Morgunblaðið - 21.04.1991, Page 28
f28 'C
: MÖRÖUHfiLAÐÍÐ I VELVA(0W\ll)lfí < M:' ÁPRÍlL' i i Ö91
Á FÖRNUM VEGI
^T^étbu m'er tómaósósuria.
einO’ pLjLsunum. þiruum ■"
i£> 1990 Uni«eisal Press Synmcale
HÖGNI HREKKVÍSI
Þau muni spila af
fingrum fram og hafa
það að markmiði að
hver gestur fari sem
ánægðastur frá
þeim, það verði
þeirra sterkasta aug-
lýsing.
Gísli Jónsson og Birna Lárusdóttir.
Héraðsbúar hafa
tekið okkur afar vel
- segja nýir eigendur Vertshússins á Hvammstanga
Hvammstanga.
GÍSLI Jónsson og Birna Lárus-
dóttir keyptu Vertshúsið á
Hvammstanga á dögunum. Spar-
isjóður Vestur-Húnvetninga
hafði eignast húsið í haust og
seldi hinum nýju eigendum.
Morgunblaðið tók Gísla og Birnu
tali fyrir skömmu.
Gísli og Birná komu hingað frá
Suðureyri við Súgandafjörð,
en þar ráku þau söluskála. Það var
fyrir tilviljun að þau fengu vitn-
eskju um að Vertshúsið væri til
sölu. Þau voru að koma úr utan- Vistlegur matsalur í Vertshúsinu. Morgunblaðið/Kari Sigurgeirsson
Yíkveiji skrifar
Yíkverji dagsins er í nokkrum
vanda staddur.
Þessar línur eru skrifaðar á skjá
daginn fyrir kosningar. Það er því
með engu móti hægt að leggja út
af niðurstöðum þeirra, sem verða
þó á hvers manns vörum þegar
þankar hans koma fyrir augu les-
enda.
Ef A-flokkarnir og Framsóknar-
flokkurinn halda hlut sínum á Al-
þingi, 31 þingmanni, og yfirtaka
að auki þingsæti Samtaka um jafn-
rétti og félagshyggju [Stefáns Val-
geirsson] í Noðrðurlandskjördæmi
eystra, situr þjóðin uppi með vinstri
stjórn - með öllum sem þeim ósköp-
um því heyrir til.
Ef þingmenn stjómarliðsins týna
dulítið tölunni, eins og „spár“ stóðu
til, gerir ráðherrasósíalisminn hosur
sínar grænar fyrir Kvennalistanum.
Og framsóknarmenn hafa langa og
skattgreiðendum dýrkeypta reynslu
í pólitískum hrossakaupum. Hins
vegar er ekki sopið kálið Kvenna-
listans, þótt ausa hentistefnunnar,
í hendi Framsóknar, sé við skálar-
barminn.
xxx
Víkveiji dagsins hefur ekki trú
á því að þjóðin beri gæfu til
að draga einn flokk til ábyrgðar
við landsstjórnina þetta kjörtímabil-
ið, þótt það sé meira en tilraunar-
innar virði, miðað við flautaþyrils-
háttinn í flestum ijölflokkastjórnum
okkar. Þessvegna verður, einn
ganginn enn og ef að líkum lætur,
að beija saman einhvers konar rík-
isstjórn úr ólíkum efniviðum. Það
getur að vísu gefizt vel, samanber
langlífustu og farsælustu ríkisstjórn
lýðveldisins [1959-1971]. Fjöl-
flokkaríkisstjómir hafa þó oftar en
ekki brugðizt til beggja vona, svo
sem nýleg dæmi sanna.
Ef niðurstöður í nýafstöðnum
kosningum, þegar þessar línur eru
lesnar, ýta vinstristjórnar-hug-
myndum til hliðar, sem ekkert er
hægt að fullyrða um nú [daginn
fyrir kosningar], verður trúlega
mynduð ríkisstjóm undir forsæti
Sjálfstæðisflokksins, með einum
eða tveimur öðmm þingflokkum:
viðreisnarstjórn, nýsköpunarstjórn
eða hvað þau nú heita þessi marg-
litu stjórnarmunstur sem safnast
hafa saman í þing- og þjóðarsög-
unni.
xxx
að tekur trúlega sinn tíma að
koma nýrri ríkisstjórn á kopp-
inn, hvern veg sem atkvæðin hafa
talizt upp úr kjörkössunum. Merg-
urinn málsins er þó sá, að dómi
Víkveija, að varðveita og viðhalda
þeim stöðug leika, sem náðist í at-
vinnu- og efnahagslífi okkar með
þjóðarsátt aðila vinnumarkaðarins,
og gera íslenzka atvinnuvegi sam-
keppnishæfa við atvinnuvegi í
grannríkjum.
Lífskjör landsmanna, hvort sem
við mælum þau í kaupmætti launa,
félagslegri þjónustu eða á aðra
mælikvarða, sækja kostnaðarlega
undirstöðu sína alfarið til þeirra
verðmæta, sem til verða í þjóðarbú-
skapnum [landsframleiðslunn-
ar/þjóðarteknanna] og viðskipta-
kjara okkar við umheiminn [sölu-
verðs útflutningsframleiðslunn-
ar/kaupmáttar gjaldeyristekn-
anna]. Jafnvel hin mýkstu málin
þarf að borga með gijóthörðum
peningum.
Þessvegna verðum við að vona
það - og biðja þess - að við fáum
landsfeður, sem standa báðum fót-
um í staðreyndum veruleikans, en
hafi þó kjark og framsýni til að
feta nýjar slóðir, að vel grunduðu
og athuguðu máli, til að við getum
átt samleið með velferðarríkjum
heims, hvað varðar þjóðfélagsgerð-
ina og lífskjörin, en drögumst ekki
aftur úr þeim, eins og næstliðin ár,
til fátæktar miðstýringarinnar og
forsjárhyggjunnar.