitt.
Þá greindu talsmenn hersins frá
því að auk hermanna gætu þeir sem
ekki hefðu möguleika á að kjósa þar
sem þeir byggju kosið í þessum kjör-
deildum. Er þessu beint gegn
Eystrasaltsríkjunum og þeim lýð-
veldum Sovétríkjanna sem neitað
hafa að taka þátt í undirbúningi
þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Sjá „Ertu enn staðráðinn í að
skrifa ekki undir?“ á bls. 25.
Furstinn af
Kúveit á
heimaslóðum
Furstinn af Kúveit, Sheikh
Jaber al-Ahmed al-Sabah
(stendur í dyrum flugvélar-
innar), lyftir höndum sínum
í bæn er hann kom á ný til
landsins í gær eftir nær átta
mánaða útlegð. Hann flúði
land er írakar lögðu landið
undir sig 2. ágúst sl. en yngri
bróðir hans mun hafa fallið
í bardögum við innrásarliðið.
Gagnrýni hefur farið vaxandi
á Sabah-ættina, sem öllu
ræður i Kúveit, og furstann
sem er 63 ára gamall. Mörg-
um Kúveitum þykir ganga
hægt að koma brýnustu þjón-
ustu í gagnið á ný óg mennta-
menn kreijast þess að staðið
verði við loforð um lýðræðis-
umbætur.
Sjá „Fátt manna fagnaði
al-Sabah . . . “ á bls. 24.
Reuter
James Baker um deilu araba og ísraela:
ívantsjúk sigr-
aði í Linares
Linares. Reuter.
SOVÉSKI stórmeistarinn Va-
sílíj ívantsjúk sigraði á Linar-
es-skákmótinu sem lauk í gær-
kvöldi.
ívantsjúk hlaut 9,5 vinninga
og vann sér inn 7.500 dollara og
bifreið en sovéski heimsmeistar-
inn Garríj Kasparov varð annar
með 9 vinninga eftir jafntefli við
landa sinn Artúr Júsúpov. Þriðji
varð Sovétmaðurinn Alexander
Beljavskíj með 8 vinninga en
hann tapaði fyrir Anatolíj Karpov
fyrrum heimsmeistara í 63ja
leikja skák.
Stefna ber að lausn sem
byggist á samþykktum SÞ
Damaskus. Reuter.
JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kvaðst í gær vongóð-
ur um að hægt yrði að finna leið til að tryggja frið í Mið-Austurlönd-
um eftir að hafa rætt við Hafez al-Assad, forseta Sýrlands, í sjö
klukkustundir og lokið ferð sinni til nokkurra arabaríkja og ísraels.
„Ég varð var við mikinn vilja til að stuðla að friði. Við komum okkur
saman uin að leita heildarlausna á deilu araba og ísraela sem byggjast
á ályktunum 242 og 338,“ sagði Baker á blaðamannafundi á flugvellin-
um í Damaskus áður en hann fór til Moskvu. Báðar ályktanirnar kveða
á um að ísraelar láti hernumin svæði af hendi til að tryggja frið.
Baker kvaðst vera á sama máli
og Sýrlendingar um að varast bæri
tvöfalt siðgæði þegar fjallað væri
um deilu araba og Israela. „Banda-
ríkjastjórn hyggst gera allt sem í
valdi hennar stendur til beita áhrif-
um sínum í ísrael til að stuðla að
friðsamlegri lausn,“ sagði hann.
Aðspurður um hvort slíkt nægði
kvaðst hann fullviss unr að „eitt-
hvað“ kæmi út úr þeirri viðleitni.
„Það er enn of snemmt að tala um
að tekið hafi verið tímamótaskref í
átt til friðar," bætti hann við.
