Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR/INNLENT
ree r sam .as HUQAaimnua qigai9mudho.k
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1991
EFNI
Hefði ekki viljað
missa af þessu
- segir Agústa Eir, sem er blind,
um menntaskólanám sitt
MEÐAL þeirra sem settu upp hvítu kollana við skólaslit Mennta-
skólans í Hamrahlíð í gær var ung stúlka sem hefur verið blind
frá fæðingu. Hún heitir Ágústa Eir Gunnarsdóttir og er búsett
í Blindraheimilinu, Hamrahlið 17. Ágústa útskrifaðist af félags-
fræðibraut eftir 5 ára framhaldsskólanám, eitt í Fjölbrautaskólan-
um á Selfossi og fjögur í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
„Jú, ég get ekki neitað því að ég
fékk töluverða hjálp við námið,“
sagði Ágústa í stuttu samtali við
Morgunblaðið. „Ég fékk til dæmis
einkakennslu í stærðfræði og upp-
flettiaðstoð í tungumálunum.
Glósur fékk ég annað hvort frá
nemendum eða kennurum en þær
voru síðan færðar á blindraletur
en þess má geta að öll mín náms-
gögn hafa verið færð yfir á form
sem ég get nýtt mér af námsbóka-
deild Blindrabókasafns íslands.
Sumt hafði þó verið fært yfir á
blindraletur fyrir aðra og var því
til,“ sagði Ágústa. Hún sagðist
vita um þijá blinda sem lokið
hefðu menntaskólanámi.
Aðspurð segist hún hafa haft
mest gaman af líffræðinni enda
hafi hún tekið nokkra líffræðiá-
fanga í vali. Þá segist hún einnig
hafa gaman af stjómmálafræði.
Ágústa gerir lítið úr því að námið
hafi verið strembið og leggur
áherslu á að það hafi verið þess
virði.' „Ég geri mér að vísu ekki
grein fyrir notagildinu ennþá en
Ágústa Eir Gunnarsdóttir út-
skrifaðist sem stúdent af fé-
lagsfræðibraut MH í gær.
ég hefði ekki viljað missa af
þessu.“ Framtíðin segir Ágústa
að sé að mestu óráðin en hún líti
að háskólanám sem ákveðinn
möguleika. Ekki vill hún þó greina
frá því hvaða greinar kæmu helst
til greina í háskólanum.
Pílagrímaflug Atlanta;
Stærsta vél sem skráð er hér
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hefur
tekið á leigu Lockheed 1011
Tristar breiðþotu frá banda-
ríska fyrirtækinu IAL • og er
vélin væntanleg til landsins um
eða eftir helgi. Vélin verður
skráð á íslandi og verður hún
stærsta flugvél sem skráð er
hérlendis. Flugfélagið ætlar að
nota hana til pílagrímaflutn-
inga næstu sex mánuði og
framhaldsverkefni fyrir Sú-
danska flugfélagið.
Lockheed 1011 Tristar breiðþota.
Alls verða farnar á milli 2-300 70-100 þúsund pílagrímar fluttir
-ferðir á vegum Atlanta og á milli á milli Súdans og Jeddah.
Borgarfj örður:
Ovissa um
framhald
netaleigu
í Hvítá
Borgarnesi
Á AÐALFUNDI Veiðifélags
Hvítár, félags netaveiðibænda í
Borgarfirði, sem haldinn var
nýverið, kom fram að óvissa
ríkir um áframhaldandi leigu
neta í Hvítá. Samningafundir
hefðu staðið yfir í allan vetur
án árangurs. I gildi er samning-
ur til eins árs og til hefur stað-
ið að framlengja hann um allt
að þrjú ár.
Að sögn Óðins Sigþórssonar,
formanns Veiðifélags Hvítár, lýsti
hann þeirri skoðun sinni á aðal-
fundinum að hann teldi helmings
líkur á því að samningar tækjust
um framlengingu samningsins. Þá
var á aðalfundinum samþykkt að
stækka félagssvæðið sem næmi
núgildandi óslínu Hvítár, sem ligg-
ur um Borgarfjarðarbrú. Eftir þá
breytingu falla undir félagssvæðið
jarðirnar Hamar og Bjarg svo og
Borgarnes að norðan og Gijóteyri
og Höfn að sunnanverðu. Aðspurð-
ur sagði Óðinn Sigþórsson að nú
í sumar hæfist tilraunastangveiði
á fyrrum netasvæðum í Hvítá.
