Morgunblaðið - 03.05.1991, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1991
4
k
>
4
KFUM o g
KFUK fara í
vorferðalag
DEILDIR KFUM og KFUK fara
laugardaginn 4. maí í sameigin-
legt vorferðalag til Akraness.
Mætt verður kl. 11.30 á Lækjar-
torgi/Austurstræti og mynduð þar
skrúðganga bama og leiðtoga í
KFUM og KFUK. Furðufata-
klæðnaður er æskilegur. Gengið
verður sem leið liggur að Akra-
borginni og siglt með henni kl.
12.30.
Á Akranesi verður farið í skrúð-
göngu að íþróttahúsi ÍA við
íþróttavöllinn þar sem haldin verð-
ur fjölbreytt skemmtun kl. 14.
Dagskráin er fjölbreytt, m.a. söng-
og leikatriði flutt af börnum úr
KFUM og KFUK, keppni ýmiss
konar, happdrætti, söngur og hug-
vekja. Veitingar. íþróttakeppni.
Heimferð með Akraborginni kl.
17 og heimkoma í Reykjavík kl.
18.
Böm í KFUM og KFUK em
sértaklega velkomin. Þátttökumið-
ar hafa verið seldir í deildum fé-
lagsstarfs KFUM og KFUK í apríl.
Þeir sem ekki hafa keypt miða enn
þá geta gert það í upphafi skrúð-
göngunnar frá Lækjatorgi og
kostar miðinn kr. 500.
Ferðalagið er lokaverkefni fé-
lagsstarfs KFUM og KFUK í vetur
en um 1.500 böm og unglingar
hafa tekið þátt í starfínu í vetur.
(Fréttatilkynning)
--------------
Leiðrétting
Vegna villu Sem fram kom í
kynningu á Fegurðarsamkeppni ís-
Iands í blaðinu s.l. sunnudag skal
áréttað, að þrír meistarar greiða
stúikunum, þær Mjöll Daníelsdóttir,
Ásta Þóra Valdimarsdóttir og Jón-
heiður Steindórsdóttir. Þær vinna
allar hjá Hár og förðun.
Morgnnblaðið/Guttormur V. Þormar
Gróðurhús Barra hf. Egilsstaðir í baksýn.
Ný gróðurhúsabygg-
íng á Egilsstöðum
Geitagerði, Fljótsdal.
LOKIÐ er nú uppsetningu á gró
ið Barri hf. hefur látið reisa á
Byggingin er 2.000 fm og var
það Límtré hf., Flúðum, sem átti
hagstæðasta tilboðið í verkið og
hefur séð um uppsetningu bygg-
ingarinnar sem hefur gengið vel
að frátöldum nokkmm töfum við
klæðninguna. Hins vegar tók það
aðeins 5 daga að reisa burðarvirk-
ið sem samanstendur af 31 sperru.
Meistari og verkstjóri er Halldór
Einarsson áður bóndi og búnaðar-
þingsfulltrúi, Setbergi við Hafnar-
fjörð.
Starfsmenn vom af Héraði að
einum smið undanskildum. Upp-
setning tækjabúnaðar hefst á
næstu dögum og er stefnt að því
íurhúsabyggingu sem hlutafélag-
Egilsstöðum.
að húsið verið tilbúið til notkunar
fyrstu vikuna í maí.
Á þessu fyrsta sumri verða
þrjár vinnulotur. í fyrsta lagi er
það sáning sem reiknað er með
að taki um tvær vikur fyrir 15
starfsmenn. Næsta lota hefst svo
u.þ.b. 15 dögum eftir sáningu en
þá þarf að taka til við grisjun í
fjölpottunum eftir spírunarhæfni
fræsins. Þriðja lotan hefst svo í
ágúst við að gæðaflokka og af-
henda plönturnar. Heimavinnandi
húsmæðram hefur verið bent á
og hvattar til að notfæra sér nú
þetta atvinnutækifæri.
Hlutafjársöfnun Barra hf. hef-
ur gengið að óskum og undirtekt-
ir Héraðsbúa verið góðar. Hlut-
hafar er nú 122 talsins. Miðað við
10. apríl var áskriftarhlutafé kom-
ið í 31,7 millj. kr., þar af innborg-
að hlutafé 28,2 millj. kr.
Stjórn félagsins hefur sett sér
það takmark að ná 35 millj. kr.
markinu fyrir næsta aðalfund.
Hægt er að kaupa hlutabréf að
andvirði 2,5, 50 og 100 þús. kr.
í Búnaðarbankanum og á skrif-
stofu KHB, Egilsstöðum.
Framkvæmdastjóri félagsins er
Einar Gunnarsson skógtækni-
fræðingur.
- GVÞ
Tónleikar á Listahátíð æskunnar:
Últíma
50ára
EITT af elstu fyrirtækjum
landsins er 50 ára um þessar
mundir. Últíma hf. var stofnað
3. maí 1941. Allar götur síðan
hefur fyrirtækið rekið sauma-
stofu með klæðskeraþjónustu
og auk þess hefur alltaf verið
rekin verslun með margskonar
karlmannafatnað samhliða.
Um árabil rak Últíma hf. vefn-
aðarverksmiðju þar sem framleidd
voru aðallega gluggatjaldaefni,
áklæði og fataefni. Jafnframt voru
framleidd gólfteppi. Vefnaðar-
verksmiðjunni var lokað þegar
aukinn innflutningur veikti svo
samkeppnisaðstöðu þessarar iðn-
greinar að ekki var unnt að reka
hana lengur, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Undanfarna tvo áratugi hefur
Últíma hf. framleitt mikið af ein-
kennisfatnaði m.a. fyrir lögreglu,
slökkvilið, sýslumenn, skipafélög,
ótal félagasamtök og stofnanir.
