Morgunblaðið - 03.05.1991, Qupperneq 50
ffi-
MOHGUNBUpiD ,gQ?XU.DAý;UR, ii, MAÍ, j9?i
fclk f
fréttum
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Hlynur Aðils Vilmarsson heiðraður af Eddu Borg.
Efnilegasti gítarleikarinn, Ólafur Þór Ólafsson, tekur við viður-
kenningu hjá Friðriki Karlssyni.
TONNAM
Hljóðfæra-
leikarar
heiðraðir
Lokið er fyrir stuttu Músíktil-
raunum Tónabæjar og
Stjörnunnar, en þar keppti 21
hljómsveit um hljóðverstíma. Til
viðbótar við þau verðlaun verð-
launuðu Tónskóli Eddu Borg og
Nýi tónlistarskólinn efnilegasta
hljómborðsleikarann og gítarleik-
arann með veglegum námskeið-
um. Efnilegasti hljómborðsleikar-
inn var sá fjölhæfi tónlistarmaður
Hlynur Aðils Vilmarsson, sem lék
á gítar í dauðarokksveit sinni
Strigaskóm nr. 42 og á hljómborð
í annarri sveit sem hann stýrði,
dauðdiskósveitinni No Comment.
Efnilegasti gítarleikarinn var tal-
inn Ólafur Þór Ólafsson úr Suður-
nesjasveitinni Jónatan, sem stát-
aði af framúrskarandi söngkonu
og lék framsækna popptónlist.
Hlynur Aðils og Strigaskómir
sigruðu á sínu undanúrslitakvöldi,
en urðu að láta í minni pokann
úrslitakvöldið. Jónatan náði ekki
í úrslit, né heldur No Comment.
Sigurhljómsveitir voru Infusoria,
Trassamir og Mortuary.
Omega-3 duft
Omega Dry n-3
Nú á íslandi
Færð þú nóg af fjölómettuðum omega-3 fitusýrum
sem eru líkamanum lífsnauðsynlegar?
Borðar þú lítið af fiski?
Ef svo er þá höfum við ráð við því.
Omega Dry n-3, sem inniheldur 30% omega-3, er nú fáanlegt í duft- og
pilluformi. Bæta má Omega Dry n-3 í matvæli, t.d. brauð (Omega brauð),
kökur og annan kommat, ungbamamat, jógúrt, súrmjólk, kjötboilur, súpuduft,
pizzur o.fl. Bættu einum skammti af Omega Dry n-3 í jógúrtina og þú færð
dagskammt af omega-3 fitusýrum og því fylgir ekkert auka- né eftirbragð.
Fæst í apótekum og heilsuvömbúðum.
Fiskafurðir hf., Skipholti 17, 105 Reykjavík, Sími: 91-672280
SATTMALI
Mike Tyson gengst
við litlu stúlkubarni
Hnefaleikatröllið Mike Tyson
viðurkenndi nýlega í réttarsal
að vera faðir 7 mánaða gamals
stúlkubams. Móðir þess, Kimberly
Scarbrough höfðaði mál á hendur
Tyson er hann gekkst ekki við barn-
inu. Kimberly er 23 ára gömul.
Málaferlin gengu fljótt og vel fyrir
sig og Tyson bar við að hann hafi
alls ekki ætlað að standa á því föst-
um fótum að eiga ekkert í litlu
snótinni, heldur hafí hann verið svo
upptekinn af væntanlegum slag sín-
um við heimsmeistarann í þunga-
vigt, Razor Ruddock 28. júní næst
komandi, að hann hafi ekki mátt
vera að því að sinna kalli Kimber-
lys. En núna væri málið frágengið
og hann væri sáttur við það.
Lögfræðingur Kimberly, Raoul
Kimberly Scarbrough og Raoul Felder ganga til réttarsalarins.
KVIKMYNDIR
Dóttir Davids Lynch leikstýr-
ir sinni fyrstu kvikmynd
Jennifer Lynch, hinn 22 ára
gamla dóttir leikstjórans umtal-
aða Davids Lynch, er höfundur
dagbóka Lauru Palmer, sem David
hefur gert að stórvelheppnaðri
spennumyndaseríu í sjónvarpi,
„Twin Peaks“ sem íslendingar hafa
horft á af athygli eins og margir
aðrir síðustu mánuði. Nú hefur hún
stofnað til eigin kvikmyndar, hún
leikstýrir á næstunni „Boxing He-
lena“ sem byggir á hennar eigin
handriti og herma fregnir að hún
kippi í kynið, ekki fari á milli mála
að hún sé dóttir Davids Lynch sem
frægur hefur orðið fyrir brenglaðan
óhugnaðinn sem gjarnan svífur yfir
vötnunum í myndum hans.
Vegur Jennifers hefur vaxið mjög
og þrátt fyrir ungan aldur hennar
reikna kvikmyndaframleiðendur
með því að hún skili góðu dags-
verki. Því hefur verið fleygt að aðal-
leikendur í „Boxing Helena" verði
Kim Basinger
Kim Basinger og Ed Harris, en
myndin mun fjalla um brenglað
ástarsamband og þær afleiðingar
sem það hefur í för með sér. Basin-
ger er ekki ókunnug í slíkum hlut-
verkum, hún lék einmitt annað aðal-
hlutverkanna í þekktri mynd sem
fjallaði_ um hið sama, „9 1/2 we-
eks“. Á móti henni þar lék Micky
Rourke, en Adrian Lynne leikstýrði.
Jennifer hefur orð föður síns að
leiðarljósi, að óttast aldrei nýjar
hugmyndir. „Þegar ég ber eitthvað
undir hann vegna þess að ég óttist
að e.t.v. gangi það of langt, segir
hann yfirleitt, „Ekkert er of ruglað,
þetta er einungis raunveruleikinn
kryddaður með sítrónubragði!“
COSPER
i nu
Jennifer Lynch