Morgunblaðið - 10.04.1991, Side 14

Morgunblaðið - 10.04.1991, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1991 AST, MENN OG KONUR Hárprúðu konurnar frá 5., 19. og 16. öld. F.v. Sigríður Kristins- dóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir og Brynhildur Björnsdóttir. _________Leiklist____________ Guðrún Þóra Gunnarsdóttir Stúdentaleikhúsið í Tjarnarbíói Menn Menn Menn; þrír einþátt- ungar: A meðan við snertumst eftir Melkorku Teklu Ólafsdótt- ur. Hungurdansarinn eftir Sindra Freysson. Ein, tvær, þrjár, jafnvel fjórar eftir Berg- ljótu Arnalds. Leikstjórn: As- geir Sigurvaldsson. Lýsing: Jó- hann Pálmason, Egill Orn Arna- son. Tónlist og leikhljóð: Eyþór Arnalds. Stúdentaleikhúsið var virkt og áberandi leikhús á fyrri helmingi síðasta áratugar en lognaðist svo út af og þótti mörgum það mikil synd. Leikhús Háskóla íslands hefur nú verið reist við að nýju eftir þetta hlé og ef marka má orð aðstandenda þess þá er það komið tii að vera í þetta skiptið. Það er óskandi að það svo verði því það er ánægjulegt að fá nýtt og metnaðarfullt leikhús til starfa og eins hitt að það er án efa hollt háskólalífinu að hlúa að skapandi liststarfsemi innan veggja skól- ans. Frumraun þessa endurreista Stúdentaleikhúss eru þrír einþátt- ungar eftir þijá unga höfunda sem eru að stíga sín fyrstu spor sem leikritaskáld. Það væri ekki frá- leitt að hugsa sér að Stúdentaleik- húsið myndi einmitt í framtíðinni gegna hlutverki tilraunaieikhúss þar sem ungt fólk fengi tækifæri til þess að koma verkum sínum og hugmyndum á framfæri. Rann- saka galdur leikhússins og læra og þroskast í þeirri vinnu á sama hátt og í háskólanámi almennt. Einþáttungarnir bera þess auðvit- að merki að um fyrstu verk er að ræða en þeir eru einnig vitni um listamenn með metnað. Samnefni alira einþáttunganna er Menn Menn Menn og lýsir það nokkuð vel viðfangsefnum höfundanna þó auðvitað megi segja að öll list fáist við menn og aftur menn. Tveir einstaklingar, karl 'og kona, kynlíf, ást, sambúð og samvera eru meginviðfangsefni einþátt- unganna Á meðan við snertumst og Hungurdansarinn eftir þau Melkorku Teklu Ólafsdóttur og Sindra Freysson en efnistökin eru ólík að mörgu leyti. Bergljót Arn- alds fæst einnig við konur og karla í þættinum Ein, tvær, þrjár, jafn- vel fjórar en hennar útfærsla er talsvert frábrugðin hinna. Á meðan við snertumst Már og Arna eru ungir elskend- ur sem eiga í sífelldum átökum innbyrðis. Arna yrkir ljóð og þau eru lífskraftur hennar, án þeirra er tilveran myrk. En Már á erfitt með að sætta sig við að hún skapi veröld sem hann á engan aðgang að og hans eina úrræði er að hæðast að og gera lítið úr skáld- skap Örnu. í eigingirni sinni áttar hann sig ekki á því að hann er um leið að drepa lífíð í Örnu og eyðileggja ástina. Ljóðin geyma líka sitthvað úr fortíðinni sem Már hatar og hræðist. Því miður nær þessi togstreita, sem höfundur ætlar að koma á framfæri, tæpast að lifna. Allt byggir á textanum og persónu- sköpun er nánast engin. Persón- urnar eru fremur fulltrúar tilfinn- inga og hugmynda og er angist nútímamannsins þar efst á blaði; maðurinn er alltaf einn, heitur ástarleikur getur ekki breytt þar neinu um nema í eitt hverfult augnablik. Það er vandasamt að fara að fara með þessa tilvistar- kreppu á fijóan og ferskan hátt og gryfjan sem Melkorka fellur í öðru fremur er að hún tekur hlut- verk sitt fuli hátíðlega og alvaran skín út úr hveiju orði. Örlítill hú- mor skaðar aldrei og skerpir oft- ast tragískt hlutskipti mannsins. Leikendur eru þrír; þau Daníel Ágúst Haraldsson (Már), Edda Jónsdóttir (Ama) og Elísabet Indra Ragnarsdóttir í hlutverk Rós, systur Örnu, en hún fyrirfór sér vegna þess að hún gat ekki lengur spilað á fiðluna sína og þá var lífinu lokið fyrir henni. Rós er einungis rödd í huga Más og hún varar hann við því að eyði- leggja lífið (skáldskapurinn fyrir Örnu) en hann hlustar ekki og svo fer sem fer. Þau Daníel og Edda standa sig þokkalega í hlutverkum sínum, það sem helst háði þeim var að texti þeirra