Morgunblaðið - 26.05.1991, Side 15

Morgunblaðið - 26.05.1991, Side 15
MORC,Ut\BLAQIJ) SUXN4DA(;,UJif 26,,MA lf > orði, þegar lýst var yfir vopnahléi. Það virðist þurfa að minna á þá staðreynd, sem varla ætti að vera gleymd eftir svo skamman tíma, að allt fram á síðustu stundu styijald- arinnar héldu æðstu embættismenn bandarísku ríkisstjórnarinnar áfram að fullvissa Bandaríkjaþing og allan heiminn um að eina markmið okkar væri að hrekja íraska innrásarher- inn út úr Kúveit. Þegar því mark- miði var náð, hefði Bandaríkjafor- seta reynzt ógerlegt að afla sér stuðnings heima og erlendis fyrir áframhaldandi stríði, jafnvel þó að hann hefði viljað það. Þótt einhveijir vilji gefa sér það, að yfirburðasigur okkar hafi gert ríkisstjórnina rökhelda og ómót- tækilega fyrir utanaðkomandi gagn- rýni, hefði róleg íhugun um þjóðar- hagsmuni leitt til sömu niðurstöðu: Að ljúka stríðinu þar og þá. Því að hafi það verið forræði einhverrar róttækrar ríkisstjórnar yfir Persa- flóasvæðinu, sem ógnaði mikilvæg- um hagsmunum Bandaríkjanna (en það var aðalástæða íhlutunarinnar), höfðum við næstum jafnmikið að óttast frá íran og frá írak, einkum þegar við minnumst hinna fjöl- mennu byggða shítatrúarmanna í Kúveit og meðfram landamærunum við Sádí-Arabíu. Þar að auki er ekki endilega víst, að framhald á stríðinu hefði reynzt Kúrdum neitt sérstakt hjálpræði. írakar börðu uppreisn þeirra misk- unnarlaust niður með herliði, sem hafði allan tímann setið um kyrrt þar nyrðra, þótt barizt væri syðra. Framlenging á stríinu gæti mun fremur hafa hagnazt uppreisnar- mönnum shíta í Suður-írak, þar sem landsmenn murkuðu lífið úr leifum úrvalssveita Saddams, lýðveldis- vörðunum, sem eftir voru í suður- hluta landsins. Hefði lýðveldi shíta verið sett á fót með náin tengsl við trúbræður landsmanna í íran og með Basra að höfuðborg, sem afleið- ing af framlengdu stríði, væri Bandaríkjastsjórn án nokkurs vafa ásökuð um það nú að hafa endurtek- ið mistökin, sem henni urðu á í styij- öld írana og íraka: Þ.e. að styðja einn gráðugan varginn of mikið gegn öðrum óseðjandi. Bandaríkjastjórn veðjaði á það, að heimkomnir írakar úr stríðs- fangabúðum bandamanna hefðu nægan kraft og samtakamátt til þess að steypa harðstjóranum \ Bagdad, og að ný ríkisstjórn í írak gæti síðan leyst þjóðemis- og trúar- bragðaminnihlutavandamál. Þetta mat var í sjálfu sér ekki óskynsam- legt, en óskhyggja átti samt of mik- inn þátt í mótun þess. Menn hefðu átt að gera sér ljóst, að sérhver til- högun á valdajafnvægi við Persa- flóa, sem ætti að eiga sér framtíðar- von, yrði óveijandi stjórnmálalega og siðferðilega, meðan gert væri ráð fyrir einhveijum völdum Saddams í þeirri tilhögun, jafnvel aðeins um stundarsakir. Um leið og ljóst varð, að uppreisnir voru að blossa upp um allt írak, átti þess vegna tafar- laust að binda vopnahlé því skil- yrði, að Saddam veltist úr valda- sessi. Væri það hins vegar talið ógerlegt, átti að setja tilflutningum á hersveitum íraka mjög þröngar skorður undir ströngu eftirliti. Það var fullgilt markmið að halda írak í heilu lagi, til þess