Morgunblaðið - 26.05.1991, Page 4
ERLENT
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
INNLENT
Halli ríkis-
sjóðs lækkaður
um 6 milljarða
Friðrik Sophusson, fjármála-
ráðherra, lagði fram skýrslu um
stöðu ríkisfjármála og fyrirhugað-
ar aðgerðir, fyrir Alþingi á mið-
vikudag. Stefnt er að því að draga
saman iánsfjárþörf ríkisins um
fjóra milljarða.
Einnig var samþýkkt tillaga
Húsnæðismálastofnunar um að
hækka vexti í gamla húsnæðis-
lánakerfinu í 4,9%. Er ráðgert að
þetta muni skila sér í um tveggja
milljarða minni lánsfjáreftirspurn
ríkisins.
Vextir á spariskírteinum ríkis-
sjóðs voru hækkaðir um 1,5-1,9%
á þriðjudag. Bankarnir undirbúa
nú ákvarðanir um breytingar á
vaxtakjörum í kjölfar þessara
vaxtahækkana og er fastlega
búist við svipuðum hækkunum af
þeirra hálfu.
Spara á 300 m.kr. hjá LÍN
Meðal þeirra aðgerða sem boð-
aðar voru í ríkisfjármálum í vik-
unni er að draga úr lánsfjárþörf
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
um 300 m.kr. á þessu ári. Segir
Ólafur G. Einarsson, mennta-
málaráðherra, að ekki hafi enn
verið ákveðið hvernig þetta verði
gert. Ef þetta markmið næst fram
að fullu getur það þýtt um 20%
lækkun á útlánum sjóðsins. Sam-
starfsnefnd námsmannahreyfíng-
anna kom saman til fundar á
fimmtudag og samþykkti ályktun
ERLENT
Rajiv Gandhi
myrtur
Rajiv Gandhi, fyrrverandi for-
sætisráðherra Indlands, Iét lífíð í
sprengjutilræði á þriðjudag er
hann kom til kosningafundar í
ríkinu Tamil
Nadu í suður-
hluta landsins.
Lögregluyfírvöld
skýrðu frá því að
kona, sem færði
Gandhi blóm við
komuna á fund-
inn, hafí borið á
sér sprengju inn-
anklæða. Auk
Gandhis létu 14 manns lífið. Kom-
ið hafa fram vísbendingar um að
Frelsishreyfing tamílsku tígranna
á Sri Lanka beri ábyrgð á sprengj-
utilræðinu. Því neita talsmenn
hreyfíngarinnar. Forysta Kon-
gressflokks Gandhis samþykkti
einróma að fara þess á leit við
ekkju hans, Soniu, að hún tæki
við flokksforystunni en hún hafn-
aði því kurteislega og sagði að
vegna þess mikla harms, sem
væri kveðinn að sér og börnum
sínum, gæti hún ekki tekið hlut-
verkið að sér. Á þriðja hundrað
manns biðu bana í kosningabar-
áttunni, sem var sú mannskæð-
asta í sögu landsins. Þingkosning-
unum var frestað vegna morðsins
til 12. og 15. næsta mánaðar.
Bálför Gandhis fór fram í Nýju
Delhí á föstudag.
Líbanir og Sýrlendingar
semja um náið samstarf
Elias Hrawi, forseti Líbanons,
og Hafez al-Assád Sýrlandsfor-
seti undirrituðu á miðvikudag
samning um náið samstarf
ríkjanna í efnahags-, öryggis- og
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1991
þar sem þessum áformum er harð-
lega mótmælt.
Húsbréf seld erlendis?
Jóhanna Sigurðardóttir, félags-
málaráðherra, gagnrýndi lífeyris-
sjóðina harðlega í vikunni fyrir
að kaupa lítið af húsbréfum. Seg-
ir hún koma til álita að selja hús-
bréf á erlendum verðbréfamörk-
uðum til að ná niður hárri ávöxt-
unarkröfu sem er á bréfunum.
