Morgunblaðið - 03.05.1991, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1991
5
AUGLÝSING
ORKUFREKIR KRAKKAR Á LEIÐ ÚT í VORIÐ!
Vorið er tími ærsla og leikja.
Ungir menntamenn þurfa að
hlaða orkugeymana eftir
skólasetu vetrarins - byggja
sig upp með hollri og
næringarríkri fæðu.
Próteinið er það
byggingarefni sem vefir
líkamans og vöðvar eru
gerðir úr. Þess vegna þurfa
allir prótein sem ætla að
styrkja vöðvana - og þá er nú
eins gott að borða ost.
Ostur er sjálfsagður hluti
af daglegri fæðu ærslafullra
krakka.
MORGUNKRAFTUR
OFURMENNISINS
1 gróf brauðsneið með smjöri
og 26% skólaosti
1 hrökkbrauðsneið með smjöri
og lifrarkœfu
grófar kornflögur með mjólk
og rúsínum
1 glas hreinn ávaxtasafi.
1 tsk lýsi.
FLÓRÍDABRAUÐ
Fyrir 4
4 grófar brauðsneiðar
20 g smjör
4 skinkusneiðar
4 litlar appelsínur eða 2 stórar
4 msk rifinn 26% ostur.
Ristið brauðið og
smyrjið. Leggið skinkusneið
ofan á hverja brauðsneið.
Flysjið appelsínurnar, skerið
þær í sneiðar og setjið ofan á
skinkuna. Stráið ostinum yfir.
Bakið við 200°C í u.þ.b.
10 mín. Osturinn á ekki að
verða brúnn.
OSTABRAUÐ MEÐ
LAUK OG BEIKONI
6 beikonsneiðar
3 3/t bollar hveiti
5 tsk lyftiduft
1 tsk salt
2 bollar rifinn
óðalsostur (200 g)
V4 bolli saxaður laukur
1 V2 bolli mjólk
2 egg, sundurslegin.
Steikið beikonið þar til
það verður stökkt. Kælið.
Geymið 2 msk. af beikonfeit-
inni. Blandið saman hveiti
salti og lyftidufti. Saxið
beikonið smátt og setjið það
ásamt osti og lauk saman við
þurrefnin. Blandið saman
beikonfitu, mjólk og eggjum.
Hrærið þessu saman við
hveitiblönduna. Hrærið þar til
deigið verður samfellt. Setjið í
smurt formkökumót og bakið
við 190°C í 1 klst.
Takið brauðið strax úr
mótinu og látið kólna á
bökunargrind.
Fylling:
2 laukar
1 hvítlauksgeiri eða
1 tsk hvítlauksduft
1 msk matarolía
200 g nautahakk,
eða annað hakk
V2 tsk salt
5 msk Pizza Prontó
300 g gróft rifinn
26% Goudaostur.
Smásaxið laukinn og
steikið hann ljósbrúnan í
olíunni. Setjið hakkið út á og
brúnið um stund. Saltið.
Geymið fyllinguna meðan þið
útbúið pitsudeigið. Setjið
gerið út í ylvolgt vatnið og
látið standa meðan önnur efni
eru vegin og mæld.
(Pressugerið er mulið fyrst.)
Hrærið í þar til gerið hefur
jafnast vökvanum. Bætið olíu,
salti og hveiti í og hnoðið vel.
Fletjið deigið út í
kringlótta eða flanga köku og
leggið á smurða bökunar-
plötu. Þekið kökuna með
Pizza Prontó eða tómatsósu
og kryddi. Hellið fyllingunni
yfir og stráið rifnum osti ofan
á. Penslið með matarolíu og
kryddi eftir smekk. Látið
kökuna lyfta sér á hlýjum stað
í 15-20 mín. Bakið við 225°C í
15-20 mín.
Ostur er gjöfull.
í honum er prótein fyrir vöðvana,
kalk fyrir tennur og bein
- og svo er hann svo góður á bragðið.
NAPÓLÍPITSA
Pitsubotn:
2 V4 tsk þurrger
2 dl volgt vatn
1 msk olía
5 dl hveiti
V2 tsk salt.
MUNDU EFTIR 0ST1NUM
Hann eflir einbeitinguna
AUK/SlA k9d21-504