Morgunblaðið - 03.05.1991, Síða 15
15
Júlíus Hafstein
„Borgarsljórn leggur
mikla áherslu á íþrótta-
og tómstundamál. Ekki
eingöngu fyrir keppnis-
fólk í íþróttum því
áhersla á almennings-
íþróttir er ekki síðri.
Það sama má segja um
tómstundamálin. “
starfræktar 4 almenningssundlaug-
ar þar af 3 utanhúss. Sundlaugarn-
ar, eru opnar frá 7.00-21.00 virka
daga, 7.30-18.00 um helgar og á
frídögum. Unnið hefur verið lag-
færingu og snyrtingu kringum
laugamar til að gera þær skemmti-
legri fyrir fjölskyldur og trimmara.
Komið hefur verið upp vatnsrenni-
brautum, trimmtækjum, mínígolf-
völlum og barnaleiktækjum.
Aðsókn að sundlaugunum hefur
aukist jafnt og þétt á sl. árum.
Árið 1981 var heildargestafjöldi
1.197.000 en árið 1990 1.382.000.
MjQKCUXmAlHH.J'jÖSTUffAGUR :!, jVlAl 1991
Laugardalur
I Laugardalnum er miðdepill
íþróttastarfs borgarinnar. Þar er
Laugardalslaug, Laugardalsvöllur,
Laugardalshöll, frjálsíþróttavöllur,
gervigrasvöllurinn og vélfrysta
skautasvellið auk smærri íþrótta-
valla fyrir tennis og blak. íþrótta-
mannvirki í Laugardal eru hluti af
því heildarskipulagi sem samþykkt
var í borgarstjórn í desember 1986.
Gervigrasvöllur
Árið 1984 var tekinn í notkun
fyrsti gervigrasvöllurinn á íslandi.
Völlurinn er hitaður upp með heitu
vatni yfir vetrarmánuðina. Við völl-
inn hefur verið byggð stúka fyrir
áhorfendur og böð og búningsklefar
fyrir iðkendur.
Segja má að þessi framkvæmd
hafi gjörbreytt aðstöðu reykvískra
knattspyrnumanna en völlurinn er
notaður allt árið bæði til æfinga
og keppni.
Notkun á gervigrasvellinum er
tæplega 3.000 klst. á ári og ekkert
íþróttamannvirki nýtist jafn mikið
einvörðungu af íþróttafélögunum.
Skíðasvæði
Reykjavíkurborg á aðild að sam-
starfi 13 sveitarfélaga á höfuðborg-
arsvæðinu um rekstur skíðasvæðis
í Bláfjöllum. Þar hefur á sl. árum
átt sér stað mikil uppbygging. Að-
sókn almennings að skíðasvæðinu
hefur stóraukist, og rekstur skíða-
svæðisins hefur gengið vel sl. ár.
Gert hefur verið samkomulag við
Skíðadeildir Fram og Ármanns um
leigu Bláfjallanefndar á skíðalyft-
um félaganna.
Þá hefur náðst samkomulag milli
Bláfjallanefndar og Skíðadeilda
Ármanns, Fram, Víkings og IR um
sameiginleg árskort sem gilda á
skíðasvæðum þessara aðila.
Þá hefur Reykjavíkurborg keypt
hluta af skíðasvæði KR í Skálafelli
og munu ÍTR og Bláfjallanefnd
annast rekstur þess. Nú er því auð-
veldara að samræma allt starf á
skíðasvæðum með það fyrir augum
að bæta aðstöðu skíðafólks.
Samstarf við íþróttafélög
Samstarfíð við íþróttafélögin í
borginni er náið. Það fer bæði fram
í gegnum einstök félög og ekki síður
er samvinnan við IBR, íþrótta-
bandalag Reykjavíkur, mikil og
góð. Innan vébanda ÍBR eru nú 43
aðildarfélög og eru iðkendur u.þ.b.
