Morgunblaðið - 03.05.1991, Síða 34
, MQRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1991
AKUREYRI
Hagnaður nam tæp-
um níutíu milljónum
UM 86 milljóna króna hagnaður
varð af rekstri Mjólkursamlags
Tónleikarog
burtfararpróf
V ORTÓNLEIKAR orgelnem-
enda Tónlistarskólans á Akur-
eyri verða haldnir í Akureyrar-
kirkju á morgun, laugardag, kl.
17.,
A fyrri hluta efnisskrárinnar
flytja nemendur verk eftir Dupré,
Bach, Pachelbel, Pál ísólfsson,
Reger, Karg-Elert og Jón Þórarins-
son. Síðari hluti tónleikanna er
„opið próf“ en Stefán Gíslason lýk-
ur burtfararprófi á orgel og leikur
hann verk eftir Bach, Frank og
Bollermann. Stefán hóf orgelnám
hjá Reyni Jónassyni við Tónskóla
Þjóðkirkjunnar, en hefur síðustu
fimm ár verið nemandi við Tónlist-
arskólann á Akureyri. Kennari
hans er Björn Steinar Sólbergsson.
Kaupfélags Eyfirðinga á síðasta
ári, en var 14 milljónir árinu á
undan. Þetta kom fram á aðal-
fundi félagsins sem haldinn var
í gærkvöld, þriðjudagskvöld.
Velta mjólkursamlagsins var
tæpir tveir milljarðar á árinu 1990
og fengu bændur greiddan rúman
milljarð fyrir mjólkina sem þeir
lögðu inn hjá samlaginu. Alls var
tekið á móti 21.618.954 lítrum af
mjólk á liðnu ári, sem er 5,73%
aukning. Eignir samlagsins eru
metnar á um 1,5 milljarða króna.
Þórarinn E. Sveinsson mjólkur-
samlagsstjóri sagði að aðalástæður
þessa bata í rekstrinum séu aukið
mjólkumagn, stöðugt rekstrarum-
hverfí, hagstætt gengi dollars og
þá hafi vextir af afurðalánum
lækkað úr 28,5% í 14% á árinu.
Um 220 bændur lögðu inn mjólk
hjá samlaginu á síðasta ári, en
starfsmenn þess voru um 70 tals-
ins.
Engin netjaveiði verður
leyfð við Mývatn í maí
Björk, Mývatnssveit.
STJÓRN Veiðifélags Mývatns
hefur ákveðið í samráði við
Guðna Guðbergsson fiskifræð-
ing að leyfa enga netjaveiði í
Mývatni í maímánuði. Hins veg-
ar er dorgveiði í vatninu heim-
il. Veiði hófst þann 1. febrúar
en hún hefur siðan verið frekar
dræm. Margir hafa litla sem
enga veiði stundað þetta veið-
itímabil og þeir eru því ósáttir
við framangreint bann við
netjaveiði.
Farfuglum hér við Mývatn fjölg-
ar nú með hveijum degi. Þess má
þó geta að alltaf er hér nokkuð
af fugli árið um kring, til dæmis
hefur verið með mesta móti af
húsönd hér í vetur sem bendir til
að nú séu fæðuskilyrði fyrir hana
í vatninu mjög hagstæð.
Ýmsir íbúar við Mývatn telja
að nú þegar farfuglarnir séu að
koma hingað sé brýnt að þeir verði
ekki styggðir. Sérstaklega óttast
menn meðferð skotvopna í því
sambandi og telja þess vegna að
það sé áríðandi að slíkt sé strang-
íega bannað. Þess er vænst að
Náttúruverndarráð styðji þær að-
gerðir.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Grillaðar pylsur í Glerárskóla
Eitt af því sem tilheyrir íslenska sumrinu eru grillaðar
pylsur og vissulega voru foreldrar og börn í Glerárskóla
í sumarskapi þegar þau hittust á leikja- og grilldegi í
skólanum 1. maí. Mikið fjölmenni var og sporðrenndu
börnin 400 pylsum með léttum leik og foreldrarnir gæddu
sér á kræsingum sem 9. bekkingar sáu um. Fótboltaleik-
ir voru háðir milli bama og foreldra og farið í aðra leiki,
auk þess sem lögreglan sá um að skoða reiðhjól barn-
anna. Á stærri myndinni bíða börnin spennt eftir pylsu
og gosi, en á þeirri minni skoðar Magnús Axelsson lög-
reglumaður reiðhjól og límir þar til gerða viðurkenningar-
miða á þau sem eru í lagi.
Félag eyfirskra nautgripabænda og mjólkursamlag KEA:
Mjólkurframleiðendum í landinu
fækkaði um 700 á síðasta áratug
Jersey-mjólkurkúakynið hugsanlega ræktað í Hrísey
Ytri-Tjörnum.
FRAMLEIÐENDUM mjólkur í landinu fækkar ört, árið 1980 voru
þeir tæplega 2.300 en voru á síðasta ári komnir niður í 1.600.
