Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAI 1991 FEGRIÐ GARDINN OG BÆTID MED SANDI OG GRJÓTI „Núna tengist loksins Kringlukrá- in verslunarsamstæðunni," sagði Víglundur og bætti við: „Hérna á móti verður síðar opnaður lítill millif- ínn veitingastaður, sem selur smá- rétti á daginn, en létta rétti á kvöld- in.“ Nú hefur opnun verslunarhússins dregist veruiega. Upphaflega var talað um nóvember, sem hefði verið góður tími fyrir jólin. Er ekki erfitt að opna verslun á þessum tíma, þeg- ar útsölur hefjast kannski 2-3 mán- uðum eftir að verslanir verða opnað- ar? Eg held að þessi tími sé alls ekkert verri. Þó að fólk kvarti yfir því að það hafí ekki peninga milli hand- anna er hægur efnahagslegur vöxtur í þjóðfélaginu og fjárráð eru heldur betri hjá flestum en var í fyrra. Auk þess held ég að farið sé að draga úr þessum miklu innkaupum fólks erlendis. Þá má ekki gleyma því að útlendingar koma hingað geysilegá mikið. Eg væti þess að þeir muni gera sín innkaup hér í einhveijum mæli.“ Hverjir eiga Borgarkringluna? „Hluthafarnir eru fjölda margir, Þeir sem eiga meira en 1% eru BM Vallá, ísafoldarprentsmiðja, Leó Löve lögfræðingur, Gunnar Guð- mundsson lögfræðingur, Halldór Guðmundsson arkitekt, Verkfræði- stofa Stefáns Ólafssonar, Blikk og Stál , BYKO, Byrgi hf., Gunnar Geirsson bóndi á Vallá, Jónas Sveinsson viðskiptafræðingur, Dem- antshúsið í Hafnarfirði, Teiknistofan Ármúla, Lífeyrissjóður lækna, Magnús og Steingrímur byggingar- verktakar, Raf-Ex hf., Álstoð hf. og Arnardalur sf. Hver er fjármagnskostnaður hússins og hvernig er fyrirtækið fjár- magnað? Heildarkostnaður við frágang hússins er 1,5 milljarður króna. Þar áf eru fjárfestingar vegna verslunar- og þjónustuhlutans um 300 milljónir króna. Allt húsnæði er leigt út, en það hefur verið hluti af stefnu Borg- arkringlunnar að selja einhveija hluta síðar meir hússins og hafa þá verslunareigendur forkaupsrétt." Á neðri hæð hússins er leiga 2.150 kr. á fm, en 1.925 kr. á efri hæð- inni. Segir Víglundur að til að auð- velda verslunareigendum að festa sig í sessi og koma sér fyrir hafi verið ákveðið að veita 25% afslátt af leigunni fyrstu 12 mánuðina og 1'5% afslátt næstu 12 mánuði. Þrátt fyrir að ýmsar hrakspár hafi heyrst úti í þjóðfélaginu um Borgarkringluna er Víglundur ekki á sama máli. „Ég er sannfærður um að við erum að ná þeim markmiðum, sem sett voru í upphafi, að hér er að fæðast blítt og mjúkt verslunar- húsnæði, sem tekur vel á móti fólki," segir hann. SANDUR SIGURSTEINAR VÖLUSTEINAR HNULLUNGAR Við erum komin upp á aðra hæð hússins og í öðrum endanum liggur hlaupa- braut inn í eitt verslunar- rýmið. Víglundur veitir því athygli að ég horfi í forundran á hlaupa- brautina, sem sker sig úr parketgólf- inu, sem þekur göngugötu hússins. „Hlaupabrautin er 65 metrar," segir hann brosandi, „og liggur í gegnum þá allra stærstu íþrótta- og frístund- s avöruverslun sem fyrirfinnst á landinu. Þar eiga allir að geta feng- ið eitthvað við sitt hæfi.“ Þegar við höfum gengið eftir hlaupabrautinni göngum við fram á sérkennilegt grindverk sem lokar eitt verslunarrýmið af og ég spyr Þú færö sand og allskonar grjót hjá okkur. Viö mokum þessum efnum á bíla eöa í kerrur og afgreiöum líka í smærri einingum, traustum plastpokum sem þú setur í skottiö á bílnum þínum. BJÖRGUN HF. SÆVARHÖFÐA 33 SÍMI: 68 18 33 Afareiöslan við Elliðaár er opin: manud. - föstud. 7:30 -18:30 laupardaga 7:30 -17:00 Opið í hádeginu nema á laugardögum. Þetta hús, Kringlan 4-6, læt- ur ekki mikið yfir sér. Það er eins og fólk hafí gleymt því. Ef til vill vegna þess hversu lengi það hefur staðið þarna tilbúið að utan, en lítil umsvif verið þar innanhúss. Það vekur því nokkra undrun þegar inn er komið hversu stórt húsið er í raun og veru. í kjallaranum er veitingastaðurinn Amma Lú og bílageymslur á tveimur hæðum. Á jarðhæð eru tveir aðalinn- gangar, annar sem snýr að Kringl- unni, en hinn út að Kringlumýrar- braut. Tveir aðrir minni inngangar eru einnig á jarðhæðinni, einn sem snýr að Miklubraut og annar minni sem snýr að Kringlumýrarbraut. Sá síðastnefndi verður aðallega notaður til að komast inn í bakarí Sveins bakara um helgar. Þegar