Morgunblaðið - 03.05.1991, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1991
25
í'.jjfíl ALl PURPOSE GRINÐ
> L-«r t-irwrTl
Mll Wt:),| ■ | HH
fHU>H NAIURAL FLAVOR
Vacuuívi PAC.KED
ifU' NEf WT.16 <■>/. t'U4 ‘ji
mmmw
\mmMM
Skútuvogi 10a - Sími 686700
400 ástæður fyrir IBM AS/400
MMXSSsi
hvíla þreytta fætur
Wicanders
^7
Kork-o-Plast
Korkflísar er barnaleikur
að þrífa
^ ármúia 29, Múlatorgi, stmi 31641
P. ÞORGRÍMSSON & CO
Bláa lónið — Slaga
eftir Jón Jónsson
NÆSTKOMANDI sunnudag
verður farinn þriðji áfangi rað-
göngu Ferðafélagsins um gos-
beltið suðvestanlands. Brottför
verður frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin, kl. 10.80 og
13. Hér á eftir er stiklað á stóru
í jarðfræði þess svæðis sem far-
ið verður um.
Sé gengið frá Bláa lóninu aust-
ur yfir, má fara hvort heldur vill
norðan Svartengisfells eða suður
yfir Selháls og austur eftir hraun-
unum þar fyrir sunnan og austan.
Hvor leiðin sem farin er verður
gengið þvert yfir gígaröðina, sem
þar gaus fyrir 2400 árum, en þá
varð Þórkötlustaðanes til og
Grindavík skapaðist. Gígaröð þessi
er um 8 km löng og á þeirri
sprungugrein hefur áður gosið.
Sé gengið norðan fellsins, er
vert að veita því athygli hvað gróð-
ur breytist þegar kemur austur
fyrir gilið, sem er upp af samko-
mustaðnum gamla. Vestan gilsins
er fellið gróið upp eftir hliðinni og
þar grænkar fyrr á vorin. Þetta
stafar af jarðhita og gilið er tengt
sprungu og ummyndun af jarðhita
er þar mikil. Á há-fellinu er mynd-
arlegur gígur og frá honum hafa
hraun runnið og þekja fjallið.
Austan við Sundhnúkahraunið
tekur Vatnsheiði við. Það er
hraunskjöldur (dyngja) eða hraun-
Afhenti
trúnaðar-
bréf í Kína
Ingvi S. Ingvarsson afhenti Ynag
Shang Kun forseta Kína trúnaðar-
bréf sitt sem sendiherra íslands í
Kína með aðsetri í Kaupmannahöfn
12. apríl sl.
Kortið sýnir ferðir í raðgöngu Ferðafélagsins 1991.
Gönguferð um gosbeltið 3. ferð:
skildir öllu heldur, því gosopin eru
fleiri en eitt. Nyrsti skjöldurinn
er þó þeirra mestur en hraunið er
pikrít, mjög ólívínauðugt berg,
sem sums staðar er nærri grænt
af ólívínkristöllum, en þeir eru
mjög dreifðir um bergið. Vatns-
heiði er eldri en sprunguhraunin
í kring og hverfur því hraunið úr
dyngjunum undir þau. Dyngju-
hraunin hafa verið þunnfljótandi,
heit og talið er að þau komi djúpt
úr jörðu, jafnvel neðan úr möttli.
Fagradalsfjall er stapi og
gígurinn er á norðurhorni þess og
er all myndarlegur. Hraunborð er
svo ofan á fjallinu og hallar borð-
inu til suðurs. Er talið líklegt að
jökull hafi haldið að á báðar hliðar
þegar komið var á lokastig gossins
og þannig markað hrauninu rás
svo úr verði þríhyrningur. Syðst á
fjallinu eru yngri (nútíma) gígar
og hraun í og við lítinn sigdal
(snoturt umhverfi, góður hvíldar-
staður).
Slaga. Sunnanfrá séð er Slaga
mest áhugaverð. Neðst ofan við
skriðurnar koma fram gráir
stuðlabergshamrar (grágrýti). Að
ofan eru þeir rispaðir af jökli (sést
ekki nema upp sé klifrað, varúð,
gijóthrun getur átt sér stað). Ofan
á þessu kemur svört brotabergs-
kennd gosmyndun, sem þó er yngri
en jökull sá er heflaði grágrýtið.
Aðrennslisæð þessarar gosmynd-
unar má sjá norðaustan til í brún-
inni, ljósgrá brík, gangur, skerst
þar upp í brún og fleiri gangar,
þunnir, eru þarna. Á síðjökultíma
hefur sjór fallið upp að fjallinu.
Hraun hafa þarna og nokkuð aust-
ar eftir skapað væna sneið af nýju
landi.
Höfundur er jarðfræðingur.
Raðganga
Ferðafélags íslands 1991:
Gönguferð
um gosbeltið
suðvestanlands
í 12 áföngum
Reykjancstá
1. ferð.
14. apríl, kl.
söliiaðilar geta
gu tölvunnar, þa
, au
SKAFTAHLiÐ