Hefði SVFR leigt rétt fyrir 5
stangir á þessu svæði, þarna væri
um mjög ódýr veiðileyfi að ræða,
enda ekki ljóst ennþá hvað laxinn
tæki grimmt.
- TKÞ.
Atak í slysavörnum til sveita
Flugstjóri þotunnar verður
íslenskur, Á'sgeir Christiansen, en
aðrir í áhöfninni, alls tíu manns,
verða bandarískir. Að sögn Jóns
Grímssonar flugrekstrarstjóra Atl-
anta verður flogið með pílagríma
frá Súdan til Jeddah í Saudí-
Arabíu, yfír Rauðahafið, en þaðan
ferðast þeir landleiðina til mosk-
anna frægu í Mekka og Medina.
FYRIRTÆKIÐ Jötunn hf. í sam-
ráði við Slysavarnafélag Islands,
Vinnueftirlit ríkisins, Vátrygg-
ingafélag Islands og Bændasam-
tökin, hefur hrundið af stað átaki
I slysavörnum til sveita.
Átakið beinist að aukinni notkun
öryggishlífa á vinnuvéladrifsköftum
við landbúnaðarstörf. Á hveiju ári
verða eitt til tvö alvarleg slys í land-
búnaði sem leiða til dauða eða var-
anlegrar örorku. Mörg þessara
slysa má rekja til þess að ekki hef-
ur verið gengið frá drifskafti vinnu-
vélar með fullnægjandi hætti.
Á blaðamannafundi sem þessir
aðilar héldu til að kynna átakið kom
fram að víða er misbrestur á að
þessir hlutir séu í lagi. Skylt er að
hafa öryggishlífar á öllum drifsköft-
um sem tengja vinnuvélar við drátt-
arvélar, en áætlað er að 15-20 þús-
und drifsköft af ýmsum gerðum séu
í notkun á landinu öllu.
Námslán hafa hækkað um 16%
umfram verðlag á þremur árum
Menntamalaráðherra:
Tekjumörk námsmanna verði hækkuð
ÓLAFUR G. Einarsson menntamálaráðherra, segir að námslán
hafi hækkað umfram verðlag frá árinu 1989 um rúmlega 16% á
sama tíma og aðrir landsmenn hafa tekið á sig um 14% lífskjara-
skerðingu. Sagði ráðherra, að lög Lánasjóðs íslenskra náms-
manna yrðu endurskoðuð og reglur sjóðsins einfaldaðar. Meðal
annars verði hækkað það mark sem námsmenn hafa til að vinna
með námi án þess að lán þeirra skerðist. Samstarfsnefnd náms-
mannahreyfinganna hefur harðlega mótmælt skerðingu lánanna
á sama tíma og aðrir landsmenn vænta aukins kaupmáttar.
„Það hefur legið fyrir frá af-
greiðslu fjárlaga að málefni Iána-
sjóðsins voru óleyst," sagði Ólaf-
ur. „Af því fé er ætlað var sjóðnum
voru teknar 200 milljónir til ann-
arra þarfa við afgreiðslu fjárlaga.
Núna liggur fyrir að sjóðinn vant-
ar um 700 milljónir króna og ríkis-
stjórnin hefur ákveðið að ná þeirri
upphæð niður um 300 milljónir
þannig að bætt verður við 400
milljónum frá því sem fjárlög segja
til um.“
Ólafur sagðist ekki vita hvort
tækist að ná þessu markmiði, það
væri í höndum stjórnar lánasjóðs-
ins. Stjómin hefði fengið tilmæli
um að breyta reglum sjóðsins og
ná fram sparnaði.
„Ég vil ekki láta lýsa ábyrgð á
námsmönnum alfarið á mig vegna
þess að við tökum þarna við
ákveðnum arfi sem aðrir hafa ýtt
frá sér án þess að leysa,“ sagði
Ólafur. „Vandann má rekja til
þess tíma þegar forveri minni í
starfi ákvað að hækka námslánin
árið 1989, umfram verðlagsáhrif
og það hefur verið gert nokkrum
sinnum síðan þannig að lán sjóðs-
ins hafa hækka um rúmlega 16%
á sama tíma og aðrir landsmenn
hafa tekið á sig um 14% skerð-
ingu. Ef þessar hækkanir hefðu
ekki átt sér stað væri vandi sjóðs-
ins enginn í dag. Ég veit ekki
hvemig fráfarandi ríkisstjórn
hafði hugsað sér að leysa þennan
vanda. Ef til vill með hækkun
skatta á landsmenn, en við ætlum
ekki að leysa neinn vanda með
skattahækkunum. “
STEINGRÍMUR Hermannsson,
alþingismaður og fyrrum for-
sætisráðherra, segir í viðtali við
Þjóðviljann í gær að það væri
vitleysa að afskrifa hugsanlegt
forsetaframboð af hans hálfu á
næsta ári.