að koma í veg fyrir, að valdatómarúm mynd- aðist á svæðinu. Þetta var marg- ítrekað fyrir sóknina til frelsunar Kúveits og einnig, meðan á henni stóð. Þessasr yfirlýsingar liggja að baki ófýsi bandamanna og tregðu við að blandast í innanríkismál Ir- aks. Hins vegar hefur hinn algeri ósigur Bagdadstjórnarinnar leitt til þess, að erfitt er að standa við þær fullkomlega. Þessar yfirlýsingar eru reyndar líka í ósamræmi við ákvörð- unarályktun Sameinuðu þjóðanna nr. 687, þar sem kveðið er á um vopnahléð, því að afvopnunarskil- málana er einungis hægt að upp- fylla með mjög nákvæmu, alþjóð- legu eftirliti innan landamæra ír- aks. Við þetta bætist, að hinn hraði heimflutningur bandarískra her- sveita hefur smám saman dregið úr eða þurrkað með öllu út trú manna á því, að Bandaríkjamenn muni að nýju kippa öllu í liðinn, verði enn á þá kallað. Þetta er alger eftirhyggja. Ég veit ekki um neinn stjórnmálamann, sem getur leyft sér að vera svona vitur eftir á opinberlega, hvað sem hann kann að hugsa, vegna fyrri yfirlýsinga á almannafæri. Svo að við séum fullkomlega heiðarleg, skulum við ekki gleyma því, að allar þessar vangaveltur, umræður og deilur, væru ekki hugsanlegar, nema af því að við höfum notið leið- sagnar og forystu Bandaríkjafor- seta. Það er hann, sem öðrum mönn- um fremur á þakkir skildar fyrir að hafa rekið Iraka burtu frá Kú- veit og frelsað íbúana þar úr ánauð, fyrir að hafa dregið vígtennurnar úr skolti harðstjórans í Bagdad og veikt hernaðargetu hans, fýrir að hafa verndað hófsamar ríkisstjómir í Arabalöndum og fyrir að hafa komið í veg fyrir meiri háttar styij- öld um allt svæðið og ef til vill út fyrir það. En of mikið fortíðargrufl er ekki leiðarvísir til framtíðarinnar. Við lif- um í nútíðinni, í núinu. í nýrri leið- sögubók finnst mér, að eftirfarandi meginreglur eigi að vera feitletrað- ar: Hemaðarleg þátttaka vest- rænna þjóða getur ekki verið opin í báða enda. Eigi hermenn frá Vesturlöndum að verða þarna um kyrrt til þess að vernda framtíðar- flóttamannabúðir til frambúðar, munu þeir fljótlega einangrast stjórnmálalega. Þegar írak fer að rísa á fætur og endurheimta mátt sinn, mun það án efa fara að áreita herlið bandamanna. Víst má einnig þykja, að Kúrdar muni standa fast í vegi fyrir öllum tilraunum til að hindra, að flóttamannabúðirnar verði notaðar sem höfuðbækistöðvar skæruliða. Þann veg munu banda- menn skjótt lenda milli tveggja elda. Núna fagna íranir og Tyrkir því, að ráðstafanir skuli gerðar til þess að flytja kúrdíska flóttamenn frá landamærum þeirra, en síðar gætu ieir breytt um skoðun til að kæfa fæðingu hugsanlegar afleiðingar iess, að Kúrdar hafi fasta búsetu í flóttamannabúðum undir hlífiskildi hermanna frá Vesturlöndum. Ýmis- iegt af þessu tagi gæti gerzt, og væru vestræn lýðræðisríki þá komin í sams konar klípu sem þau sátu föst í, áður en þau ákváðu að sigla burtu með verndarsveitir sínar frá Beirútborg í Líbanon. Ekki má ætla flóttamönnum Kúrda framtíðarbúsetu í búð- um. Við megum ekki stofnsetja flóttamannabúðir til framtíðar í hinu afskekkta fjalllendi í Norður-írak