Morgunblaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1991 ~9L ttr Coppolakveð- ur Corleone Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Háskólabíó: Guðfaðirinn III. — The Godfath- er Part III. Leikstjóri Francis Ford Coppola. Handrit Coppola og Mario Puzo. Aðalleikendur A1 Pacino, Diane Keaton, Talia Shire, Andy Garc- ia, Eli Wallach, Raf Vallone, Joe Mantegna, George Hamilton, Bridget Fonda, Sofia Coppola. Bandarísk. Paramount 1990. Coppola tók að sér ekkert smá- verkefni er hann ákvað að loka Guðföðurbálknum. Enda voru fyrri myndirnar tvær ekki aðeins fram- úrskarandi listaverk sem settu mark sitt á kvikmyndastíl síðustu áratuga og smekk þeirra sem kvik- myndir sækja, heldur eru þær fyrir löngu orðnar sígildar og goðsagna- kenndar. Það hefur hvatt leikstjór- ann til átakanna að Guðfaðirínn I og II, eru hans bestu myndir, skara langt fram úr þeim verkum sem hann hefur gert í kjölfar þeiiTa og þær skipuðu honum sæti meðal bestu leikstjóra aldarinnar. En Guðfaðirínn ///stenst ekki fyllilega samanburðinn. Ekki hvað efnið snertir en útlitið er tignar- legt. Coppola Iokar raunasögu Corleone-klansins með tilraunum Micahels, (Pacino) til að sættast við guð og menn. Hverfa frá villu síns vegar — frá glæpastarfsemi til viðskipta við útsendara Guðsrík- is hér á Jörð — peningamenn páfa. Koma á sættum við konu sína og böm og innann ijölskyldunnar, fá fyrirgefningu á morðinu á Fredo bróður sínum. En bankamenn í páfagarði reynast engu síður skúrkar en kollegar hans í maf- íunni sem vilja nú fá Michael til að „hreinsa" peningaþeirra í hinum lögmæta atvinnurekstri hans í samvinnu við guðsmennina. Og Michael sér að lokum þann kost einan að fá laungetinn son Sonnys, Vincent, (Andy Garcia) til að kippa í taumana — að hinum hefðbunda hætti ættarinnar. Guðfaðirínn Iller þegar best lætur hrífandi í anda þess trega- fulla mikilfengleika sem einkenndi myndir I og II, en þess á mitli glæsi- legur vindbelgingur. Á stundum koma innihaldslitlir sprettir, eink- um um miðbikið, kaflar sem eiga ekki heima í mynd sem ber nafnið Guðfaðirínn III. En stórkostlegir kvikmyndagerðarmenn láta ekki sitt eftir liggja að breiða yfir efnis- rýrðina því myndin er frá upphafi til enda listavel gerð að öðru ieyti. Hæst ber sem fyrri daginn stór- fenglega kvikmyndatöku lýsinga- meistarans Gordons Willis, sem öðrum fremur hefur skapað þetta dulúðga, ótrausta andrúmsloft þrennunar með frábærlegu sam- spili ljóss og skugga í takt við per- sónurnar. Ekki langt undan er hin angurværa og allt að því sorg- mædda melódía Nino Rota, þema myndarinnar og vörumerki. Klipp- ingin er óaðfinnanleg sem búningar og útlit myndarinnar á annan hátt. Leikurinn er yfirhöfuð góður og misjafnt handrit gefur misgóð tæk- ifæri. Pacino fær rjómann og nýtir hann út í ystu æsar og gervið er magnað. Það kemur á óvart að hann fékk ekki Oskarsverðlauna- tilnefningu fyrir vikið. Annað stærsta hlutverkið er í höndum Andy Garcia, stórefnilegs og sjarm- erandi leikara sem stendur sig að vonum, þó hann eigi á yfirnáttúr- legan hátt að umturnast úr óupp- dregnum strætisskelmi og bastarði í höfuð ættarinnar! Keaton og Shire endurtaka fyrri hlutverk eiginkonu og systur Michaels og komast vel frá veigalitlum rullum, einkum Shire, en hennar þáttur er einmitt A1 Pacino sem Guðfaðirinn Mic- hael Corleone og Andy Garcia sem arftaki hans í lokamynd þrennunnar magnþrungnu um skipulagða glæpastarfsemi og fjölskyldulíf í Mafíunni. stærstur hér í bálknum. Með minni hlutverk fer fjöldi kunnra ieikara þar sem gamli senu- þjófurinn hann Eli Wallach fer ósjaldan á kostum. Vallone og Mantegna eru traustir að vanda. Hamilton fer myndarlega með hlut- verk Hagens. Þó má segja að þar sé kominn köttur í ból bjarnar svo mikinn svip sem leikur Roberts Duvalls setti á myndina. Og léleg sú afsökun að bruðlmeistarinn Coppola hafi ekki getað séð af einni milljóna dala til Duvalls í mynd sem fór tugi milljóna yfir ijárhagsáætl- un. Og val hans á dóttir sinni Sofiu í áhrifamikið hlutverk er umdeilan- legt en ijarri því að vera jafn hæp- ið og sumar raddir