Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 6
e FRETTIR/IIMIMLENT Blönduvirkjun: MORQtflNBLAÐIÐ áUNNUDAGUR 26. MA'Í 1-991 Yinna þriggja Júgóslava stöðvuð VINNA þiggja júgóslavneskra iðnaðarmanna við Blönduvirkjun var stöðvuð síðastliðinn miðvikudag að frumkvæði Málm og skipa- smiðasambands íslands og Rafiðnaðarsambands íslands þar sem þeir höfðu ekki gild atvinnuleyfi. Hótuðu þessi verkalýðssambönd að stöðva alla vinnu félagsmanna á fimmtudag þegar Júgóslavarn- ir hófu aftur vinnu en þá voru þeir látnir leggja niður störf aft- ur. Fulltrúar verkalýðsfélaganna voru á virkjunarsvæðinu í gær og á mánudag verður tekin afstaða til beiðnar verktakans um atvinnuleyfi fyrir starfsmennina. Júgóslavneskt fyrirtæki tók að Blönduvirkjun eftir útboð. Fyrir- tækið sendi nýlega hingað fimm menn til að vinna þetta verk, tvo verkfræðnga, tvo málmiðnaðar- menn og einn rafvirkja. Hafði fyrir- tækið sent gögn hingað til lands um fyrirhugaða vinnu og starfs- mennina og taldi sig hafa atvinnu- leyfi fyrir þá hér á landi en þessi gögn fóru ekki rétta boðleið í kerf- inu og formleg umsókn um at- vinnuleyfi var ekki lögð fram. Þeg- ar fulltrúar verkalýðsfélaganna urðu varir við að mennirnir höfðu hafið störf án tilskilinna leyfa voru viðeigandi yfirvöld látin vita og óskað eftir að vinna þeirra yrði stöðvuð. Lögðu mennirnir niður störf á miðvikudag en hófu aftur vinnu á fimmtudagsmorgun. Þá hótuðu Rafiðnaðarsambandið og Málm og skipasmiðasambandið að öll vinna félagsmanna á virkjunar- svæðinu yrði stöðvuð og voru mennimir þá látnir leggja niður störf að nýju. Umsókn um atvinnu- leyfi er komin til vinnumálaskrif- stofu félagsmálaráðuneytisins og afrit til umsagnar stéttarfélag- anna. Formaður Rafiðnaðarsam- bandsins og fleiri fulltrúar verka- lýðssambandanna fóru á virkjunar- svæðið í gær til að kynna sér málið. Öm Friðriksson, formaður Málm og skipasmiðasambandsins, sagði í samtali við Morgunblaðið að á mánudag yrði tekin ákvörðun um framhald málsins af þeirra hálfu. Væri verið að safna upplýsingum um störf júgóslavanna og fleira, meðal annars launakjör þeirra, sem samkvæmt lögum yrðu að vera þau sömu og stéttarfélögin semja um fyrir félagsmenn sína. Sagði Örn að erlendir iðnaðarmenn hefðu oft unnið ýmis verk við virkjanimar og fengið atvinnuleyfi á þeim for- sendum að þeir væru sérfræðingar í ákveðnum greinum. íslenskir iðn- aðarmenn hefðu verið að vinna svipuð störf og júgóslavarnir og því væri verið að athuga hvort hér væri ekki tækniþekking til að vinna þessi störf. Lóðirnar hafa verið ófrágengnar árum saman. Ófrágengnar lóðir við Brúarás: Eiganda verður gert að ganga frá lóðunum Byggingarfulltrúinn í Reykjavík, Gunnar Sigurðsson, segist eiga von á, að eiganda lóða við Brúarás í Seláshverfi verði gert að ganga frá þeim nú í sumar. Lóðirnar hafa verið ófrágengnar árum saman og hefur verið mikil óánægja með það meðal íbúa í nágrenninu. Gunnar Sigurðsson segir að erfitt sé að eiga við mál sem þetta þar sem þarna sé um eignarlóðir að ræða. Hins vegar geti bygging- aryfirvöld gert kröfu um að eig- andinn þeki lóðirnar og gangi þannig frá þeim að þær verði snyrtilegar. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra: Eðlilegt að lífeyríssjóð- irnir kaupi meiri húsbréf Kirkjukór Akranes: Vortónleik- ar í minn- ingu Mozart KIRKJUKÓR Akranes heldur vortónleika í Stóradalskirkju und- ir Eyjafjöllum í dag klukkan 15.00. Tónleikarnir verða helgað- ir minningu Wolfgangs Amadeus- ar Mozart. Aðrir tónleikar verða í Safnaðarheimilinu Vinaminni Akranesi á mánudaginn klukkan 20.30. Á efniskrá tónleikanna eru 4 verk eftir Mozart. Fyrsta verkið er Missa brevis í G dúr Kv. 49 fyrir fjóra ein- söngvara, kór og hljómsveit, eftir Mozart. Einsöngvarar verða Jensína Waage, sópran, Helga M. Aðal- steinsdóttir, mezzozópran, Stephen Daniel, tenór, og Sigurður Pétur Bragason, barítón. Þá verður flutt mótettan Tantum ergo sacramentum Kv. 618 fyrir sópran, kór og hljóm- sveit. Einsöngvari verður Dröfn Gunnarsdóttir. Einnig verða fluttar mótetturnar Ave Verum Corpus Kv. 618 fyrir kór og hljómsveit og Laud- ate Dominum fyrir sópran, kór og hljómsveit. Undirleikari kórsins er Timothy Knappett. Aðrir hljóðfæraieikarar verða Vera Steinsen, Helga Óskars- dóttir, Jakob Hallgrímsson, Oliver Kentish og Leifur Benediktsson. Söngstjóri kórsins er Jón Ólafur Sig- urðsson. Laugardals- laug~ lokuð VEGNA viðgerða, hreinsunar og endurbóta verður Laugardalslaug lokuð frá og með næstkomandi mánudegi, 27. maí. Gert er ráð fyrir að laugin verði opnuð aftur 1. júní kl. 7.30. Félagsmálaráðherra segir, að húsbréf séu það hagstæður ávöxtunarkostur fyrir lífeyris- sjóðina að eðlilegt sé að þeir noti hann til að festa það fé sem þeir hafa til ráðstöfunar eftir að samningar við Húsnæðisstofnun hafa vérið uppfylltir. Ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna er áætlað 27 milljarðar á þessu ári. Morgunblaðið/KGA Sjómannadagsráð hefur byggt 26 þjónustuíbúðir fyrir aldraða við Hrafnistu í Laugarásnum. Framkvæmdir hófust í fyrrasum- ar og er búist við að þær verði tilbúnar til afhendingar í desemb- er næstkomandi. Þj ónustuíbúðir rísa við Hrafnistu LOKIÐ hefur verið við að reisa þök 26 þjónustuíbúða aldraðra í Laugarási. Þær eru byggðar á vegum Sjómannadagsráðs, en verða seldar. Búist er við að þær verði tilbúnar til afhendingar í desember á þessu ári. Samkvæmt frétt frá Sjó- mannadagsráðinu í Reykjavfk og Hafnarfirði er þarna um að ræða 26 hús, ýmist með eða án bílskúrs. Stærð þeirra er á bilinu 80 til 110 fermetrar og eru svefn- herbergi ýmist eitt eða tvö. Hús- in eru sérstaklega hönnuð með þarfir hreyfihamlaðra í huga og leiðir fyrir hjólastóla greiðfærar. í hveiju húsi verður viðvörunar- kerfi, sem tengist heilsugæslu Hrafnistu, sem er í um 300 metra fjarlægð og með vakt allan sólar- hringinn. Framkvæmdimar í Laugarási hófust í júlí árið 1990 og er gert ráð fyrir að þær verði afhentar kaupendum í desember næst- komandi. Heildarkostnaður við verkið verður um það bil 300 milljónir króna og samdi Sjó- mannadagsráð við Landsban- kann um fjármögnun þeirra. Sjóðirnir hafa samið um að 55% þess, eða 15 milljarðar, renni til Húsnæðisstofnunar en þar af geti þeir keypt húsbréf fyrir 5 milljarða. Það sem af er árinu hafa þeir keypt skuldabréf af Húsnæðisstofnun fyr- ir 3,4 milljarða og húsbréf fyrir 2,4 milljarða eða samtals fyrir 5,6 millj- arða