Morgunblaðið - 03.05.1991, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1991
41
En einkum snerist þó hugur okk-
ar um bækur og blaðaútgáfu. Ótelj-
andi voru ferðir okkar í Hólaprent
og aðrar prentsmiðjur til að fá
„renninga", afgangspappír í glans
og besta efni. Ur þessu sniðum við
svo jólabókaflóð og hugvitsamlega
titla, en ekki voru nú allar þessar
bækur skrifaðar til fulls. Það voru
hins vegar blöðin, jafnt landsmála-
blöð, sem einkum létu sig varða
pólitík og menningarmál sem heim-
ilisblöð er sinntu ýmiss konar sér-
áhugamálum. Þessi blöð voru sam-
viskusamlega skrifuð með prent-
stöfum, og hét Muninn eitt hið
merkasta; þau komu reyndar aldrei
út nema í einu eintaki (í besta falli
tveimur), þó að tölublöðin yrðu
býsna mörg, og eru því fágæt og
augljóslega eftirsóknarverð bóka-
söfnurum í dag; ég held reyndar
að Muninn sé geymdur í góðri
kompu fram á þennan dag. Það
fylgdi auðvitað þessari blaðaútgáfu,
að reka þurfti ýmis fyrirtæki, sem
síðar mátti flytja fregnir af á síðum
blaðanna; þannig man ég t.d. eftir
kvikmyndafélaginu Skuggsjá, sem
rak umfangsmikia íslenska kvik-
myndagerðarframleiðslu í stríðslok.
Þessir leikir Benedikts lýsa auð-
vitað þeim fijóa hug sem einkenndi
störf hans, þegar hann komst til
manndóms og þroska. Ekki síst er
vert að huga að þætti bókarinnar
í þessum leikjum, sem ég hygg
hann hafi átt allt frumkvæði að.
Hann hafði alla tíð ást á bókum,
eignaðist smám saman fágætt og
vandað bókasafn, og var sérlega
útsjónarsamur, þegar hann var að
lauma að vinum sínum tækifæris-
gjöfum — einhverri bók, sem hann
vissi að kom sér rétt og vel.
Benedikt var nefnilega mikill
húmanisti, sem og líka kom fram
í starfi hans að líknarmálum. Eg
fann þetta hvað best, þegar hann
var í Achen veturinn eftir stúdents-
próf í svolítilli sjálfsleit, og við stóð-
um í tíðum bréfaskriftum. Þetta var
erfiður tími fyrir Benedikt, því að
um svipað leyti barðist móðir hans
við sama sjúkdóm og nú hefur lagt
hann að velli. Benedikt var sem
kvika og ekki ráðinn hvert skyldi
halda. Eg hygg, að hann hafi þá
fundið í lögfræðinni þá kjölfestu,
sem hann þarfnaðist. En jafnframt
fékk húmanismi hans útrás í þeirri
réttlætiskennd, sem þarf að vera
drifijöður og aðal hvers góðs lög-
fræðings.
Nú skiljast leiðir — á þessu til-
veruskeiði að minnsta kosti. Með
fátæklegum orðum er aðeins hægt
að flytja Guðrúnu konu hans og
þeirra efnilegu börnum samúðar-
kveðjur, og þakka Benedikt sjálfum
fyrir samfylgdina.
Sveinn Einarsson
Kveðja
frá Rauða krossi Islands
Benedikt Blöndal hæstaréttar-
dómari er látinn, 56 ára að aldri.
Hans er hér minnst sem ötuls og
úrræðagóðs rauðakrossfélaga og
forystumanns Rauða kross íslands.
Benedikt sat í aðalstjórn RKÍ á
árunum 1973-1986, þar af formað-
ur árin 1982-1986. Benedikt hélt
áfram tryggð við rauðakrossstarfið
eftir að hann lét af formennsku
með þátttöku á aðalfundum félags-
ins.
Sjálfur kynntist ég Benedikt á
þeim árum er hann var formaður
RKÍ. Þá kom Benedikt á þeirri skip-
an sem síðan hefur haldist að fram-
kvæmdaráðið, sem í eiga sæti auk
formanns, tveir aðrir stjórnarmenn,
kæmi saman ásamt framkvæmda-
stjóra í býti dags áður en hver héldi
til sinnar vinnu. Þessara morgun-
funda og Benedikts sérstaklega
minnist ég með ánægju, ekki hvað
síst vegna „ulandagskrárum-
ræðna“ um menn og málefni. I
þeirri umræðu kom vel í ljós víðtæk
þekking og reynsla Benedikts.
