Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 18
ei 18 reeí íam .;»s auoAQimnug QigAjaMUOHOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1991________________________ I „Ég er sannfærður um að við erum að ná þeim markmiðum, sem sett voru í upphaf i, að hér er að fæðast blítt og mjúkt verslunarhúsnæði, sem tekur vel á móti folkiy“ segir Víglundur Þor- steinsson stjórnarformaður Borgarkringlunnar í samtali við Morgunblaðið. eftir Hildi Friðriksdóttur AÐEINS sex dagar eru þang- að til nýja verslunarmióstöð. Borgarkringlan, verður opn- uð í nýja miðbænum. Þetta húsnæði sem hefur staðið svo lengi autt og nónast dautt er að fyllast lífi. Þegar blaða- maður gekk um verslunar- samstæðuna síðastliðinn miðvikudag, í fylgd Víglundar Þorsteinssonar stjórnarfor- manns Borgarkringlunnar, var dólítið erfitt að ímynda sér að aðeins væri rúm vika til stefnu. Og þó — allt var á fullu. Verið að logsjóða, leggja gólfefni, mála og smíða. Ábúðarfullir menn og konur gengu hröðum skrefum endanna á milli. Mér datt helst í hug nafn á leikriti, sem sýnt var fyrir nokkrum árum, Allt að veróa vitlaust. „Svona lítur nú verslunarmiðstöð út í fæóingu," sagði Víglundur, þar sem við gengum á milli rafmagnssnúra og plastdúka. „Nú eru líklega hátt í tvö hundruð manns að vinna hérna, ef bæði eru taldir iðn- aðarmenn og verslunarfólk. Það er alveg ótrúlega spenn- andi reynsla að koma upp verslunarmiðstöð,'1 bætir hann við af miklum áhuga. „Sérstaklega hefur það verið skemmtilegt undanfarið, að sjá starfsmennina þróast frá því að vera hver í sínu horni í það að verða samstilltur hópur." Morgunblaðið/KGA Borgarkringlumenn segjast hafa lagt á það áherslu frá upphafi að gera verslunarhúsnæðið hlýlegt og notalegt, þar sem fólki muni líða vel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.