Morgunblaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 2
£
2
tftfti síiam .a.r ímoAauTaövi aiaA.ravtunííOM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1991
Seðlabankinn:
Yfirdráttur ríkis-
ins nær 9 milljarðar
- sagði Friðrik Sophusson á Alþingi
FRIÐRIK Sophusson, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, staðhæfði
í eldhúsdagsumræðu á Alþingi í gær, að yfirdráttur ríkissjóðs hjá
Seðlabanka hafi numið 8,8 miiyörðum króna [8.800 m.kr.] í byrjun
þessarar viku.
Friðrik sagði fjánnáláráðherra
reyna með tilfæringum og talna-
leik að gefa í skyn að staða ríkis-
sjóðs sé betri en hún raunverulega
er. Ráðherrann hafi í janúarmán-
uði síðastliðnum fáert 1.200 m.kr.
á Byggingarsjóð ríkisins af við-
skiptareikningi ríkisins, þótt út-
gjöldin hafi í raun átt sér stað á
árinu 1990. „Þannig sýndi ríkis-
sjóður betri stöðu um áramót, eða
300 m.kr. inneign hjá Seðla-
banka.“
„í dag fékk ég þær upplýsing-
ar,“ sagði þingmaðurinn, „að yfir-
dráttur ríkissjóðs hjá Seðlabanka
hafi verið hvorki meira né minna
en 8,8 milljarðar króna í bytjun
þessarar viku. Sú tala gefur vís-
bendingu um að hallinn á ríkissjóði
í ár verði enn meiri en fjármálaráð-
herrann vill vera láta.“
Staða prófessors við læknadeild HÍ:
Jónas fékk flest atkvæði
JÓNAS Magnússon hlaut flest atkvæði í kosningu um prófessors-
stöðu í handlæknisfræðum við Háskóla íslands á fundi í læknadeild
á miðvikudaginn. Þetta voru fimmtu kosriingarnar sem fram fóru
í deildinni vegna þessarar stöðu en ekki hafði tekist að ná fram
tilskildum meirihluta lögum samkvæmt fyrr en nú.
Fjórir umsækjendur voru um og yfirlæknir á Fjórðungssjúkra-
Landhelgisgæslunni hefur boðist Sikorsky Jayhawk björgunarþyrla. Hér er ein slík máluð í litum banda-
rísku strandgæslunnar.
Landhelgisgæslunni býðst
ný Sikorsky björgunarþyrla
stöðuna, en þeir dr. med. Brynjólf-
ur Mogensen, yfirlæknir á bækl-
unardeild Borgarspítalans, og
Gunnar Gunnlaugsson, yfírlæknir
og dósent, höfðu dregið sínar um-
sóknir til baka. í fyrri umferð kosn-
inganna hlaut Jónas Magnússon,
sérfræðingur á Borgarspítalanum,
26 atkvæði, Halldór Jóhannsson,
dósent við læknadeild, hlaut 25
atkvæði, Gauti Amþórsson, dósent
reyn, hlaut 5 at-
kvæði og Einar Olafur Ambjöms-
son, dósent og sérfræðingur við
Háskólaspítalann í Lundi, hlaut 2
akvæði og einn seðill var auður.
í síðari umferðinni var kosið á
milli tveggja efstu og þá fékk Jón-
as Magnússon 33 atkvæði og Hall-
dór Jóhannsson 26. Enginn seðill
var auður.
Landhelgisgæslunni hefur
verið boðin til kaups björgunar-
þyrla af nýrri gerð frá banda-
rísku Sikorsky flugvélasmiðjun-
um. Þyrlan er af gerðinni HH-
60J Jayhawk og er hún búin öll-
um fullkomnustu fjarskipa-, sigl-
ingar- og björgunartækjum sem
völ er á, auk afísingarbúnaðar,
að sögn Albínu Thordarson,
umboðsmanns Sikorsky. Þyrlur
af þessari gerð kosta á bilinu
500-1.000 miHjónir, eftir því hve
fullkominn búnaðurinn er, að
sögn Albínu. Að jafnaði tekur
2-3 ár að fá björgunarþyrlur
afhentar en mun styttri af-
greiðslutími kemur til greina í
undantekningartilvikum sem
þessum, segir Albína.