Búin hafa jafnframt stækkað og er framleiðsla þeirra nú að meðal-
tali um 66 þúsund lítrar á ári en var innan við 50 þúsund lítrar í
upphafi síðasta áratugar. Þetta kom fram í erindi sem Oddur
Gunnarsson bóndi á Dagverðareyri og formaður Félags eyfirskra
nautgripabænda hélt á sameiginlegum aðalfundi félagsins og Mjólk-
ursamlags KEA, sem haldinn var á þriðjudagskvöld.
í erindi hans kom einnig fram
að á síðasta áratug hafí rauntekjur
mjólkurframleiðenda lækkað
um
12% og nautakjötsframleiðendur
hafa misst 20% eða hluta raun-
tekna sinna á sama tíma.
Oddur ræddi einnig um fram-
tíð holdanautaræktunar á íslandi
og um Einangrunarstöðina í Hrís-
ey, en Galloway-kynið sem þar
hefur verið er nú fullræktað og
flutningur fijóvgaðra eggja úr
eynni í land er þegar hafinn.
Hugsanlegt er að ný kyn verði
flutt í stöðina í Hrísey og hefur
helst komið til greina Jersey-
mjólkurkúakynið eða nýtt holda-
nautakyn og hafa tvö slík verið
nefnd til sögunnar.
Dagvístardeild Akureyrarbæjar
auglýsir eftír leikskólastjórum, fóstrum, þroskaþjólfum eða
öðru uppeldismenntuðu fólki, sem tilbúið er til að flytja út
ó landsbyggðina og reyna eitthvað nýtt.
Á Akureyri bjóðum við upp á fjölbreytt uppeldisstarf,
regluleg námskeið, öflugt félagslíf og síðast en ekki
síst góða veðrið og skíðafærið.
Fyrir utan leikskólastjóra og deildarfóstrur vantar okkur
2 stuðningsaðila, þroskaþjálfa eða fóstrur í 100% störf
fyrir 2 fötluð þörn. Boðið er upp á stuðningsnámskeið
og handleiðslu.
Aðstoðum við útvegun húsnæðis.
Upplýsingar um störfin eru veittar á dagvistardeild í
síma 96-24600, alla virka daga frá 10-12 og hjá starfs-
mannastjóra í síma 96-21000.
Umsóknarfestur er til 15. maí og umsóknum skal
skilað á sérstökum umsóknareyðublöðum til starfs-
mannastjóra Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 600 Akur-
eyri.
Húsnæði
í„Listagili“
í viðræðum Akureyrarbæjar og Kaupfélags Eyfirðinga
um hugsanleg kaup Akureyrarbæjar á hluta af húseign-
um Kaupfélagsins í Grófargili („Listagili"), hefur verið
rætt um að Akureyrarbær selji síðan áfram til einstakl-
inga og/eða samtaka hluta af þessu húsnæði.
Um er að ræða húsnæði sem gæti t.d. hentað fyrir vinnu-
stofur, verkstæði, gallerí, veitingasölu, verslun o.þ.h.
Nánari upplýsingar um það húsnæði, sem hugsanlega
yrði boðið til endursölu, er hægt að fá á skrifstofu menn-
ingarmála hjá Akureyrarbæ, Strandgötu 19b, sími 27245.
Þeim sem hug hefðu á að athuga með húsnæði þarna
er bent á að hafa samband við áður nefnda skrifstofu
menningarmála fyrir 10. maí nk.
Bæjarstjóri.
í skýrslu mjólkursamlags-
stjóra, Þórarins E. Sveinssonar,
kom fram að samlagið tók á
móti rúmlega 21,6 milljónum lítra
af mjólk, en það er 5,73% aukn-
ing á innvegnu magni miðað við
árið á undan. Flokkun mjólkur-
innar var mjög góð, en 99,13%
hennar fóru í 1. flokk. Lands-
grundvallarverð til bænda var
48,56 krónur sem er tæpur helm-
ingur af óniðurgreiddu heildsölu-
verði.
Velta samlagsins var á síðasta
ári tæpir tveir milljarðar, en bænd-
um var greiddur rúmur milljarður
fyrir mjólkina. í máli Þórarins kom
fram að rekstur samlagsins gekk
mjög vel á liðnu ári og var rekstrar-
hagnaður 86 milljónir króna, en á
árinu þar á undan, 1989 var hagn-
aðurinn 14 milljónir króna. Taldi
samlagsstjórinn það aðallega au-
knu mjólkurmagni að þakka, en
aukningin nam tæpum 1,2 milljón-
um lítra, húsnæði, tæki og öll að-
staða hefði nýst betur. Þórarinn
taldi augljóst að yfirstandandi ár
yrði mun lakara að þessu leyti.
Alls fékk 21 framleiðandi verð-
laun fyrir að framleiða úrvals-
mjólk, þar af þrír sem höfðu fram-
leitt úrvalsmjólk þijú ár í röð, Leif-
ur Guðmundsson í Klauf, Sverrir
Sverrisson, Neðri-Vindheimum, og
Þorsteinn Rútsson, Þverá. í þessu
sambandi má geta þess að kröfur
hjá MSKEA við verðlaunaveitingar
eru miklu strangari en alls staðar
annars staðar á landinu. Ef sömu
reglur væru í gildi hér og hjá
Mjólkurbúi Flóamanna hefðu um
150 mjólkurframleiðendur fengið
verðlaun fyrir úrvalsmjólk.
Benjamín