Formaður Landssambands líf-
eyrissjóða segir að lífeyrissjóðir
muni kaupa húsbréf fyrir 8-9
milljarða króna hið minnsta á
þessu ári. Meira geti þeir ekki
keypt yegna skuldbindinga við
ríkissjóð um lánveitingar til Hús-
næðisstofnunar vegna gamla hús-
næðiskerfisins.
6.300 króna greiðsla í júlí
Launanefndir launþegasamtak-
anna og viðsemjenda þeirra sam-
þykktu á miðvikudag að auk 2%
áfangahækkunar launa 1. júní
greiðist 0,57% vegna verðlags-
ákvæðis kjarasamningana. Því til
viðbótar skuli svo greidd sérstök
6.300 króna greiðsla að meðtöldu
orlofí 1. júlí vegna viðskiptakjara-
bata.
Utlendingar veiða fyrir
milljarð
Verðmæti botn-
fisks sem Færey-
ingar og Belgar
veiða í okkar lög-
sögu í ár er rúm-
lega einn millj-
arður króna mið-
að við meðalverð
á Faxamarkaði
og fískmörkuð-
unum í Hull og Bremerhaven í
vor. Er veiði Færeyinga mun
meiri en veiði Belga. Formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, segir þessar veiðiheimildir
Færeyinga vera út í hött. íslend-
ingar hafi ekki efni á að gefa
þeim þær í lögsögu sinni. Forseti
Sjómannasambandsins segist hins
vegar ekki fetta fingur út í þessar
veiðiheimildir til handa Færeying-
um.
utanríkismálum. Samkvæmt skil-
málunum má stefna Líbana fram-
vegis ekki ganga í berhögg við
stefnu Sýrlendinga en þeir mega
þó búa við frjálst markaðshag-
kerfí og lýðræði. ísraelar for-
dæmdu samninginn og segja hann
ógna öryggi sínu.
Sovéskir hermenn ráðast á
landamærastöðvar
Eystrasaltsríkja
Vopnáðir menn úr sérsveitum sov-
éska innanríkisráðuneytisins réð-
ust á fimmtudag á landamæra-
stöðvar á mörkum Lettlands og
Litháens og einnig stöðvar á
landamærum Sovétríkjanna og
Lettlands. Eistneska fréttastofan
hafði eftir lettneska útvarpinu að
nokkrar stöðvar hefðu verið
brenndar til ösku, verðir og lög-
regluþjónar barðir og einn vörður-
inn væri þungt haldinn á sjúkra-
húsi.
Mengistu Eþíópíuforseti flýr
land
Mengistu Haile Miriam, sem
stjórnað hefur Eþíópíu með harðri
hendi undanfarin fjórtán ár, sagði
af sér embætti
forseta á þriðju-
dag og flúði til
Zimbabwe.
Ríkisráðið,
æðsta valda-
stofnun landsins,
hvatti eþíópíska
uppreisnarmenn
til að fallast þeg-
ar í stað á vopna-
hlé og bauðst til að mynda bráða-
birgðastjórn með aðild allra hreyf-
inga stjórnarandstæðinga. Upp-
reisnarmenn höfnuðu tilboðinu og
héldu áfram stórsókn sinni í átt
að höfuðborginni, Addis Ababa.
Talið var á föstudag að þeir væru
aðeins 30 km frá borginni og er
búist við miklum blóðsúthellingum
verði barist um hana.
Aform um bygging’u nýs
kjamorkuvers í Finnlandi
Hclsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
FINNSK orkufyrirtæki skiluðu í síðustu viku inn beiðni til ríkisstjórn-
arinnar um að fá að byggja fimmta kjarnorkuverið í landinu. Finn-
land er nú eina vestræna ríkið þar sem rætt er um að auka fram-
leiðslu rafmagns með kjarnorku. Eftir kjarnorkuslysið í sovéska
Tsjernobyl-verinu fyrir fimm árum ákvað finnska stjórnin að ekki
yrði tekin ákvörðun um byggingu kjarnorkuvers á því kjörtímabili
sem lauk í vor. Allan þann tíma hafa orkufyrirtæki samt haldið
áfram að undirbúa byggingu kjarnorkuvers og virðast áætlanir nú
tilbúnar.
