Morgunblaðið - 26.05.1991, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAI 1991
n
ieei íam .as hijdaquvikub gigajbmuðhom Oí
• Keypturkvóti
færður sem
eign í bók-
haldi útgerða
/
• Agreiningur
milli skattayfir-
valda og
endurskoð-
enda um af-
skriftarreglur
ó keyptum
kvóta
• Engin ókvæði
í löggjöf um
kvóta nó yfir
viðskipti með
hann
• Fjórmóla-
róðuneytið
vinnur að út-
tekt ó við-
skiptum með
kvóta þar
sem skatta-
meðferðin er
athuguð sér-
staklega
kaupir og tekjufærð hjá þeim sem
selur. Oftast er um að ræða kvóta
innan ársins en hann gæti skipst
á fleiri en eitt ár og er hann þá
gjald-og tekjufærður í samræmi
við það hvenær rétturinn er notað-
ur.“
Þegar ríkisskattstjóri íjailar um
kaup á varanlegum kvóta kemur
annað hljóð í strokkinn. Hann seg-
ir m.a.: „Vandamál er hinsvegar
varðandi hvernig fara eigi með
kaup á svokölluðum framtíðark-
vóta. Sú afstaða hefur verið tekin
af hálfu ríkisskattstjóra að þegar
slík réttindi eins og veiðiheimildir
eru keypt beri að eignfæra þau á
kostnaðarverði í efnahagsreikn-
ingi og að fallast megi á að fyrna
þau. Talið hefur verið eðlilegt að
fyrningarhlutfallið væri 8% eða
það sama og er vegna skipa og
skipsbúnaðar..." Síðar í bréfinu
segir að með tilliti til þess að veiði-
heimildir eru réttindi sem tengjast
skipunum hefur ríkisskattstjóri
tekið þá afstöðu að þessi réttindi
skuli eignfæra og fyrna en aflak-
vóta beri ætíð að tengja því skipi
sem hann er fluttur til þrátt fyrir
að honum sé haldið aðskildum sem
fyrnanlegri eign.
Fleiri spurningar en svör
Hallgrímur Þorsteinsson endur-
skoðandi var í forsvari vinnuhóps
endurskoðenda sem fjölluðu um
skattameðferð kvótakaupa á
síðastliðnu ári. Hann segir að þar
sem löggjöf vanti algerlega um
þessi mál séu spurningamar fleiri
en svörin. „Maðkurinn í mysunni
er sá að löggjöfin gerði ekki ráð
fyrir þessari verslun með kvótann
og því er ekki þar að finna neina
meginreglu til að fara eftir,“ segir
Hallgrímur. „Málið er því við-
kvæmt en þegar við lögðum okkar
grundvallarreglur um fyrningu
eða afskriftir á fimm árum, var
höfuðröksemdin sú óvissa sem
ríkir um kvótann, það er að lögin
ná aðeins til tveggja ára og þau
ber að endurskoða.“
í þeirri tillögu vinnuhópsins sem
íjallar um keyptan kvóta segir
m.a.: „Gert er ráð fyrir að öll
kvótaréttindi sem keypt em og
fela í sér réttindi til frambúðar
verði eignfærð sérstaklega. Verið
er að kaupa ákveðin réttindi til
nýtingar auðlindar sem er sameign
íslensku þjóðarinnar... Þegar kvóti
er keyptur til frambúðar er hann
verðlagður og liggur þá fyrir mat
á þessum verðmætum. Um er að
ræða réttindi til ákveðinna veiða
um næstu framtíð. Þrátt fyrir að
um sé að ræða óviss réttindi sem
tengd eru mikilli áhættu vegna
takmörkunar laga um fiskveiði-
heimildir, endurskoðunarákvæði í
lögum um stjórn fiskveiða, stærð
fiskistofna auk annarra atriða,
verður að telja rétt að eignfæra
þessi réttindi þegar þau eru keypt
og ætluð til frambúðarnota. í sam-
ræmi við meðferð á hliðstæðum
keyptum réttindum í reiknings-
skilahaldi hér á landi og erlendis
og með hliðsjón af því verði sem
almennt hefur verið miðað við í
viðskiptum með aflakvóta, er
hæfilegur. afskriftartími slíkra
réttinda talinn vera fimm ár.“
í bókhaldi útgerða er aðeins
keyptur kvóti skráður sem eign
en úthlutaður kvóti skráður sem
réttindi. Hallgrímur segir að það
sé spurning hvort ekki eigi að
gjaldfæra öll kaupin strax á því
ári sem þau fara fram. Sem dæmi
um spurningar sem ekki fást svör
við nefndi Hallgrímur hvernig
meðhöndla ætti kaup á 100 tonn-
um sem svo kannski yrðu 80 tonn
við úthlutun kvóta ári seinna. Eða
kaup á skipi sem er bókfært á 10
milljónir króna en þegar búið er
að selja kvóta þess dettur verðmæ-
tið niður í 1 milljón. Dæmi sem
hægt er að taka eru nánast ótelj-
andi. Hallgrímur segir einnig að
nú sé eitt mál tengt kvótakaupum
til meðferðar hjá Ríkisskattanefnd
og sé beðið niðurstöðu hennar.
