Morgunblaðið - 21.04.1991, Síða 31
t 'MORGOTæUffi® 1
0§1
Skátar fylkja Iiði í tilefni sumarkomunnar. Fremstur á myndinni er Óskar Pétursson,. þáverandi
félagsforingi Skátafélags Reykjavíkur.
' ’ , :
_____________________________________
Skrúðganga skáta á Hagatorgi.
Blómabeðin vakna til lifsins.
SÍMTALID...
ER VID MAGNÚS ODDSSON HJÁ FERÐAMÁLARÁÐI
Viljum fleiríferðamenn
utan háannatímam
27488
Ferðamálaráð góðan dag.
— Góðan dag, er Magnús við?
Augnablik. — Halló.
— Blessaður Magnús, þetta er
Brynja Tomer á Mogganum.
Hvað eruð þið að bardúsa í Laug-
ardalshöllinni?
Ferðamálaráð allra Norður-
landanna er að undirbúa Norrænu
ferðakaupstefnuna sem nú er
haldin í fyrsta sinn á íslandi, auk
þeirra standa Finnair, SAS og
Flugleiðir að þessari kaupstefnu.
— Eigið þið von á mörgum
gestum?
Kaupstefnan er ekki opin al-
menningi en um 400 aðilum hefur
verið boðið að sækja hana. Þar
af eru margir ferðasöluaðilar frá
löndum utan Evrópu. Þetta er
þess vegna stærsta tækifæri okk-
ar hingað til, til að kynna ísland
fyrir ferðaskrifstofufólki frá fjar-
lægum löndum.
— Síðast þegar ég vissi voru
menn aðallega að láta sig dreyma
um að efnaðir evrópskir ferða-
menn heilluðust af íslandi, er sá
draumur búinn að vera?
Nei, alls ekki, ferðamönnum
frá Evrópulöndunúm hefur fjölg-
að mjög mikið á síðustu árum,
en þeir koma enn flestir hingað
á háannatíman-
um, það er að
segja á sumrin.
Meginmarkmið
okkar er að auka
ferðamanna-
strauminn utan
þess tíma. Marg-
ar hugmyndir
hafa komið upp
varðandi það og
undanfarna mán-
uði höfum við
kannað sérstak-
lega aukna mögu-
leika á að kynna
ísland betur sem
hentugan stað
fyrir fundi og ráðstefnur.
— Ég veit að þú hefur mikið
unnið að kynningu íslands á
ferðakaupstefnum erlendis. Eru
útlendingar jafn hrifnir af íslandi
og við höldum fram?
Já þeir eru það. Það er undan-
tekning ef kvartað er undan öðru
en verðlaginu, en íslendingar
kvarta einnig undan því, svo það
er ekkert undarlegt að aðrir geri
það.
— Það er líka ótnilega dýrt
að ferðast innanlands. Er það
stefna hjá ykkur að höfða fyrst
og fremst til efnaðra ferðamanna
í þeirri von að þeir skili okkur
miklum gjaldeyristekjum?
Nei, það er ekki stefna þeirra
sem vinna að ferðamálum hér á
landi að hafa ferðaþjónustu jafn
dýra og raun ber vitni. Þetta hef-
ur hins vegar þróast þannig,
meðal annars vegna mikillar
skattlagningar á slíka þjónustu.
— Heyrðu, Magnús. Einu sinni
varst þú kennari í Hagaskóla og
varst frægur fyrir fimm aura
brandara. Segðu mér nú einn
slíkan í lokin.
Ég verð bara bara að fá að lifa
á þeirri fornu frægð ef einhver
er, enda var þetta á þeim tíma
sem fimmaurinn var fímmaur og
þú og félagar
þínir í Hagaskó-
lanum voruð ekki
kröfuharðir
áheyrendur.
— Já, já, það
er rétt, tímamir
hafa breyst og þú
greinilega líka.
Byijar kaupstefn-
an á morgun?
Jú og stendur í
þijá daga.
— Takk fyrir
spjallið og vertu
blessaður.
Bless og takk
sömuleiðis.
„ÉG LIFI lífinu!" svaraði
Engilbert þegar hann var
spurður hvað hann væri að
gera þessa dagana. Engil-
bert er mikill stangaveiði-
maður og talinn einn af
bestu fluguhnýtingamönn-
um á landinu.
Eg hef verið að kenna flugu-
hnýtingar og hnýti sjálfur
töluvert," segir hann. „Svo gríp-
ur maður alltaf í gítarinn annað
slagið, en ég er ekkert í músík-
inni að ráði.“ Engilbert kom
fram í fyrra með Ðe lónlí blú
bojs á skemmtistöðum þar sem
„gömlu góðu dagarnir" voru
rifjaðir upp.
Engilbert hóf feril sinn sem
söngvari á gullaldarárum rokks-
ins á árunum fyrir 1960 og söng
þá meðal annars dúett með Ein-
ari Júlíussyni sem einnig átti
eftir að verða þekktur dægur-
lagasöngvari. Jafnframt söngn-
um fór Engilbert að munda
trommukjuða er fram liðu
stundir og lék hann með Hljóm-
um frá Keflavík á velmektará-
rum þeirrar hljómsveitar.
Engilbert sló rækilega í gegn
þegar hann söng lag Gunnars
Þórðarsonar Bláu augun þín á
fyrstu hljómplötu Hljóma. Síðar
átti hann eftir að syngja inná
fjölmargar hljómplötur, bæði
með Hljómum, Ðe lónlf blú bojs
og á eigin vegum. Ennfremur
söng Engilbert um skeið með
HVAR
ERU ÞAU
NÚ?
ENGILBERT JENSEN
TÓNLISTARMAÐ UR
Veiðir
og hnýtir
veiði-
fiugur
Haukum, sem nutu mikilla vin-
sælda á þeim árum.
Engilbert þótti og þykir enn
með betri söngvurum sem kom-
ið hafa fram í íslenskri dægur-
tónlist og var iðulega ofarlega
í vinsældakosningum sem tíðk-
uðust á dagblöðum hér í eina tíð.
„Ég ber alltaf hlýjar tilfmn-
ingar til tónlistarinnar og ég
hlusta alltaf mikið á tónlist,“
segir hann og heldur áfrain: „Ég
fylgist með því sem er að ger-
ast í tónlistarlífinu og er alls
ekkert úti á þekju í þeim efn-
um!“ Hvað varðar laxveiðarnar
sem eiga hug hans allan núna
segir Engilbert: „Ég er mikill
útivistarmaður og nýt þess að
vera úti í náttúrunni. Það skipt-
ir engu aðalmáli að veiða marga
eða stóra fiska. Það er hinsveg-
ar svo mikið af augnkonfekti
þegar maður er við vatnið; blár
Engilbert þótti og þykir
enn með betri söngvurum
sem komið hafa fram í
íslenskri dægurtónlist.
Hann söng meðal annars
„Bláu augun þín“ á eftir-
ininnilegan hátt. Þessi
mynd var tekin af Engil-
bert árið 1976.
himinn, fjöllin, hólar og dalir ...“
Engilbert hefur átt við veik-
indi að stríða undanfarin ár og
hefur meðal annars þurft að
gangast undir skurðaðgerðir
vegna nýrnasteina.„Ég er því
miður ekki við góða heilsu núna,
en ég horfi björtum augum til
framtíðarinnar. Ég er bjartsýnn
og er sannfærður um að maður
fer lengst á því!“