Þegar Steingrímur er spurður í
Þjóðviljanum hvort að hann muni
gefa kost á sér á næsta ári, verði
Ólafur sagðist vilja breyta regl-
um sjóðsins og einfalda. Meðal
annars vill hann hækka það mark
sem námsmenn hafa til að vinna
með námi og hvetja þá til þess en
ekki letja. Sagðist hann hafa
ákveðið að skipa nefnd til að end-
urskoða lög um lánasjóðinn, þann-
ig að byggt verði á nýjum grunni
við afgreiðslu næstu fjárlaga.
eftir því leitað, svarar hann: „Ég
hef ekki leitt hugann að því. Það
fer eftir svo mörgu. Til dæmis því
hvort núverandi forseti sitji áfram.
Eða eftir því hvað gerist í stjórn-
málunum. Sumir segja að þessi
ríkisstjórn hrökklist frá fljótlega
og þá kunna ýmsir hlutir að ger-
ast í stjórnmálum.“
Steingrímur Hermannsson:
Útilokar ekki forsetaframboð
Kvótaleigan virkar
sem skattafrádráttur
►Ágreiningur milli skattayfir-
valda og endurskoðenda um af-
skriftarreglur á keyptum kvóta/10
Indverskt lýðræði í
tvísýnu
►Óvissa ríkir eftir morðið á Rajiv
Gandhi/12
Áhætta, tækifæri og
skyida
►Henry Kissinger skrifar um ut-
anríkisstefnu Bandaríkjanna í ljósi
þróunarinnar við Persaflóa/14
Hef betra sóknarfæri
►Elín Pálmadóttir ræðir við Eið
Guðnason, umhverfisráðherra, um
verkefnin sem bíða hans I ráðu-
neytinu/17
Líf færist í Borgar-
kringluna
►Óðum líður að því að ný versl-
anamiðstöð taki til starfa í nýja
miðbænum/22
Menntun, menntun,
menntun
►íslendingar þurfa að gera stór-
átak í menntunarmálum, segir
Stefán Már Stefánsson sem nýver-
ið hefur sent frá sér bókina Evr-
ópuréttur/20
Bheimili/
FASTEIGHIR
► l-28
Kópavogsdalur næsta
nýbyggingasvæði
►Rætt við Birgi H. Sigurðsson,
skipulagsstjóra, í Kópavogi /16
C
► 1-32
Ekki koma allir heim
aftur
►Ágúst Ingi Jónsson ræðir við
Hafstein Jóhannsson um ævintýra-
lega hnattsiglingu hans á Elding-
unni/1
Hugleiðingar um hönd-
ina
►Göran Lundborg prófessor og
yfirlæknir í Malmö Qallar um
höndina ogþýðingu hennarfrá
almennum sjónarhóli/2
Ég hef stundum verið
á réttum stað á réttum
tíma
►Bjarni Árnason veitingamaður
og Perlu-bóndi í Tveggja tali við
Jóhönnu Kristjónsdóttur/4
Djassverðlaun og
veisluhöld
► Vernharður Linnet segir frá
djassóskarsverðlaunahöfum og
fleiri snillingum sem sumir verða
á RÚVEK-jasshátíðinni sem hefst
ídag/11
Með kveðju f rá kvik-
myndaborginni
►Jón Gústafsson segir Hollywood
fulla af fólki með stóra drauma/12
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Konur 38
Dagbók 8 Útvarp/sjónvarp 40
Hugvekja 9 Mannlífsstr. 8c
Leiðari 22 Dægurtónlist 14
. Helgispjall 22 Kvikmyndir 15
Reykjavíkurbrét 22 Fjölmiölar 18
Myndasögur 26 Minningar 22c
Brids 26 Bió/dans 26c
Stjörnuspá 26 A förnum vegi 28c
Skák 26 Velvakandi 28c
Fólk í fréttum 38 Samsafnið 30c
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4