Það var ekki alltaf auðvelt fyrir
mikilsmetinn lögmann með um-
fangsmikla starfsemi á eigin stofu
auk annarra verkefna að gegna
jafnframt ábyrgðarstarfi sem sjálf-
boðaliði. Einlægur áhugi Benedikts
og trú á hugsjónir Rauða krossins
var honum næg hvatning.
í stjórnarstörfum leitaðist hann
við að sætta ólík sjónarmið og ná
fram samstöðu. Hann gat verið
fastur fyrir en tók vel öllum rökum
og gat auðveldlega gert þau að
sínum ef svo bar við. Eg gladdist
því er Benedikt var skipaður hæsta-
réttardómari, annars vegar vegna
þess að ég vissi að til þess stóðu
vonir hans og hins vegar að ég taldi
tvímælalaust að reynsla hans og
dómgreind kæmu þar að miklum
notum. Sá tími er hans naut þar
við hvað hins vegar mun skemmri
en nokkurn óraði fyrir. Rauðakross-
fólk syrgir góðan félaga og þakkar
vel unnin störf í þágu mannúðar.
Ekkju Benedikts, Guðrúnu Karls-
dóttur, og börnum þeirra, Karli,
Lárusi og Önnu, svo og öðrum ætt-
ingjum votta ég fyrir hönd Rauða
kross Islands innilega samúð og bið
góðan guð að styrkja þau í mikilli
sorg þeirra.
Guðjón Magnússon, formaður
Rauða kross íslands.
Hörður S. Jóns-
son - Kveðjuorð
Fæddur 2. október 1933
Dáinn 24. apríl 1991
Hann elsku afi okkar, Hörður
S. Jónsson, er dáinn. Æ, svo óvænt,
og missirinn svo mikill og sár. Hann
sem alltaf var svo ljúfur og góður
og aldrei lét styggðaryrði falla í
okkar garð.
Við vorum litlu „sólargeislarnir"
hans afa, sem hann umvafði ást
og mikið var hann nú alltaf ánægð-
ur að sjá okkur.
Hún elsku Ella amma stríddi
honum nú stundum á því að „hveij-
um þætti sinn fugl fagur“, en ekki
lét hann afi nú af því að „grísling-
arnir“ þeirra litlu væru alveg ein-
stakir, allavega í hans augum.
Alltaf hafði hann afi áhuga á því
sem við og mamma og pabbi höfð-
um fyrir stafni, hvort heldur var í
leik eða starfi.
Skarðið mikla, sem nú hefur
myndast í hópinn okkar, verður
aldrei fyllt. — Við höfum þó hvert
annað og vitandi það að hann elsku
afi okkar sleppir hendinni ekki svo
létt af „sólargeislunum“ sínum litlu,
reynum við að líta mót hækkandi
sól, glöð í bragði og með þann
ásetning efstan í huga að hugsa
vel um hana ömmu okkar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Kveðja frá barnabörnum
SÍUNGUR
LÁTPRÚÐUR
BUÐUR
CDCDÐT1ID
3ri3\i\i Ui\
NÆGJUSAMUR
DULÚÐUGUR
ÖRLÁTUR
DÁÐliR
EFTIRLÁTUR
CMJMUR
Þetta er óneitanlega óvenjulegur og nýstárlegur bíll, - APPLAUSE frá Daihatsu.
Hann sameinar ótal kosti sem nútíma bíleigandi krefst:
Undurgóð fjöðrun ásamt sítengdu aldrifi eða framhjóladrifi valda því að hann liggur
einstaklega vel og er því mun öruggari í akstri.
Kraftmikil, sparneytin vél, vökvastýri og ótrúlega mikið rými fyrir farþega
og farangur gera hann ólýsanlega þægilegan, beinlínis skemmtilegan.
En þetta eru bara orð, við getum haldið lengi áfram.
Þú verður einfaldlega að prófa, þar liggur sannleikurinn.
DAIHATSU
APPLAUSE
- pröfaðu bara!
mmm
AÐ 100.000 KM
Ik A
Applause með framhjóladrifi kostar frá kr. 929.000 stgr. á götuna.
Applause með sítengdu aldrifi kostar kr. 1.245.000 stgr. á götuna.
FAXAFENI8 • SÍMI91 - 68 58 70