Morgunblaðið - 03.05.1991, Side 57
Katrínu sem borg*arstjóra
Nú er kosningum nýlokið og rík-
isstjórn Sjálfstæðis- og Alþýðu-
flokksmanna svo gott sem_ tekin
við, þegar þetta er skrifað. Ég hef
mikla trú á þessari stjórn og tel að
hún eigi eftir að verða þjóðinni til
mikillar gæfu, enda hefur hún Dav-
íð Oddsson í broddi fylkingar. Verst
þykir mér að hann skuli verða að
víkja úr borgarstjórastólnum til
þess að geta sinnt hinu nýja starfi
sínu.
Ég hef fylgst töluvert með borg-
armálum í gegnum árin og hef fyr-
ir löngu myndað mér skoðun á því
hver gæti verið hugsanlegur eftir-
maður Davíðs.
Ég legg eindregið til að Katrín
Fjelsted verði tilnefnd sem næsti
borgarstjóri Reykjavíkur. Ég þekki
hana reyndar ekki persónulega,
aðeins af mjög góðri afspurn. Hún
hefur verið borgarfulltrúi frá 1982
þannig að hún hefur góða reynslu
í þeim efnum. Hún kemur líká mjög
vel fyrir, eins og sást í Sjónvarpinu
í síðustu borgarstjórnarkosningum,
þegar Davíð var veikur. Katrín er
vel menntuð og vinsæl í starfí sínu
sem læknir; er m.a. formaður heil-
brigðisnfndar borgarinnar. Ég man
eftir því þegar hún barðist fyrir 30
km hámarkshraða hér í Vesturbæn-
um og Gamla miðbænum, og ýms-
um málum sem tengjast
umferðaröryggi, mengunarvömum,
heilbrigði og mörgu fleiru.
Ég vil bara ítreka það að ég tel
Katrínu vera mjög hæfa í þetta
embætti, og ekki spillir það fyrir
að hún er kona. Það er kominn tími
til að kona verði borgarstjóri eftir
þetta dæmalausa karlaveldi!
María M. í Vesturbænnm
Týnd
læða
Læðan á mynd-
inni, sem er
gulbröndótt og heit-
ir Ponsa, týndist í
Hafnarfirði fyrir
nokkru en hún á
heima í Garðabæ.
Vinsamlegast hring-
ið í síma 657790 ef
hún hefur einhvers
staðar komið fram.
Ari Karlsson, 12
ára
L,fí. ͧe3H% HÚFUR Á 1KRÓNU
Höfum opnað stórglæsilega verslun troðfulla af glænýjum
lUÁteea^vörum og í tilefni þess,
gefum við öllum þeim sem kaupa L.a.«e®,^skó hjá okkur
i dag föstudag og á morgun laugardag
kost á að kaupa glæsilega ÍL.W.Sea^húfu á aðeins eina krónu.
NO.4144
stærðir41-46
No. 4748
stærðir 38-46
stærðir 35-41
Foreldrar!
Geymið öll hættuleg efni þar sem bömin ná ekki til.
Askorun til borgar-
stjórnar fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
Fyrir dyrum hjá borgarstjórnar-
flokki sjálfstæðismanna er ráðning
nýs borgarstjóra.
Þar sem sjálfstæðismenn haf hist
ber þetta mál jafnan á góma. Stór
hópur innan okkar raða telur að
þetta embætti sé best skipað af
Katrínu Fjelsted. Þar fer ekki ein-
ungis fulltrúi sem hefur reynslu og
þekkingu, heldur er hún að okkar
mati sterkasti borgarfulltrúinn.
Davíð Oddsson hefur gegnt emb-
ætti borgarstjóra með mikilli prýði,
um það eru ekki deildar meiningar
meðal okkar sjálfstæðismanna.
Sterk stjóm hans í Reykjavík hefur
einnig styrkt flokkinn úti á lands-
byggðinni. Þessum styrk þurfum
við að halda og líta til framtíðar.
Við teljum Katrínu Fjelsted best
fallna til þess að viðhalda þessum
styrk. Hún var sú sem hljóp í skarð-
ið fyrir Davíð í veikindum hans síð-
ustu daga fyrir kosningar, þegar
mest á reyndi í kosningabaráttunni
og skilaði því verki með sóma. Þetta
sýnir traustið sem Davið ber til
hennar, því í þessum kosningum
vannst einn besti sigur í Reykjavfk
til þessa.
Fyrir hönd fjölmargra sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík vil ég því ein-
dregið skora á ykkur, sem skipið
borgarstjómarflokk okkar, að
hlusta á rödd stuðningsmanna ykk-
ar og ráða Katrínu Fjelsted í emb-
ætti borgarstjóra í Reykjavík.
Ragnheiður Karlsdöttir
Svona góð er þjónustan í Húsgagnahöllínni
ekkí - þó góð sé - en vertu viss um að það er tekið vel á
móti þér. Þú færð góð húsgögn og þú getur spurt okkur um
flest sem þíg langar tíl að víta þvi við höfum sérþekkingu í
vörufræðí húsgagna.
Já, kærí viðskiptavínur. Stóru orðin í nútíma húsgagnaverslun
eru einmitt vöruþekkíng og þjónusta ekkí síður en vörugæðí
og verð. Þér er ekki sama hvar þú eyðír peníngunum þínum,
hvar þú kaupír stóra og dýra hluti, sem kosta kannski mörg
hundruð þúsund, eíns og tíl dæmis leðursófasett gerír. Þú vilt
fá réttar og skýrar upplýsíngar um hráefnín og vinnubrögð,
meðferð og hreínsun.
í fallegtxstu verslun landsíns starfa fagmenn.
Verið velkomin