Morgunblaðið - 21.04.1991, Side 7
'JtÖRÓb'MÉLAÖtí)1 MANiMöMfiffftmwmmmmM 'áí.'XpRíinm
r t *t
LÆKNISFRÆÐIY/W
ínib eba kílóin?
Tóbakið sem
tíðkarþjóð
OLDUM saman var tóbaksbrúkun saklaus nautn
og kærkomin hressing í daglegu striti til sjós og
lands. Skáldin mærðu þennan eðla jarðargróður
í kvæðum sinum og þarf ekki að minna á fleiri
því til sönnunar en Haligrim Pétursson, séra Stef-
án i Vallanesi og Jóhann Sebastian Bach.
Tóbakið þótti líka svo mikill hreysti- og heilsu-
gjafi að ef læknum hætti til að hallmæla því
hlaut það að vera fyrir þá sök að þeirra yrði síður
leitað ef menn kynnu rétt með tóbak að fara. En
þegar fram liðu stundir og betur var að gáð kom á
daginn að tóbakið er hinn mesti
skaðvaldur. Við uppljóstrun þessa
varð mörgum svo hverft að menn
og konur kepptust við að hætta
reykingum og unnu sumir til verð-
launa í þolhlaupinu en aðrir gáfust
upp á miðri leið og sneru aftur.
Sagt er að ein syndin bjóði ann-
arri heim og fljótlega þótti sýnt að
tóbaksleysið örvaði matarlyst og
hlæði grömmum og kílógrömmum utan á þá sem
tekist hafði að reka freistarann af höndum sér. Viða-
mikil rannsókn vestanhafs leiddi nýverið í ljós að
karlmenn sem hættu reykingum þyngdust um nærri
þijú kíló en konur um tæp fjögur. Þetta er vitaskuld
meðaltal en ein af hvetjum 8 konum og einn af hveij-
um 10 körlum bættu á sig þrettán kílóum eða þaðan
af meira. Flestum þeirra sem varð svona mikið um
að missa reykinn sinn var það sameiginlegt að þau
höfðu reykt meira en fimmtán sígarettur á dag.
Af hveiju er fitandi að hætta að reykja? Förum
við þá að borða meira vegna þess að nikótínið dregur
úr matarlyst? „Enginn þykist of vel mettur, utan fylgi
tóbaksréttur“ stendur þar. Eða eru hvetjandi áhrif
nikótíns á efnaskipti líkamans og aukin brennsla frum-
orsök? Hjartað í reykingamanni slær 84 sinnum á
mínútu en ekki nema 72 sinnum í hinum, segja þeir
sem talið hafa púlsinn í niörgum þúsundum syndugra
og syndlausra. Reykingamaðurinn segist fá sér síga-
rettu til þess að slappa af, minnka spennu; sam-
kvæmt framansögðu er það hin argasta blekking.
Þegar efnaskiptin lækka og um hægist í brennsluofn-
um líffæranna sjá fitukílóin sér leik á borði; ef til
vill eru þetta kíló sem alltaf áttu að vera með, en
tóbakseitrið bannaði þeim aðgang. — Svo eru auðvit-
að ýmsar huglægar orsakir að verki þegar fólk á
unga aldri skiptist i flokkana tvo, með eða móti
reykingum. Reynslan hefur víða sýnt að stúlkur byija
fyrr að reykja en piltar og hætta síður en þeir. Er
það ekki vegna þess að nú á dögum er konum meira
kappsmál en körlum að „passa upp á línurnar"? Og
Hættur að reykja.
3 eða 4 kíló í viðbót geta breytt kjólnúmeri og það
kostar nýja flík, en hveijum kemur til hugar að telja
sígarettustubbana og meta þá til fjár?
Meðan íslendingar sultu hálfu og heilu hungrium
langa tíma eða skamma þótti eftirsóknarvert að vera
vel í skinn komið. Það bar vott um afkomu betri en
gekk og gerðist og þótti auk þess hreystimerki og
hin besta vörn gegn hverskyns kvillum. Eftir að æ
fleirum tókst að afla sér nægilega til hnífs og skeið-
ar opnuðust augu manna fyrir því að offita er heilsu-
spillandi. Liðir slitna fyrr en ella, hjarta og lungu
þurfa meira fyrir lífinu að hafa og svo mætti lengi
telja. 27-36 aukakíló eru jafnháskaleg heilsunni og
30-40 sígarettur á dag, segir frægur reiknimeistari
og vantar þó síst að tóbaksbrúkun sé álitin hættu-
legri lífi og limum en flest annað. Fáir eða engir
munu vita með vissu tölu þeirra sjúkdóma sem sígar-
ettureykingar eiga meiri eða minni þátt í. í Bandaríkj-
unum kváðu þær nú vera orðnar sjúkdóms- eða dauða-
orsök fleiri karla og kvenna en til samans áfengi, öll
önnur eiturlyf, slys og sjálfsvíg.
Líklega væri réttast fyrir þá sem ekki kæra sig
um að hætta reykingum eða hefur ekki tekist það,
að geyma í minni og rifja öðru hvoru upp vísukorn
sem Jón Grunnvíkingur skrifaði hjá sér; hann safnaði
tóbaksvísum. Ekki er vitað um höfund en varla hefur
Jón ort það sjálfur því að honum gekk illa að hnoða
saman þokkalega kveðinni stöku:
Tóbakið, sem tíðkar þjóð,
temprast má það vel með kurt.
