Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 16
4*>, jVIQ^GV^lAÐIÐ .SL'NN'UDÁGUR 2fi. MAÍ 1991 eftir Elínu Pálmadóttur UMHVERFISRÁÐHERRANN EIÐUR Guðn- ason ætti að vera vinsælasti ráðherra nýrrar ríkisstjómar, ef marka má þá áherslu sem Islendingar leggja á málaflokk hans í ný- birtri könnun Félagsvísindastofnunar. Þar kom fram að 86% spurðra töldu að ríkis- stjórnin ætti að leggja mikla áherslu á um- hverfismálin, og hafði enginn annar mála- flokkur svo marga fylgjendur. Aðeins 1,4% vildu litia áherslu leggja á umhverfismál. Ráðherra var að vonum ánægður þegar blaðamaður Morgunblaðsins gekk á fund hans í ráðuneytinu í kjölfar þessara tíðinda. Kvaðst hafa vitað að jtetta væri mikilvægur málaflokkur, en að Islendingar tælyu um- hverfismálin fram yfir öll önnur hefði þó komið sér þægilega á óvart. Þegar haft var orð á því að hann sæti þá í vinsælasta ráð- herrastólnum, rifjaði hann upp í gríni um- mæli manns eins daginn eftir að hann tók við embætti. Sá var að koma frá útlöndum og sagði að þar hefði umhverfisráðherrann oftar sést á sjónvarpsskerminum en forsæt- isráðherrann! Ekki að það skipti máli, en Eiður sagði þessa niðurstöðu í þjóðmála- könnuninni vatnaskil í umhverfismálum og mjög skýr skilaboð til ríkissijórnarinnar um áherslur. Eg tel að umhverfís- vernd sé ekki bara tískuorð. Held að þetta sé-annars eðlis. Vona það að minnsta kosti,“ segir Eiður ákveðinn þegar hann er spurður hvort hann haldi að þessi mikli áhugi dugi þegar til kastanna kem- ur til stuðnings við nauðsynlegar aðgerðir sem bíða hans eða hvort þetta sé bara tískuorð. „Tísku- fyrirbæri koma snögglega og hverfa aftur. Ég held að þetta eigi sér langan aðdrag- anda. Mjög margir hafa lengi verið og eru að vinna á þessum vettvangi. Hvort sem það er á náttúruverndarvettvangi almennt eða á sérgreindari sviðum eins og skógrækt og annarri umhverfis- vernd. Þessi niðurstaða er ánægju- legur vottur um að ekki hafi verið talað upp í vindinn. Boðskapurinn hefur komist til skila. Áhuginn hef- ur verið fyrir hendi, en kannski hefur fólk bara ekki verið spurt fyrr á þennan hátt. Þetta ætti því að vera þessu fólki öllu og okkur, sem eigum að sinna þessum málum, hvatning til þess að taka saman höndum á breiðari grundvelli. Við eigum að hugleiða það.“ Ætli þessi mikli áhugi dugi þá til þess að fé fáist til nauðsynlegra úrbóta, þar sem náttúruverndin hefur hingað til ekki haft feitan gölt að flá? „í gærkvöldi var útvarp frá alþingi. Þráðurinn í þeim um- ræðum var að nú þyrfti að skera niður og hemja útgjöldin, eins og rétt er,“ svarar ráðherra. „Ég held að við verðum að breyta forgangi, breyta röðinni að minnsta kosti að sumu leyti. Það verður að fást meira fé til þess- ara verkefna. Það sem kemur fram í skoðanakönnun- inni er auðvitað vísbending um að fólk gerir sér grein fyrir því og að það sé vilji þess að þessum málum sé betur sinnt. En það þarf peninga og það þarf mikið af peningum." Nýju leikreglurnar „Við sjáum þetta stórmyndarlega átak sem sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu eru að gera í sorp- förgunarmálum, sem er bylting. Ég held að þetta eigi eftir að komast betur til skila til heimilanna og þeirra sem hafa atvinnurekstur með VIÐTAL VIÐ EIÐ GUÐNASON UMHVERFIS- RÁÐHERRA höndum," sagði ráðherra ennfrem- ur. „Þar er ég að tala um leikregl- urnar nýju. Búið er að ala okkur nokkuð lengi upp í því að henda ekki hvar sem er. Nú er nýja regl- an: Þú mátt ekki henda hveiju sem er! Maður setur ekki hvað sem er í sorptunnuna. Þetta er auðvitað stór þáttur í umhverfismálum. Við íslendingar sendum frá okkur alveg ótrúlegt magn af sorpi. Og það er auðvitað ágætt sem verið er að gera með þessum gámastöðvum, sem verða senn betur útbúnar. Ég fór um daginn með dagblöð í gáma- stöð suður í Fossvogi. Þar var lokað- ur gámur fullur af blaðapappír. En svo sér maður timbri og málmum blandað saman. Gámamir eru merktir. Maður gerir ráð fyrir að fólk kunni að lesa. En þar sem stendur timbur láta menn járn og öfugt. Menn henda án þess að hugsa. Þessi timburúrgangur er verðmætur,, hann er nýttur. Við erum semsagt að vakna til vitundar um að við getum ekki hent hveiju sem er. Tökum sem dæmi þessa spilliefnamóttöku, sem fólk á áreiðanlega eftir að notfæra sér í ríkum mæli. Þá komast menn auð- vitað að raun um að þeir þurfa að bórga. Og vaknar sú spurning hvort ekki eigi að setja gjald á slíkt þeg- ar varan er keypt, sem fæst endur- greitt við skil eða eitthvað þesshátt-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.