Morgunblaðið - 26.05.1991, Side 20

Morgunblaðið - 26.05.1991, Side 20
MÖRGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1991 BO LYKILLINN AÐ EVRÓPUAÐLÖGUN eftir Þórhall Jósepsson mynd: Júlíus Sigurjónsson Menntun. Menntun og meiri menntun er það sem íslend- ingar þarfnast til þess að takast á við aðlögun að þróun Evrópumála, hvort sem sú aðlögun verður með formleg- um hætti í Evrópska efna- hagssvæðinu, EES, eða með öðrum hætti. Þetta segir Stef- án Már Stefánsson, lagapró- fessor við Háskóla Islands, en hann hefur tekið þátt í starfi laganefndar EFTA í EES viðræðunum og nýlega kom út eftir hann bókin Evrópuréttur, sem fjallar um réttarrreglur og stofnanir Evrópubandalagsins. A með- an samningaviðræður milli EFTA og EB um EES eru að nálgast lokastig er verið að þýða þúsundir blaðsíðna af lagabálkum yfir á íslensku. Verði af samningum um EES, þarf að lögtaka þessa bálka að talsverðu leyti, það er, gera þá að íslenskum lögum eða færa íslensk lög til sam- ræmis við þau. Rætt var við Stefán um þessi málefni, hann er fyrst spurður um efni bókarinnar og hvernig Islendingar standa að vígi varðandi þekkingu á Evrópu- rétti. / Eg reyni í þessari bók að vera með eins hlutlægar upplýsingar og hægt er, þannig að menn geti þá sjálfir ályktað, séu bet- ur í stakk búnir til þess,“ segir Stefán. „Sumir hafa allgott vit á þessu nú þegar, sumir minna og aðrir ekki neitt. Því er svo sem ekki að leyna að þessi bók er ef til vill ekki auðveld aflestrar. Menn verða svolítið að liggja yfir þessu. Eg hugsa að hún geti nýst mönn- um vel sem uppsláttarrit. Við getum tekið sem dæmi, að oft er talað um fijálsa atvinnustarfsemi, fijálsa þjónustustarfsemi og ftjálsa fjár- magnsflutninga. Hvað felst í þess- um hugtökum? Þessu er lýst í ítar- Iegu máli ásamt helstu dómum sem gengið hafa. Þarna er tekist á við að skil- Eg verð varvib í kennslu og af vidrcedum við menn að þekking er ekki alltaf mikil. Merfinnst stundum að menn fari ekkert mikið rangt með þegarþeir til dcemis eru að skrifagreinar um þessi mál í Morgunblaðið, hins vegar eru kannski ályktanimar stundum af stjómmálalejnim toga og menn hafa ekki alltafyfirsýnyfirþað kerfi sem EB rétturinn byggirá. Egheldað megi almennt segja, eftirminni reynslu, að enn vantar talsvert áþekkingu. Pað er ekkert annað sem dugar heldur en menntun, menntun og meiri menntun. greina þessi hugtök og fleiri og sýna hvað í þeim felst.“ —Ef ég vil átta mig á um hvað menn eru að ræða þegar talað er um EES eða tvíhliða viðræður, get ég flett því upp í þessari bók? „Nei, það geturðu ekki nema óbeint. Það er vegna þess að undir- titill bókarinnar, Réttarreglur og stofnanir Efnahagsbandalagsins, segir nánar til um efni hennar. Hins vegar eru þessar réttarreglur grundvallarfræði. Hugmyndin var að setja þetta svona fram vegna þess að EES byggir algjörlega á þessari undir- stöðu. EES er afritun af þessum reglum að mörgu leyti.“ —Eru aðrir möguleikar en EES fyrir íslendinga að tengjast EB? „Það eru auðvitað tvíhliða við- ræður, við höfum fríverslunarsamn- ing við EB.“ —Hvað leiða tvíhliða viðræður af sér, fríverslun eða fleira? „Þær geta leitt af sér fleira. Við erum með fríverslunarsamning núna og það er alveg hugsanlegt að taka upp þær umræður og byggja í kring um þær miklu víð- tækara kerfi. Það er hægt að út- víkka fríverslunarsamninginn, láta hann taka til fleiri atriða og byggja upp fleiri stofnanir í tengslum við hann.“ —Er til í dæminu að tvíhliða við- ræður leiði af sér samning annars vegar milli eins ríkis eins og íslands og hins vegar EB og sá samningur jafngildi í reynd að verulegu leyti aðild? Er hægt að ganga svo langt? „Já, það er örugglega hægt að ná samningi sem felur í sér veru- lega nálgun. Það er fræðilega hægt að gera samning sem felur í sér tiltölulega lítil tengsl við EB og allt upp í mjög sterk tengsl við bandalagið." —Þekkirðu dæmi um svona samninga milli ríkja og EB? „Já, það er getið það um í þess- ari bók, það eru samningar sem gert er ráð fyrir meira og minna að leiði til aðildar." —En ríki utan Evrópu? „Já, það eru til svoleiðis samning- ar. Þeir eiga nú kannski ekki að leiða til aðildar, heldur felst oft í þeim stuðningur Efnahagsbanda- lagsins við þessi ríki og stundum þannig að eitthvað gagngjald komi á móti. Að þessu er vikið í bókinni. Hugsanlega má því útvíkka alla slíka samninga. Við erum með tví- hliða samning við Efnahagsbanda- lagið eins og áður sagði og hann fjallar í stórum dráttum um iðnað- arvörur og tolla. Það er auðvitað hægt að útvíkka hann og láta hann ná til svokallaðra jaðarmálefna, launþega, Ijármagns og fleira.“ —Stundum er því haldið fram, að í pólitískri umræðu viti menn ekki hvað þeir eru að segja eða þá að þeir geri ráð fyrir að áheyrendur þeirra viti ekki hvað fjallað er um. Finnst þér vanta á að íslendingar almennt viti um hvað er rætt þegar EB er annars vegar? „Kannski ekki út frá þessum for- sendum endilega, heldur meira þannig að ég verð var við í kennslu og af viðræðum við menn að þekk- ing er ekki alltaf mikil. Mér fínnst stundum að menn fari ekkert mikið rangt með þegar þeir til dæmis eru að skrifa greinar um þessi mál í Morgunblaðið, hins vegar eru kannski ályktanirnar stundum af stjórnmálalegum toga og; menn hafa ekki alltaf yfirsýn yfir það kerfi sem EB rétturinn byggir á. Ég held að megi almennt segja, eftir minni reynslu, að enn vantar .talsvert á þekkingu. Það er ekkert annað sem dugar heldur en menntun, menntun og meiri mennt- un.“ —Þarf þá að taka sérstaklega á í þeim efnum? „Já, mér hefur þó fundist gagn- rýni, sem stundum er sett fram á stjórnvöld, ekki að öllu leyti rétt- mæt. Þau hafa virkilega gert ýmis- legt í þessu skyni, þó menn ein- hvern veginn í pólitískri umræðu vilji stundum gera lítið úr því. Al- þingi hefur þannig gefið út bækl- inga um þetta og dreift. Það hafa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.