Hjá nefndinni fengust ekki upplýs-
ingar um það mál þar sem það
væri nú statt einhvers staðar í 800
mála biðröð hjá embættinu.
Garðar Valdimarsson ríkis-
skattstjóri er óhress með að ekki
skuli vera til nein löggjöf til að
fara eftir í þessum málum. Hann
segir í samtali við Morgunblaðið
að embætti hans verði að túlka
skattameðferð þessara kaupa eftir
þeim lögum sem í gildi eru. Vanda-
málið sé hinsvegar að enga hlið-
stæðu sé að finna í íslenskri lög-
gjöf nema þá helst fullvirðisréttinn
í landbúnaði. „Þessum málum þarf
að koma í viðunandi horf sem
fyrst,“ segir hann.
Virðisaukaskattur
Sú spurning hefur vaknað hvort
viðskipti með kvóta séu ekki skatt-
skyld samkvæmt lögum um virðis-
aukaskatt og hefur ríkisskatt-
stjóra borist erindi um að.skera
þar úr um en bæði var spurt um
leigu til eins árs og sölu til fram-
búðar. í svari sínu segir ríkisskatt-
stjóri að skattskylda samkvæmt
lögum um virðisaukaskatt nái til
hvers kyns vöru og verðmæta
hveiju nafni sem hún nefnist og
sé framsal óefnislegra réttinda þar
með. Gildi það því að áliti ríkis-
skattstjóra m.a. um sölu eða leigu
á kvóta og skipti ekki máli þótt
réttindi þessi séu að stofni til leyfi
veitt af hinu opinbera. Hinsvegar
byggisy löggjöf um stjórn fisk-
veiða á því að kvóti sé bundinn
ákveðnu skipi og sú meginregla
sé að kvóti fylgi skipi við eigenda-
skipti þess. Samkvæmt lögum um
virðisaukaskatt sé sala og útleiga
skipa undanþegin skattskyldri
veltu og túlkun ríkisskattstjóra er
því sú að það ákvæði nái einnig
til kvótans. Samkvæmt því beri
ekki að reikna útskatt á sölu eða
leigu aflakvóta hvort sem er til
skemmri eða lengri tíma.
Uttekt fjármálaráðuneytisins
Á vegum fjármálaráðuneytisins
er nú unnið að úttekt á viðskiptum
með kvóta og er í þeirri úttekt
lögð sérstök áhersla á skattaþátt
málsins. Snorri Olsen skrifstofu-
stjóri fjármálaráðuneytisins segir
að áætlað sé að þessari úttekt
verði lokið í sumar en tveir lög-
fræðingar vinna að henni.
„Ástæðurnar til að ráðuneytið
ákvað að gera þessa úttekt eru
einkum að ráðuneytið átti sig á
hinni lagalegu hlið málsins en hún
er mjög óljós,“ segir Snorri. „Einn-
ig má líta á að við séum að gefa
lögfræðingum okkar kost á að
sinna fræðistörfum með þessari
vinnu.“
Á eigiii vegiini...
en með farseðlum
gé f mr • -m
ii ci Verold
Betrí valkostirí áætlunarfíuginu
✓ Fleiri áfangastaðir
✓ Daglegt flug
Barnaafsláttur
✓ Flug til einnar borgar
og heim frá annarri
t.d. til Luxemborgar
og heim frá Salzburg
til Glasgow
og heim frá London
til Stokkhólms og heim
frá Kaupmannahöfn.
Hagstæð fargjöld
í sumarleyfið
um Amsterdam
Róm kr. 44.660,
Mílanó kr. 44.660,-
Feneyjar kr. 46.860,-
Búdapest kr. 49.350,-
Prag kr. 51.450,-
Tel Aviv kr. 44.730,-
Kaíró kr. 48.300,-
Bangkok kr. 86.100,-
Sérhæft starfsfólk okkar annast bókanir á
hótelum, bilaleigubílum, erlendum
flugfélögum, í leikhús á tónleika eða
íþróttaviðburði.
FLUGLEIÐIR
VERÖLD LEGGUR HEIMINN AÐ FÓTUM ÞÉR
M R fl A M10 SI n (IIN
laiaariii
AKUREYRI
Tölvutækni - Bókval hf.,
Kaupvangsstræti 4,
sími 96-26100.
AUSTURSTRÆTI17, SIMI: (91)622011 & 622200
VESTMANNAEYJAR KEFLAVÍK ÍSAFJÖRÐUR AKRANES SELFOSS
Friðfinnur Finnbogason, Aðalstöðin hf., Bilasalan Elding sf., Ásgeir R. Guðmundsson, Austurgarður,
Eyjabúð, Hafnargata 86, Skeiði 7, Garðalundi 2, Austurvegi 56
sími 98-11450/11166. sími 92-11518. sími 94-4455. sími 93-12800. sími 98-21626/22551