30 _þúsund.
Á árinu 1989 veitti Reykjavíkur-
borg ÍBR styrk að upphæð 50 m.kr.
A þessu ári er fjárveiting til ÍBR
áætluð kr. 129.414.000 og nú er
gert ráð fyrir að veita áfram
íþróttafélögum í Reykjavík vegna
barna og unglingastaifs og keppn-
isfólks. Á fundi íþrótta- og tóm-
stundaráðs 8. janúar 1990 var sam-
þykkt svofelld tillaga:
„íþrótta- og tómstundaráð sam-
þykkir að leggja til við borgarráð
að frá og með 1. janúar 1990 styrki
Reykjavíkurborg húsaleigukostnað
íþróttafélaganna sem eiga aðild að
IBR 100%. Settar verði nánari regl-
ur um styrkjakerfí og hljóti þær
samþykki ÍTR og borgarráðs. Til-
laga þessi er flutt í framhaldi af
samþykkt borgarstjómar 2. febrúar
1989 um viðræður við fram-
kvæmdastjórn ÍBR um endurskoð-
un á styrkjakerfi íþróttabandalags-
ins.“
Á fundi borgarráðs 6. febrúar
1990 var fallist á þessa samþykkt
með tillögu um fjárveitingu til IBR
til þessa máls og á árinu 1990 var
unnið í samráði við þessa samþykkt.
Styrkveitingar
Á hveiju ári veitir Reykjavíkur-
borg styrki til félaga og samtaka.
Bæði er um að ræða styrkveitingar
til reksturs íþróttafélaga og vegna
húsaleigukostnaðar og vegna fram-
kvæmda félaganna. Nú eru starf-
rækt 10 hverfisíþróttafélög í helstu
hverfum borgarinnar. Byggð hafa
verið upp íþróttasvæði í kringum
þessi félög og hefur verið komið
upp knattspyrnuvöllum, tennisvöll-
um, íþróttahúsum og félagsheimil-
um.
Fjárveiting alls til framkvæmda
á félagavöllum íþróttafélaganna er
áætluð 90.000.000 kr. og til rekst-
urs valla eru áætlaðar 16.440.000
krónur eða alls 106.440.000 kr.
Stærstu verkefni sem verið hafa í
gangi eru framkvæmdir við gras-
völl á svæði ÍR í Suður-Mjódd, byrj-
unarframkvæmdir á svæði Fjölnis
í Grafarvogi auk áframhaldandi
framkvæmda á svæðum Víkings,
Þróttar, Leiknis, Fylkis, Fram og
KR og í ár er fyrirhugað að hefja
framkvæmdir við íþróttahús
Víkings í Stjörnugróf. Aðrar styrk-
veitingar til íþróttastarfsemi eru
áætlaðar 13 m.kr., þar af 8 m.kr.
til íþróttafélags fatlaðra í bygging-
arstyrk vegna íþróttahúss við Sig-
tún. Einnig má nefna 3,6 m.kr.
styrk til Skíðadeilda ÍR og Víkings.
Styrkveitingar til æskulýðs- og
tómstundafélaga eru áætlaðar 31,0
m.kr. þar af 9,9 m.kr. til KFUM
og K 10,2 m.kr. til Taflfélags
Reykjavíkur og 9,3 m.kr. til skáta-
heimila í Reykjavík.
Alls er áætlað að verja í styrk
veitingar til íþrótta-, æskulýðs- og
tómstundafélaga 283.472.000 kr.
Framkvæmdaáætlun
Fjárveiting til framkvæmda á
sviði íþrótta- og æskulýðsmála
borgarinnar er áætluð 133 m.kr.
auk 160 m.kr. til byggingar íþrótta-
húsa á vegum skólamála sem munu
nýtast til íþróttastarfsemi á vegum
félaga og almennings.