Fyrirtækið hefur starfað á
nokkram stöðum í Reykjavíkur-
borg á þessum 50 árum, lengst af
í Kjörgarði eða í 26 ár. Árið 1987
var verslunin flutt að Laugavegi
63.
Undanfarin ár hefur fyrirtækið
að mestu séð um innflutning á
þeim vöram sem verslað er með
auk eigin framleiðslu. Stofnandi
fyrirtækisins og forstjóri þess til
dánardægurs var Kristján Frið-
riksson. Núverandi eigandi og
framkvæmdastjóri er Karl Friðrik
Kristjánsson.
í tilefni afmælisins verður veitt-
ur 10% afsláttur af öllu jakkaföt-
um í maímánuði, auk þess sem
gefinn er 10% staðgreiðsluafslátt-
ur af öllum vöram verslunarinnar.
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Hið sögufræga hús Bílddælinga, Matvælaiðjan, framleiddi m.a. Bíldu-
dals grænar baunir á sínum tíma.
Ýmir sf. kaupir Mat-
vælaiðiuna á Bfldudal
Bíldudal. **
ÝMIR sf. hefur keypt hið sögu-
fræga hús Bílddælinga, Matvæla-
iðjuna, sem var landsþekkt niður-
suðuverksmiðja á sínum tíma.
Kaupverð er 4,5 milljónir króna.
Húsið er um 700 fermetrar.
Ýmir sf. á tvo báta, Ými BA og
Hallgrím Ottósson BA. Byijað er
að verka grásleppuhrogn í húsinu,
en Ýmir BA hóf grásleppuveiðar
20. apríl. Að sögn eigenda kemur
vel til greina að salta fisk og koma
upp beitingaraðstöðu í húsnæðinu.
Matvælaiðjan á Bíldudai hóf
rekstur árið 1938, þá mest við rækj-
upillun. Síðan var ráðist í að starf-
rækja þar niðursuðuverksmiðju.
Helsta hráefni var kjöt, fiskur og
grænmeti. Kjötið var bæði soðið og
steikt. Menn muna eflaust eftir
Bíldudals grænum baunum, en þær
vora mjög vinsælar hér á landi í
þá daga. Grænmetið var innflutt.
Fyrsti framkvæmdastjóri Mat-
vælaiðjunnar var Þorvaldur Frið-
finnsson. Hann var þá eini mat-
væla- og niðursuðutæknifræðingur-
inn hér á landi. Þorvaldur fórst í
sjóslysinu mikla með Þormóði BA
1943. í gegnum árin var Valdemar
Ottósson, nú vélstjóri Fiskvinnsl-
unnar á Bíldudal hf., verkstjóri og
verksmiðjustjóri. I samtali sagði
hann að þetta hús mætti muna sinn
fífil fegri. „Þetta var aðalatvinnu-
fyrirtækið á staðnum í mörg ár og
þarna störfuðu mest um 70 manns.
Það var mikið af aðkomustúlkum
starfandi í verksmiðjunni og setti
þetta mikinn svip á mannlífið í
kauptúninu.“ Valdemar segir að
starfseminni hafi lokið í kringum
1970, en þá keyptí Sláturfélag Arn-
firðinga húsið og hóf þar sauðfjár-
slátrun fram til 1989, en þá var
síðast slátrað í húsinu. Síðan hefur
húsið staðið autt þar til nú.
R. Schmidt
Um 90 börn og ungmenni
komu fram í Bústaðakirkju
UM 90 börn og unglingar léku
sígilda tónlist á tónleikum I Bú-
staðakirkju síðastliðinn laugar-
dag. Húsfyllir var og fengu hinir
ungu tónlistarmenn góðar við-
tökur áheyrenda. Tónleikarnir
eru liður í Listahátíð æskunnar
og komu fram tvær hljómsveitir,
Fiðlusveit Suzuki nemenda og
Hljómsveit tónlistarskólanna í
Reykjavík.
Fiðlusveit Suzuki nemenda hóf
tónleikana. Sveitina skipaði 21 ung-
ur tónlistarmaður og voru leikin
verkin ABCD með tiibrigðum eftir
Jean Philipe Rameau og Litlu and-
arungamir, þýskt þjóðlag. Stjórn-
andi var Sigríður Helga Þorsteins-
dóttir, Nikulás Hall lék undir á
píanó.
Hijómsveit tónlistarskóianna í
Reykjavík tók síðan við og léku þar
alls 66 börn og unglingar á
strengja- og blásturshljóðfæri undir
stjórn Gígju Jóhannsdóttur og Hlíf-
ar Siguijónsdóttur. Leiknir voru 3
þýskir dansar í D dúr, G dúr og D
dúr eftir Joseph Haydn, Konsert í
D dúr op. 15 eftir Ferdinant Kuc-
hler, úr Myndabók Jónasar Hall-
grímssonar, Mars og Öskumenúett
til Nínu eftir Pál Isólfsson og loks
Dansasvíta eftir Michael Praetor-
ius.
Hljómsveitirnar skipuðu nemend-
ur Nýja tónlistarskólans, Tónlistar-
skóla F.Í.H., Tónlistarskóla Suzuki
sambandsins, Tónlistarskólans í
Reykjavík, Tónmenntaskóla
Reykjavíkur og Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar.
Morgunblaðið/ÞJ
Fiðlusveit Suzuki nemenda leikur undir stjórn Sigríðar Helgu Þor-
steinsdóttur.
Hljómsveit tónlistarskólanna í Reykjavík leikur undir stjórn Gígju
Jóhannsdóttur í Bústaðakirkju á laugardag.