króna. í samtali við Morgun- blaðið, sagðist Jóhanna Sigurðar- dóttir vilja undirstrika að lífeyris- sjóðirnir hefðu fyllilega uppfyllt sínar skyldur við Húsnæðisstofnun, en hún teldi húsbréf það hagstæðan ávöxtunarkost fyrir lífeyrissjóðina að eðlilegt væri að þeir ávöxtuðuðu einnig það ráðstöfunarfé sem væri umfram skuldbindingar við hús- bréfakerfið, með því að kaupa hús- bréf. Þorgeir Eyjólfsson formaður Landssambands lífeyrissjóða sagði í Morgunblaðinu á föstudag, að lífeyrissjóðir áformi að kaupa hús- bréf fyrir 8-9 milljarða króna hið minnsta á árinu, en meira væri svigrúmið ekki vegna skuldbindinga við ríkissjóð um að fjármagna gamla húsnæðiskerfið. Það sem af væri árinu hefðu lífeyrissjóðir ýmist keypt skuldabréf Húsnæðsstofnun- ar eða húsbréf fyrir allt að 75-80% af ráðstöfunarfé sínu. Þorgeir var þarna að svara þeim ummælum Jóhönnu Sigurðardóttir félagsmálaráðherra fyrr í vikunni að lífeyrissjóðirnir hefðu aðeins keypt húsbréf fyrir 2,4 milljarða það sem af er árinu. Jóhanna sagði við Morgunblaðið í gær, að sér þætti það slæmt ef lífeyrissjóðirnir hefðu tekið orð sín sem gagnrýni. „Það sem ég er raunverulega að benda á er að lífeyrissjóðirnir geta með frekari kaupum á húsbréfum haft veruleg áhrif á þá þróun sem þarf til að húsbréfakerfið nái jafn- vægi og það er til hagsbóta fyrir þeirra félaga sem standa i íbúðar- kaupum,“ sagði Jóhanna. Hún sagðist taka undir það með formanni Landssambands lífeyris- sjóða, við ákveðna erfiðleika væri að etja, meðan íjármagna þyrfti tvö húsnæðiskerfi. „Þegar við verðum komin út úr gamla kerfinu, væntan- lega síðar á þessu ári, þá verður búið að losa alveg um fjármagn lífeyrissjóðanna og skyldur þeirra við Húsnæðisstofnun, nema hvað þarf að semja við þá um ijármögn- un félagslega íbúðarkerfisins og það sem eftir stendur af gamla kerfinu. Við erum sammála um að ganga til þeirra samninga núna fljótlega. Og þegar mikill meirihluti af þeirra fjármagni getur farið út á almenna lánamarkaðinn, þá held ég að það geti stuðlað að því að lækka vexti, þegar til lengri tíma er litið.“ Jóhanna bætti við, að sér virtist gæta þess misskilnings að verið væri að veita meira ijármajgni til húsnæðismála nú en áður. „I raun- inni er verið að fjármagna hús- næðismálin með öðrum hætti en áður, þannig að meira kemur gegn- um húsbréfakerfið en minna frá bönkum, lífeyrissjóðum og gegnum handhafabréf. Bankar og lífeyris- sjóðir hafa núna meira svigrúm til að lána til annara þarfa í þjóðfélag- inu. Hér er því ekki um neitt nýtt íjármagn að ræða,“ sagði Jóhanna Sigurðadóttir. Ljósmyndasýn- ing um líf o g starf sr. Friðriks OPNUÐ var í gær í Friðrikskap- ellu á Valssvæðinu í Hlíðarenda ljósmyndasýning um ævi og störf sr. Friðriks Friðrikssonar. Á sýningunni eru um 100 Ijós- myndir og hafa margar myndanna ekki komið fyrir_almenningssjónir áður. Kvikmynd Ósvaldar Knudsen um sr. Friðrik og kvikmynd um starfið í Vatnaskógi verða sýndar á myndbandi. Sýningin var formlega opnuð í gær af Olafi G. Einarssyni"mennta- málaráðherra, á afmælisdegi sr. Friðriks. Hún verður opin kl. 14-19 laugardaga og sunnudaga og kl. 17-19 virka daga til 2. júlí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.