Alls er því varið til framkvæmda
í þessum málum um 293 m.kr. á
vegum Reykjavíkurborgar auk 90
m.kr. vegna framkvæmda við
íþróttavelli og 30 m.kr. vegna fram-
kvæmda íþróttafélaga á vegum ÍBR
eða alls 413 m.kr. til framkvæmda
á sviði íþróttamannvirkja.
SkautasveU
Nú hefur vélfrysta skautasvellið
í Laugardal verið tekið í notkun.
Skautasvellið er 30x60 m að stærð
og þjónustubygging er 470 m2 og
í henni eru böð- og búningsher-
bergi, vélaherbergi, aðstaða fyrir
starfsfólk og önnur nauðsynleg
þjónusta. Stæði verða fyrir 2.000
áhorfendur. Þegar byggt verður
yfir svellið er gert ráð fyrir að yfir-
byggingin verði 45x88 m. Breidd
ákvarðast af því að hægt verði að
keppa og æfa í öðrum íþróttagrein-
um þversum í húsinu, svo sem í
handknattleik, tennis og fl.
Sundlaug í Árbæjarhverfi
Hafin er hönnun á sundlaug í
Árbæjarhverfi á svæði Fylkis í Ell-
iðaárdal og hefjast framkvæmdir í
ár. Gert er ráð fyrir að sundlaug
þessi verði með nokkuð öðru sniði
en þær almenningssundlaugar sem
fyrir eru í Reykjavík. Hér er um
að ræða fjölskyldubaðstað með fjöl-
breytilegri þjónustu.
íþróttahús
Á árinu 1991 er varið 60 m.kr.
til að ljúka framkvæmdum við
íþróttahús við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti en húsið var tekið í notk-
un 2. mars sl. Húsið mun nýtast
fyrir Fjölbrautaskólann og Hóla-
brekkuskóla og fyrir æfingar og
keppni íþróttafélaga og almenn-
ings.
Einnig er varið 100 m.kr. til
hönnunar og byrjunarframkvæmda
við íþróttahús í Grafarvogi við
íþróttasvæði Ungmenna- og
íþróttafélagsins Fjölnis. í húsinu
sem mun þjóna Foldaskóla og Húsa-
skóla og til æfinga og keppni verða
einnig búnings- og baðklefar og
önnur aðstaða fyrir félagið vegna
íþróttastarfsemi þess á íþrótta-
svæðinu sem er í næsta nágrenni
við íþróttahúsið.
Mikil áhersla
Af framansögðu má ljóst vera
að borgarstjóm leggur mikla
áherslu á íþrótta- og tómstunda-
mál. Ekki eingöngu fyrir keppnis-
fólk í íþróttum því áhersla á al-
menningsíþróttir er ekki síðri. Það
sama má segja um tómstundamálin,
reynt er að ná til sem flestra af
yngri kynslóðinni með því að styðja
við og stuðla að fjölbreytilegu heil-
brigðu tómstundastarfi.
Höfundur er borgarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn íReykjavík.
í tvíbýli
4 daga ferð
Innifalið: Flug og gisting á 3ja stjörnu hóteli á besta
stað við Óperuna, skoðunarferð, íslensk fararstjórn
og akstur til og frá flugvöllum erlendis.
Kr. 28.900
Neðangreindir taka við pöntunum:
Atlantik, Ferðabær, Ferðamiðstöð Austurlands, Ferðaskrifstofan
Alís, Ferðaskrifstofa Akureyrar, Ferðaskrífstofa Reykjavíkur, Ferða-
skrifstofan Saga, Ferðaskrifstofa stúdenta, Ferðaval, Guðmundur
Jónasson hf., Land og Saga, Ratvís, Samvinnuferðir-Landsýn,
Úrval/Útsýn, Veröld/Pólaris, íslenskar fjallaferðir,
Flugferðir - Sólarflug, Söluskrifstofa Flugleiða.
GREIÐSLUKORT MEÐ FRÍÐIIMDI