og endurtaka þar með reynslu Pal- estinumanna af veru í flóttamanna- búðum, sem hefur spilit lífi heillar kynslóðarþeirra. Tilgangurinn með veru bandamanna í norðurhluta ír- aks ætti að vera sá að gera þeim kleift að snúa heim. Vist í flótta- mannabúðum getur af sér vonleysi, sundrungu, herskáa en óraunhæfa landheimtustefnu og ofbeldi. Bandaríkjamenn mega ekki að lok- um standa frammi fyrir tveimur afarkostum og báðum illum: Standi þeir afskiptalausir hjá, verða þeir úthrópaðir svikarar, en að öðrum kosti verða þeir sífellt á hlaupum í hiutverki dómara á vígvelli í borg- arastyijöld. Dómarinn yrði ef til vill að lokum þátttakandi í hildarleikn- um, sem önnur ríki með kúrdíska minnihluta drægjust inn í. Áætlunin um að senda eftirlits- sveitir Sameinuðu þjóðanna til leiks er afskaplega hættuleg. Fasta- fulltrúar í Öryggisráði SÞ eru að ræða samsetningu og sendingu létt- vopnaðra lögreglusveita á svæðið til þess að taka við af sveitum band- amanna. Heimildin fyrir slíkri ákvörðun á að vera sótt í fyrri hjálp- arbeiðni íraksstjórnar til yfirmanns Flóttamannastofnunar SÞ. Ekkert fordæmi er fyrirþví, að hjálpar- beiðni til flóttamannastofnunarinn- ar sé túlkuð á þann veg. Fastafull- trúarnir munu ætla að koma sér undan því að æskja nýrrar, ótví- ræðrar og formlegrar lögheimildar fyrir gerningi sínum, af því að þeir vita ósköp vel, að þá myndu fulltrú- ar kommúnistaríkjanna (Sovétríkj- anna og Kína) næstum örugglega beita neitunarvaldi sínu. En það eru akkúrat sömu eiginleikarnir, er gera þessa þingskapalegu bakdyraleið svo aðlaðandi í hugum sumra (þ.e. að tímabundin hula er dregin yfir ósamrýmanleg markmið), sem gera þessa sniðugu aðferð handónýta stjórnmálalega. Kommúnistastjórn- imar í Kína og Sovétríkjunum vilja skiljanlega forðast að veita fordæmi fyrir afskiptum og íhlutun Samein- uðu þjóðanna í málefni, sem þær telja hrein innanríkismál, en þeim finnst þessi aðferð klókindaleg í bezta lagi. Hún bindur ekki hendur þeirra og bjargar andliti þeirra. I kaupbæti kemur, að vestrænir menn fara af svæðinu, en í stað þeirra kemur lið Sameinuðu þjóðanna, sem auðvelt verður að losna við síðar, þyki þörf á því. Hinir vestrænu bandamenn eru hrifnir af hugmynd- inni um að geta losað hermenn sína úr hinum austrænu flækjuböndum og sent þá heim. En hver yrðu lík- legustu fórnarlömb þessarar hug- myndar? Einmitt fólkið, sem þetta snýst allt saman um og átti að bjarga. Staðfesti Sameinuðu þjóð- irnar ekki sjálfsstjórnarsamning Kúrda við íraksstjórn, og samþykki íraksstjórn ekki formlega eftirlits- skyldu SÞ, mun þessi aðferð, sem fastafulltrúarnir sjá nú fyrir sér, skilja Kúrda og eftirlitssveitir SÞ (þar að auki allsendis ónógarog ófullnægjandi í öllu falli) upp á náð og miskunn Bagdadstjórnarinnar, um leið og hún fer aftur að sækja í sig veðrið, eftir að viðskiptahöml- um og öðru banni hefur verið aflétt. Bandamenn verða nú að krefj- ast þess, að gerður sé samning- ur, sem styðst við alþjóðlega trygg- ingu fyrirþví, að hann sé haldinn, milli Kúrda og íraksstjórnar. Stefna Saddams er öllum ljós. Hann vill ná