Bandariska strandgæslan tók
fyrstu björgunarþyrlurnar af Jay-
Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins:
Efast enn nm að bráðabirgða-
lögin standist stjómarskrána
Telur ekki ólíklegt að niðurstaða Hæstaréttar kynni að verða önnur
DAVÍÐ Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins segist ennþá hafa
efasemdir um að bráðabirgðalagasetning ríkisstjórnarinnar vegna
kjarasamninganna við BHMR standist stjórnarskrána. Úrskurður
Borgardóms Reykjavíkur hafi ekki breytt afstöðu hans, þótt hann
ætli ekki að deila við dómarana. Davíð sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að flest rök sækjanda hefðu verið tekin til greina af
hálfu dómsins, en niðurstaðan væri að hans mati ekki í samræmi
við það sem dómararnir sjálfir viðurkenndu.
„Það sem við sögðum, sjálfstæð-
ismenn flestir hveijir, var að mála-
tilbúnaður ríkisstjómarinnar varð-
andi þetta mál væri .allur í ólagi.
Reyndar kölluðu þeir Steingrímur
og Ólafur Ragnar þennan samning
síðan tóku þeir sig til og sögðu
þennan samning marklausan. Þeim
málatilbúnaði töpuðu þeir fyrir Fé-
lagsdómi og settu síðan lög,“ sagði
Davíð.
„Borgardómur virðist taka flest
en niðurstaðan er aftur á móti ekki
í samræmi við það sem dómaramir
sjálfir viðurkenna. Þeir viðurkenna
að dómstólar megi dæma um hvort
um brýna nauðsyn er að ræða eða
ekki. Þeir viðurkenna að skapast
hafi eignarréttarástand varðandi
launin. Þeir byggja dóminn á því
að aðilar sem sömdu á eftir BHMR
hafi mátt vænta þess að fá sam-
svarandi hækkun og BHMR, þrátt
fyrir það að engin slík ákvæ'ði væru
í þeirra samningum. Þetta finnst
mér vera rökstuðningur sem er á
afskaplega hálli braut,“ sagði Ðav-
íð.
Á hinn bóginn sagði Davíð að.
dómstólar hefðu verið afskaplega
hræddir við að dæma í málum sem
þessum. „Það er kannski ekkert
óeðlilegt að undirréttardómur hafi
ekki til þess afl að gera það og ég
teldi ekkert ólíklegt að niðurstaða
Hæstaréttar kynni að verða önnur,“
sagði formaður Sjálfstæðisflokks-
hawk gerð í riotkun seint á síðasta
ári. Kröfur Strandgæslunnar voru
að þyrlan kæmist 300 sjómílur (555
km) frá björgunarstöð, gæti verið
á svæðinu í 45 mínútur, flutt til
baka 6 skipbrotsmenn og átt eftir
10% eldsneytis. Þegar þyrlan var
tekin í notkun kom í ljós að hún
fór fram úr þessum kröfum, getur
tekið 12 menn um borð í 300 sjó-
mílna fjarlægð frá stöð og flutt til
baka.
Þyrlan kemst frá Reykjavík á
flest fiskimið íslenskra skipa án
þess að tefjast við að taka elds-
neyti á leiðinni. Hún hefur burðar-
getu til að taka um borð í einu
hali áhöfn af flestum ef ekkl.öllum
íslenskum skipum á venjulegum
slóðum íslenskra skipa og flutt til
lands. Flugdrægni án varaeldsneyt-
. is er um 735 sjómílur (1.360 km)
og getur þyrlan verið lengst á lofti
í rúma sjö og hálfa klukkustund.
