Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 26.05.1991, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ FOLK V FRETTUM SUNÍtóÚÁGUR 26. MAÍ 1991 *,v m Frá sýningu Ferðaleikhússins. LEIKLIST Ferðaleikhúsið hefur starfað í aldarfjórðung Ferðaleikhúsið, sem þekktast hefur verið fyrir „Light nights" er nú að fara af stað 25. árið í röð og má segja að þar fari órjúfanlegur hlekkur í ferðaþjón- ustu landsmanna, en Ferðaleikhúsið er sniðið fyrst og fremst að erlend- um ferðamönnum. Þar er boðið upp á þjóðlegar sýningar þar sem kenn- ir.margra grasa. „Við verðum með fyrstu sýinguna 20. júní og æfingar eru að fara af stað. Okkur vantar enn einn karileikara og því erum við enn ekki komin á fullan skrið,“ sagði Kristín G. Magnús leikkona í samtali við Morgunblaðið, en hún rekur Ferðaleikhúsið ásamt eigin- manni sínum Halldóri Snorrasyni og syni þeirra Magnúsi Snorra. Kristín sagði að alls væru 25 at- riði, dans, leikur og látbragð, á sviðinu og væri bæði um þjóðsögur og skírskotanir til víkingatímans að ræða. Þá fengju álfar, tröll og aðrar hulduverur sinn skammt og sannast sagna færu leikararnir j allra kvikinda líki. Kristín er sögu- maður og leiðir áhorfendur í gegn um aldirnar ef svo mætti að orði komast. „Þess má líka geta,“ sagði Kristín, „að á sýningunni nú verðum við með 3x4 metra tjald sem er sérhannað í Bretlandi. A það verður varpað skyggnum sem samlagast efninu og gæða það meira lífi.“ Alls taka herlegheitin tvær klukkustundir og er prógrammið stíft, því sumarið á enda verður Ferðaleikhúsið með sýningar öll kvöld í Tjarnarbíói frá fimmtudegi til sunnudags. VORLINAN AIIKUG4RDUR HF. Borgar- börnin upp- lifa sveita- sæluna Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson. NÁTTÚRAN Allt a utopnu í hlöðunm. Setið að indjánasið.... Sagt er að maðurinn megi ekki gleyma eða fjarlægjast um of uppruna sínum. Halda verður tengslum við nátt- úruna og ekki ganga út frá því að malbikið sé hið rétta og eðli- lega umhverfi mannsins. Rétt- ara mun að sveitin sé það ef horft er langt aftur um öxl. Á vori hveiju, er náttúran vaknar af værum og löngum blundi eft- ir misharða vetur, fara ýmsir á kreik, bæði menn og málleys- ingjar. Ómissandi er það fyrir yngstu kynslóðina að heimsækja sveitabæi og skoða lömbin, hænsi og kýrnar svo ekki sé minnst á tækifærið sem gefst til þess að ólmast í hlöðunni. Börnunum er séð fyrir þessari frumþörf í leikskólum Borgar- innar. I fyrra var Gijóteyri í Kjós heimsótt, en í ár var það Kiðafell í Kjós þar sem börnin geta skoðað allt það sem að landbúnaðinum lýtur, meira að segja laxaseiði sem til stendur að sleppa í Kiðafellsá, sem er nokkurs konar bæjarlækur. Myndirnar tala sínu máli. Þær sýna er börn frá Grænuborg heimsóttu Kiðafell og upplifunin er augljós... Meee. „Tvímennt er úr hlaðinu....“ _ t lliiunifih

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.