Morgunblaðið - 15.03.1991, Side 33

Morgunblaðið - 15.03.1991, Side 33
leei SHAM .cU ÍIUDAU’JTc'.O-! SiaAjaMUÖHOM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1991 Að lifa í helstefnu eða lífstefnu eftir Magnús H. Skarphéðinsson Hrafnhildur Valdimarsdóttir loðdýrabóndi eignar mér ýmsa vonda helstefnulífshætti hér í Morgunblaðinu þann 25. janóar sl. vegna gagnrýni minnar á hina þjáningarríku búgæin sem kölluð er á sófamáli venjulegs fólks loð- dýrarækt. Ég borða ekki dýrin eða ná þeirra Hrafnhildur og aðrir unnendur þessara mjög svo umdeilanlegu lífshátta að mínu mati og margra annarra skulu upplýstir um það, að ég nota yfírleitt ekki lopapeys- ur (þótt mér hafí reyndar verið gefin ein slík af góðri konu hér fyrir fáum misserum). Og ég borða aldrei lambakjöt né önnur dýr eða fiska eða fugla og hef ekki gert slíkt síðstliðin nítján ár, eða síðan ég var sautján ára. Og það eru mörg ár síðan ég hætti einnig að drekka kúamjólk. Núna drekk ég aðeins mjólk sem unnin er úr soja- baunum og finnst hún góð. Reynd- ar bara mjög góð með hinum ýmsu bragðefnum sem hægt er að fá hana með s.s. maltbragði eða vanillubragði eða með öðrum skaðlausum og heilsusamlegum bragðefnum úr jurtaríkinu. í stuttu máli sagt: Ég nærist ekki á neinum dýrum eða afurðum unnum úr náum þeirra eins og því miður flestir íslendingar gera enn í dag. Því ég vil ekki að dýr séu drepin handa mér sé þess nokkur kostur að komast hjá því. Og það er bara orðið allauðvelt, kæra Hrafnhildur, að lifa slíku lífi í dag, 9g það meira að segja á hinu kalda íslandi. Fjölmargar verslanir hafa sér- Magnús H. Skarphéðinsson „í stuttu máli sagt: Ég- nærist ekki á neinum dýrum eða afurðum unnum úr náum þeirra eins og því miður flestir Islendingar gera enn í dag.“ hæft sig í heilsumat sem í ofaná- lag hefur ekki neina tegund af dýraplageríi í för með sér. Korn- markaðurinn á horni Skólavörðu- stígs og Klapparstígs er einn þeirra, svo og verslunin Yggdras- ill á homi Kárastígs og FYakka- stígs, báðar hér í Reykjavík. Eg hvet þig, kæra Hrafnhildur, að kynna þér hvað þær verslanir hafa á boðstólunum fyrir þig og fjölskyldu þína. Því mér er umhug- að um að þín fjölskylda og allar aðrar íslenskar fjölskyldur sem og allar heimsins fjölskyldutv lifi vel og lengi og líði vel líkamlega og andlega. En til þess verður maður að gæta þess hvað maður lætur ofan í sig og ekki síður að minnka þjáningu umhverfisins og hinna dýranna af nærveru okkar mann- anna eins mikið og mögulegt er. Og það er hægt að komast veru- lega langt niður þann skala ef mannleg hugsun og hugvit fær að vinna úr því fordómalítið. Auðvitað er hægt að skiptá um atvinnuveg ef menn bara vilja Ég veit vel að þér er eflaust umhugað urn á hvetju þú og þín fjölskylda eiga að lifa og ekki að undra slíkar v'angaveltur við gagn- rýni mína og annarra loðdýravina á loðdýrabúskap þinn og annarra. Og skil ég vel þær hugsanir. En samt. Það er hægt að lifa á þessum hnetti að mínu mati fyrir meira að segja allar þessar fímmþúsund milljónir homo sapiens-einstakl- inga án þess að hafa allan þennan náttúru- og dýratortúr eins og menning flestra þjóða byggist á. Sem er yfirleitt því verri því norð- ar sem þær búa. Og það er líka hægt að lifa prýðislífi á íslandi án þess að leiða öll þessi dýr, s.s. sauðfé, þorskinn, nautgripina, loðnuna og loðdýrin í þá helför sem nú stendur sem hæst á hendur þessum dýrum af hálfy okkar mannanna. Ég veit vel að það er ekki hægt að skipta um atvinnuveg á íslandi í dag eða á morgun. Ekki heldur á þessu ári eða því næsta. Og ekki heldur á þessari öld og ekki nema að hluta til á þeirri næstu líklega. En við skulum því bytja strax. Einhvern tíma verður að bytja og því fyrr því betra skiljan- lega. Kveðjur. Höfundur er fyrrverandi vagnstjóri SVR. ■ HLJÓMS VEITIN Blái fiðr- ingurinn mun spila á Rauða Ijón- inu, Eiðistorgi, um helgina. Lögð verður áhersla á rokkaðan og hress- an blús. Hljómsveitina skipa: Linda Gísladóttir, söngur, Skúli Thor- oddsen, saxófónn, Magnús Sig- urðarson, gítar, Arni Björnsson, bassi og Kjartan Guðnason, trommur. ■ HRAÐSKÁKMÓT Taflfélags Kópavogs vei-ður haldið sunnudag- inn 17. mars kl. 14.00. Teflt verðuj_ í Hamraborg 5, sal TAFT, Taflfé- lags Kópavogs. 12ferðaskrifstofur kynnaþjónustu sína og sumardœtlunfyrir árid '91 FERDAVEISLA Farklúbbur Félags íslenskra ferðaskrifstofa efnir til feröakynningar í Kringlunni ídag Úrral/ÚtsýB Jjgr FerúBaiústöúiB Veröli Ferúístrllstsfe HeyklayíkBr &' SBÚBIBBÖBt JÚBBSSBB 6 J FerúBskrllstBlaB Saga sxp Allir KVIKK veitingastaóirnir í Kringlunni veita handhöfum Farkorta eöa Gullkorta Visa 20% afslátt ítilefni dagsins (ITtOMTIf JÚS Ferúaskrifstafaa Mís ^ FerúaskritslBla stúieata Katrís Land og saga. FÍF Kynningin stendur yfir föstudag kl. 10-19 og laugardag kl. 10-16 írska þjóðlagahljómsveitin „The Mulligans" lætur í sér heyra 11 loðl l'!v>AiU :

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.