Bandaríska strandgæslan gerði
kröfu um að þyrlan gæti leyst öll
sín verkefni af hendi í ellefu vind-
stigum. Afising er á aðalþyrli og
stélþyrli, rúður eru upphitaðar og
loftinntök véla. Hafa þær hliðstæða
afisingu ög innanlandsflugvélar
Flugleiða og geta farið allra sinna
ferða í flestum veðrum hér á landi,
þar á meðal yfir hálendið.
Sikorsky Jayhawk björgunar-
þyrlan er í grundvallaratriðum
sömu gerðar og Sikorsky MH-60G
Pave Hawk björgunarþyrlur banda-
ríska flughersins, sem verða teknar
í notkun á Keflavíkurflugvelli á
næstunni.
við BHMR tímamótasamning, en þau rök til greina sem máli skipta,
Morgunblaðið/Sverrir
Söngæfingar á Rigolettó
í íslensku óperunni standa nú yfir æfingar á Rigoletto. Garðar Cortes
og Sólrún Bragadóttir voru í gær að æfa aðalhlutyerkin.
Myndbandaleigueigandi krefst
15 millj. skaðabóta af ríkinu
í BÆJARÞINGI Reykjavíkur var í gær flutt fyrir fjölskipuðum dómi
skaðabótamál sem eigandi myndbandaleigu í Reykjavík höfðaði gegn
dómsmálaráðherra og fjármálaráðherra. Krefst hann 15 milljóna
króna skaðabóta. vegna aðgerða lögreglu, sem lagði hald á 967
myndbönd á leigu mannsins í eftirlitsátaki, sem dómsmálaráðuneyti
hafði frumkvæði að og gert var á myndbandaleigum um alla borg-
ina þann 22. desember 1986.
Allar myndir sem ekki voru merkt-
ar kvikmyndaeftirliti ríkisins eða ís-
lenskum umboðsaðilum voru teknar
og að auki 19 sem báru merki um
skoðun þessara aðila. Fjórar mynd-
anna reyndust á bannlista yfír of-
beldismyndir. 2. apríl á síðasta ári
var manninum skilað 984 spólum,
fleiri en manninum hafði verið sagt
að hald hefði verið lagt á.
í greinargerð lögmanns hans,
Gunnars Jóhanns Birgissonar hdl,
segir að svör hafí fyrst borist frá
ríkissaksóknara um að málið hefði
verið fellt niður eftir að stefnt hafði
verið í málinu. Lögmaðurinn segir
að ekki sé með haldbærum rökum
hægt að halda því fram að nauðsyn-
legt hafi verið að leggja hald á um-
ræddar spólur þrátt fyrir að eftirlits-
átakið stæði yfir og að eigandi mynd-
bandaleigunnar hafi á engan hátt
gefið til kynna eða vakið grunsemdir
um að hann væri að leigja út ólög-
Jggt efni eða að fyrirtæki hans væri
ekki rekið lögum samkvæmt
í greinargerð Guðrúnar M. Áma-
dóttur, hrl, sem flytur málið fyrir
ríkissjóð og krefst sýknu af öllum
kröfum, segir að leitin hafi verið lið-
ur í lögreglurannsókn sem beindist
sérstaklega að því að upplýsa hvort
maðurinn hafi brotið ákvæði laga um
bann við ofbeldiskvikmyndum og
ákvæði höfundalaga. Þar sem hvorki
hafi verið þeir ágallar á lögregluað-
gerðumum, sem geti leitt til skaða-
bótaskyldu gagnvart manninum, né
hafi hann uppfyllt það skilyrði laga
að líklegra sé að hann hafi verið
saklaus af þeirri háttsemi sem hann
var borinn í rannsókninni beri að
sýkna ríkissjóð af bótakröfunni.
Einnig heldur ríkislögmaður því fram
að bótakrafa mannsins sé fymd.