Það er að vísu gáfan góð,
pði sé lof fyrir slíka jurt.
Kannski hefur hann lært vísuna af nafna sínum
Hreggviðssyni.
eftir Þórarin
Guðnason
SÁLARFRÆÐI///vab finnst þér. . .?
UM RÁÐGJÖF
MJÖG margir eru þeir sem finnast erfitt að vera einir um ákvarðan-
ir sínar. Þá langar til að ræða fyrst málin við einhvern annan og
þiggja ráð hans. En hvert er vænlegast að leita í þessu skyni? Til
ættingja, venslamanna, vina, kunningja, vinnufélaga eða alls óskyldra
eða ótengdra? Vitaskuld geta fjöldamargir komið til greina og er
erfitt að setja einhver mörk um hveija skuli velja og hverjum hafna.
En vissa viðmiðun má þó hafa.
Yfirleitt ætti maður að sneiða
hjá því að leita ráðgjafar hjá
þeim sem sjálfir eiga einhverra
hagsmuna að gæta, efnislegra eða
tilfinningalegra, í viðkomandi máli
eða eru á einhvern
hátt bendlaðir við
það. Ólíklegt er að
þeir gæti nægilegs
hlutleysis. Góður
ráðgjafi er jafnan
góður hlustandi.
Hann gerir sér far
um að fá öll máls-
atvik og allar að-
stæður eins vel fram í dagsljósið
og unnt er. Hin eiginlegu ráð hans
koma seint (nema annað sé bráð-
nauðsynlegt) og ráðgjöfin sjálf er
í lágmarki. Þá býst ég við að flest-
ir telji æskilegast að ráðgjafi þeirra
sé yfirvegaður, rökfastur og skyn-
samur einstaklingur, þ.e. sæmilega
laus við fljótfæmi og bráðlæti.
eftir Siguijón
Björnsson
lega langt fram. Venjulegast fylgir
þessu einhver ótti um afleiðingar
eða væntanlegar niðurstöður. Það
eitt að reifa málið upphátt, vera
hvattur og studdur til að halda því
áfram, skoða valkosti og hugsan-
legar afleiðingar, hefur venjulega í
för með sér bætta líðan. Óttinn
dvínar eða hverfur og viðkomandi
fer að sjá skýrar hvað hann vill,
hvert hann stefnir og hvað honum
er fyrir bestu. Þegar vel tekst til
verður ekki þörf fyrir „ráðgjöf".
Viðkomandi getur tekið sínar
ákvarðanir sjálfur og er það jafnan
affarasælast. „Ráðgjafinn“ hefur
einungis unnið e.k. ljósmóðurstarf
að hætti gamla Sókratestar, þ.e.
greitt fyrir og aðstoðað við fæðingu
hugsana og ákvarðana. Margir
munu vera sammála um að bestu
„ráðgjafarnir" séu þeir sem þannig
vinna eða temja sér að vinna þann-
ig eftir því sem aðstæður leyfa.
Annars er orðið ráð-
gjöf í mörgum tilvikum
fremur villandi. Oft er
það svo að eiginleg ráð-
gjöf er ekki það sem
mest þarf á að halda
enda þótt sumum geti
fundist það í upphafi. í
viðkvæmum einkamál-
um kann að skipta
mestu máli að viðkom-
andi fái tækifæri til
þess að tala upphátt í
viðurvist einhvers ann-
ars sem hann treystir
vel, um vandamál sín,
reifa þau og útlista, oft
í smáatriðum. Kannski
er það í fyrsta skipti
sem hann gerir svo.
Fram til þessa hefur
hann velt vandamálinu
fram og til baka í hug-
skoti sínu, ýmist reynt
að taka á því eða forð-
ast það, en sjaldnast
fylgt hugsuninni nægi-
Ráðgjöf að hætti Sókratesar — má kalla ein-
hvers konar Ijósmóðurstarf, þar sem greitt er fyrir
og aðstoðað við fæðingu hugsana og ákvarðana.
STÓRAFSLÁTTUR
VORSALA Á ÞREK- '
OG ÆFIIMGATÆKJUM
Ótrúlegt verð á æfingabekk með fótæf-
ingum og 50 kg lóðasetti.
Verð aðeins kr. 13.600.
Staðgreitt kr. 12.900.
Þrekstigi frá KETTLER, V-
Þýskalandi, með tölvumæli.
Verð aðeins kr. 20.950.
Staðgreitt kr. 19.900.
Hlaupaband, rafknúið með
tölvumæli frá DP USA.
Verð aðeins kr. 45.000.
Staðgreitt kr. 42.750.
Sértilboð á v-þýskum
þrekhjólum.
Verð aðeins kr. 10.450.
Staðgreitt kr. 9.900.
Einnig frábær tilboð á öðrum þrek- og æfingatækjum, svo sem riml-
um, fjölnotatækjum, handlóðum, sippuböndum og æfingastöðvum.
VARAHLUTIR OG VIÐGERÐIR. VANDID VALIÐ OG VERSLIÐ í MARKINU.
Loftþrekhjól með róðrar-
átaki, AIREX frá DP USA
með tölvumæli.
Verð aðeins kr. 24.900.
Staðgreitt kr. 23.650.
GREIÐSLUKORTOG
GREIÐSLUSAMNINGAR.
ÁRMÚLA 40 - SÍMI 35320
Verslunin
M4