Morgunblaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 15. MARZ 1991 37 Þyrla Landhelgisgæslunnar keníur með slasaðan mann á slysadeild Borgarspítalans. mjög huglægt, og hefur engan veg- inn verið skilgreint í íslenskri heil- brigðisþjónustu. Við höfum ekki afmarkað þá þætti er gæðin skuli vera metin eftir. Við höfum ekki nema að litlu leyti unnið staðla, sem nota má sem viðmið og höfum ekki sett okkur viðunandi mörk, sem tákna að ákveðnum gæðum sé náð. Við höfum t.d. nýlega hafið skrán- ingu óhappa, sem er að því ég best veit ekki fyllilega sambærileg milli stofnana. Lítið hefur verið |mnið úr niðurstöðum, enda má iíkur að því leiða að talsvert vanti _ á að skráningin sé áreiðanleg. Ýmsar fleiri aðferðir við að meta gæði eru hafnar, eins og t.d. að yfirfara sjúkraskrár m.t.t. rannsókna og meðferðar við ákveðnum sjúkdóm- um. Við höfum þó færst í rétta átt, umræða um mikilvægi gæða- þjónustu er orðin talsverð, en oft yfirborðskennd. Fullyrða má að þjónusta sé hér góð miðað við aðrar þjóðir og til skamms tíma a.m.k., tel ég að talsvert hafi verið um „ofþjónustu" að ræða. Nú er öldin önnur, þjónustan er víða skorin nið- ur, sérstaklega á sumrin eins og áður hefur verið minnst á, sem að sjálfsögðu þýðir það að „gæðin“ minnka. Umbunarkerfi Umbunarkerfi stofnana, deilda og starfsfólks er tískuumræðuefni meðal stjórnenda og stjórnvalda. Hugmyndin er að umbuna þeim sem standa sig vel. Eina umbunin sem ég verð verulega vör við, er byggð á allt annarri hugmyndafræði, nefn- ilega þeirri, að umbuna þeim sem lítilli og lélegri vinnu skila, með enn minni vinnu. Hins vegar er afburða- starfsfólki umbunað með enn meiri vinnu. Hvað fjármál snertir, þá fá þeir sem standa sig vel, minni fjár- veitingu næsta ár, en þeir sem illa standa sig njóta afraksturs þeirra sem skila rekstrarafgangi. Þó verð- ur að taka fram aðforsendur þær sem notaðar hafa verið til fjárveit- inga eru oft og tíðum mjög óréttlát- ar og úreltar og aðgangur stofnana að fjármagni virðist vera misgreið- ur. Til að bæta afköst og árangur í opinberum rekstri, þyrfti að taka allt launakerfi opinberra starfs- manna til gagngerrar endurskoðun- ar. Núverandi kerfi hvetur til enda- lausrar meðalmennsku. Starfsinannahald Starfsfólk sjúkrahúsanna er dýr- mætasta fjárfesting þeirra, nær 70% rekstrarkostnaðar er launa- kostnaður. Óánægja starfsfólks, sem leiðir til uppsagna og þar með mannaskipta, veldur sjúkrahúsum ómældum beinum og óbeinum kostnaði. í Bandaríkjunum hefur kostnaður á hver einstök manna- skipti hjúkrunarfræðinga verið met- inn á 5—20 þús. Bandaríkjadala (275.000-1.100.000 ísl. kr.), allt eftir aðstæðum viðkomandi stofn- ana. Þessi kostnaður er ekki svona mikill hérlendis, én hann er samt sem áður verulegur og vaxandi. Að lokum er ekki úr vegi að vekja athygli á mikilvægi hæfra stjórn- enda á erfiðum tímum. Það má segja að þegar allt leikur í lyndi, sem er aldrei á sjúkrahúsum, þá mæðir minna á stjórnendum. A krepputímum, sem við lifum núna, reynir á samskiptahæfni, hugmynd- aflug, leiðtogahæfileika og frum- kvæði þeirra sem eru í stjórnun, enda eru þetta þættir, sem farið er að meta æ meir erlendis við ráðn- ingu starfsfólks í ábyrgðarstöður, þó að sjálfsögðu verði menntun, þekking og reynsla aldrei vanmetin. Lokaorð Við íslendingar erum svo lánsöm að búa við góða heilbrigðisþjónustu. Góð heilbrigðisþjónusta hlýt'ur allt- af að kosta rnikla peninga, og hiut- fallslega mun kostnaður halda áfram að aukast jafnt og þétt mið- að við þjóðarframleiðslu vegna auk- inna krafna almennings og aukinn- ar tæknivæðingar. Jafnvíst er, að áfram mun ríkja ágreiningur milli fagfólks annars vegar og stjórnmál- amanna hins vegar um hversu miklu opinberu fé skuli varið til heilbrigðismála. Áframhaldandi ágreiningur milli þessara tveggja hópa mun tryggja hagsmuni þeirra sem þjónustunnar njóta, þ.e. við munum stefna áfram að því að veita fullkomnustu heilbrigðisþjónustu á sem hagkvæmastan hátt. Höfundur er lyúkrunarforstjóri Borgarspítalans. tilefni timnmotq FerðohnómtaeU AM/FM útvarpmfö tvöföldu segulbandi. ■j.ÝÁ'JF SvefwpoW Caravan Starter 0 Bakpoki Vandaöur poki, 60 Itr. JJjOJ * KAUPSTAÐUR / MJÓDD Siónvarp Mark 14" lita- siónvarp meö i «e Siónauki Jason 7x35, sjáltstillandí fokus yy\ AIIKUG4RDUR MARKAÐUR VIÐ SUND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.