við göngum eftir göngugöt- unni bendir Víglundur mér á skærg- ula veggi, sérkennilega skyggða með dekkri litum. „Hefurðu veitt litunum athygli? spyr hann. „Fletirnir eru að vísu ekki margir en þeir verða allir í þessum litum og enginn verð- ur eins. Það er þó nokkur blæbrigða- munur á þeim. Við lögðum á það áherslu strax frá upphafi að Borgarkringlan ætti að verða vinalegur staður, þar sem fólki liði vel. Þess'vegna höfum við lagt áherslu á að nota mikinn við bæði á gólf, í loft og veggi. — Þú verður að athuga það,“ segir hann og lítur árvökulum augum um svæð- ið, „að svona verslunarsamstæða snýst ekki bara um verslun. Fólk kemur hingað mjög mikið til að sýna sig og sjá aðra. Föstudaga og laug- ardaga koma heilu fjölskyldurnar í Kringluna til að gera helgarinnkaup og líta í búðir. Þegar innkaupum er lokið fær fólkið sér jafnvel að borða eða sest niður yfir kaffibolla. Við heyrum það líka frá afgreiðslufólki í Kringlunni, að þangað komi fólk fyrir helgar og líti á vörurnar. Síðan kemur það á mánudeginum og gerir innkaupin." Nú er engin matvöruverslun í Borgarkringlunni og margar versl- anir verða svipaðar þeinv sem fyrir eru í Kringlunni. Er þetta ekki óþörf viðbót? Þú verður að átta þig á því, að þessi viðbót er aðeins tæplega 1% af öllu verslun- arrými á höfuðborgar- svæðinu," svarar Víglundur. „Það er bara tekið meira eftir því vegna þess að hér opna margar verslanir í einu.“ En hvað um gamla miðbæinn? „Ég held að gamli miðbærinn eigi eftir að ganga í sína endurnýjun líf- daga aftur, en þá verða menn að hugsa stórt og djarft. Það er mikið af verslunarhúsnæði í bænum, sem byggt var um aldamótin og fram til ársins 1950. Það er ósköp eðlileg þróun að verslunarhúsnæði gangi úr sér með tímanum og nýtt sé byggt í staðinn. Það er líka eðlilegt að byggja hér í nýja miðbænum. Miðpunktur Reykjavíkur er að færast og Kringl- usvæðið er mjög miðsvæðis,_ hvort sem litið er til Hafnarfjarðar, Árbæj- ar, Breiðholts eða Seltjarnarness. Þá má ekki gleyma því,“ bætir hann við, „að verslunarhúsnæði af þessu tagi er afleiðing alþjóðlegrar þróunar. Hér á landi, þar sem veðr- áttan er misjöfn, getur verið ákaf- lega þægilegt fyrir fólk að gera inn- kaup sín innandyra. Ég tel að Borg- arkringlan sé áægtis viðbót við það vöruúrval sem fyrir er í Kringlunni. Ég sé fyrir mér að sama fólkið komi hingað og gerir sín innkaup þar.“ Víglundur Þórsteinsson stjórnarformaður Borgarkringlunnar segir að það sé ótrúlega spennandi að koma upp verslunarsamstæðu. „Sérstaklega hefur það Verið skemmtilegt undanfarið, að sjá starfsmennina þróast frá því að vera hver í sínu horni í það að verða samstilltur hópur,“ sagði hann. 65 fm hlaupabraut liggur í gegnum þá stærstu íþrótta- og frístundavöruverslun sem verður á landinu. Hér sést aðeins hluti af versluninni. hvað eigi að vera hér fyrir innan. „Hérna verður opnuð leikfanga- verslun í haust,“ svarar hann. „Fram að þeim tíma verða hér ýmsar kynn- ingar. BM Vallá ríður á vaðið og hér verður útbúinn enskur garður. Þar verða til sýnis ýmsar þær vörur sem fyrirtækið framleiðir, auk þess sem hægt verður að njóta þjónustu garðyrkjufræðings og landslagsarki- tekts. Í byijun júlí tekur síðan annað fyrirtæki við.“ Við förum aftur niður á neðri hæðina og það er eins gott að gæta að því hvar fæti er stigið niður. Ég hafði nærri gengið á málningarfötu, sem stóð á milli tveggja málara. Þeir fengu alla mína samúð, þar sem þeir reyndu að mála loftið, en sífelld- ur umgangur gerði þeim erfitt fyrir. Aflokað glerhýsi blasti við okkur. Hvað verður þarna? spurði ég. „Þarna verður Nýja kökuhúsið með kaffíhús. Þeir eru reyndar með tvo aðra staði hér í húsinu, annars vegar expresso- eða mokkabar og hins vegar heilsu- og súpubar." Eftir skoðunarferðina um hús- næðið settumst við niður yfir kaffi- bolla á Kringlukránni. Þetta hús, Kringlan 4-6, lætur ekki mikið yf ir sér. Það er eins og fólk hafi gleymt því. Ef til vill vegna þess hversu lengi það hef- ur staðið þarna tilbúið að utan, en lítil umsvif verið þar inn- anhúss. Það vekur þvl nokkra undr- un þegar inn er komið hversu stórt húsið er í raun og veru.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.