Morgunblaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1991
Ný þjónusta í Kringlunni
við áskrifendur
að spariskírteinum ríkissjóðs
Góðum viðtökum við áskriftiníii fylgt eftir með opnun þjónustuútibús
Nú eru hátt í 15 þúsund fjölskyldur áskrifendur að
spariskírteinum ríkissjóðs, eða um 6. hver fjölskylda í
landinu. Á hverjum degi heimsækir fjöldi fólks Kringluna
og því ljóst að áskrifendur eiga þar oft leið um.
Til að auka þjónustuna við þessa fjölmörgu áskrifendur
hefur Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa gert samkomulag um
afnot af hluta húsnæðis Fjárfestingarfélagsins í Kringlunni
um opnun þjónustuútibús fyrir áskrifendur að
spariskírteinum.
Þar geta áskrifendur og aðrir, sem leið eiga um Kringluna,
fengið upplýsingar og ráðgjöf um fjármál, gerst áskrifendur
og fengið aðra þjónustu sem viðkemur sparnaði. Þar er
einnig hægt að fá ríkisvíxla og ríkisbréf sem og spariskírteini
í almennri sölu.
Komdu við í Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa næst þegar þú
átt leið í Kringluna og kynntu þér nánar þá þjónustu sem þar
er boðið upp á.
ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
fyrirfólkið í landinu
Þ)ónustumibstöð ríkisveröbréfa, Kringlunni, sími 68 97 97. Þ)ónustumi&stöð ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6, sími 62 60 40.
GOTT FÓLK/SlA