Morgunblaðið - 21.04.1991, Qupperneq 10
10 c
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. APRIL 1991
Vinnslu n Hvíta víkingnum að Ijúka:
MtÐ
TRYLLTA
GLÓD
Hrafn Gunnlaugsson skrifaði kvikmyndahandrit og leikstýrir
„Hvíta víkingnum" sem verður frumsýnd samtímis á öllum
Norðurlöndunum 20. september næstkomandi.
IAUGUi
Hrafninn flýgur," „í
skugga hrafnsins"
og núna „Hvíti vík-
ingurinn". Allar
eiga þessar myndir
það sammerkt að
1 fjalia um sama tímabilið, vera stór-
kostlegar ævintýramyndir og byggð-
ar á sögulegum staðreyndum. Þær
eru frábrugðnar öðrum myndum um
þennan tíma og mörgum finnst þær
gefa trúverðugri og raunverulegri
mynd af þessum heimi sem margir
hafa reynt að túlka. Hrafn talar sjálf-
ur um „hinar bijóstamiklu valkyijur"
úr óperum Wagners og „líkamsrækt-
armennina" úr tilraunum Hollywood-
manna til að gera þessar myndir.
Einnig talar hann um „vaðmálið úr
, Skandinavíu“ í öðrum myndum sem
'gerðar hafa verið á Norðurlöndunum.
Hver skyldi þá galdurinn við góða
: sögulega ævintýramynd vera?
Sænski leikarinn Tomas Norström
leikur Þangbrand biskup. „Biskupinn
er vondur maður, hann er valdsjúk-
ur,“ segir Tomas um hlutverk sitt.
Helgi Skúlason lek a eftirminm-
iegan hátt í „Hrafiiamyndunum".
Hér sést hann í hlutverki Þor-
víta víkingnum".
eftir Brynju Tomer
myndir: Filmeffekt AS
HVÍTIVÍKINGURINN er
frumraun í norrænni samvinnu
að því leyti að öll Norðurlöndin
leggja mikið fjármagn til verk-
efnisins og fulltrúar allra þjóð-
anna hafa stóra verkþætti. Ann-
ars vegar er um að ræða kvik-
mynd sem verður frumsýnd
samtímis á öllum Norðurlönd-
unum 20. september næstkom-
andi. Hins vegar er um að ræða
þáttaröð fyrir sjónvarp sem ber
sama heiti og fjallar um sama
efni, það er að segja kristnitök-
una. Hrafni Gunnlaugssyni,
„Kurosawa Norðursins" eins og
sumir nefna hann, var falið það
verkefni að skrifa handrit um
kristnitöku á Islandi og í Nor-
egi. Segja má að Hrafn sé orð-
inn sérfræðingur í gerð kvik-
mynda um þetta efni enda er
þetta þriðja myndin sem hann
gerir um þennan tíma. „Allt er
þegar þrennt er og þetta er síð-
asta myndin í þessum dúr sem
ég geri. Ekki vegna þess að
mér þyki þetta ekki skemmti-
legt viðfangsefni, heldur vegna
þess að ég held að ég hafi sagt
það sem ég get sagt um þennan
tíma og tæmt „þennan undur-
samleikans eigin þrotiausa
brunn sem býr manni í brjósti“,
eins og segir í kvæðinu,“ sagði
Hrafn í samtali við Morgunblað-
ið. Hann er nú staddur í Nor-
egi, en hefur einnig verið á
Filippseyjum og í París undan-
farin tvö ár við gerð myndar-
innar.
Egill Ólafsson leikur
hinn óbilgjarna Nor-
egskonung sem er
staðráðinn í að
kristna hinn heiðna
lýð.
u
a>