einhvers konar samningum, sem flýta fyrir brottflutningi útlendra heija frá frak og ryðja burtu hindr- unum fyrir því, að viðskiptahömlum verði aflétt. Þá getur hann rétt efna- hag landsins við og afgreitt Kúrda í snatri einhvern tímann síðar, þeg- ar athygli heimsbyggðarinnar bein- ist að öðrum hlutum. Þess vegna er eina heiðvirða leiðin út úr ógöngunum í Norður-írak sú að veita Kúrdum sjálfsstjórn, sem er örugglega tryggð með alþjóðlegri samningsgerð. Saddam og samning- amenn Kúrda hafa tilkynnt sam- komulag um sjálfsstjórn Kúrda, sem styðst við annað samkomulag frá árinu 1970, en það hafa írakar ekki virt fram að þessu. Þar eð Saddam hunzaði fyrra samkomulagið frá upphafi, væri það meira en lítil fífl- dirfska og glannaskapur að ætla nú að treysta orðum hans einum saman. Meira verður að koma til. Vissulega yrðu meiri líkur á, að nýir samningar yrðu haldnir, stigi Saddam niður úr hásæti sínu og hyrfi úr sjónmáli á stjómmálasvið- inu. Hins vegar er óþarfí að vera sífellt að hvetja til þess, að hann skuli burtu hrakinn úr harðstjóra- sæti sínu. Meðan slíkum hvatning- um fylgir ekki sannfærandi áætlun um það, hvemig það skuli gert, er hætta á, að þetta tal styrki aðeins stöðu hans í hugum manna og veiki tiltrú manna og traust á okkur. Við getum þó viðhaldið viðskipta- hömlum, unz Kúrdar hafa öðlazt sjálfsstjórn. Skömmu eftir að írakar réðust inn í Kúveit dró ég í efa gildi og áhrifamátt viðskiptabanns, þ.e. ef því væri beitt einvörðungu. Það var vegna þess, að ég áleit, að ekki yrði hægt að halda herliði frá okkur úti um langa hríð í Saúdí-Arabíu, eða a.m.k. ekki nógu lengi til þess að það verkaði sem bakhjarl við verzlunarbann. Égtaidi heldur ekki, að bann eitt og sér gæti dregið nægilega úr hernaðarmætti íraka. Styijöldin hefur breytt þessu, því að nú er geta íraka á sviði þjóðarbú- skapar almennt og hernaðar sér- staklega í lágmarki. Viðskiptahöml- ur eru því mun vænlegri til árang- urs nú en áður en átök hófust við frelsun Kúveita. Heimurinn, sem nú er í mótun, hrópar á forystu Bandaríkjanna á mörgum sviðum. Eitt skulum við Bandaríkjamenn gera okkur alveg ljóst: Kjósum við ekki að gera það að ævistarfi okkar um langa fram- tíð að verða annaðhvort góðviljaðir mannvinir á eilífðar-spássértúr um heiminn eða göfuglyndir lögreglu- þjónar, sem gæta heimsbyggðarinn- ar, verðum við hið allra fyrsta að ákvarða forgangsverkefni okkar, þar sem markmið og aðferð hafa eðlilega tengingu. Við verðum líka að ákveða, hveijir raunverulegir hagsmunir okkar eru, sem ekki eru líklegir til að breytast í framtíðinni, þótt flest virðist nú á hverfanda hveli. Framar öðru verðum við að skilgreina nákvæmlega af hinni mestu varúð, hvenær og hvemig við teldum okkur hugsanlega skylt og nauðsynlegt að skerast í leikinn með herafla okkar. Gefum gaum að orð- um stjórnmálamanns eins á síðustu öid, sem sagði: „Vei þeim leiðtoga, sem þjóðinni finnst ekki eins sann- færandi við iok styijaldar og við upphaf hennar." Greinarhöfundur var utanríkisráðherra Bandaríkjanna 1973-1977.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.