Morgunblaðið - 15.03.1991, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 15.03.1991, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1991 Ný þjónusta í Kringlunni við áskrifendur að spariskírteinum ríkissjóðs Góðum viðtökum við áskriftiníii fylgt eftir með opnun þjónustuútibús Nú eru hátt í 15 þúsund fjölskyldur áskrifendur að spariskírteinum ríkissjóðs, eða um 6. hver fjölskylda í landinu. Á hverjum degi heimsækir fjöldi fólks Kringluna og því ljóst að áskrifendur eiga þar oft leið um. Til að auka þjónustuna við þessa fjölmörgu áskrifendur hefur Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa gert samkomulag um afnot af hluta húsnæðis Fjárfestingarfélagsins í Kringlunni um opnun þjónustuútibús fyrir áskrifendur að spariskírteinum. Þar geta áskrifendur og aðrir, sem leið eiga um Kringluna, fengið upplýsingar og ráðgjöf um fjármál, gerst áskrifendur og fengið aðra þjónustu sem viðkemur sparnaði. Þar er einnig hægt að fá ríkisvíxla og ríkisbréf sem og spariskírteini í almennri sölu. Komdu við í Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa næst þegar þú átt leið í Kringluna og kynntu þér nánar þá þjónustu sem þar er boðið upp á. ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA fyrirfólkið í landinu Þ)ónustumibstöð ríkisveröbréfa, Kringlunni, sími 68 97 97. Þ)ónustumi&stöð ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6, sími 62 60 40. GOTT FÓLK/SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.