Morgunblaðið - 10.04.1991, Síða 24

Morgunblaðið - 10.04.1991, Síða 24
24 ð§ MORKUNBLAÐIÐ MlÐVnOJDM;i7R"10. AI'RÍL 199V Kostnaður athugaður eftir mánaðamót - seg-ir ríkisendurskoðandi um útgáfu bæklinga RÍKISENDURSKOÐUN hefur ekki verið beðin um að athuga kostn- að ríkisins vegna útkomu rita á vegum ráðuneyta alþýðubandalags- ráðherranna. Hún mun þó athuga málið í næsta mánuði þegar reikningar vegna útgáfunnar berast. Haft var eftir Jóni Baldvin Hannibalssyni utanríkisráðherra í Morgunblaðinu fyrir skömmu að hann teldi að Ríkisendurskoðun ætti að skoða útgáfustarfsemi al- þýðubandalagsráðherranna und- anfamar vikur. Halldór V. Sigurðsson ríkisend- urskoðandi sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að Ríkisendur- skoðun myndi kanna málið þegar reikningar bærust en það yrði ekki fyrr en eftir næstu mánaðamót, að afioknum kosningum. Halldór sagði að oft væri erfitt að segja um hvort svona rit væm upplýs- ingabæklingar eða kosningaáróð- ur. „Það verður alla vega fróðlegt að vita hvað þetta kostar,“ sagði Halldór. Arnór Pétursson frambjóðandi Fijálslyndra: Mistök að vísa í framtöl ARNÓR Pétursson, frambjóðandi Frjálslyndra á Vesturlandi, segir að sér hafi orðið á mistök í framboðsþætti í Ríkissjónvarpinu á mánu- dagskvöld, þegar hann vitnaði í upplýsingar úr skattskýrslum sem hann fékk í hendur sem opinber starfsmaður. Á fundinum sagði Arnór, sem vinnur hjá Tryggingastofnun ríkis- ins, að um sínar hendur færi fjöldi skattframtala og hann sæi að marg- ir framteljendur hefðu miklar fjár- magnstekjur. Þegar Morgunblaðið spurði Arnór, hvort hann teldi eðlilegt að nota vitn- eskju, sem hann aflaði sér gegnum vinnu sína sem opinber starfsmaður, í kosningabaráttu, sagðist hann vel geta fallist á að honum hefði þarna orðið á mistök í hita leiksins. „Ég verð auðvitað sem opinber starfsmaður að gæta trúnaðar. Ég tel mig ekki með þessu hafa framið trúnaðarbrot en ég hefði að ósekju getað sleppt þessu,“ sagði Arnór. Kosningabaráttan; Stöð 2 og Sjónvarpið sameinast um útsendingar STÖÐ 2 og Ríkissjónvarpið verða með sameiginlega útsendingu klukk- an 20.30 föstudaginn 19. þessa mánaðar, kvöldið fyrir kjördag, þar sem formenn allra flokka og sljórnmálasamtaka sem bjóða fram í öllurn kjördæmum munu sitja fyrir svörum. Einnig munu stöðvamar senda ar fyrstu tölur berast og síðan um út sameiginlega viðtöl við sömu miðnætti þegar áætlað er að tölur menn að kvöldi kjördags, fyrst þeg- hafí borist úr öllum kjördæmum. Nöfn allra frambjóðenda MORGUNBLAÐINU í dag fylgir átta blaðsíðna auglýsing frá landslqör- stjórn þar sem birt eru nöfn, starfsheiti og heimilisföng allra frambjóð- enda við komandi alþingiskosningar. Þess má geta að nöfn allra fram- kjörstjóm í gær og stóð lesturinn í bjóðenda vom lesin upp í Ríkisút- 117 mínútur. varpinu sem auglýsing frá Lands- Viðhorf á Vestfjörðum Að ne pru úrslit skoSanakönn- unar, sem Uallup ó íslandi gerði fyrir = RÚV, um viöhorf fólks i Vestfjaroa- kjördæmi til þeirra flokka, sem bjóöa fram í komandi alþingiskosningum. '83 K 00 '91* AlþýSuflokkur A 16,8% 19,1% 12,2% Framsóknarflokkur B 27,4% 20,6% 28,9% Bandalag jafnabarmanna C 3,6% — — Sjólfslæðisflokkur D 27,5% 29,1% 38,4% Frjólslyndir F — — 1,7% Alþýðubandalag G 13,1% 11,3% 7,3% Flokkur mannsins M — 0,9% — Borgaraflokkur S — 1 2,6% — Sérframboð sjólfstæðismanna T 11,6% — : — Samtök um kvennalista V — 5,3% 9,0% Þjóðarflokkur Þ — 11,1% 2,4%** *Gallup ó íslandi gerdi könnunina fyrir RÚZ 4.-8. apríl. í úrtakinu voru 700 manns, en 489 svöruÖu eða um 70%. Skekkjumörk eru ó bilinu 1-5%. Til samonburðar eru kosningaúrslit l983ogl 987. ** Þjóðorflokkur og Flokkur monnsins. Umbun til opinberra starfsmanna: Formeim BSRB og BHMR greinir á um hugmyndina Kosningafundur í Perlunni Bjöm Bjamason og Sólveig Pétursdóttir frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins við alþingiskosningar í Reykjavík heimsóttu í gær iðnaðarmenn sem vinna við frágang í Perlunni, útsýnishúsinu á Öskjuhlíð, og ræddú við þá um stjórnmálaviðhorfið. ÖGMUNDUR Jónasson formaður BSRB segir að það hafi tíðkast að umbuna góðum starfsmönnum í þjónustu hins opinbera með óunn- inni yfirtíð og hann telur að sú umbun hafi aðeins skilað sér til þeirra sem næstir standa yfirmönnum. Brýnna sé að hækka almennt kaupmátt launafólks en ekki hjá fáeinum útvöldum. Páll Halldórsson formaður BHMR sagðist fagna tillögum Davíðs Oddssonar og að 50-60% álag til góðra starfsmanna væri síst of hátt. Davíð