Morgunblaðið - 15.03.1991, Síða 49
teet sham ,r.r hhdaquthöh giqa.tjkuc'hom
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1991
8*
49
l>essir hringdu ..,
Frábær upplestur
Elín Bjarnadóttir hingdi:
„Eg vil senda Ingibjörgu Har-
aldsdóttur góðar kveðjur og þakk-
ir fyrir frábæran lestur Passíu-
sálma, svona góðan lestur á Pass-
íusálmunum hef ég ekki heyrt síð-
an herra Sigurbjöm Einarsson
biskup las þá. Það er vandi að
lesa þá svo þeir komist vel til
skila en það hefur Ingibjörgu tek-
ist. Hafi hún þökk fyrir.“
Ekki góð mjólk
Þorsteinn Sigurðsson hringdi:
„Hér er athugasemd til þeirra
sem auglýsa að mjólk sé góð. Ef
verið er að aulýsa mjólk á sam-
lagssvæði Reykjavíkur þá er aug-
lýsingin ekki rétt. Þar er mjólkin
bragðlaus og í lélegum pakkning-
um. Hins vegar er mjólkin góð á
öllum öðrum samlagssvæðum og
er einnig í gæðapakkningum þar.“
Kettlingur
Steingrár kettlingur með hvítar
hosur, um fimm mánaða gamall,
fannst í byrjun mars við Sigtún.
Eigandi hans er beðinn að hafa
samband við Kattavinafélagið í
síma 13585.
Bílnúmer
Bílnúmer, R-888, voru tekin af
bíl við Hávallagötu aðfaranótt
sunnudagsins 3. mars. Þetta er
mjög bagalegt fyrir bíleigandann
og er fólk beðið að koma númer-
unum til lögreglunnar ef þau
finnast einhvers staðar. Sérstak-
lega er fólk í Vesturbænum beðið
að svipast um í görðum og ann-
ars staðar þar sem númerin kunna
að hafa lent.
Taska
Dökkbrún kassalöguð taska
tapaðist í sumar. Taskan er þann-
ig gerð að hægt er að stækka
hana með rennilás. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma 18348.
Sjal
Hvítt, franskt ullarsjal með
mislitum köntum og svartri áletr-
un tapaðist á Grandanum á
sunnudag. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í síma
13742. Fundarlaun.
Hið þarfasta málgagn
Kæri Velvakandi.
Mig hefur lengi langað að skrifa
þér — og nú læt ég verða að því.
Oftast er að finna í dálkum þínum
eitthvað bitastætt. Skoðanir al-
mennings koma þar fram og ber
að þakka það.
Reyndar var meiningin að minn-
ast á Sjómannablaðið Víking. Það
er hið þarfasta málgagn allra er
láta sig fiskveiðar og útgerð varða.
Fiskurinn í sjónum er undir-
staða þess nútíma þjóðfélags sem
við lifum og hrærumst í — bregð-
ist hann verður erfitt að lifa á
skerinu.
Þess vegna fór það í taugarnar
á mér þegar kvenmaður einn var
að gagnrýna „Frívaktina“, þátt
sem er algert léttmeti — saklaust
glens, en minnist ekki orði á hin
mörgu og veigamiklu mál er
snerta útgerð, fiskveiðar, tækn-
inýjungar á því sviði og björgunar-
mál svo eitthvað sé nefnt, sem er
ekki síður mál allra landsmanna
en sjómanna einna.
Mér finnst einnig ástæða að
þakka Guðjóni A. Kristjánssyni,
forseta FFSÍ, fyrir skeleggar og
þarflegar greinar.
Ég hef lengi verið áskrifandi
að Sjómannablaðinu og mér finnst
það hafa batnað með ánmum
bæði hvað snertir innihald og útlit
enda er þar við stýrisvölinn Sigur-
jón Valdimarsson góður penni og
röggsamur ritstjóri.
Sjómaður
KÚREKASTÍGVÉL
Ljósbrúnt rúskinn - St. 36-41
Einnig dökkbrúnt rúskinn
Stæröir 41-46 á kr. 5.990.-
Svart leður - St. 41-46
Laugavegi 95
f
WH Kr. 6.990.-
Hnéhá stígvél - St. 36-41
® 624590
PÓSTSENDUM
E'JAÐÐAÐTÍSKA^
Bæjarhrauni 20
Troðfull búð afnýjum
vörumfrd
MISS BRITT
FLUGMENN - FLUGÁHUGAMENN! -
LÁGMAKS SKILYRÐI: 18 ÁRA ALÐRI SÉ NÁÐ FYRIR LOKAPRÓF FRA ACA. FRAM-
HALDSSKÓLAPRÓF EÐA TILSVARANDI. HAFA STAÐIST FAA LÆKNISSKOÐUN.
VIÐ LEITUM AÐ HÆFUM NEMENDUM Á ÍSLANDISEM
HAFA ÁHUGA Á AÐ STARFA SEM ATVINNUFLUGMENN.
STARFSMENN FLUGSKÓLANS VERÐA í
REYKJAVÍK í APRÍL1991 TIL AÐ KYNNA
SKÓLANN, LEIÐBEINA UM INNTÖKUPRÓF
OG EIGA EINKAVIÐTÖL.
NÁMIÐ HÉFST í JANÚAR, APRÍL, JÚLÍ & OKTÓBER
EF ÁHUGI ÞINN ER EKTA OG ÓSK ÞÍN EINLÆG, HUGLEIDDU ÞÁ AÐ LEGGJA ÚT Á
STARFSBRAUT, SEM GENGIN HEFUR VERIÐ AF MÖRGUM ÖÐRUM ER HAFA ÚTSKRIF-
AST FRÁ OKKUR OG FUÚGA NÚ FYRIR HELSTU FLUGFÉLÖG i U.S. OG ERLENDIS.
KANNSKI ERT ÞÚ HÆFUR?
HRINGDU, SENDU FAX EÐA SKRIFAÐU í DAG EFTIR FREKARI UPPLÝSINGUM UM ÞJÁLF-
UN HJÁ ACA í NORÐAUSTURHLUTA U.S. OG UM HEIMSÓKN OKKAR TIL ÍSLANDS.
nAmskrá skólans er SAMPYKKT af faa og VIÐ ERUM TILNEFNDIR AF USIATIL AÐ TAKA Á
MÓTl ALÞJÓBA NEMENDUMISAMRÆMIVIÐ 18 MÁNAÐA J-1 SKIPTINEMA FYRIRKOMULAG ÁSAMT
HAGNÝTRIÞJÁLFUN AÐ PRÓFILÓKNU.
AVIATION CAREER ACADEMY
FOSTERTOWN ROAD, MEDFORD, NEWJERSEY 08055 U.S.A.
TEL: 609-267-1200. FAX: 609-265-1111
Fagmenn i leit ad yfirburHum
Hádegisverður á Hótel Holti
Á Hótel Holti verður áfram tilboð í hádeginu, sem
samanstendur af forrétti, aðalrétti og eftirrétti, sem
hver og einn velur af seðli dagsins.
HOLTSVAGNINN
Úr Holtsvagninum bjóðum við
heilsteiktan lambahrygg m/kryddjurtasósu
ásamt forrétti og eftirrétti
VerÖ kr. 995,-
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur á
viðráðanlegu verði, án þess að slakað sé á í gæðum.
Bergstaðastræti 37, Sími 91-25700