Þau fjögur kjamorkuver sem nú
starfa í Finnlandi eru af tveimur
gerðum; tvö þeirra eru framleidd í
Sovétríkjunum en hin tvö voru
byggð á vegum sænska fyrirtækis-
ins ASEA. Nú segja kjarnorkuvinir
að eftirspurn eftir kjarnorkuverum
sé svo lök á Vesturlöndum að
Finnar eigi kost á að gera góð kaup.
Afstaða Finna til kjarnorku er
mjög sundrað. Forsprakkar iðnað-
arins hafa bent á það að iðnaðar-
framleiðsla geti ekki staðist sam-
keppniskröfur án þess að iðnaður-
inn fái ódýrt rafmagn. Þar sem
orkuver sem brenna kolum eða olíu
menga talsvert hefur kjarnorkunni
verið lýst sem valkosti umhverfis-
vemdar. Andstæðingar kjarnorku
benda hins vegar á slysahættu og
vanda við að geyma geislavirkan
úrgang úr verunum.
Þjóðþing Finna mun taka endan-
lega ákvörðun í málinu að fengnu
frumvarpi frá ríkisstjórninni. Mikil
óvissa ríkir hins vegar um úrslitin,
því stjómmálaflokkar hafa orðið að
fallast á að leyfa þingmönnum
sínum að greiða atkvæði án tillits
til flokksaga í þessu viðkvæma máli.
Þróun er fleira en
þjóðartelgur á mann
Jápanir eru þróaðasta þjóð heims samkvæmt nýju mati Þróunar-
áætlunar Sameinuðu þjóðanna.
SAMKVÆMT nýrri skýrslu sem
gerð er á vegum Þróunaráætl-
unar Sameinuðu þjóðanna er
Island í 2.-3. sæti ásamt Kanada
á Iista þar sem þróun ríkja er
metin. Einungis Japanir eru
taldir búa í þróaðra samfélagi
en íslendingar.
etta er í annað sinn sem Þróun-
aráætlunin (UNDP) gerir
lista af þessu tagi yfir öll ríki heims
þar sem þeim er raðað eftir þróun-
arstigi. Japan er efst eins og áður
segir og Sierra Leone er neðst.
Það kann að virðast óvinnandi veg-
ur að leggja mælistiku á þróun
mannlegra samfélaga. Þetta er þó
nauðsynlegt fyrir stofnanir á borð
við Sameinuðu þjóðirnar sem vilja
meta hvem árangur þróunaraðstoð
hefur borið. í 1. kafla skýrslunnar
segir að fram til þessa hafí þjóðar-
framleiðsla og hagvöxtur verið
helstu mælikvarðamir á þróun
ríkja. Þetta sé augljóslega ófull-
nægjandi. Það sé mikil einföldun
að setja jafnaðarmerki milli þróun-
ar og hagvaxtar.
UNDP hefur einsett sér að ráða
bót á þessu og fá betri mælikvarða
á þróun ríkja. Eins og gefur að
skiljaer þetta geysiflókið viðfangs-
efni. í fyrsta lagi þarf að taka til-
lit til allra hugsanlegra lífsgæða
hvort sem þau eru andleg eða ver-
aldieg og í öðru lagi þarf að ákveða
hversu þungt hver gæði eigi að
vega. Höfundar skýrslunnar leggja
til grundvallar ákveðna hugmynd
um hvað felist í
þróun mannfé-
lags. Samkvæmt
henni eru helstu
markmið þróun-
ar mannfélags
að auka valkosti
einstaklinganna, m.ö.o gefa þeim
kost á að njóta lífsgæðanna. Lífs-
gæðin sem mið er tekið af eru þau
að einstaklingarnir eigi þess kost
að afla tekna, stunda vinnu,
menntast, varðveita heilsu sína,
búa við hættulaust umhverfí, taka
þátt í ákvörðunum samfélagsins
og njóta mannréttinda.
í fyrstu skýrslu UNDP var
kynnt til sögunnar þróunarvísitala, -
tölulegur mælikvarði á þróun rílqa.