náði ekki alltaf að vera lifandi orðræða tveggja persóna heldur var frekar um flutning texta að ræða og samspil- ið skorti. En þau stóðu sig bæði vel í líkamlegum átökum og mér finnst að leikstjórinn hefði mátt gera meira af því að hafa þau í návígi hvort við annað. Það er erfitt að halda uppi spennu ef persónurnar eru langt frá hvorri annarri á sviðinu og átökin verða máttlausari og þá ég ekki endilega við líkamleg átök. Hungurdansarinn Það er góður hraði og skemmti- legur húmor í þessu verki sem fjallar um ungan og sjálfsánægð- an mann, Finn að nafni. Hann er kvennamaður mikill sem fer á veiðar á skemmtistöðum en engin kona skal þó skerða hans dýr- mæta frelsi. Frelsi Finns felst öðru fremur í því að vera laus við alla ábyrgð og taka ekki tillit til ann- ars en að sinna eigin stundlegu þarfa. Seðja hungrið. Ung og sér- stæð listakona, Dögg að nafni, kemur óvænt inn í líf Finns en þrátt fyrir að hann sé hrifinn þá þarf hann að sanna fyrir sjálfum sér að hann sé nú fijáls hveiju sem hann hefur nú lofað annarri manneskju. Afleiðingarnar eru ófyrirséðar og endirinn óvæntur. Sindri fer þá leið að kljúfa aðal- persónuna í Finn innri og Finn ytri, hugur og hugsanir Finns eru því holdgerðar á sviðinu og kemur það vel út og á ekki síst þátt í því að gera verkið lifandi. Þeir Valur F. Einarsson og Atli Rafn Sigurðsson, sem innri ogytri Finn- ur, eiga góðan samleik og fara báðir á kostum. Valur hafði eink- um skemmtilega útfært látbragð og góða og blæbrigðaríka fram- sögn. Telma L. Tómasson lék Dögg og tók hún sig glæsilega út á sviði og hafði fallegar hreyfing- ar. Það var eins og Sindri ætti í svolitlum erfiðleikum með að enda þáttinn. Sjálfur lokapunktUrinn var fínn en á undan voru fullmörg stutt atriði í röð sem bættu litlu við það er fram var komið. Þegar atriðin eru svona stutt og myrkrað er á milli verður líka erfíðara að halda fullum dampi. Sindri sýnir þó með þessu verki að það er óhætt að binda við hann talsverð- ar vonir. Ein, tvær, þrjár, jafnvel fjórar Bergljót upphefur tímann í verki sínu er fjallar öðru fremur um fjórar konur sem voru uppi á mismunandi tíma. Ein er frá 5. öld, önnur frá þeirri sextándu, sú þriðja frá 19. öld og sú fjórða er tuttugustu aldar kona. Verkið er óður til kvenna en líka um refsing- ar sem samfélagið á ólíkum tímum hefur dæmt þær til fyrir verknaði sem í dag þættu sumir ekki tiltök- umál. En frelsi nútímakonunnar er þó afar tvíbent. Karlarnir koma ekki vel út úr þessu verki. Þeir eru í hlutverki dómara og böðla, þeir eru einræðisherrarnir sem eyða miiljónum mannslífa og er þá vísað í Stalín og Hitler. Það er margt sem Bergljót vill drepa á í þessum stutta þætti og fyrir bragðið verður sumt dálítið yfirborðskennt og klisjan ekki langt undan. I rauninni væri það nægt og spennandi verkefni að einbeita sér að konunum fjórum og etja þannig saman óiíkum tím- um, skoðunum og hugsunarhætti. Kynnast þessum hárprúðu konum betur. Aðal þessa verks var mynd- ræn atriði, t.d. voru aftökur kvennanna þriggja frá liðnum öld- um vel útfærðar. Brynhildur Björnsdóttir, Sigríður Kristins- dóttir og Ragnheiður Guðmunds- dóttir Iéku konurnar í fangelsinu og gerðu það prýðilega, einkum voru þær Brynhildur og Sigríður kraftmiklar og sannar. í öllum verkunum voru mynd- ræn og skemmtileg atriði og var leikrýmið ágætlega hannað en þar voru að verki nemar í Myndlistar- skóla Islands sem sáu auk þess um prýðilega búninga. Tónlist féll vel að verkunum þegar við átti enda Eyþór Arnalds orðinn vel sjóaður í leikhústónlist. Ég vona svo að Stúdentaleik- húsið eigi öflugt líf framundan. Morgunblaðið/Sverrir Niels-Henning VHI. __________Jass___________ Guðjón Guðmundsson Tvö íslensk verk voru flutt á stórkostlegum tónleikum tríós Ni- els-Hennings 0rsted Pedersen í Háskólabíó sl. sunnudagskvöld. Verkin voru eftir tvo af sporgöngu- mönnum jasstónlistar á Islandi, annars vegar Vikivaki Jóns Múla Árnasonar, sem var heiðursgestur Jazzvakningar en kappinn varð sjötugur fyrir skemmstu, og hins vegar hlutí úr verki