Oddsson formaður Sjálf- stæðisflokksins hefur lýst þeim hugmyndum sínum að umbuna beri góðum starfsmönnum hins opinbera og að svigrúm stjórnenda stofnana ætti að vera allt upp í 50-60% álag til starfsmanna sem bæru af. Ögmundur Jónasson formaður BSRB sagði sjálfsagt að skoða allar hugmyndir með opnum huga og ljóst væri að það væri nauðsynlegt að færa margt til betri vegar í launakerfínu. „Það er engu síður grundvallaratriði að mínu mati að kauptaxtar almennt eru alltof lágir og vinnudagurinn of langur,“ sagði Ögmundur. ’ Hann sagði brýnasta úrlausn- arefnið að bæta úr þessu, ekki að- eins fyrir fáeina útvalda heldur fyr- ir launþega almennt. Spurningin væri á hvaða forsendu það yrði gert. „Þegar höfum við vísi að því launakerfí sem Davíð Oddsson hef- ur gert að umtalsefni, sem eru greiðslur fyrir óunna yfírtíð en for- svarsmenn stofnana hafa úthlutað henni. Reynslan af þessu er sú bæði hér á landi og í nágrannalönd- unum að þeir hafa fengið mest í sinn hlut sem standa næstir stjórn- endum en fólk sem vinnur önnur störf hefur verið afskipt og hefur þá ekki verið spurt um dugnað fólksins og nytsemi starfanna. Þarna þarf að koma til veruleg kaupmáttaraukning fyrir launafólk almennt og vinnutíma þarf að stytta. Fólk sættir sig ekki við að þetta verði gert á forsendum yfir- manna,“ sagði Ögmundur Jónas- son. Páll Halldórsson formaður BHMR sagðist vera ánægður með að Davíð Oddsson geri sér grein fyrir því að stokka verði upp launa- kerfi opinberra starfsmanna og bæta kjör þeirra. „Allflestir opin- berir starfsmenn standa sig vel í starfi, vinna mikið starf við erfiðar aðstæður, svo ég hef enga ástæðu til að óttast hag manna þótt litið verði á verkin þeirra. Davíð hefur sjálfsagt gert sér grein fyrir því fyrir löngu með tilliti til reynslu sinnar hjá Reykjavíkurborg að það er erfitt að halda fólki lengi við störf hjá opinberum aðilum og oft og tíðum eru opinberar stofnanir nánast þjálfunarbúðir fyrir almenna markaðinn. Það hlýtur að þýða mikið tap fyrir ríkið þegar fólk staldrar stutt við og er að velta því fyrir sér hvar það komist að annars staðar. Það myndi ekki koma illa út fyrir ríkið til lengri tíma litið þó að laun opinberra starfsmanna yrðu bætt,“ sagði Páll. Aðspurður um í valdi hvers það ætti að vera að ákveða sérstaka umbun til hæfustu starfsmanna sagði Páll: „Ramminn utan um kaup og kjör ræðst í samn- ingum stéttarfélaga. Síðan er ekk- ert óeðlilegt að forstöðumenn stofn- ana hafi eitthvert svigrúm,“ sagði Páll. Hann sagði að hugmynd Dav- íðs Oddssonar um 50-60% álag til góðra starfsmanna væri síst of hátt. Flokkurinn á móti veiði- leyfasölu og auðlindaskatti - segir Sturla Böðvarsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi STURLA Böðvarsson, efsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins á Vest- urlandi, segir að í sjvarútvegs- og skattanefndum, sem störfuðu á landsfundi flokksins í vetur, hafi menn verið sammála um að veiðileyfasala og auðlindaskattur kæmu ekki til greina við núver- andi aðstæður. Með því hafi flokk- urinn markað stefnu í sjávarút- vegsmálum. Á fundi frambjóðenda allra flokka á Vesturlandi í Ríkissjón- varpinu á mánudag, sagði Sturla Böðvarsson að Sjálfstæðisflokkur- inn hefði að sjálfsögðu markað sína stefnu í sjávarútvegmálum. „Á okk- ar Iandsfundi höfum við lagt áherslu á það, að við endurskoðun á lögum um stjórn fískveiða, verði Fram- sóknarflokknum í fyrsta lagi gefíð frí. Við ætlum ekki að láta hann meta í eigin sök, og við heyrðum það greinilega hér á undan að það er mikið deilt á kvótakerfið. Sjálf- stæðisflokkurinn leggur áherslu á það að ekki verði settur á auðlinda- skattur, það verði ekki sett á sala veiðileyfa við núverandi aðstæður í sjávarútvegi, þar sem við teljum að það sé fyrst og fremst skattur á landsbyggðina. Og við leggjum áherslu á að það verði mótuð sjávar- útvegsstefna sem ekki leggi allt upp úr veiðum og kvóta heldur að við mörkum sjávarútvegsstefnu sem taki til, allt frá veiðum til vinnslu," sagði Sturla í þættinum. Þegar Morgunblaðið spurði hann hvar hann fyndi orðum sínum stað í stefnuyfirlýsingum fiokksins, sagði hann að á landsfundi flokks- ins í vetur hefðu sjávarútvegs- og skattanefnd mikið fjallað um veiði- leyfasölu og auðlindaskatt. „Menn voru sammála um það á þessum fundum að veiðileyfasala og auð- lindaskattur kæmi ekki til greina við þær aðstæður sem við búum við í dag,“ sagði Sturla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.