Farouq al-Shara, utanríkisráð-
herra Sýrlands, sagði að heimsókn
Bakers hefði verið árangursrík og
ætti að auðvelda lausn á deilu araba
og Israela. Baker sagði að enn væri
ágreiningur milli Bandaríkjastjórnar
og Sýrlendinga varðandi hryðjuverk-
astarfsemi en Sýrland er á lista yfir
ríki sem hafa stutt hryðjuverkasam-
tök. Shara sagði að ágreiningurinn
fælist ékki í því hvort beijast ætti
gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarf-
semi heldur hvernig skilgreina bæri
hana.
,, Birmingham-sexmenn-
ingarniru lausir úr haldi
London. Reuter.
SEX Irar, sem setið hafa í haldi
í sextán ár, dæmdir í lífstíðar-
fangelsi fyrir sprengjutilræði í
bresku borginni Birmingham,
voru í gær látnir lausir. Gerðist
það eftir að breskur áfrýjunar-
dómstóll hafði komist að þeirri
niðurstöðu að þeir væru saklaus-
ir. Þetta er mikið áfall fyrir
breskt réttarkerfi og lýsti Kenn-
eth Baker, innanríkisráðherra
Bretlands, því yfir eftir að dóm-
urinn féll að hann hygðist skipa
rannsóknarnefnd til að kanna
málið og reyna að minnka líkur
á að svipað geti gerst aftur. „Ég
er sannfærður um að þetta eigi
eftir að leiða meiriháttar um-
bætur af sér,“ sagði Baker.
Mennirnir, sem ganga undir
nafninu „Birmingham-sexmenn-
ingamir" voru sakaðir um að hafa
staðið á bak við sprengjutilræði í
knæpum í borginni Birmingham
árið 1974 sem 21 manns biðu bana
í. Eru þetta mannskæðustu hermd-
arverk sem framin hafa verið á
Bretlandseyjum og vöktu þau
gífurlega reiði meðal almennings.
Sakfelling sexmenningana
byggðist fyrst og fremst á tækni-
legum sönnunargögnum sein nú
eru talin fremur óábyggileg. Meðal
annars áttu leifar af sprengiefnum
að hafa fundist á höndum þeirra
en nú telja vísindamenn að önnur
efni, t.d. sápa, hefðu getað valdið
sömu niðurstöðu.
Irski lýðveldisherinn lýsti
ábyrgð á verknaðinum á hendur
sér en sagði sexmenningana vera
sér óviðkomandi.
„Við erum búnir að vera blóra-
bögglar í sextán og hálft ár,“ hróp-
aði Patrick Hill, einn sexmenning-
anna, til mannfjöldans sem tók á
móti þeim er þeir voru látnir laus-
ir. „Lögreglan sagði okkur frá
Garry Hunter og Palrick Hill,
tveir sexmenninganna, fagna
frelsinu í gær eftir sextán ára
fangselsisvist.
upphafi að þeir vissu að við hefðum
ekki gert þetta. Þeir sögðu okkur
að við hefðum verið valdir úr og
að það ætti að koma sökinni yfir
á ökkui'.‘“
Honecker
kominn til
Sovétríkjanna
Bonn, Berlín. Reuter.
ERICH Honecker, fyrrum leið-
togi austur-þýska kommún-
istaflokksins, er kominn til
Sovétríkjanna til læknismeð-
ferðar. Þýska stjórnin krafðist
þess að Sovétmenn sendu hann
til baka þar sem hann á yfir
höfði sér ákæru vegna beit-
ingu skotvopna við þýsk-þýsku
landamærin.
Ekki hefur verið gefin nánari
skýring á hvað hrjái Honecker
en frá því honum var steypt af
stóli haustið 1989 hefur hann
gengist undir gallblöðruaðgerð,
þjáðst af nýrnakrabbameini og
verið með of háan blóðþrýsting.
Honecker hefur undanfarið ár
dvalist á sovéskum herspítala í
austurhluta Þýskalands.
Heilsa Honeckers hefur fram
að þessu komið í veg fyrir að
hann verði dregin til saka vegna
glæpa sem framdir voru á stjórn-
arferli hans.