Þrír þættir höfðu áhrif á vísi-
töluna, þjóðartekjur á mann, líf-
slíkur og læsi. Nú hefur vísitalan
verið endurbætt og meðalskóla-
göngu bætt við. í fyrstu skýrsl-
unni töldust tekjur yfír fátæktar-
mörkum ekki með en nú hefur
verið úr því bætt á þann veg að
slíkar tekjur hafa stigminnkandi
vægi.
Það kemur í ljós að hjá mörgum
ríkjum er staða þeirra samkvæmt
þjóðartekjum á mann mun hærri
en samkvæmt þróunarvísitölunni.
Af þessu draga skýrsluhöfundar
þá ályktun að þessi ríki gætu var-
ið tekjum sínum betur til þess að
auka velferð, t.d. dregið úr hemað-
arútgjöldum.
Einnig er í skýrslunni lagður
grunnur að frekari endurbótum
þróunarvísitölunnar. Tilraunir eru
gerðar með að
taka tillit til
tekjudreifingar í
ríki, þ.e. ef mikið
djúþ er staðfest
milli ríkra og fá-
tæka lækkar
vísitalan. Einnig er reynt að meta
mannréttindaástand og ef það er
slæmt lækkar það vísitöluna fyrir
viðkomandi ríki. Loks má nefna
að búnar eru til sérvísitölur fyrir
karla og konur og munurinn þar
á reiknaður inn í lokavísitöluna.
Mikill munur á stöðu karla og
kvenna lækkar því þróunarvísi-
töluna. Það skal tekið fram að
þessar tilraunir eru gerðar á völd-
um hópi ríkja og ísland er ekki í
þeim hópi.
Besta leiðin að mati UNDP til
að efla þróun er að stuðla að aukn-
um þjóðartekjum og tryggja náið
samband milli þjóðartekna og vel-
ferðar. Markmið hagvaxtar ætti
að vera að auka möguleika fólks
á því að eiga hlutdeild í gæðum
samfélagsins og auka svigrúm fyr-
ir frumkvæði einstaklinganna,
hagvöxtur ætti að dreifast vely
þannig að hann kæmi öllum til
góða og loks má hann ekki vera
á kostnað komandi kynslóða (þ.e.
þróunin verður að vera sjálfbær).
Markmiðum þróunar verður ekki
náð með hagvexti einum saman
en oft er þróun ómöguleg án hag-
vaxtar, segir í skýrslunni.
Eins og áður segir lendir ísland
í 2.-3. sæti ásamt Kanada á þróun-
arlistanum. Einungis Japanir eru
ofar. Þegar skyggnst er á bak við
tölurnar kemur í ljós að flest iðn-
ríki heims era talin hafa 99% læsi.
Þjóðartekjur á mann á árunum
1985-1988 era 13.650 Banda-
ríkjadalir í Japan, 17.680 dalir í
Kanada og 16.820 Bandaríkjadalir
á Islandi. En þar sem lítið tillit er
tekið til tekna yfir fátæktarmörk-
um verður þessi munur ekki afger-
andi. Meðalskólagangan kemur
hins vegar verst út fyrir íslendinga
í samanburði þessara þriggja
landa. Þar eru um að ræða þann
árafjölda að meðaltali sem allir
íslendingar hafa gengið í skóla í
raun en ekki skólaskyldu. Tölur
eru frá árinu 1980 og kynni því
niðurstaðan að verða önnur ef töl-
urnar væru nýrri. Kanadamenn
hafa að meðaltali verið Us4 ár í
skóla, Japanir 10,4 ár og Islend-
ingar 7,5 ár.
Lífslíkur Japana við fæðingu eru
78,6 ár, Kanadamanna 77 ár og
íslendinga 77,8 ár.
Það liggur í augum uppi að þró-
un er mun margbrotnari en hægt
er að koma til skila með mælingum
af þessu tagi. Aldrei verður hægl
að leggja endanlegan mælikvarða
á þróun samfélaga. Sú vísitala sem
nefnd hefur verið til sögunnar er
því ekki nema vísbending.
BAKSVIÐ
eftir Pál Þórhallsson