Gunnars Reyn- is Sveinssonar, In basso, sem hann skrifaði sérstaklega fyrir Niels- Henning. Þetta var í áttunda sinn sem Niels-Henning kemur til íslands og muna margir eftir tónleikunum í Háskólabíó 1978 þegar Riily Hart lék á trommur og Philip Cat- harine á gítar. Sama hljóðfæra- skipan var sl. sunnudagskvöld, Alvin Queen kominn á settið og Ulf nokkur Wakenius á gítar. Ni- els-Henning hefur innri auga fyrir gítartalentum, eins og sagan sýnir. Hann hefur’ sagt að möguleikar bassans séu mun meiri í slíkri hljóðfæraskipan en t.a.m. með pianój. Það er skemmst frá því að segja að Ulf sýndi á tónieikunum að hann er ekki einn af fremstu gítarleikurum Evrópu heldur sá alfremsti. Ulf hefur sterkar rætur í blús og suður-amerískri tónlist, og að því leyti ólíkur Catharine að rokkið er honum nokkuð fjarri þótt heyra mætti einstaka vísanir í rokk á tónleikunum. Einleikur hans í Georgia var slíkur að tíðind- um hlýtur að sæta í heimi jassgít- arista. Þá var harla óvenjuleg notk- un hans á bassahljómum í hröð- ustu einleiksköflum og flaututón- um í laglínum, eins og t.a.m. í Softly as in a Morning Sunrise. Nú er bara að vona að nýja skífan sem hann er að gera fyrir Blue Note berist hingað okkur til and- legrar fróunar. Fyrri hluta tónleikanna lauk með flutningi á verki eftir Villa- Lobos, Little Train, skemmtilegri sömbu þar sem Ulf og Niels-Henn- ing skiptust á sólóum. Algert jafn- ræði var á með gítar og bassa í sólóhlutverkum og hljómaleik. Al- vin Queen seiddi fram blæbrigða- ríkan suður-amerískan rytma með einum pákukjuða og vinstri lófa. Queen er einn albesti trommari sem hingað hefur komið; minnir að mörgu leyti á Pétur Östlund, alltaf eitthvað á seyði, helst þung- ur niður sneriltrommunnar og simbalanna í sveiflumeiri verkun- um og sólóin magnþrungin. Ekki virðist hafa komið að sök að far- angur hans, trommur meðtaldar, urðu eftir í Kaupmannahöfn, og hann lék á lánshljóðfæri. Niels-Henning er meistari upp- rétta bassans og síðari hluti tón- leikanna var eins og sýnikennsla á óvænta möguleika hljóðfærisins. Sagt er að hann sé upphafsmaður flaututóna á kontrabassa, þeim nær hann fram með því að snerta strengina í stað þess að þrýsta þeim að hálsinum, og hann beitir þeim af eðlislægri smekkvísi í sóló- um. Niels-Henning fór á kostum í In basso þar sem klassísk undir- staðan skein í gegn en það er jafn- an stutt í sömbuna í verkum beggja, Gunnars Reynis og Niels- Hennings, og svo var ejnnig í In basso. Þá var hefðbundin túlkun hans á Vikivaka ógleymanleg. Niels-Henning og félagar voru klappaðir upp tvisvar sinnum og var heyranlegt að íjölmargir áheyrendur höfðu hrifist af þessum snillingum ekki síður en sá er þetta ritar. Frímerkjasýningin BIRKERÖD-91 í Kaupmannahöfn: -----------^--------- Ungir Islend- ingar vinna silrurverðlaun UNGUR íslendingur, Kári Sig- urðsson að nafni, hlaut næst hæstu verðlaunin á frímerkjasýn- ingunni, „BIRKERÖD-91" í Kaup- mannahöfn sunnudaginn 7. apríl 1991. Hann hlaut stórt silfur, auk heiðursverðlauna, fyrir safn sitt „Merkir íslendingar." Er þetta besti árangur sem íslenskur ungl- ingur hefur náð á erlendri frí- merkjasýningu fyrr og síðar. Helgina 6. til 7. apríl hélt Lands- samband danskra frímerkjasafnara unglingalandssýningu í Birkeröd í Kaupmannahöfn. Einnig var norr- ænum unglingum boðin þátttaka og var þátttaka þeirra mjög góð. Meðal annars voru þarna fjórir íslenskir unglingar sem tóku þátt í samkeppn- isdeild sýningarinnar. Auk Kára Sigurðssonar fékk Björgvin Ingi Ólafsson silfurverð- laun fyrir safn sitt, er hann nefnir „Fuglar Evrópu.“ Éinnig það telst mjög góður árangur og nægir til þátttöku í heimssýningum frímerkj- asafnara. Einnig hlutu þeir Pétur Ólafsson og Jón Skúli Sigurðsson bronsverð- laun fyrir söfn sín. Pétur sýndi safn er hann nefnir „Sumarólympíuleik- ar,“ en Jón Skúli safn er hann nefn- ir „Saga flugsins." Allir þessir unglingar hafa starfað undir leiðsögn Guðna Gunnarssonar í Félagi frímerkjasafnara í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.