Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ ATVINI 1991 GG A V i N N 1 AUGLÝSINOAR Bókavörður Bókasafn Hafnarfjarðar óskar að ráða bóka- vörð í hálft starf frá 1. ágúst nk. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 7. júní. Forstöðumaður. Hárgreiðslunemi Óska eftir að ráða nema sem lokið hefur eins árs námi í skóla og getur hafið störf strax. Hárgreiðslustofan Hárný, Nýbýlavegi 22, Kópavogi, símar 46422 og 46420. Sölumennska - tækniteiknun Innflutnings- og þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar eftir sölumanni í framtíðarstarí. Um er að ræða sölu á rafeindabúnaði og þjónustu. Æskilegt er, en ekki skilyrði, að viðkomandi sé tækniteiknari eða hafi reynslu af teiknivinnu. Umsókn með upplýsingum um aldur, mennt- un og fyrri störf skal skila á auglýsingadeild Mbl. merkt: „Reyklaus vinnustaður- 13721 “. Fiskiðnaðarmaður óskar eftir atvinnu á höfuðborgarsvæðinu. Upplýsingar í síma 97-88841. Eldhress sölumanneskja fyrir nýja tegund snyrtivara óskast í nokkrar vikur. Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „D - 7862“ fyrir 1. júní nk. Hárgreiðslusveinn eða hárskerasveinn óskast til staría. Upplýsingar í síma 27170. Hár Expo, Laugavegi 33b. Hrafnista, Hafnarfirði Hjúkrunarfræðingar - sjúkraliðar Hjúkrunaríræðingar óskast í sumarafleysing- ar á morgunvaktir, kvöldvaktir og næturvakt- ir. Ennfremur eru lausar stöður hjúkrunar- fræðinga á hjúkrunardeildum. Sjúkraliðar óskast í sumarafleysingar og fastar stöður. Nánari upplýsingar gefur hjúkrunaríorstjóri í síma 54288. Lausar stöður hjúkrunarfræðinga Deildarstjóri óskast á hjúkrunardeild okkar. Um er að ræða afleysingarstöðu í eitt ár frá og með 1. ágúst að teija eða eftir nánara samkomulagi. Vegna vaxandi starfsemi á endurhæfingar- deild okkar vantar okkur hjúkrunaríræðinga til starfa frá 1. ágúst næstkomandi. íbúðarhúsnæði og barnaheimili á staðnum. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-31100. Kristnesspítali. Hjúkrunarforstjóri óskast Staða hjúkrunarforstjóra við heilsugæslu- stöðina á Hvolsvelli er laus til umsóknar. Nánari upplýsingar gefur yfirlæknir stöðvar- innar í síma 98-78126 og formaður stjórnar, Matthías Pétursson, í síma 98-78121 (vinnu- símar). Danskennaranemar Nemar við danskennslu óskast frá og með 1. september. Upplýsingar eru veittar í símum 642535 - 46635. Dagný Björk, danskennari, Smiðjuvegi 1, Kópavogi. HUSNÆÐIOSKAST Einbýli eða 3ja herbergja Hjón utan af landi bráðvantar húsnæði, helst í Mosfellsbæ, lítið einbýli eða rúmgóða 3ja herbergja íbúð. Skilvísar greiðslur. Upplýsingarísíma 95-27124 eftirkl. 13.00. Ibúð óskast Hjón með 2 börn óska eftir að taka á leigu 4ra-5 herb. íbúð í Vesturbæ Reykjavíkur eða Hafnarfirði. Æskilegur leigutími 2 ár. Góðar greiðslur fyrir góða íbúð. Áhugasamir leggi svör sín inn á auglýsinga- deild Mbl. fyrir 7. júní nk. merkt: „Ó - 13135“. Hæ, nágranni Ég er norsk stúlka, 27 ára. Mig langar að kynnast íslandi, tungumálinu og fleiru. Hefur þú nokkur tök á að lána eða leigja út her- bergi? Ég get unnið fyrir mat og leigu. Gæt- ir þú einnig hjálpað mér að læra tungumálið? Ég áætla að koma til landsins í maí og búa í þrjá til fjóra mánuði á Suður- eða Austurl- andi. Ég gæti hugsað mér að búa á sveitar- heimili (Reykjavík, Selfoss, Hveragerði). Með heilsun og fyrirfram þökk. May-Lill Slettheim, Rokenvn. 376, 1380 Heggedal, Norge. Ibúð óskast 3ja herb. snyrtileg íbúð óskast á leigu, helst nálægt Kringlunni. Tilboð óskast send auglýsingadeild Mbl. merkt: „Hjón - 7867“. 3-4 herbergja íbúð óskast Óskum eftir íbúð (helst með bílskúr) til leigu fyrir starísmann okkar. Staðsetning í Árbæ eða nágrenni, en annað kemur til greina. Reglusamt og traust fjölskyldufólk. Bílaumboðið hf. Krókhálsi 1, sími 686633. BORGARSPÍTALINN Húsnæði óskast Hjúkrunaríræðingur í starfi á Borgarspítalan- um óskar að taka á leigu 3ja-4ra herbergja íbúð frá og með 1. ágúst nk. 1991, helst í nágrenni við spítalann. Nánari upplýsingar veitir Laura Sch. Thor- steinsson hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma 696356. HUSNÆÐIIBOÐI LANDSPITALINN 4ra til 6 herbergja íbúð Rúmgóð 4ra til 6 herberja íbúð óskast sem fyrst í nágrenni Landspítalans fyrir erlenda starísmenn. Upplýsingar veittar hjá starfsmannahaldi Ríkisspítala í síma 602363. Til leigu Glæsileg 200 fm íbúð í miðborginni til leigu í 6 mánuði með eða án húsgagna. í sama húsi 3ja herb. kjallaraíbúð með sömu skilmálum. Upplýsingar gefur Agnar í síma 622424. íbúð með húsgögnum til leigu Við höfum verið beðnir um að leigja út góða 3ja herb. íbúð í Breiðholti. íbúðin er með öllum innanstokksmunum og heimilistækjum. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „Þ - 7254“. ÞINGIIOLT Suðurlandsbraut 4A, lífj sími680666 Til leigu með húsgögnum frá 28. maí til 23. júní nk. 2ja herbergja glæsi- leg íbúð með húsgögnum í Kirkjuhvoli gengt Dómkirkjunni og Alþingi. Upplýsingar í síma 20160 milli kl. 13.00 og 18.00. KVOTI Kvóti - kvóti Við óskum eftir að kaupa afnotarétt að „framtíðarkvóta". Upplýsingar í símum 95-22747 og 22690. Hólanes hf., Skagstrendingur hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.