að vestan vilja vera láta. Og endunum heldur Coppola saman með ágætum og þeirri traustu og listrænu yfirsýn sem einkennir hans bestu myndir. Gall- arnir liggja í handriti sem státar ekki af þeirri stórbrotnu sögu og viðstöðulausa drama sem var meg- instoð I og II. Og persónurnar ekki allar nógu heilsteyptar. En Guðfað- irínn /Z/þolir vissulega samanburð við flestar aðrar myndir en hina sögufrægu og glæstu forvera sína. Miklir menn á Jamaíku Kvikmyndir Amaldur Indriðason Hinn mikli („The Mighty Quinn“). Sýnd í Bíóhöllinni. Leikstjóri: Carl Schenkel. Aðal- hlutverk: Denzel Washington, Robert Townsend, James Fox, Mimi Rogers, M. Emmet Walsh. Hinn mikli er óvenjuleg ef ekki undarleg spennumynd sem hefur ijöruga og litskrúðuga reggíveröld- ina á Jamaíku í bakgrunni en á erfitt með að halda nægum hraða eða spennu í frásögn til að festa athyglina og maður er einhvern veginn jafn nær eftir sem áður. Denzel Washington leikur lög- reglustjóra á Jamaíku sem fær morðmál inná borð til sín en það tengist stórri peningasendingu og besti vinur hans úr æsku (Robert Townsend) kemur við sögu. Aðrar persónur eru hótelstjóri og kona hans sem leikin eru af breska leik- aranum James Fox og bandarísku leikkonunni Mimi Rogers en bæði detta sporlaust út úr frásögninni eftir stuttaralegt innlit. Einnig M. Emmet Walsh, sem leikur soraleg- an útsendara bandarísku leyniþjón- ustunnar, og nokkrir innfæddir þ. á m. landstjórinn, sem er brúða í höndum æðri valdaafla, glæsileg eiginkona lögreglustjórans og e.k. norn í hjólastól. Öllu er þessu hrært saman án þess að út úr því komi mikið af viti. Handritið er einkar ómark- visst, farið er úr einu í annað svo þráðurinn slitnar auðveldlega en er svo tekinn upp að nýju, persónur koma og fara án mikilla skýringa. En það er góður hljómur í mynd- inni, reggítónlistin er fjörug og skemmtileg, sérstaklega útsetning- in á „The Mighty Quinn“ eftir Manfred Mann, tökustaðirnir við Karíbahafið eru sólríkir og fallegir og kvikmyndatakan er oft frumleg. En Hinn mikli er varla mikill bógur eftir allt. Sýnir í Nor- ræna húsinu ERLA Þórarinsdóttir mun opna myndlistarsýningu í Norræna húsinu laugardaginn þ. 16. mars kl. 15.00. Þar verða til sýnis mál- verk unnin á síðasta ári og það sem liðið er af þessu. Erla kallar þessa sýningu Viðmið- un. í sýningarskrá segir hún sýning- una vera framhald af sýningu sem hún hélt á Kjarvalsstöðum haustið 1989. Erla hlaut menntun í Stokkhólmi á árunum 1976-1981. Síðan hún útskrifaðist hefur hún ferðast tölu- vert, haldið einkasýningar hérlendis; í Stokkhólmi, Kaupmannahöfn og New York og tekið þátt í samsýning- um víðsvegar. Sýningin í Norræna húsinu er opin daglega frá kl. 14-18. Henni lýkur sunnudaginn 7. apríl. Daníel Magnússon Daníel opnar í Slunkaríki DANÍEL Magnússon opnar sýn- ingu í Slunkaríki á ísafirði 16. mars nk. Á sýningunni verða lágmyndir unnar með blandaðri tækni í tré og eldhúsfílabein. Þetta er fimmta eink- asýning Daníels en auk þess hefur hann tekið þátt í samsýningum hér heima og erlendis. Sýningin er öllum opin. IIWSHlÁltí G L S I B Æ Hljómsveitin SMELLIR ásamt Ragnari Bjarnasyni. Húsið opnað kl. 22.00. GömJlu ©g nyjii Jansarnir íÁrtúni íkvöld frá kl. 21.30-D3.00. Hljómsveit Jóns Sigurðssonar skemmtir ásamt söngkonunni Hjördísi Geirs. Hinn góðkunni Þorvaldur Halldórsson skemmtir laugardagskvöld. Dansstuðið eríArtúni i É —i VEITINGAHUS Vagnhöfða 11, Reykjavík, sími 685090. % & Lokað í kvöld vegna einkasamkvæmis Upplyfting skemmtir laugardagskvöld NILLABAR Hljómsveitin Nítró skemmtir í kvöld - Frábær stemmning Opið frá kl. 18.00-03.00 FELAGSVIST kl. 9.00 GÖMLU DANSARNIR kl.10.30 ikHljómsveitin Tíglar *Miðasala opnar kl. 8.30. * Góð kvöldverðlaun. * *Stuð og stemning á Gúttógleði. * S.G.T. Templarahöllin Eiriksgötu 5 - Simi 20010 Staður allra sem vilja skemmta sér án áfengis Laugavegi 45 - s. 21255 í kvöld: LOÐIN ROTTA Laugardagskvöld: LOOIN ROTTA Sunnud.ogmánud.: FORMICA GIKKURIIMIM BAR ÁRMIÍLA 7 SÍMI 68 16 61 FOSTUDAGUR RÚNAR ÞÓR SKEMMTIR MUNID DANSSKÓNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.